Þjóðviljinn - 29.08.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 29.08.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 29. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐÁ 3 „Reykjavikurborg á aö kaupa húseignina og afhenda okkur hana til áframhaldandi notkunar”. Frá blaðamannafundinum i gær. Sitjandi frá vinstri: örn Jónsson, Bjarni H. Þórarinsson og Friörik Þ. Friöriksson. Fjóröa manninn þekkjum viö ekki. Ljósm.-eik. Forráðamenn Gallerís Suðurgötu 7 andvígir flutningi: Skref aftur í húsafriðunarmálum Forráöamenn Galleris Suöur- götu 7 héldu i gær biaðamanna- fund þar sem þeir lýstu algerri andstööu sinni viö þá ákvöröun aö flytja húsiö upp i Arbæjarsafn, en eins og skýrt var frá I Þjóövilj- anum á miövikudag þáöi borgar- ráö Reykjavikur boö eigenda þar um i vikunni. Á fundinum kom fram aö for- ráöamenn gallerisins hafa fullan hug á aö reka þaö áfram á sama staö ef Reykjavikurborg kaupir húseignina, gerir húsiö upp og af- hendir hópnum þaö til áfram- haldandi notkunar. „Þegar viö hófum rekstur gallerisins i húsinu á sinum tima vorum viö m.a. aö sýna fram á hvernig hægt væri aö nýta gömul hús. Viö erum mótfallnir þeirri friöþægingu sem felst i þvi aö flytja gömul hús á afmörkuö svæöi, þó viö viöurkennum slikt sem algera afarkosti. Allt tal um Slátrad í Þaö hefur nú veriö ákveöiö aö dilkum af öskufallssvæöunum i Skagafiröi veröi slátraö i næstu viku. Er svo ráö fyrir gert, aö sú slátrun standi I tvo daga en ekki hefur enn veriö ákveöiö hvaöa dagar þaö veröa. Sumir bændur, sem nú þurfa aö losna viö dilka sina, hafa undan- farin haust slátraö hjá Slátur- samlagi Skagfiröinga. Þaö mun á hinn bóginn ekki taka viö sauöfé Hf I miöbænum veröur hjákátlegt hjal ef af þessum húsflutningi veröur. Einnig er þetta skref aftur á bak i húsfriöunarmálum. Viö teljum aö gömul hús eigi aö vernda i sinu upprunalega um- hverfi en ekki kippa þeim upp og planta þeim niöur i framandi um- hverfi’jsegir I yfirlýsingu þeirra. Galleri Suöurgata 7 hefur nú veriö rekiö I þrjú ár og sögöu for- ráöamenn , þess á fundinum I gær aö þaö heföi unniö sér sess sem eitt virtasta galleri Evrópu. Þar hafa veriö haldnar yfir 60 mynd- listarsýningar auk þess sem galleriiö hefur haft aöra menn- ingarstarfsemi meö höndum, m.a. tónleikahald erlendra aöila, leiklistarnámskeiö og útgáfu listatimaritsins „Svart á hvitu”. Gallériiö hefur kynnt islenska myndlist erlendis og ber þar hæst sýningu 25 myndlistarmanna i Flórens á Italiu, og sýningu gallerisins I New York i vor. tvo daga til slátrunar aö sinni. En til þess aö þurfa ekki aö óhreinka sig á skiptum viö Kaupfélag Skagfirö- inga munu þeir bændur, sem hér um ræöir, hafa i hyggju aö aka féi sinu noröur á Svalbaröseyri og slátra þvi þar, aö þvi er ÞorkeU Guöbrandsson, fulltrúi hjá Kaup- félagi Skagfiröinga tjáöi okkur. Nautgripaslátrun stendur nú yfir hjá Kaupfélagi Skagfiröinga. —mhg Heimsmeistaramót unglinga: Jafnteflí hjá Jóni L I 11. umferð heimsmeist- aramóts unglinga# sem tef Id var í gær í Dortmund, var Jón L. Árnason með hvítt gegn Vestur-Þjóð- verjanum Bischoff. Þjóðverjinn varðist vel, þannig að Jón varð að sætta sig við jafntefli eftir rúmlega fjörtiu leiki. Ekkert lát er á sigurgöngu Kasparovs, sem 1 gær vann and- stæöing sinn léttilega, en nafn hans er Danilov. Kasparov hefur nú teflt viö alla sterkustu and- stæöingana, og þarf ekki nema hálfan vinning