Þjóðviljinn - 29.08.1980, Page 7
Föstudagur 29. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Af völdum sorps og úrgangs
vinnslustöðva:
Mikil mengun
á sjó og landi
NAUST rœðir umhverfis- og
náttúruverndarmál
Ortodoxir á Islandi
Rádstefna í Skálholti og
messa í Dómkirkjunni
t ályktun aðalfundar Náttúru-
verndarsamtaka Austurlands eru
itrekaðar fyrri samþykktir um að
sorpeyðing sveitarfélaga sé
komið i viðunandi horf og að
sláturhús og fiskvinnslustöðvar
gangi betur frá úrgangi. Eru
þessi mál viðast hvar enn i megn-
asta ólestri, svo af hlýst veruleg
mengun stórra svæða á landi og
sjó, segir i fundarályktun.
Þá beindi aðalfundur NAUST
þeim tilmælum til sveitarstjórna
á Austurlandi að þær láti fara
fram athugun á efnistökustöðum,
hver á sinu svæði, en allviða setja
smekklaust valdar og illa frá-
gengnar efnisnámur ljótan svip á
umhverfið og i sumum tilvikum
spilla þær útliti heilla sveita.
Til stjórnvalda og yfirstjórnar
vegamála var beint, aö skipu-
lagningu og uppbyggingu á fjall-
vegum verði hraðað eins og
kostur er og bent á, að aukin um-
ferö um hálendi landsins siðustu
ár hefur leitt til óþarfa og
gáleysislegs aksturs um vibkvæm
svæði, sumpart vegna slæmra
merkinga og ófullnægjandi leið-
beininga en einnig og ekki siður
vegna lélegs ástands fjallveg-
anna.
Að lokum var beint til Náttúru-
verndarráðs að það hlutist til um
að gistiskálum og hliðstæðum
byggingum sem reistar eru i
óbyggðum verði þannig valinn
staöur að þær spilli ekki gróður-
vinjum eöa fögru umhverfi.
Aðalfundur NAUST var haldinn
að Hofi i öræfum 16.—17. ágúst og
sóttu hann um 40 fulltrúar viða úr
kjördæminu. Farið var I Ingólfs-
höfða, skoðaöur Þjóögaröurinn i
Skaftafelli og fræðst um sögu og
náttúrufar af heimamönnum og
fulltrúum Náttúruverndarráös.
Eyþór Einarsson formaður
Náttúruverndarráðs flutti heilla-
óskir til samtakanna sem eru 10
ára á þessu ári. I skýrslu stjórnar
kom m.a. fram að aöal verkefni
stjórnarinnar á starfsárinu var
athugun á steinatöku á Austur-
landi I samvinnu við Náttúrgripa-
safnið i Neskaupstaö.
Einar Þórarinsson Neskaup-
stað var endurkosinn formaöur
samtakanna og aðrir i stjórn:
Magnús Hjálmarsson, Egilsstöð-
um, Anna Kjartansdóttir, Höfn,
öli Björgvinsson, Djúpavogi, Jón
Einarsson, Neskaupstað, Vara-
menn: Guörún Jónsdóttir, Hlöð-
um, Hermann Guðmundsson,
Vopnafirði og Friöjón Guðröðar-
son, Höfn.
Rúmlega 20 manna hópur for-
ystumanna ortodoxu kirkjunnar
mun dveljast hérlendis 6.-13.
sept. n.k. Koma þeir frá flestum
austantjaldslöndunum, svo og
Finnlandi, Grikklandi, ísrael og
viðar. Þeir munu syngja messu
i Dómkirkjunni i Reykjavik
sunnudaginn 7. september kl.
13.30 og dveljast siðan austur i
Skálholti við fundarstörf.
Hópurinn undirbýr sameigin-
legar viðræöur ortodoxu kirkj-
unnar við lútersku kirkjurnar
og hefur þvi kosið að funda i lút-
ersku landi.
Þetta má teljast kirkjusögu-
legur atburður, þvi aldrei áður
hefurortodox messa verið sung-
in hérlendis.
Austrænar heima-
slóðir
Ortodoxa kirkjan á rikust itök
i löndum Austur-Evrópu, Rúss-
landi og i löndunum á austur-
strönd Miðjaröarhafsins. Þar
sem mörg þessara landa eru
undir marxiskri yfirstjórn, og
kirkjan fær ekki að starfa eöli-
lega, er erfitt að gera sér grein
fyrir fjölda þeirra, sem til kirkj-
unnar teljast. Ortodoxir söfn-
uðir hafa komist á laggirnar
viða um heim þar sem innflytj-
endur frá þessum löndum hafa
sest að.
