Þjóðviljinn - 15.10.1980, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 15.10.1980, Qupperneq 3
Miðvikudagur 15. oktðber 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Aukahæðir Byggungar; Borgarráð frestar enn A fundi borgarráðs i gær var enn einu sinni rætt um mál Byggung, en eins og fram hefur komið i fréttum hefur beiðni þess um að fá að reisa háhýsi á Eiðsgranda, i stað þeirra 3ja hæða húsa sem gert er ráð fyrir i skipu- laginu, verið hafnað i skipu-' lagsnefnd borgarinnar. Borgarráð frestaði enn af- greiðslu málsins. Nýjar barnabækur Frá v.: óskar Guðnason, Ásgeir Þóröarson, Halldór Rafnar, Rósa Guðmundsdóttir, Björg Einarsdóttir, Asgerður ólafsdóttir. — Mynd: —eik. Þrjárbækur um Einar Áskel 15. OKTÓBER ÁR HVERT: Dagur „Hvíta stafcins” Hjá Máli og menningu eru komnar út þrjár nýjar barnabækur með litmyndum handa yngstu kynslóðinni. Þetta eru bækurnar um Einar Askel, sem er litill strákur sem býr með föður sinum. Einar Áskell hefur náð miklum vinsældum viða um heim, þar sem bækurnar hafa verið gefnar út, og einnig hefur verið gerður flokkur sjónvarpsmynda eftir bókunum, og hefur það aukið enn á vinsældir þeirra. Höfundur texta og mynda er Gunilla Bergström, sem mörgum er að góðu kunn, en Sigrún Árnadóttir hefur þýtt bækurnar á islensku. Þessar þrjár fyrstu bækur um Einar Askel heita: Flýttu þér Einar Áskell, Góða nótt Einar Askell og Svei-attan Einar Askell. Bækurnar eru prentaðar i Danmörku hjá Aarhus Stifts- bogtrykkerier, setningu og filmuvinnu annaðist Prent- stofa G. Benediktssonar. Þvi má bæta við að á frummálinu heitir Einar Askell Alfons Áberg. „Jesús ttfir” í Bústaða- kirkju „Jesús lifir” er nafn á hljómleikum á vegum tón- listarmanna og söngvara úr ýmsum söfnuðum eða kristi- legum samtökum, sem starf- andi eru hér á landi. Verða tónleikarnir i Bústaðakirkju nk. föstudagskvöld kl. 21. Aðstandendur tónleikanna benda á, að áhugi fólks á kristinni trú hafi aukist um allan heim undanfarin ár og að þessari trúarvakningu hafi fylgt ýmsar breytingar varðandi form á mismun- 'andi þáttum kirkjustarfsins, þ.á.m. tónlistinni. Skipar nú svokölluð létt tónlist æ stærri sess i kirkjunni viða um heim, t.d. léttir kórar, söng- hópar og hljómsveitir, sem oft flytja eigin tónlist. Þetta hefur einnig gerst hér, og hafa slikir hópar skotið upp kollinum annað slagið, en litið til þeirra heyrst nema i takmörkuðum hópi fólks. Með tónleikunum „Jesús lifir” á að bæta þar um. Meðal þeirra sem leika og syngja eru Hljómsveitin 1. Kor. 13, Fides, Garðar og Anna, Agústa Ingimars- dóttir, sönghópur og Hellen S. Helgadóttir. Samtök sem þessir tónlistarmenn starfa i eru Hvitasunnusöfnuðurinn, Kristileg skólahreyfing, Krossinn og Ungt fólk með hlutverk. Aðgangur að tón- leikunum er ókeypis. —vh. I dag verður hátíðlegur haldinn Alþjóðlegur dagur hvíta stafsins. Og í dag og næstu daga munu félagar Junior Chambers dreifa til sem allra flestra öku- manna á landinu lím- miðum, sem ætlað er að minna á tákn blindra f hinni hröðu umferð nútím- ans, hvíta stafinn. Þetta kom fram á fundi, sem forráðamenn J.C. ásamt full- trúum frá Blindrafélaginu