Þjóðviljinn - 02.08.1980, Síða 15

Þjóðviljinn - 02.08.1980, Síða 15
Helgin 2.-3. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Minning Séra Sigurður Kristjánsson F. 8.1. 1907 — D. 27.7. 1980 Séra Siguröur Kristjánsson, fyrrverandi prófastur i Isa- fjaröar-prófastsdæmi, andaöist 27. júll s.l. og veröur jarösettur frá Dómkirkjunni næstkomandi þriöjudag. Siguröur varö nimlega 73 ára, fæddur 8. janúar 1907 á Skeröingsstööum i Reykhólasveit vestra. Tvitugur aö aldri lauk hann búfræöinámi á Hólum i Hjaltadal. En hugur hans stóö til meira náms, las þvi utanskóla og varö stúdent frá MA áriö 1937 og Cand.theol. varö hann frá Há- skóla tslands fjórum árum siöar, áriö 1941. Hann var settur sóknarprestur I Hálsprestakalli 30. mai sama ár, en ári slöar fékk hann veitingu fyrir Isafjaröarprestakalli. Prófastur varö hann i Noröur- Isafjaröarprófastsdæmi áriö 1955 og i hinu sameinaöa ísafjaröar- prófastsdæmi áriö 1971. A þessum árum hlóöust á hann ýmis önnur störf, var I yfirkjör- stjórn Vestfjaröakjördæmis 1959- 1974, formaöur Prestafélags Vestfjaröa frá 1954, formaöur Sambands vestfirskra kirkjukóra frá 1964, i sáttanefnd og I skóla- nefnd Isaf jaröarkaupstaöar o.fl. Aöalstarf i slnu gegndi Siguröur til 1. október 1977 er hann lét af þvi fyrir aldurs sakir og flutti þá búferlum hingaö til Reykjavíkur. Séra Siguröur var einstaklega vammlaus og samviskusamur maöur og ávann sér traust og viröingu sóknarbarna sinna. Siguröur kvæntist 3. júli 1954 Margréti Hagalinsdóttur, ljós- móöur, ættaöri úr Grunnvik. Var hjónaband þeirra einkar farsælt. Þau hjónin eignuöust þrjár dæt- ur, Agnesi, Hólmfrlöi og Rann- veigu Sif. Auk þess ólst upp á heimili þeirra sonur Margrétar, Smári. Allur heimilisbragur hjá þeim hjónum var eins og best verður á kosiö og létu þau sér mjög annt um uppeldi og menntun barna sinna. Þannig stundar nú Agnes nám i guöfræöi en hún er gift Hannesi Baldurssyni, verslunar- manni.Hólmfrlöurlauk á s.l. vori prófi I kennslu og einleik á pianó við Tónlistarháskólann i Miinchen. Hennar maöur er Sig- urður Grimsson, kvikmynda- geröarmaöur, en Rannveig Sif, sem er 16 ára dvelur i heimahús- um og stundar menntaskólanám. Smári er liffræðingur aö mennt, kvæntur Helgu Friöriksdóttur, sem einnig er liffræöingur og stunda þau nú framhaldsnám i háskólanum i Osló. Viö Siguröur kynntumst litil- lega á skólaárum minum á Akur- eyri, en fyrir alvöru kynntist ég honum þegar hann varö sóknar- prestur okkar Isfiröinganna áriö 1942. Reyndar kynntist ég honum ekki fyrst og fremst sem sóknar- presti, heldur sem hempulausum einstaklingi sem bjó yfir mörgum þeim mannkostum sem ég met mikils. Hann var mikill mannvinur, einlægur sóslalisti, var trölltrygg- ur og lét hvergi bilbug á sér finna. Einkum var þetta áberandiþegar mest blés I móti og man ég þess mörg dæmi svo sem I kalda strlð- inu foröum. Hann var vel virkur 1 starfi sósialista þar vestra og var gott aö hafa þann hauk I homi. Ég get ekki minnst Siguröar án þess aö drepa nokkrum oröum á samskipti hans og þeirra hjóna viö látinn einkavin minn, Halldór Ólafsson, ritstjóra blaös sósialista á Isafiröi og siðar bóka- vörö, en samskipti þessi lýsa öll- um þrem mætavel. Halldór var alla tlö maöur ein- hleypur og um langa tíö ofsóttur af ofstækisfullum pólitiskum and- stæöingum. Þeir Siguröur uröu einlægir vinir og svo fór aö Halldór eign- aöist athvarf á heimili þeirra Margrétar og Siguröar og tók Halldór slíku ástfóstri viö dæt- urnar þrjár aö fágætt mun vefa, enda guldu þær systur i sömu góðu myntinni. Nú þegar séra Siguröur er allur vil ég fyrireigin hönd og annarra sósialista þakka honum af heilum hug. Hann var i öllu fari sinu þannig aö gott er aö minnast hans. Við hjónin sendum Margréti. dætrunum þrem, stjúpsyninum og öllu þeirra fólki innilegar sam úðarkveðjur. Haukur Helgason Bridgehiti! Sumar- spilamennska í Domus Medica Þrátt fyrir bllöskaparveöur sl. fimmtudag, og mikinn hita, mættu 47 pör til leiks i Sumar- spilamennsku Bridgedeildar Reykjavikur i Domus Medica. Spilaö var i þremur riölum. Úr- slit uröu þessi: a) Baldur Asgeirsson — Zophonia s Benediktss. 