Þjóðviljinn - 02.08.1980, Side 17

Þjóðviljinn - 02.08.1980, Side 17
Helgin 2.-3. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17 Niður með villu- trú Þjóðviljans! Jón rauöi skrifar Bæöi gagnrýni og sjálfsgagn- rýni eru nauðsynlegar eins og Maósagðiáöur en kókakólaliðið yfirtók i Kina og fyrir sjálfan mig segi ég, að ég mætti kannski vera duglegri að berj- ast fyrir málstaðnum stundum, þótt ágætur sé, og kannski hefi ég ekki átt að drekka sherryið frá ömmu minni. En þarna sjáið þiö að ég er heiöarlegur maöur og get þvi talaö um það sem miöur fer í þjóðfélaginu, aö maður tali nú ekki um flokkinn. En mest langar mig til að skamma Þjóðviljann af þvi að mér þykir svo skelfing vænt um elsku hjartanns andskotans blaðið, sem getur ekki verið þekkt fyrir að birta annað eins og sumt og ýmislegt sem þar er birt og ég kann alls ekki við þvl aö ég hefi keypt þetta blað i fjörutiu ár. Nú eru margir gamlir siðir af lagðir og nýir upp teknir og enginn veit til hvers, eöa ekki ég, svo mikið er vist. Aður var Þjóðviljinn málsvari Rússa, guðleysis, flugumferöar og þjóðfrelsishreyfingar Viet- nama, nú er hann helst mál svari dönskukennslu, kaþólsku kirkjunnar, strandferöasiglinga og einhverra snaróöra múham eðskra ólátamanna i Af- ganistan, sem bragða ekki vin hvaö þá meir! Þetta er undarleg þróun og eiginlega alveg óskiljanleg. Nú koma aldrei I blaðinu okk- ar myndir af isbrjótnum Lenin, glæsilegu skipi sem er kjarn- orkuknúið en mengar aldrei neitt, eða þjóðdansastelpunum frá Úkraniu, sem voru svo ansi hupplegar. Þess i stað er haldið uppi áróöri fyrir kennslu i ein- hverjum félagslegum hálssjúk- dómi sem þeir kalla dönsku og heimta að þetta sé kennt alls- staöar, liklega til að fyrrverandi kommar eigi auðveldar með að stauta sig fram úr krataspek- inni úr Anker Jörgensen og Olof Palme, og hvað þeir nú heita, og svo fylgja með myndir af snar- óðum dönskum jafnréttiskerl- ingum sem aldrei skyldu verið hafa nema siður sé. Ja, svei, þvi segi ég það. Aöur fyrr skutu góðir menn pokaprestum ref fyrir rass I viku hverri með þvi að vitna I Litlu rauöa kverið hans Guðs, en nú sitja ýmsir og sumir ábyrgðarmenn þarna á blaöinu á klikufundum meö prestum um að lauma sálmum og ópiumi fyrir fólkið inn i blaðiö innum bakdyrnar með fláttskap svo miklum aö enginn veit lengur hvur er ekki hvað. - Þetta er allt svona. Hér áður fyrr var Þjóöviljinn mikið flug- málablað og hélt upp á afmæli Loftleiða á hverju ári rétt eins og fyrsta mai: Alþýðuna upp i loft!, það var kjöroröiö. Nú er blaðið farið að hlusta eftir rugl- inu úr Ólafi Ragnari Grimssyni, sem er með allskonar svivirði lega tortryggni i garð þessa góöa félags og er lika uppalinn I Framsóknarflokknum og kemst hugur hans þvi ekki hærra en i i bithagana þar sem sauðkindin treður i vömb sina kvótalaust. En I stað trúarinnar á flug- málin hefur Þjóðviljinn nú tekið aðra trú sem er miklu verri og það er trúin á skákina! Stundum finnst manni.