héldu með fréttamönnum i gær. Vera má, að einhver spyrji um ástæðuna fyrir dreifingu þessara limmiöa. Svarið er, segja JC- menn, að eitt af þremur aðalhlut- verkum hreyfingarinnar er að stuðla að bættu mannlifi i þjóðfé- laginu yfirleitt, og að þvi vinna félögin, hvert i sinu byggðarlagi. A Landsþingi J.C. 1979 var samþykkt að landsverkefni hreyfingarinnar starfsárið 1980—1981 skyldi vera tengt ör- yrkjum og ber það yfirskriftina: „Leggjum öryrkjum lið”.Er þvi vel til fundið, að fyrsta byggðar- lagsverkefni J.C.R. sé unnið i þágu blindra og sjónskertra. Tilgangurinn með gerð og dreifingu limmiðanna er einkum sá, að minna á tilvist blindra og tákn þeirra i umferðinni, hvlta stafinn, sem nú er orðinn tákn blindra um allan heim. Akveðið hefur verið að 15. okt. ár hvert verði alþjóðlegur dagur hvita stafsins. Er til þess mælst, að allir tslendingar viðurkenni gildi hans, afli sér sem bestrar þekk- ingar á notkun hans, og sýni þannig I verki skilning á þvi þýðingarmikla umbóta- og mann- réttindastarfi, sem hér er unnið að. Undirbúningur og skipulag þessa verkefnis hefur byggöar- lagsnefnd 1 hjá J.C. i Reykjavik haft með höndum. Félagið var stofnað 1967 og i þvi eru 110 félag- ar. Formaður undirbúnings- nefndarinnar er Asgeir Þórðar- sonfen forseti J.C. Reykjavikur er Óskar Guðnason. —mhg Herstöðvaandstæðingar Akureyri: Undirbúningur fyrir landsráðstefnu í kvöld Undirbúningsfundur fyrir landsráðstefnu verður haldinn með herstöðvaandstæðingum á Akureyri I kvöld kl. 20.30 i Einingarhúsinu, Þingvallastræti 14. Þar verða kynnt þau efni er tekin verða fyrir i umræðuhópum á ráðstefnunni. Mörg áhugaverð efni verða á dagskrá, og eru her- stöðvaandstæöingar hvattir til að fjölmenna. Haustfundur Akureyrardeildar Samtaka herstöðvaandstæðinga var haldinn 4. október s.l. A fund- inum var ný stjórn kosin, fyrir næsta starfsár. 87 manns hafa nú látið skrá sig hjá deildinni. Haustfundurinn samþykkti ályktun um mál Patricks Gerva- soni, bauð hann velkominn til Islands og mótmælti harðlega ómannúðlegri meðferð islenskra stjórnvalda á málum hans. Var þess krafist, að Gervasoni verði þegar i stað veitt fullt landvistar- leyfi á tslandi. Þá samþykkti fundurinn hvatn- ingu til herstöðvaandstæðinga um allt land að fjölmenna til lands- ráðstefnunnar á Akureyri um næstu helgi. Hermangi mótmælt Varðandi Flugleiðamál voru samþykkt mótmæli gegn „þeim sifelldu tilraunum til að auka hermang á Islandi, sem utan- rikisráðherra stendurað, með þvi að reyna að útvega Flugleiðum dúsu frá bandarfska hernum.” Að lokum var gerð eftirfarandi ályktun um leynd á erlendu fjár- magni á Islandi: „Elias Daviðsson hefur um langt skeið reynt að afla sér upp- lýsinga um erlent fjármagn á lslandi, og kvaðir tengdar þvi. Það kemur engum á óvart, þótt beinir fulltrúar hins erlenda auð- magns á Islandi, svo sem for- stjóri ÍSALS, neiti honum um þessar upplýsingar, en það hlýtur að teljast lágmarkskrafa að þær upplýsingar sem geymdar eru i islenskum ráðuneytum um þessi mál séu aðgengilegar islenskum fræðimönnum, sem þetta vilja rannsaka. Þvi skorar Akureyrar- deild Samtaka