til aö útiloka aöra frá efsta sætinu, en umferöirnar á mótinu veröa alls þrettán. Kasperov hefur nú 9.5 vinninga aö loknum 11. umferöum, en næstir koma meö 7.5 vinninga þeir Short, Englandi: Carolyi, Ungverjalandii Neguleschu, Rúmeniu og Morovic, Chile. Eins og fram kom I Þjóöviljan- um I gær átti Jón L. Arnason betri biöskák úr 10. umferö gegn Holl- endingnum Cuypers. Jóni uröu ekki mislagöar hendur i úrvinnsl- unni og vann. Jón hefur nú hlotiö 6.5 vinninga, og er þvi möguleik- inn á góöu sæti, þegar upp veröur staöiö, enn til staöar. Til þess veröur hann þó aö eiga góöa daga I tveimur siöustu umferöunum. — eik — Jón L. Arnason. á bak Hefur galleriinu veriö boöiö aö taka þátt i sýningum I Póllandi, Danmörku, Þýskalandi og Eng- landi. „Nú er aö vita hvort yfir- völd vilja styöja þessa menningarstarfsemi eöur ei”, segir I lok yfirlýsingarinnar. — A1 Þursarnir á svölunum hjá Agli á fimmtudag. A myndina vantar þó Karl Sighvatsson og Rúnar Vil- bergsson. Þessir eru Asgeir Óskarsson, Egili Ólafsson, Þóröur Árnason og Tómas Magnús Tómasson (Ljósm.: eik) Þriðja plata Þurs- anna komin út Tekin upp á hljómleikum I fyrradag kom á markað þriöja plata Þursaflokksins og nefnist hún Þursaflokkurinn á hljómleikum. Var hún hljóörituð á tónleikum flokksins i Þjóöleik- húsinu 19. mai s.l. I fyrra fóru Þursar i mikla hljómleikaferð um meginland Evrópu og var hvarvetna mjög vel tekiö. Einnig fóru þeir hring- ferð um tsland og voru tónleik- arnir I Þjóöleikhúsinu punkturinn yfir i—iö. Nú er byrjaö aö æfa söngleikinn Grettihjá Leikféiagi Reykjavikur en hann er eftir þá félaga Þórarin Eldjárn og Olaf Hauk Simonar- son. Þursarnir semja hins vegar lögin og flytja þau. Söngleikurinn veröur frumsýndur i Austur- bæjarbiói fyrri hluta vetrar og er hann eitt af fyrstu verkefnum Þursanna á vetrinum. Upptöku nýju plötunnar annaö- ist Hljóöriti h.f. Plötuumslag hannaöi Grétar Reynisson en út- gefandi er Fálkinn. A þessari nýju hljómplötu Þursaflokksins eru mörg vinsæl- ustu lög þeirra félaga ásamt nýju efni. Þau eru: Bjarnaborgar- mars, Búnaðarbálkur, Orösend- ing, Brúökaupsvisur, Bannfær- ing, Sjö sinnum, Noröur viö ishaf, Sjónvarpsbláminn og Jón var kræfur karl og hraustur. — GFr BSRB-samkomulagið Haukur Helgason skólastjóri Það er mikil áhætta að fella samninginn „Miöað viö stöðuna i dag þá er tekin mikil áhætta með þvi aö fella þessa samninga viö rikiö og þvi tel ég tvimæla- laust aö þaö beri aö sam- þykkja samkomulagiö” sagöi Haukur Helgason skólastjóri sem situr I aöalsamninga- nefnd BSRB þegar Þjóöviljinn ræddi viö hann I gær. „Viö veröum aö gera okkur grein fyrir þeirri stööu aö allir stjórnmálaflokkarnir eru and- vigir almennum grunnkaups- hækkunum” sagöi Haukur ennfremur „og þaö tak- markar þá möguleika sem viö höfum. Þaö er þvi erfitt aö sjá aö viö fengjum nokkru þokað meir áleiöis varöandi kaupliö- ina þó fariö væri út f verkfalli. Viö fundum þaö lika á fundum viös vegar um land i vetur og vor aö fólk er ekki tilbúiö til verkfallsaögeröa og gerir sér grein fyrir aö slikt myndi ekki leysast á stuttum tima. Ef samkomulagiö veröur fellt þá er næsta skrefiö sátta- tillaga frá sáttanefnd. Þaö er misjafnt sem ég hef heyrt að sáttatillaga liggi einhvers staöará milli okkar krafna og tiliagna rikisins. Þaö er á valdi sáttanefndar hvernig sú tillaga veröur, en hins vegar er jafnframt ljóst aö sátta- nefnd gæti l tillögu sinni ekki boöiö okkur nein þeirra félagslegu réttinda sem rikis- stjómin hefur boöiö. 