Þjóðviljinn - 16.08.1980, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.—17. águst 1980
i STJÓRNMÁL Á SUNNUDEGI
I---------------------
n
■
I
I
Baráttan við verðbólguna
— baráttan við visitöluna
Af öllum gjaldskrám er gjaldskrá Hitaveitu Reykjavikur lægst.
Baráttan viB veröbólguna hefur
J veriB samfellt verkefni alþingis
I og rikisstjórna á Islandi allan síB-
I asta áratug og þó raunar lengur
* og ekki er annaB aB sjá i dag en aB
! svo verBi áfram a.m.k. eitthvaB
j fram eftir næsta áratug.
öllum er ljóst aB takist ekki aB
* sporna gegn verBbólguþróuninni
J þá hlýtur hún aö lokum aö leiöa til
I stöövunar atvinnuveganna og þar
I meö algjörs hruns.
I' Líf eða dauði
Fáar þjóöir eru jafn háöar viö-
skiptum viö önnur lönd eins og viö
tslendingar og þvi gildir þaB lif
eöa dauöa fyrir þjóöina aö þær
vörur sem viö flytjum út seljist á
veröi sem er nægjanlegt fyrir
framleiösluna. Stööugt hækkandi
tilkostnaöur innanlands án til-
svarandi veröhækkana á erlend-
um mörkuöum hlýtur aö lokum
aö leiöa til hruns og gjaldþrota út-
flutningsfyrirtækjanna.
Stööug og stööugt vaxandi
veröbólga brenglar gjörsamlega
verömætaskyn bæöi almennings
og stjórnvalda. Það er alvarlegt
mein þegar allir telja sér hag-
kvæmt aö eyöa öllu sem þeir afla
um leið og þeir fá þaö i hendur og
helst fyrr.
Það er bæöi alvarlegt og hættu-
legt ástand þegar allar tegundir
af fjárfestingu gefa öruggari,
skjótari og meiri arö heldur en at-
vinnurekstur i framleiðslu eöa
þjónustu.
Þaö er þvi mikilvægt verkefni
stjórnvalda aö berjast gegn verö-
bólgunni, að ná aö stööva vöxt
hennar og síöan aö koma henni
niður á svipaö stig og i nágranna-
viöskiptalöndum okkar.
Visitalan er mælikvarði
Til aö mæla og meta veröbólgu-
stigiö i hverjum tima höfum við
kvarða, sem viö köllum visitölu.
Viö höfum I raun margar visitöl-
ur. Visitölu vöru og þjónustu,
visitölu byggingarkostnaöar,
kaupgjaldsvisitölu, viöskipta-
kjaravisitölu o.fl. og fl.
Vísitölurnar hafa ekkert gildi I
sjálfu sér annað en aö vera mæli-
kvaröi. Þær á aðeins aö nota eins
og viö notum metra til aö mæla
lengd, litra til aö mæla vökva,
kíló til aö mæla þyngd o.s.frv.
Þaö á ekki aö vera neitt sér-
stakt keppikefli aö halda visitölu i
skefjum, eins og þaö er kallaö,
heldur aö koma i veg fyrir þá þró-
un sem leiðir tii þess að visitalan
mælir hækkun.
Ef það yröi mjólkurskortur á
tslandi þá yröi hann ekki bættur
meö þvi aö ákveða aö hver litri
mjólkur væri aöeins 75 sentilitr-
ar, né heldur hefði þaö komiö i
veg fyrir hækkun á veröi mjólkur
ef hinn nýi litri kostaöi þaö sama
og áöur.
Þvi miöur viröist stundum sem
aögerðir stjórnvalda beinist
fremur aö aögeröum gegn visitöl-
unni heldur en aögerðum gegn
veröbólgunni.
Ef verö & einhverri nauðsýnja-
vöru hefur hækkaö sem nemur
1000 kr. á hverja fjölskyldu, þá er
þaö veröbólga, hvort sem visitala
mælir hækkunina 10 eöa 100 krón-
ur hjá svokallaðri visitölufjöl-
skyldu.
Sem dæmi um rangláta og
óskynsamlega baráttu viö visi-
töluna ætla ég aö nefna tvö reyk-
visk fyrirtæki, SVR og Hitaveit-
una.
Strætisvagnar Reykjavik-
ur
Strætisvagnar Reykjavikur
gegna eins og allir vita þvi hlut-
verki aö aka á ákveönum fresti
tiltekna vegalengd og taka far-
þega gegn tilteknu sætagjaldi.
Slikir flutningar eiga sér staö um
allt land. Sérleyfum er úthlutaö
og fyrirtæki taka aö sér aö flytja
fólk á ákveönum fresti tiltekna
vegalengd fyrir ákveöiö gjald.