258 Þorsteinn Erlingss.— Viggó Gislason 233 Aldis Schram — Soffía Theodórsd. 227 Brandur Brynjólfss.— Þórarinn Alexanderss. 222 B9 Guörún Bergsd.— SigriöurPálsd. 251 Sveinn Helgason — Vilhj. Siguröss. 240 Sigfús O. Árnason — Orwell Utley 236 Siguröur Steingr.ss.— Vigfús Pálsson 234 C9 Jón Þorvarðars. — ómarJónsson 250 Asmundur Pálss.— Stefán Guöjohnsen 244 Magnús Aspelund — Steingr. Jónass. 241 Steinberg Rikharöss,— Tryggvi Bjarnason 231 Meöalskor l öllum riölum var 210 stig. Keppnisstjóri var Ólaf- ur Lárusson. Athygli vekur enn á ný frammistaða Sigfúsar Arnason- ar. Hann hefur náö verölauna- sæti á móti öllum þeim meðspil- urum sem hann hefur spilaö viö I Sumarbridge, þaö sem af er. Hann er einnig vel stighæstur keppenda, en röö efstu manna er nú þessi: Sigfús ö. Árnason 16. st. Sverrir Kristinsson 12 st. Valur Sigurösson 11 st. Þorl.Jónsson 9st. Jón Baldursson 9. st. Siguröur Amundason 8st. Guörún Bergsd. 8 st. Spilað veröur aö venju nk. fimmtudag. Allir velkomnir. Tregðulögmálið Væntanlega hefur þaö ekki fariö framhjá bridgeunnendum aö I vor var efnt til landsliös- keppni i' opnum flokki bridge- spilara. Er upp var staðiö, var komiö landsliö, skipaö sex spil- Sigfús örn Arnason. Stighæsti maöur i Sumarbridge Bridge- deildar Reykjavikur. Sigfús er nv. formaöur Tafl og bridge- klúbbsins i Reykjavik. urum. Þaö var fyrsti áfangi að lokamarki, sem er sjálf keppnin á erlendri grundu. Þaö er Olympiumótiö i Hollandi, nú I september komandi. Þá var þaö annar áfangi. Hvernig átti aö fjármagna þessa keppnisför? Svo heppilega vildi til (?) að Bridgesambandiö átti útistand- andi tekjur fyrir firmakeppni sem haldin var fyrir ævalöngu siöan. Óinnheimt, að sjálfsögðu. En hvernig átti aö nálgast þessar tekjur? Nota þessa sexmenninga aö sjálfsögðu. Og þessa dagana standa landsliösmennimir okk- ariþviaöinnheimta upp i vænt- anlegan kostnaö 1 sambandi við utanferöina. Er þetta hægt? Sem stefnumarkandi afl i islenskum bridge, veröur Bridgesambandsstjórn aö taka sig saman i andlitinu ef ekki á aðmissa niöur þann neista.sem rikt hefur sl. 6—8 ár. Þann neista má þakka aö miklu leyti mönnum einsog Hjalta Elías- syni, Páli Bergssyni, Rikharöi Steinbergssyni og fleirum, sem staöiö hafa fyrir gagnmerkum breytingum á skipulagi okkar bridgemanna. Látum þetta skipulag dafna og eflast, frekar en aö missa móöinn og leggja árar i' bát. Sumartiminn hefur þótt dauö- ur tími hingaðtil, en mikill bridgeáhugi á höfuöborgar- svæðinu sl. vikur, afsanna þá kenningu. Þaö má gera stærri hluti, en galdurinn er sá, aö ekk- ert gerist af sjálfu ser. Alþýðubandalagið Vesturlandi Frá Landmannalaugum. Myndina tók Jón Þóröarson. Sumarferð í Landmannalaugar Alþýðubandalagið á Vesturlandi efnir til ferðalags i Landmannalaugar helgina 8.-10. ágúst. Lagt verður af stað frá Borgarnesi föstu- daginn 8. ágúst kl. 15.30 og frá Akranesi kl. 16.30. Þátttökutilkynningar berist til: Akranes: Jóna ólafsdóttir s. 1894 Jón Hjartarson s. 2175 Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson s. 7122 Búðardalur: Kristján Sigurðsson s. 4175 Grundarfjörður: Ingi Hans Jónsson s. 8711 Ragnar Elbergsson s. 8715 Hellissandur: Svalbjörn Stefánsson s. 6637 eða 6688 Hvanneyri: Rikharð Brynjólfsson s. 7013 Stykkishólmur: Einar Karlsson s. 8239 Alþýðubandalagið Vesturlandi Jfe RÍKISSPÍTALARNIR ISIausar stödur LANDSPÍTALINN HJCKRUNARFRÆÐINGAR ósk- ast til starfa á handlækningadeildir 4-C og 4-D. Einnig óskast hjúkrun- arfræðingar til fastra næturvakta (hlutastarf) á handlækningadeildir 4-A, 4-B og 4-D. Upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri i sima 29000. KLEPPSSPÍTALINN HJUKRUNARFRÆÐINGAR ósk- ast nú þegar til starfa við ýmsar deildir Kleppsspitalans. Upplýs- ingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 38160. Reykjavik, 3. ágúst 1980. Skrifstofa rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, simi 29000. FERÐAHÓPAR Eyjaflug vekur athygli feröahópa, á sérlega hag- kvæmum fargjöldum milli lands og Eyja. Leitiö uppíýsinga i simum 98-1534 eöa 1464 •EYJAFLUG Síminn er 81333 MOÐVJum

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.