herstöðvaand- stæðinga á rikisstjórnina og ráðu- neyti að aflétta leyndinni af þeim skjölum og gögnum, sem Elias Daviðsson hefur leitað eftir að fá, um erlendar fjárfestingar á íslandi.” Þórunn Sigurðardóttir afhendir Hailmari Sigurðssyni fyrsta ferða- styrkinn úr Menningarsjóði FLt. Hallmar hlaut ferða- styrk Hallmar Sigurðsson leikstjóri hefur hlotið feröastyrk úr Menn- ingarsjóði Félags leikstjóra á Islandi að upphæð 600 þúsund krónur. Þetta er I fyrsta sinn sem veitt er úr Menningarsjóði FLl. Ferðastyrkinn hyggst Hallmar nota til ferðar um Finnland og Vestur-Þýskaland, þar sem hann ætlar að kynna sér samstarf og samband milli leikhúsa og kvik- myndagerðar og fylgjast með störfum nokkurra þekktra leik- stjóra sem vinna jöfnum höndum fyrir leikhús og kvikmyndun. „Geta kvikmyndir notið af þeirri reynslu sem leikhúsin búa yfir og hvernig þá?” er m.a. sú spurning sem FLl og Hallmar hafa áhuga á að velta fyrir sér. Hallmar Sigurðsson lauk námi i leikstjórn við Dramatiska Insti- tutet i Stokkhólmi og hefur starf- að hér á landi i uþb. ár. Hann setti upp i haust sýningu LR „Að sjá til þin maður” og æfir nú „Könnu- steypinn pólitiska” hjá Þjóðleik- húsinu. Úthlutað verður úr Menningar- sjóði Félags leikstjóra á Islandi framvegis i upphafi leikárs ár hvert. 1 stjórn hans eru Þórunn Sigurðardóttir, sem jafnframt er gjaldkeri FLt, Sverrir Hólmars- son, tilnefndur af Leiklistarsam- bandi lslands,og Jónas Jónasson. Formaður FLÍ er Erlingur Gisla- son. —ekh Heitt mál rætt lögfræðingum: Eftirlit með\ útlendingum j ogframsal ■ sakamanna I Lögfræðingafélag tslands > efnir til almenns fundar um I reglur islenskra laga um I eftirlit með útlendingum og , framsal sakamanna á ■ morgun. Um þessi mál munu I fjalla Jónatan Þórmundsson I prófessor og Ragnar Aðal- , steinsson hæstaréttar- ■ lögmaður, sem kynnt hafa I sér þau sérstaklega. Siðan I verða almennar umræður. , Svo sem kunnugt er, er i það i vaxandi mæli að I erlendir menn leiti hér land- j vistar, annaðhvort sem póli- , tiskir flóttamenn eða af ■ öðrum sökum. Verður á I fundinum m.a. fjallað um j það hvenær heimilt er að ■ meina mönnum að koma inn I i landið, hvaða ástæður geta I leitt til þess að mönnum er | visað úr landi og hvaða ■ reglur gilda samkvæmt is- i lenskum lögum og þjóða- I rétti um skyldu rikja til þess | að taka við pólitiskum flótta- ■ mönnum. Þá verður rætt um þaö i I framsöguræðunum, hver | ákvæði gilda hér á iandi um ■ framsal sakamanna til ann- I arra landa. Þessi fundur Lögfræðinga- | félagsins er öllum opinn. > Hann hefst kl. 20.30 og er I haldinn i stofu 101 i Lögbergi, I Háskóla Islands. . ■ Operutónleikar; Ólöf og : Garðar með! Sinfómu- I a sveitinni I Garðar Cortes Einsöngvararnir ólöf I Harðardóttir og Garðar | Cortes syngja með Sinfóniu- | hljómsveit lslands á tón- ■ leikum hennar annað kvöld. I Þetta verða óperutón- I leikar og flutt atriði úr | ýmsum óperum eftir Verdi, • Rossini, Donizetti, Puccini, I Tsjaikovský, Catalani, I Ponchielli og Gounod. I Stjórnandi tónleikanna er 1 , Jean-Pierre Jacquillat. —vh I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.