á þessu hverfanda hveli sem lif Þjóöviljans er, að það sé eina rótfasta stefnumálið sem hann á sér og þaö er að vera flaðrandi upp um skák- menn og taflmót. Mikill er andskotinn. Þetta er þó alveg sérstaklega hættuleg stefna og miklu hættu- legri en kjaramálapólitikin er sem slik. Vandinn er nefnilega sá, að skákin er einhver lævis- legasta uppfinning sem gerö hefur veriö til aö sætta menn við arðrán og stéttaskiptingu. út- smognari innrætingu borgara- legra viðhorfa er ekki hægt að finna. Eins og þið vitiö eru hafðir i skák allmargir alþýöumenn, sem Danir kalla reyndar bænd- ur, en viö köllum þvi litilsvirö- andi nafni peð. Peðunum, þess- um stéttarsystkinum okkar, er i skákinni att miskunnarlaust fram i opinn dauöann og þar eru þau drepin eins og skot. Nema eitt og eitt sem er leyft að kom- ast með fulltingi höfðingja alla leið upp viðringarstigann og er þá viðkomandi kallaður drottn- ing! Þetta er lymskuleg við- leitni til aö fá arörænda alþýöu til að sætta sig viö að vera rekin áfram til allskonar skitverka i von um öskubuskudrauminn, að loksins fái hún prinsinn sinn, komist á þing, verði forseti Verkamannasambandsins eöa fari á Bessastaði eða eitthvaö svoleiðis. Svo eru hafðir meö i taflinu allskonar höfðingjar og biskupar, sem eru náttúrlega hafðir miklu þyngri á metunum en alþýðupeöin, rétt eins og hrókurinn Davið Scheving, sem fékk fyrstur manna bjór þótt aðrir fengju hann ekki. Og til að kóróna sviviröuna er haföur kóngur yfir öllu saman, tákn og imynd rangláts þjóðfélags, og takið eftir þvl að kóngurinn er sá eini sem ekki má með nokkru móti drepa. Það er til aö lauma þvi að alþýðunni að það sé ekki hægt að gera byltingu, nei, kóngur veröur að vera til að sýna að allt sé fast I tilverunni og Ihaldiö muni alltaf ráða land- inu, og flokkur alþýðunnar geti ekkert annað en reynt aö smúla sér upp á drottningarlinuna til að fá vald til aö drepa aðra. Það er mikið á mig lagt. Rauður Skoda pardus árg. 1976 til sölu. Ekinn 42.000 km. Vel með farinn bill. Upplýsingar i sima 71891, laugardag og sunnudag. Tœknifrœðingur — byggingarfulltrúi Starf tæknifræðings hjá Hveragerðis- hreppi er laust til umsóknar. Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst. Nánari upplýsingar á skrifstofu Hvera- gerðishrepps,simi: 99-4150. Nei takk ... ég er ábílnum ux FERÐAR Dansur í Aratungu Kaktus, þú og ég — og allir hinir I upptalningu okkar á dans- leikjum verslunarmannahelgar- innar I Þjóðviljanum i gær féll niður samkomuhúsið Aratunga i Biskupstunum. Þar leikur fyrir dansiikvöld (laugardag) og ann- aö kvöld hljómsveitin Kaktus og auk hennar kemur fram söngdú- ettinn Þú og ég bæöi kvöldin. -lg- Nýr skatt- stjóri Fjármálaráðherra hefur sett Jón Guömundsson viöskiptafræö- ing, skattstjóra Norðurlandsum- dæmis vestra frá 1. ágúst n.k. til og með 15. september. Málefni Framhald af bls. 2 verið notuð sem vettvangur fyrir deilur, sem hafa dregið athyglina frá raunverulegum tilgangi henn- ar. Við höfum til dæmis varla heyrt minnst á oröin „konur” eöa „jafnrétti” hér i dag. Við efum að konum muni þykja þaö ómaksins vert að sækja þriðju ráðstefnuna af þessari tegund. Enda þótt sendinefnd Islands telji flest atriöin I framkvæmdaá- ætluninni nauðsynleg fyrir á- framhaldandi starf að jafnretti kynjanna, einkum hvað snerti markmiö einstakra þjóða og einnig i alþjóölegu samhengi, taldi Island af framangreindum ástæðum sér ekki annaö fært en að sitja hjá viö atvkæöagreiðsl- una.” Málefni