Saga kirkjunnar
Ariö 1054 varö skipting hinnar
kristnu kirkju I austurkirkju og
vesturkirkju. Vesturkirkjan
laut forræði páfans i Róm og
hefur löngum verið nefnd róm-
versk-kaþólsk kirkja. Austur-
kirkjan hefur siðan verið nefnd
ýmsum nöfnum. Griska kirkjan
eða grisk-rússneska kirkjan,
sem er þó engan veginn rétt-
nefni, þar sem margir ortodoxir
eru hvorki griskir né rúss-
neskir. Ortodox-kaþólska
kirkjan, austræna-ortodoxa
kirkjan eða ortodoxa-kaþólska
kirkjan I austri hefur kirkjan
einnig verið kölluð. Margir fella
sig nú best við stysta nafnið,
nefnilega ortodoxa kirkjan,
enda er hún ekki bundin við
austriö eitt né heldur hluti af ka-
þólsku kirkjunni með höfuð-
stöövum i Róm.
Skipting kirkjunnar 1054 var
ekki aðeins landfræðileg á þeim
tima heldur menningarleg. 1
rómversk-kaþólsku kirkjunni
mótaði latina mál og hefð kirkj-
unnar, I austurkirkjunni varð
ekkert opinbert tungumál, en
grisk hugsun hafði þar mikil
áhrif. Frá bæjardyrum orto-
doxra er rómversk-kaþólsk
kirkja og mótmælendakirkja
aöeins tveir fletir sömu
myndar.
Það, sem hefur gerst i vest-
rænu kirkjunni siðan 1054, t.d,
siöabóU gagnsiðbót, hefur ekki
haft áhrif á ortodoxa. Þaö hefur
verið sagt að kirkjur vestur-
landa byrji jafnan á sömu
spurningunum, þótt þeim komi
ekki saman um svörin. Hjá
ortodoxum eru einfaldlega allt
aðrar spurningar en i vestur-
kirkjunum.
Óvænt viðhorf
Einangrun ortodoxu kirkj-
unnar hefur að sjálfsögðu
rofnað viðauðveldan feröamáta
nútimans. Kynni af ortodoxum
söfnuðum sem komist hafa á
laggir viöa um heim, hafa vakið
áhuga annarra kirkjudeilda á
þessari merku kirkju. En fyrst
og fremst hefur hinn sivaxandi
áhugi á einingarstarfi innan
kirkjunnar vakið menn til með-
vitundar um þá auölegð, sem
býr i ortodoxri trúarhefö. Orto-
doxir hafa unnið ómetanlegt
gagn I viöamiklum umræðum
kirkjunnar, vegna þess aö þeir
koma frá allt annarri hefð en
vesturkirkjurnar, nálgast
ágreiningsefnin frá öðrum og
ferskum sjónarhól og benda
gjarnan á löngu gleymdar
lausnir á gömlum erfiöleikum.
Skipulag ortodoxu
kirkjunnar
Skipulagslega séð er ortodoxa
kirkjan sem fjölskylda sjálf-
stæðra kirkna, tengd i einingu
trúar og sakramenta. Enginn
páfi er yfir kirkjunni né heldur
er þar ákveðin miðstýring.
Hinsvegar hefur patrfarkinn I
Konstantinopel, af sögulegum
orsökum, svipaða stöðu meöal
ortodoxra eins og erkibiskupinn
af Kantaraborg hefur meöal
anglikana. Hann skiptir sér ekki
af innri málum ortodoxu kirkj-
unnar utan sins svæðis.
Frá fornu fari hafa verið
fjögur patriörk, eða einskonar
erkibiskupsdæmi meðal orto-
doxra. 1 Konstantinopel, Alex-
andriu, Antiokkiu og Jerú-
salem. Siðan eru 11 sjálfstæðar
kirkjur i Austur-Evrópu. Hér er
ekki átt við sjálfstæði gagnvart
rikisvaldi heldur kirkjulega séð.
Þá eru kirkjurnar i Finnlandi,
Kina, JapanogMakedoniu, áem
allar eru fámennar, þær stjórna
málum sinum en eru ekki sjálf-
stæöar að fullu.
Loks eru svo biskupsdæmi
viðsvegar um heim, m.a. er eitt
á Norðurlöndum og þar situr
Metropolitan Paulos, sem er
undir væng Patriarksins I Kon-
stantinopel.
Hvað þýðir Ortodox
Oröið ortodox hefur tvenns-
konar merkingu, „rétt trú” og
„rétt dýrð” eða „rétt til-
beiðsla”.
Ortodoxir telja kirkju sina
vera kirkju Krists á jöröu hér.
Hún gætir hinnár réttu kenn-
ingarog kennir hina sönnu trú á
Guð og tilbiöur hann með rétt-
um hætti.