Þannig kostar I dag 15.700 krónur
aö aka til Akureyrar frá Reykja-
vik en þaö jafngildir um 35 krón-
um á ekinn km. Til Selfoss kostar
fargjaldiö kr. 2000, sem einnig
gjafngildir kr. 35 á ekinn km. Og
til Hafnarfjaröar kostar kr. 600 og
einnig þaö samsvarar um 35 kr.
fyrir ekinn km, ef reiknaö er meö
akstri milli endastööva.
Þannig mætti ætla aö þeir aöilar
sem gjaldskrármálum ráöa hafi
reiknað út aö kostnaöurinn viö aö
aka hverjum farþega hvern km
sé um kr. 35.
Meöalfargjald Strætisvagna
Reykjavikur er 193 krónur (þeg-
ar tekið hefur veriö tillit til far-
miðaspjalda sem seld eru á af-
sláttarverði), og meðalvegalengd
hringferöanna er 16,65 km sem
samsvarar meöal vegalengd 8,33
km i hvora átt.
SVR fær þvi ekki nema kr. 23,17
á hvern ekinn km meö farþega.
Þá hefur ekki veriö tekiö tillit til
þess aö verulegur hluti farþeg-
anna fær sér skiptimiöa og ekur
þvi allmiklu lengri vegalengd án
aukagreiðslu.
Astæöan fyrir þessu lága veröi
hjá SVR er ekki sú aö fyrirtækiö
vilji ekki selja þjónustuna dýrar.
Astæöan er hin alkunna barátta
viö visitöluna og kemur hún i veg
fyrir aö fyrirtækiö fái aö hækka
veröiö. Fargjöld SVR eru nefni-
lega inni i hinum fræga visitölu-
grundvelli en ekki hin fargjöldin,
sem áöur voru upptalin.
Ef nú yröi um 50% rekstrar-
kostnaöarhækkun hjá þeim sem
reka langferöabila og öll fyrir-
tækin fengju þá hækkun bætta I
fargjaldi myndi fargjald á hvern
ekinn km hækka um kr. 17,50 á
þeim leiöum sem ég nefndi áöan,
en hjá SVR aöeins um 11,59 kr.
Launamenn um allt land fengju
þvi bætt i kaupgjaldsvisitölu sem
svaraöi hækkun á fargjöldum um
kr. 11,59 þótt fargjöld hjá flestum
hafi hækkaö um 17,50! Reykviskir
launþegar greiöa siöan tapiö hjá
SVR meö útsvari sinu.
Hitaveita Reykjavíkur.
Dæmiö um Hitaveitu Reykja-
vikur er aö ýmsu leyti hliöstætt en
aö ööru leyti mjög sérstætt.
Hitaveitan er aö þvi leyti sér-
stæöaö hún er virkjun á innlendri
orku sem leysir af hólmi dýra
innflutta orku. Hitaveita Reykja-
vikur er þannig ekki aðeins hag-
kvæm fyrir notendur vatnsins
sem greiöa i dag aöeins tiunda
hluta af þvi sem þeir þyrftu aö
greiöa ef þeir hituðu hús sin meö
oliu, heldur sparar hún oliu aö
verömæti 60 miljaröa króna á
hverju einasta ári miöaö viö verö
til neytenda.
Verðiö á orku hjá Hitaveitu
Reykjavikur er svo lágt aö þær
hugmyndir hafa veriö ræddar af
fullri alvöru á hinu háa alþingi aö
leggja sérstakan skatt á notendur
Hitaveitunnar og greiöa meö
þeim skatti niöur orku til annarra
sem ekki búa viö jafnhagstætt
verö.
Gallinn er bara sá aö Hitaveit-
an þarf aö selja heita vatnið dýr-
ar ef halda á áfram að kynda hús
með heitu vatni hér á höfuðborg-
arsvæöinu og tryggja til þess
næga orku og örugga dreifingu.
Ég held aö enginn telji aö sú
stefna stjórnvalda, sem Magnús
Kjartansson beitti sér mjög fyrir
þegár hann var iönaðarráöherra,
að stórauka notkun jarövarma til
húsahitunar, hafi verib röng.
Ég held aö engum detti i huga
aö aukin notkun jarðvarma hafi
oröiö hvati á veröbólguna. Þvert
á móti þá held ég aö allir séu
sammála um þaö aö meö öflugri
sókn i jarövarmann hafi okkur
tekist aö foröast verstu áföllin
vegna sihækkandi oliuverös.
Hvernig I ósköpunum má þaö
þá vera liður i baráttu viö verö-
bólgu aö stefna stærstu, hag-
kvæmustu og öflugustu hitaveitu
landsins i hættu vegna hindrana á
eölilegum gjaldskrárhækkunum,
þegar orkan er seld á aöeins 1/10
af þvi sem innflutta orkan kost-
ar?
Ég fullyröi aö slik stefna stuðl-
ar ekki aö lækkun veröbólgu. Hún
beinist eingöngu aö lækkun visi-
tölu.