kvenna biöu lægra hlut önnur riki sem hjá sátu tóku yfirleitt fram aö þau myndu viröa framkvæmdaáætlunina og vinna eftir henni að langmestu leyti, enda felur hún I sér fjölda mikil- vægra ákvæða varðandi stöðu kvenna og fjölskyldu, bæði fyrir þróunarlönd og svokölluö þróuð lönd. Fjölmargar aðrar ályktanir um einstök mál og málefni voru samþykktar og ættu þær aö létta baráttuna gegn misrétti þvi sem konur eru viða beittar, segir I frétt islensku sendinefndarinnar. „Það er einróma álit islensku nefndarinnar að við afgreiðslu framkvæmdaáætlunarinnar og i miklum hluta umræðna á ráð- stefnunni hafi málefni kvenna beöið lægra hlut fyrir ofurkappi þeirra þjóða, sem — eins og i Mexiko 1975 — voru fyrirfram á- kveðnar i að gera hana aö vett- vangi ágreiningsmála, sem aðrir telja að beri að leysa á allsherjar- þingum S.Þ. og á fundum öryggisráðsins. Það var áber- andi, að siðustu daga ráöstefn- unnar birtust I fulltrúastæum fjölda sendinefnda, karlmenn, sem ekki höföu sést þar áður og aö á lokafundinum heyröust oftar karla — en kvennaraddir, er haldið var uppi málþófi og samningaumleitunum hafnað. En þrátt fyrir þau vonbrigöi skilaöi ráöstefnan mikilvægum, já- kvæðum árangri”, segir orðrétt i frétt íslensku sendinefndarinnar. Ráöstefnan I Kaupmannahöfn stóð frá 14. til 30. júli og var hald- in til þess að gera úttekt á þvi hvernig réttindamálum kvenna hefur miöað á þeim hálfa áratug, sem liðinn er frá hinu alþjóölega kvennaári 1975, og móta stefnu næstu fimm ára. —ekh Volvo Framhald af bls. 4 svo reynist er gefm skýrsla til verkfræðinga Volvo, sem endur- bæta þá hönnunina. Slysadeild Volvo hefur einnig öðru hlutverki að gegna en að rannsaka mörg þúsund umferöar slys ár hvert. Hún svarar einnig spurningum um öryggi barna, sem feröast i barnasól eða sitj- andi i Volvo með barnaöryggis- hlif. Sá hluti deildarinnar, sem sér um fólksbila, hefur náiö sam- starf við Volvo-flutningabila, sem einnig eiga 10 ára afmæli á þessu ári. mhg Fundir Framhald af bls. 20 arins. 1 þeim „félagsmálapakka” sem nú er rætt um er m.a. al- mennt fæðingarorlof, bygging dagvistunarheimila og ibúða fyr- ir aldraöa. Ef samningar takast milli Al- þýðusambandsins og Vinnumála- sambands samvinnufélaga i næstu viku þá munu þeir samn- ingar ná til rúmlega 20% af um- bjóðendum Alþýðusambandsins. Gerist svo rikið og sveitarfélög eins og Reykjavikurborg aöilar aðsamningunum þá munuþeir að öllum likindum ná til nær helm- ings félaga i Alþýöusambandinu. Þorsteinn Pálsson framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambandsins hefur lýst þvi yfir að VSÍsé reiðu- búiö að ganga til samninga við ASl þegar viðræöum ASl og Vinnumálasambandsins sé lokiö. —þm. Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Margrét ólafsdóttir, Melgerði 17, Kópavogi veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 6. á- gúst kl. 13.30. Aðstandendur. Eiginmaöur minn séra Sigurður Kristjánsson Drápuhiið 8 Reykjavik fyrrverandi sóknarprestur á ísafirði sem lést 26. júli verður jarösunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 5. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Margrét llagalinsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.