Hvað felst raunverulega i
þessari skoðun og hvernig orto-
doxir lita á aðrar kristnar
kirkjur, verður okkur trúlega
ljósara eftir dvöl hinna 20
framámanna kirkjunnar hér-
lendis i september.
Tilbeiðslan
Sem fyrr er sagt verður guös-
þjónusta i Dómkirkjunni sunnu-
daginn 7. sept. kl. 13.30 og kvöld-
og morgunbænir verða sungnar
i Skálholti, meðan hópurinn
fundar þar. Eru allir veikomnir
aö sækja helgar tiðir meö þeim
ortodoxu.
Tilbeiöslan er ákaflega rikur
þáttur i lifi ortodoxu kirkjunnar.
Helgisiðir til hins smæsta at-
riðis eru þeir sömu i allri kirkj-
unni þótt ólik tungumál séu
notuð. Þetta sameinar ortodoxa
meir en nokkuö annað og tengir
söfnuöinn við hefð kirkjunnar
allt frá fornkristni.
Það er enginn asi á orto-
doxum er þeir tilbiöja Guö sinn.
Guðsþjónustan i Dómkirkjunni
mun taka a.m.k. tvær stundir.
Tónlist og söngur i ortodoxum
messum þykir dýrindisfögur
svo og helgihaldið allt.
(Fréttatilky nning)
Hafskip með
fjölhœfnisskip:
Þriðja
Seláin
M.S. Selá heitir nýjasta
skipið i kaupskipaflotan-
um og er eign Hafskipa h.f.
A miðvikudaginn var f jöl-
hæfnisskipið Bomma m.v.
skirt Selárnafninu og
skráð á Akureyri og er
þetta þriðja skip Haf-
skipa sem þetta nafn ber.
Þetta er annað af tveimur fjöl-
hæfnisskipum sem Hafskip h.f.
hefur samiö um kaup á frá Fred
Ólsen félaginu i Noregi. Bæði
skipin hafa um skeið verið I
áætlunarsiglingum fyrir Hafskip
h.f. frá þvi I september ’79 og I
april sl. Skipin eru 2.828 d. w.
tonn, og búin opnanlegum skut,
tveimur vörulúgum á hliö og fær-
anlegum millidekkjum. Kaup-
veröskipanna er rúmlega 2.3 mil-
jónir Bandarikjadala. Den
Norske Kreditbank I Osló hafði
milligöngu um fjármögnun þess
hluta kaupverösins sem leyfilegt
er að fá lánað erlendis. Skipstjóri
á m.s. Selá er Rögnvaldur Berg-
steinsson.
tslenski fáninn dreginn aö hún á m.s. Selá sl. miðvikudag.
Öldungar austan fjalls
i framhaldsnámi
Engir eftir-
bátar annarra
Öldungadeildin heldur áfram þótt
rikisstyrkinn vanti
öldungadeild i Hveragerði
hefur starfað einn vetur i náinni
samvinnu við Menntaskólann i
Hamrahlið. Hefur starfsemin
mælst vel fyrir meðal heima-
manna og er ákveðiö að halda
henni áfram þótt synjað hafi
verið um fjárstyrk af hálfu rikis-
ins.
öldungadeildinni I Hveragerði
var slitið i fyrsta skipti 22. mai sl.
Er deildin tók til starfa I janúar
sl. hófu nám 83 nemendur frá
Hverageröi, ölfushreppi, Sel-
fossi, Stokkseyri og Gnúpverja-
hreppi. Þar sem deildin naut
engra rikisstyrkja vegna launa-
kostnaöar né annars, var þess
farið á leit við sveitarfélög nem-
enda að þau styrktu hana meö
fjárframlögum og uröu Hvera-
gerðis—ölfus- og Gnúpverja-
hreppur mjög rausnarlega við
þeirri málaleitan. Aðstandendur
deildarinnar vænta þess að vegna
synjunar rikisvaldsins muni öll
sveitarfélög nemenda bregöast
vel við óskum hennar um stuön-
ing á komandi haustönn, enda er
deildin eini kostur útivinnandi
fólks aö stunda nám á framhalds-
skólastigi austan fjalls.
Eins og áöur sagöi starfar Old-
ungadeildin i Hverageröi i nánu
samstarfi við MH. Voru próf lögð
samtimis fyrir nemendur beggja
skólanna og úrlausnir metnar af
kennurum MH. I prófunum
reyndust „öldungar” austan
fjalls engir eftirbátar þeirra sem
nám stunduðu viö MH og hyggj-
ast flestir þeir 62 sem próf þreyttu
halda áfram námi viö öldunga-
deildina I Hverageröi.
Á komandi haustönn
Pramhald á bls. 13