Hitaveitur landsins eru margar
og standa á misjafnlega gömlum
merg. Gjaldskrár hitaveitnanna
eru einnig margvislega upp-
byggöar og söluvaran er ekki alls
staöar hin sama, þ.e. hitastig og
tæringareiginleikar vatnsins eru
ekki þeir sömu i öllum hitaveitun-
um.
Gjaldskrá Hitaveitunnar
lægst
Af öllum gjaldskrám sem ég
þekki i landinu er gjaldskrá Hita-
veitu Reykjavikur lægst. Næst
ódýrasta hitaveita landsins er
skv. minum upplýsingum hita-
veitan á Seltjarnarnesi. Ef miðað
er við aö meðalheimili noti 4
minútulitra á mánuöi (sem er
nokkuð riflegt), þá er veröiö á
Seltjarnarnesinu um 19% hærra
en hjá HR.
Ef tekin er önnur gömul og gró-
in hitaveita til samanburöar, þá
er veröið i Hverageröi um 40%
hærra en i Reykjavik. 1 þessum
samanburöi verður aö hafa i huga
aö bæði á Seltjarnarnesi og i
Hveragerði er heita vatniö tekiö á
staönum en i Reykjavik þarf aö
flytja mikinn hluta vatnsins um
langan veg.
Sé siöan borið saman viö nýjar J
veitur, þá er veröiö á t.d. Suöur- I
nesjum 220% hærra en hjá HR og á I
Akureyri um 320% hærra.
öll rök skynsemi og sanngirni J
hniga þvi I þá átt aö heimila I
fremur hækkun á töxtum HR I
heldur en aö stofna til erlendra ■
skulda eöa aö hætta viö fram- J
kvæmdir vegna fjárskorts. öll I
rök nema baráttan viö visitöluna. I
Ef HR fær hækkaöan taxta þá •
hækkar kaupgjaldsvisitalan um J
allt land* slikt gerist ekki þótt ’
aðrar hitaveitur hækki veröskrár ■
sinar.
Ef t.d. Hitaveita Akureyringa I
hækkar um 20% og þar meö hver |
mlnútulitri um kr. 2.912 þá fær ■
enginn neitt bætt i visitölu. I
Kvaröinn sem notaður er til aö I
mæla kostnaöarhækkanir segir |
aö ekkert hafi hækkaö. Ef hins ■
vegar HR fengi 20% hækkun, þá I
myndi hver minútulitri i Reykja- I
vik og nágrenni hækka um kr. 688, |
sem þýðir á ári um 33.000 krónur ■
fyrir venjulegt einbýlishús. Þá I
segöi kvarðinn (visitalan) aö hit- I
unarkostnaöur hjá öllum um allt I
land heföi hækkaö um 20%. Þar ■
breytir engu þótt 20% hækkun i I
Reykjavik sé 33.000 kr. á ári en á I
Akureyri 140.000 kr.
I þessum hráskinnaleik er fólg- ■
in orsökin fyrir þvi aö baráttan I
beinist fremur gegn visitölunni en I
veröbólgunni sjálfri.
Öil þjóðin tapar
Þaö er vandséð hver hagnast á I
svo röngu visitölukerfi en þaö er ■
augljóst aö þjóðinn öll tapar á þvi J
ef þaö leiöir tilþess aö taka þarf á I
ný upp oliukyndingu á svæöum, I
sem annars mætti auöveldlega J
hita meö jarðvarma.
Vissulega er ljóst aö meöan I
óbreytt visitala er notuö til aö I
mæla verðhækkanir i landinu þá ,
er stjórnvöldum mikill vandi á ■
höndum aö leiðrétta gjaldskrár I
fyrirtækja sem eru i visitölu- |
grunninum og hafa þvi orðið fyrir ,
stöðugum árásum verölagsyfir- ■
valda allan siöasta áratug. Og I
vissulega hafa Reykvikingar I
skilning á þvi eins og aörir lands- .
menn.
Þaö sem við förum fram á er I
leiðrétting, ef ekki I einum |
áfanga, þá með markvissum aö- .
geröum á lengri tima, aögeröum, ■
sem hafa þaö að leiðarljósi að fólk I
fái aö greiða þessa þjónustu meö |
eðlilegu veröi. 1 heilan áratug ■
hefur hagsmunum reykviskra |
þjónustufyrirtækja veriö fórnab I
eins og peöum á skákborði visi- |
töluglimunnar. ■
Þótt borgaryfirvöld i Reykjavik •
hafi sýnt og muni sýna kristilegt I
hugarfar i samskiptum viö verö- |
lagsyfirvöld þá má enginn ætlast ■
til eöa búast við aö áratug I viöbót I
veröi velt vöngum, eingöngu til aö |
fá löðrunga sitt á hvaö.