Þjóðviljinn - 29.08.1980, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.08.1980, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. ágúst 1980 FÍM HAUSTSÝNING Félags isknskra myndlistarmanna Haustsýning F.l.M. verður opnuð að Kjar- valsstöðum 27. sept. n.k. Tekið verður á móti myndverkum á Kjar- valsstöðum föstudag 19. sept. kl. 17-20 e.h. öllum er heimilt að senda myndverk til dómnefndar. Stjórnin. ro Skrifstofur Kópavogskaupstaðar verða lokaðar frá kl. 12 á hádegi föstudag- inn29. ágúst vegna jarðarfarar Björgvins Sæmundssonar, bæjarstjóra. Bæjarritari. Frá Öskjuhlíðarskóla Skólastarf hefst mánudaginn 1. sept. með fundi starfsmanna kl. 9 f.h. Allir neméndur skólans mæti þriðjudag- inn 2. sept. kl. 13.00. Kennsla hefst fimmtudaginn 4. sept. Fræðslu-og kynningarfundir F.K.Ö. verða á þriðjudags- og miðvikudagskvöld. Skólastjóri. Frá Gagnlræðaskól- anum á Selfossi Starf skólans hefst með kennarafundi þriðjudaginn 2. sept. kl. 10. Nemendur 7. bekkjar mæti föstudaginn 5. sept. kl. 10. Nemendur 8. og9. bekkjar mæti sama dag kl. 13. Nemendur framhaldsdeilda mæti mánu- daginn 8. sept. kl. 14. Skólastjóri. Líflegt skrifstofustarf Laust er til umsóknar starf á skrifstofu stúdentaráðs Háskóla Islands. Um er að ræða heils dags starf. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist til skrifstofu S.H.Í., Stúdentaheimilinu í v/Hringbraut,101 Reykjavik, i siðasta lagi 8. sept. 1980. Nánari uppl. á skrifstofu S.H.l. jq Blikkiðjan Ásgarði 7, Garðabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 53468 Símiim er 81333 Djtmúm Síðumúla 6 S. 81333.; Fráleit skattheimta, segir Sigurður á Grænavatni — Ég hefði gjarnan viljað tala við þig I góöu tómi um helvitis skattalögin. Það felst slíkt óréttlæti i þeim, aö það er óger- legt við þau að búa. En það verður liklega að biða þangað til viö hittumst. Kemurðu ekki á Fjórðungsþing Norðlendinga? Sá, sem gaf skattalögunum þessa einkunn, — ég sé ekki beturenhúnsé laklega minus ef húnhangir þá einu sinni I þvi, — er Siguröur Þórisson, bóndi á Grænavatni i Mývatnssveit. — Þessi áætluðu laun koma alveg sérstaklega illa við okkur bændur hér á Norð- Austurlandi vegna harðind- anna, sem hér gengu yfir i fyrra. Hér var algjört hallæri sl. ár og ætti ekki að þurfa að segja það neinum, — og enginn möguleiki á að hafa það Ut úr búunum, sem áætlað er að þau gefi i tekjur. Það eru bara búnar til tekjur þó að greiðslugetan sé engin. Og svo kemur þetta svo misjafnt niður eftir þvi hvort menn eru kvæntir eða ekki. Það eykur enn á óréttlætiö. Það er enginn möguleiki fyrir marga aögreiða þessa skatta þó að þeir séu kannski ekki háir. Sérstaklega kemur þetta Ula viö sveitarfélögin. Þar er útsvarið lagt á falskar tekjur. Bændur, margir hverjir, hafa engin tök á að greiöa þaö af þvi að tekjur þeirra voru engar. Siðan fá sveitarfélögin ekkert úr jöfnunarsjóöi af þvi að álags- tekjurnar eru þetta háar á pappfrunum. Fyrir vikið komast mörg þeirra í vandræði. Það hefur nú verið skipuð ein- hver nefnd til þess að fjalla um þessi mál og vonandi kemur eitthvað gagnlegt frá henni. En þessum fáránlegheitum verður aö breyta og þaö sem allra fyrst, sagöi Sigurður á Græna- vatni. sþ/mhg Frá Siglufirði. er frystihúsin opnuöu Nýlega náði Landpóstur tali af tveimur Siglfirðingum, þeim Gunnari Rafni Sigurbjörnssyni, skólastjóra, og Guðmundi Páls- syni, bæjarritara. Að sjálfsögðu var einkum rabbað um Siglu- fjörð og athafna- og mannlffið þar á þessu sumri, sem nú er að renna sitt skeið á enda. Frásögn þeirra Gunnars og Guðmundar fer að nokkru hér á eftir en birt- ist að öðru leyti eftir helgina. Lokað i sex og sjö vikur — Atvinnuástandið hér á Siglufirði hefur, eins og I ýms- um öörum sjávarplássum, verið erfittf sumar. Hér eru starfandi