Þjóðviljinn - 12.09.1980, Side 15
Föstudagur 12. september 1980'JÓÐVILJINN — SIÐA 15*
frá M Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum, Síðumúla 6. lesendum
Vankantar á
skattalögum
ES hringdi og sagöi sem svo:
Mér finnst að þið á Þjóövilj-
anum séuð full ánægð yfir þeim
skattalögum sem nú er verið aö
prófa á landsmönnum. Þið
mættuð gjarna hugsa meira um
þá vankanta sem á þeim eru,
það óréttlæti sem þau smiöa
með ýmsum hætti.
Viðskulum taka einfalt dæmi.
Hugsum okkur hjón sem ekki
hafa aðrar tekjur en ellilifeyri
og tekjutryggingu og ekkju sem
eins er ástatt um. Hjdniri eiga
ibúð sem metin er á 25 míljönír
króna og ekkjan lika.
Þær reglur gilda I skatta-
lögunum, að eignum til eigna-
skatts er skipt jafnt milli hjóna.
Þau „eiga” þvi 12.5 míljónír
hvort. En eignaskattur er
ekki lagöur á fyrr en eignin er I
15 miljónum. Þessi ágætu eftir-
launahjón sleppa þvi við eigna-
skatt.
Ekkjan hinsvegar lendir i
eignaskatti, vegna þess að hún
erein. Skattur þessi er 1.21% af
eignamati eöa i þessu tilviki
röskar 120 þúsund krónur. Og
eins og ég sagði áðan eru
tekjurnar mjög takmarkaðar.
Og svo vikið sé að hjónunum
aftur: ef annað þeirra deyr er
ekkillinn eða ekkjan mun verr
sett en áöur.
Svona lagað fæst ekki leiðrétt,
segja þeir á skattinum. sem f raun sýna breytingu til
Þetta dæmi telst til þeirra hins verra frá þvi sem áöur var.
Umsjón: Edda Björk og Hafdís
Hvað gamall er þessi fíll?
Það er sagt að fílar geti orðið mjög gamlir. Leggið
saman tölurnar á myndinni og gáið hvað þið komist
hátt upp.
Skrýtlur
Maður nokkur nam
staðar á götu til að horfa
á stóra líkfylgd sem f ram
hjá fór. Síðan segir hann
við litla stúlku sem hjá
honum stóð:
— Þú getur vænti ég
ekki sagt mér hvern er
verið að fara að jarða?
— Jú, það get ég. Það er
sá sem liggur í kistunni
þarna.
Saltabrauð
(útileikur)
Saltabrauð er þannig,
að sá sem er hann telur
upp að 250 eða 300.
Meðan hann telur,eiga
hinir að fela sig. Þegar
búið er að telja eiga hinir
að vera búnir að fela sig.
Sá sem er hann byrjar þá
að leita. Meðan hann er
að þvi,reyna þeir sem
GÁTUR-
1. Hvaö er það sem hleypur
áfram og flautar, en getur
hvorki talað né gengið?
2. Hvaöa sýki er það sem aldrei
hefur gengið i neinu landi?
3. Hvað er það sem fólk talar
mest um, en getur þó hvorki
ráðið við né breytt neinu um?
földu sig að komast að
staðnum,þar sem talið
var, og kalla: „Saltað
brauð fyrir mér, einn
tveir þrír!"
Ef sá sem er hann sér
einn þeirra sem földu sig
hleypur hann að staðnum
þar sem hann taldi og
kallar: „Saltað brauð
fyrir (t.d.) Gunnu (bara
að það sé nafnið á þeim
sem hann sá),einn, tveir
og þrír!“.
4. Hvað er það sem sólin getur
aldrei skinið á?
5. Hvað er það sem hefur egg,
en getur samt ekki orpið?
6. Hvaö er það sem fær fólk til
að gera töluverðan hávaða og
gretta sig um leið?
Svör:
1. járnbrautarlest, 2, sjóveiki, 3.
veðrið, 4. skugginn, 5. hnifur, 6.
hnerri.
— Maður nokkur særð-
ist á hné af byssuskoti og
læknarnir skáru skurð í
hnéð. Loksins varð hann
óþolinmóður og spurði hví
þeir væru svona
miskunnarlausir við sig.
— Við erum að leita að
kúlunni.
— Af hverju sögðuð þið
það ekki fyrr? — spurði
maðurinn, — ég er með
hana í vasanum.