1 ljósi Haukur Heigason þessarar staöreyndar felst áhætta i þvi aö fella þetta samkomulag. Þaö er lika rétt aö hafa i huga aö þegar greitt er at- kvæöi um sáttatillögu þarf þátttaka að vera yfir 50%, þvi annars hlýtur sáttatillagan sjálfkrafa samþykki, þó allir væru móti henni. Yröi þátt- takan hins vegar yfir 50% og sáttatillagan felld þá myndi verkfall skella á sjálfkrafa og samningaviöræöur byrja aö nýju. Slikar viöræöur gætu staöiö lengi og þaö gæti veriö komiö fram undir áramót áöur en séö væri fyrir endann á málinu. Ég held aö þessir samningar hafi dregist nógu lengi og varla ástæöa til aö draga þessi mál meir á lang- inn” sagöi Haukur aö lokum. — þm Örlygur Geirsson deildarstjóri Býst við samþykki félagsmanna BSRB „1 þessum samningum ná- um viö fram ýmsum mikil- vægum félagslegum réttind- um sem viö höfum lengi barist fyrir og liklega heföum viö aldrei náö þessu öllu i gegn nema vegna þess aö þaö var ekki fyrir hendi vilji hjá rikis- stjórninni aö veita almennar grunnkaupshækkanir og þvi varö rikisstjórnin aö bjóöa upp á þetta I staöinn”, sagöi örlygur Geirsson deildarstjóri og fulltrúi I samninganefnd BSRB er Þjóöviljinn ræddi viö hann i gær. „Samninganefnd BSRB var i þeirri erfiöu aöstööu”, sagöi Orlygur ennfremur, „aö allir stjórnmálaflokkarnir höföu lýst þvi yfir aö þjóðfélagiö þyldi ekki auknar launahækk anir og almenningsálitið virt- ist vera á þeirri skoöun aö laun séu orsök veröbólgunnar. Stjörnmálamenn hafa siðan hamraö á þessu tali um sam- spil launa og veröbólgu þrátt fyrir aö veröbólga hafi ekki minnkaö á sama tima og viö höfum horft upp á verulega kaupmáttarrýrnun. Viö þess- ar aðstæöur var þvi ekki aö búast viö aö krafa um veru- legar almennar kauphækkanir næöi fram aö ganga. En þrátt fyrir aö samn- ingurinn feli ekki i sér miklar almennar kauphækkanir þá trúi ég samt ekki öðru en aö hann veröi samþykktur i alls- herjaratkvæöagreiöslu, enda má ekki horfa fram hjá þeim örlygur Geirsson auknu félagslegu réttindum sem opinberir starfsmenn tryggja sér meö samningnum. Með þvi aö samþykkja samn- inginn erum viö aö festa i sessi þessi félagslegu réttindi. Þá er lika rétt aö hafa i huga aö samningurinn er aöeins til 1 árs og þvi hlýtur næsta skref okkar aö veröa þaö aö leiö- rétta kaupliö kjarasamnings- ins. Mér virðist fólk ekki al- mennt gera sér grein fyrir þvi aö meö þvi aö hafna þessum samningi erum viö aö tefla þeim árangri i hættu sem viö höfum náö i réttindamál- unum, þvi aö tillaga sem sáttanefnd myndi leggja fram ef samningurinn yröi felldur, hún myndi ekki fela i sér nein þessara félagslegu réttinda. Sáttanefndin heföi einfaldlega ekki umboö til aö bjóöa neitt slikt I sinni tillögu”, sagöi ör- lygur aö lokum. —þm Utankjörfundaratkvœðagreiðsla BSRB: Lítil kjörsókn enn Milli 20 og 30 manns hafa greitt atkvæöi i útankjör- fundaratkvæöagreiöslu BSRB sem hófst s.l. mánudag. Aö sögn Baldurs Kristjánssonar geta þeir sem ekki veröa viö á kjördegi greitt atkvæöi utan kjörfundar á skrifstofu BSRB aö Grettisgötu 89 milli kl. 9 og 5 á virkum dögum. Allsherjar- atkvæöagreiöslan veröur dag- ana 4. og 5. september n.k. og sagöist Baldur vilja hvetja þá félagsmenn sem ekki gætu kosið á kjördagana aö kjósa sem fyrst á skrifstofu BSRB. — þm

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.