tvö frystihús, hús Þormóðs ramma og hús ísafoldar. Hið fyrra var lokað I 6 vikur, hitt i 7 vikur. Þau eru nú bæöi tekin til starfa. Þessi lokun hefur auðvitaö sett svip sinn á bæjarlifið og at- vinnuástandið. Hefur atvinnu- tapið m.a. bitnað á unglingun- um og gerir mörgum þeirra án efa erfitt fyrir um framhalds- skólanám f vetur. Vaðandi þroskur Þormóður rammi gerir út tvo togara, Stálvik og Sigluvik. Þann tfma sem frystihúsin voru lokuð, sigldu skipin meö aflann, þó einkum Stálvikin. Sigluvik fór aöeins einn túr út en siðan i viögerð og var m.a. tekiö upp spiliö. Þann tima, sem skipin sigldu, var mjög góður þorskafli. Sem dæmi má nefna að Stálvikin fékk 170 tonn af góðum þorski á 4 dögum og i annað skipti 160 tonn á svipuðum tima, en hún átti inni daga frá þorskveiöi- banninu. Þetta urðu sem sagt 330 tonn á 10 dögum i tveimur túrum. Það er eins og fram- kvæmdastjórinn sagði við mig, mælti Gunnar, — að við hverju má búast i framtiöinni ef þessar friöunaraðgeröir takast og stofninn réttir sig við? Menn ættu að geta litiö björtum aug- um til framtíðarinnar ef svona dæmi eru höfð i huga. Skuttogarinn Siglfirðingur, (gamli Fontur), sem einnig er geröur út héðan, var f siglingum á lokunartimabilinu og var afli hans góöur. En nú eru húsin tekin til starfa og lifnar þá yfir lifinu á ný og svo kemur loðnan vonandi áður en langt um liður og við er- um tilbúnir hér aö taka á móti henni. Siglóverksmiðjan Siglóverksmiðjunni var lokað i byrjun þessarar viku. Þá var búið að vinna upp i samninginn um sölu á gaffalbitum til Rúss- lands. Það fólk, sem vann i verksmiðjunni, er nú flest at- vinnulaust. Rekstur fyrirtækisins er mjög erfiöur og megin ástæðan fyrir þvi er sú, að það verö, sem Rússarnirvilja borga fyrirgaff- albitana, nær ekki framleiðslu- kostnaöarverði. Má segja að mikil óvissa riki um framtið fyrirtækisins. Þar er nú komin ný stjórn. Er hún nú að vinna að úttekt á stöðu fyrirtækisins og kanna hugsanlegar leiðir til áfram- haldandi reksturs. Þar á meðal hefur verið rætt um aö vinna Umsjón: Magnús H. Gislason nokkurt magn fyrir Bjelland- fyrirtækið I Noregi, undir þess merki. Allt er þaö mál þó á könnunarstigi ennþá. Eitt af vandamálum Sigló- sildar er hráefnisöflunin. Þvi er þessa dagana verið aö athuga möguleika á þvi aö salta sild á Siglufiröi nú i haust. Tilgangur- inn með þvi er bæði sá, að út- vega Siglóverksmiðjunni hrá- efni og að auka atvinnu i bæjar- félaginu. Þessi könnun er gerð að frumkvæði stjórnar Sigló- verksmiðjunnar og stendur yfir þessa dagana. Allt er þó máliö i óvissu ennþá og þaö er nú svo, i þessum gamla sildarbæ, að hægara er sagt en gert að hefja hér söltun að nýju. Við getum sagt, að það sé vegna aöstöðu- leysis. Gömlu sildarsöltunar- stöðvarnar eru úr sögunni en þekkingin hjá mannskapnum er enn fyrir hendi. Gatnagerð Eitt af aðalverkefnum okkar I sumar hefur verið að leggja lagnir i' nýtt ibúðahverfi I suður- hluta bæjarins. Varanlegt slit- lag er ekki lagt á götur hér i sumar. Aftur á móti er verið að skipta um jarðveg f Laugarveg- inum og leggja þar lagnir. Er það i raun og veru stærsta verk- efnið, sem bæjarfélagið vinnur aö i sumar. Þá hefur og veriö steypt gangstétt við Suðurgötu. Höfnin Nokkrar framkvæmdir standa núyfir við höfnina. Verið er að steypa þekju á togara- bryggjuna og leggja þar nauð- synlegar lagnir. Yfirleitt má segja að mikiö hafi veriö unniö að lagfæringum á höfninni i ár og í fyrra. Og þaö setur svip sinn á bæinn og höfnina að aliar þessar gömlu trébryggjur eru nú farnar. Við það hefur bærinn frikkað auk þess sem þær voru hættu- legar fyrir börn, sem sóttust eft- ir aðklifrautan I þeim. —Meira seinna. gp/grs/mhg Frá Siglufirði: Létti í lofti

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.