Læknirinn: Kýlið sem
þér eruð með i hnakkan-
um mun batna bráðum,
en þér verðið daglega að
hafa vakandi auga með
því.
barnahomið
Krakkar á Akureyri
Litli barnatlminn i dag er
tekinn upp á Akureyri og er f
umsjá Grétu ólafsdóttur.
Tvær tiu ára telpur, Borg-
hildur Siguröardóttir og
Kristin Magnúsdóttir, velja og
flytja efnið i þættinum með
stjórnanda. Það færist nú i
vöxt að krakkamir taki sjálfir
þátt i að búa til þætti sem þeim
eru ætlaðir, og er það góð til-
breyting og skemmtileg.
-ih.
Útvarp
kl. 17.20
—
Fassbinder 1 kvöld
Hreinsanir
Stalíns
Nú er þar komiö i þáttunum
um „Rauða keisarann” Jósep
Stalín, að hann er farinn að
hreinsa til i flokknum. I þætt-
inum i kvöld, sem er sá þriðji í
röðinni, er fjallað um tima-
bilið 1934-39.
Það veröur að segjast að
þættir þessir virðast ekki
byggðir á neitt sérstaklega
traustum sagnfræðilegum
grunni, og margt hefur orkaö
tvimælis i þeim tveimur þátt-
um sem þegar hafa
verið sýndir. Einkum var yfir
borðslega fjallaö um bylting-
una sjálfa og striðið sem kom I
kjölfar hennar. Það var af-
greitt sem borgarastrið milli
hvitliða og rauöa hersins og
litið sem ekkert gert úr þvi að
þetta var innrásastriö, sem
herir flestra Vesturlanda tóku
þátt I.
Manni virðist óneitanlega
að hér sé um áróðursmynd
gegn Stalin að ræða fremur en
heimildamynd um timana
sem hann lifði og þjóðfélagið
sem hann átti stóran þátt i að
skapa. Það er dálitið hjákát-
Að leikslokum
1 kvöld sýnir sjónvaroið
hátiðahöld sem frarn fóru
þegar hinum sögulegu Ólym-
piuleikum lauk i Moskvu I
sumar.
Var þar mikiö húllumhæ:
fimleikar, dansar og flugelda-
sýning, og ekki að efa að
margir áhorfendur kunna að
meta slikt, einkum þeir sem
hafa litasjónvarpstæki. ____.
Sjónvarp
kl. 20.40
Þýski kvikmy ndastjórinn
Rainer Werner Fassbinder er
islenskum kvikmy ndaunn-
endum að góðu kunnur.
Myndir hans hafa veriö
sýndar hér I Fjalakettinum, i
sjónvarpinu, sem mánudags-
myndir I Háskólabiói og á al-
mennum sýningum, og er
skemmst að minnast örvænt-
ingar (Despair) sem Laugar-
ásbió sýndi fyrir nokkrum
mánuðum.
1 kvöld sýnir sjónvarpið eina
af eldri myndum hans, Banda-
riska hermanninn, frá 1970.
Hún fjallar um hermann sem
snýr heim til Þýskalands eftir
að hafa tekið þátt f hernaöi
Bandarikjanna i Vietnam.
Þessi mynd mun ekki hafa
verið sýnd hér á landi áður, en
hún vakti heilmikla athygli á
sinum tima úti I hinum stóra
heimi, eins og reyndar flestar
myndir þessa umdeilda leik-
stjóra.
Fassbinder er einna fræg-
astur fyrir ódrepandi vinnu-
gleöi. Hanner alltaf með mörg
járn i eldinum, semur handrit
og stjórnar kvikmyndum og
sjónvarpsleikritum, fram-
haldsmyndaflokkum og leik-
hússýningum og er jafnframt
leikari. Einsog gefur að skilja
eru verk hans ekki öll talin til
snilldarverka, en hann hefur
vVC V. Sjónvarp
fT kl. 21.3S
leg timaskekkja að hafa uppi
áróður gegn Stalín nú, þegar
fólk hefur yfirleitt það mikla
þekkingu á þessum málum að
áróður fyrirStalin er vonlaus,
svo ekki sé meira sagt.
Mættum við þá heldur biðja
um gagnrýna og pottþétta
heimildamynd, byggða á
þekkingu. .jh.
Fassbinder leikur sjálfur eitt
af hlutverkunum i Bandariska
hermanninum. Hér er hann
(t.h.) samt Karl Scheidt.
yfirleitt eitthvað að segja, og
oftast er það eitthvaö sem
skiptir máli.
Myndin i kvöld er ekki viö
hæfi barna.
-ih.