Þjóðviljinn - 02.08.1980, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 02.08.1980, Qupperneq 20
MÓÐVUHNN Helgin 2.-3. ágúst 198« Eignaskattar hækka mest í Reykjavík Heildarálagning 49,6 miljarðar 4,7 miljarðar fara í barnabœtur Verðlækkun á búvörum Frá 2,9% til 37% Þar sem rikisstjórnin hefur ákveðið aö auka niðurgreiöslur á landbúnaöarafuröum lækkar verö tilneytenda nokkuö á kinda- kjöti, nautgripakjöti, kartöflum, mjólk og mjólkurvörum. Fer hér á eftir samanburður á veröi einstakra vörutegunda fyrir og eftir 5. ágúst n.k.: Mjólk, i ltr. pökkum kostar nú 359 kr. fer i 329 kr., lækkun 8.3%. Rjómi i 1/2 ltr. fernum kostar nú 1164 kr., fer i 1130 kr., lækkar um 2.9%. Skyr, 1. kg. kostar nú 685 kr. fer i 600 kr., lækkar um 8.4%. SMJÖR 1. kg. kostar nú 3666 kr., fer i 3266 kr., lækkun 10.9%. Verö á ostum og undanrennu veröur óbreytt. Dilkakjöt, 1. veröfl., heilir skrokkar, sundurteknir sam- kvæmt óskum kaupenda^nú 2197 kr. kg., veröur 1947 kr., lækkun 11.3%. Mjög litiö er nú til oröiö af 1. flokks dilkakjöti. Súpukjöt, 2. veröfl., nú kr. 2026 kg., fer i 1776 kr., lækkun 12.3%. Niöurgreiöslur á dilkakjöti hækka úr 669 kr. kg., i 919 kr. Nautgripakjöt, 2. veröfl. lækkar um 6.2% i heilum og hálfum skrokkum. Verb á erlendum kartöflum i 5 kg. pokum er nú 261 kr. kg., fer i 164 kr., lækkun 37%. Niöur- greiöslur verða 121 kr. á kg., en voru engar áöur. Sennilega verða sömu niöurgreiðslur á innlendum kartöflum eftir 1. sept, nk. Sum- arverð á innlendum kartöflum er ekki niöurgreitt. —mhg r Viðrœður ASI og VMSS: Fundir alla helgina ,,Ég held nú ekki aö viö ljúkum þessum viöræöum yfir helgina enda er þetta þaö flókiö mál” sagöi Snorri Jónsson forseti ASl f samtali viö Þjóöviljan i gær. Samninganefndir Alþýöusam- bandsins og Vinnumálasam- bandsins koma saman til fundar fyrir hádegi I dag, laugardag og munu aö öllum likindum vera á fundum yfir verslunarmanna- helgina. A tveimur slöustu fundum rikisstjórnarinnar hefur nokkuö veriö fjallaö um samningamálin og þá á hvern hátt rikisstjórnin gæti greitt fyrir kjarasamning- um. Sérstök ráöherranefnd, skip- uö Gunnari Thoroddsen, Svavari Gestsyni og Steingrimi Her- mannssyni annast viðræöur um þessi mál viö aöila vinnumarkaö- Framhald á bls. 17. Heildarálagning á ein- staklinga i Reykjavik þetta gjaldaár nemur nær 56 miljörðum króna, en i reynd er þessi tala þó lægri þvi frá henni dragast barnabætur sem og persónuafsláttur til greiðslu útsvars og sjúkratryggingagjalds aðupphæð6.4 miljarðar, þannig að einstaklingar i Reykjavik greiða um 49.6 miljarða i skatta og er það 63.85% hækkun i krónutölu frá fyrra ári. Stærstu álagningalibirnir eru tekjuskatturinn er nemur nær 26 miljörðum og útsvariö er nemur rúmlega 21 miljaröi. Heildar- tekjuskattur og útsvar veröur þó lægra þvi áðurgreindur 6.4 miljaröa frádráttur dregst eink- um frá þessum liöum. Miðaö viö siöasta ár, hækkar eignaskattur- inn mest eða um 92.5% og nemur hann um 2.1 miljarði. Að sögn Gests Steinþórssonar skattstjóra i Reykjavik er þessi hækkun á eignaskatti þó minni en milli ára i fyrra. Barnabætur er virka til lækk- unar á skatti nema í ár nær 4.7 miljörðum og er þaö nær 80% hækkun frá fyrra ári. Persónu- afsláttur hækkar þó mun meira. Persónuafsláttur til greiðslu á út- svari hækkar um nær 180%, og persónuafsláttur til greiöslu á sjúkratryggingagjaldi hækkar umnær 135%. Fjöldi skattgreiöenda á skrá i Reykjavik er nú 62.036 og þar af greiða 32.399 tekjuskatt, 49.984 út- svar og 14.363 eignaskatt. Rétt er aö minnaá aö álagningu á fyrirtæki er enn ekki lokiö. —þm ^•i ■ Hampiðjan framleiðir nú drenrör fyrir jarðvatnslagnir, auk röra fyrir regnvatnslagnir og skolp. Þar með geta menn nú lagt flestar tegundir frárennslis með plaströrum frá Hampiðjunni. Efnisþykkt og mál drenröranna eru þau sömu og á 110 mm skolprörum, tengi- og breytistykki fyrir allar tegundirnar eru hin sömu. Því er vandalaust að ná endum saman, beygja upp, beygja niður, út og suður að vild. Drenrörin eru úr hörðu Polyvinylchlorid (PVC) án mýki- og fylliefna og götuð (sbr. mynd). Þessi rör má jafnframt nota í sameiginlega Dren- og regnvatnslögn, þar sem jarðvatnslögnin er eingöngu notuð til að ræsa fram og þurrka lóð. Drenrörin frá Hampiðjunni eru framleidd í 1 m, 2 m, og 5 metra lengdum. Þau eru endingargóð og auðvelt er að leggja þau. Drenrörin frá Hampiðjunni eru íslensk gæðavara sem fæst í byggingavöruverslunum víða um land. Á sölustöðunum liggja frammi upplýsingabæklingar, sem segja nákvæmlega til um eiginleika röranna og hvernig beri að ganga frá þeim í jörð. HAMPIÐJAN HF

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.