Þjóðviljinn - 15.10.1980, Blaðsíða 13
Miövikudagur 15. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Idnþróunar-
fulltrúi
fyrir
Austur-
land
Austfirðingar hafa nú ráðið til
sin sérstakan iönþróunarfulltrúa.
Er það Halldór Arnason, sonur
Arna Halldórssonar, lögfræðings
á Egilsstööum.
Halldór hefur á ýmislegt lagt
gjörva hönd. A sinum tíma lærði
hann sútunfen stundaði siðan um
hrið verkamannastörf og sjó-
mennsku. Prófi lauk hann frá
undirbúningsdeild Tækniskólans
1973. Upp úr þvi tók hann að nema
við Háskólann og lauk BS-prófi i
efnafræði 1977. Las siðan
rekstrar- og þjóðhagsfræði i
Lundi i Sviþjóð og lauk námi þar
nú i haust.
Iðnaðarráðuneytið hefur veitt
fé til þess að undirbúa iðn-
þróunarstarf i fjórðungnum. Það
mun og sjá um greiðslu, sem
nemur föstum launum iðn-
þróunarfulltrúans, en Aust-
firðingar binda mikla vonir við að
starf hans verði mikil lyftistöng
fyrir ýmiss konar iðnað i fjórð-
ungnum.
—mhg
Claude Levf-Strauss:
Mythos und Bedeutung.
Funf Radiovortrage.
Gesprache mit Claude Lévl-
Strauss. Herausgegeben von
Adelbert Reif. edition surhkamp.
Neu Folge Band 27. Suhrkamp
Verlag 1980.
Allt frá þvl á 17. öld meö upp-
komu skynsemisstefnu og vis-
indalegra rannsóknaraðferða,
hafa goösögur eða mytur verið
taldar heilaspuni frumstæðra
manna og að á þeim væri ekkert
mark takandi. Það er ekki fyrr en
á vorum dögum, aö mytan er tal-
in rannsóknarverö og aö goðsög-
urnar séu snar þáttur mennskrar
sögu og þróunarsögu meðvitunar-
innar. Sá maöur sem hefur gert
mönnum skiljanlega þýðingu
goðsagnanna er Claude Lévi-
Strauss.
Þessi erindi sem hér eru gefin
út, voru upphaflega flutt sem út-
varpserindi i desember 1977.
Erindin eru nokkuð lengd i þess-
ari útgáfu. Erindin eru fimm.
Fyrst skýrir höfundur hugtakiö
strukturalismus og frá þvi á hvern
hátt hugsanageröin þróast, siöan
er borinn saman hugsanagangur
hinna svonefndu frumstæðu
mannflokka og visindamanna
nútimans. Fjallaö er um hvort
myturnar eins og C.L.-S. útlistar
þær séu upprunalega eigin gerö-
ar, en ekki meira og minna kerf-
aðar af C.L-S. 1 siðasta erindinu
er fjallaö um mytur og hljómlist,
,en höfundurinn ^heldur þvi fram
að mytur og músik eigi sér upp-
haf I málinu og séu af sama toga
en hafi þróast i ákveðnar áttir er
á leiö.
Þessi erindi skýra margt 1
kenningum Lévi-Strauss og til
enn frekari skýringar eru einnig
birt viðtöl höfundar um efnin við
ýmsa kunna franska fræðimenn.
Bók þessi er ágætt inngangsrit
að kenningum Claude Lévi-
Strauss. Suhrkamp hefur gefiö út
flestöll rita Lévi-Strauss á þýsku,
m.a. Mythologica I-IV,
Strukturale Anthropologie, Das
wilde Denken.
ALÞVÐUBANDALAGIÐ
Umræðufundur um kjaramál
Atvinnulýðræði
Næsti fundur I umræöufundaröð um kjaramál verð-
ur miðvikudaginn 15. okt. kl. 20.30 að Grettisgötu 3.
Á fundinum hefur Björn Arnórsson framsögn um
atvinnulýðræði. Félagar fjölmennið og fræðist jafn-
framt þvi að taka þátt I undirbúningi ABR fyrir
landsfund.
Alþýðubandalagið i uppsveitum Árnessýslu
Aöalfundur Alþýðubandalagsins I uppsveitum Arnessýslu veröur hald
inn í Aratungu miðvikudaginn 22. okt. n.k.og hefstkl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa i kjördæmisráð og á
landsfund.
3. Félagsmálin.
4. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra flytur
ræðu um stjórnmálin og rlkisstjórnarþátt-
tökuna.
Stjórnin
Alþýðubandlagið i Hafnarfirði
FÉLAGSFUNDUR miðvikudaginn 15. okt. kl. 20.30 í Skálanum.
Fundarefni: 1. Undirbúningur fyrir landsfundinn 20.—23. nóv. 2. Kosn-
ing fulltrúa á landsfund. 3. Onnur mál. — Félagar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka þátt i mótun stefnuflokksins. — Stjórnin.
FÉLAGSGJÖLD ABR
Um leiö og stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik hvetur félaga til að
taka virkan þátt i starfi félagsins minnum við þá sem enn hafa ekki
greitt útsenda giróseðla aö gera þaðsem fyrst. — Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið i Þorlákshöfn og nágrenni
heldur aðalfund sinn að Reykjabraut 5, Þorlákshöfnj
sunnudaginn 19. okt. kl. 16.00. Venjuleg aðalfundar-
störf. — Stjórnin.
Kjördæmisráð Norðurlands vestra
AÐALFUNDUR f féjagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 18. októ-
ber kl. 13.
Dagskrá: 1. Formaður kjördæmisráðs, Jón Torfason frá Torfalæk.set-
ur fundinn. 2. Félagsstarfið i kjördæminu. 3. Stjórnmálaviðhorfið.
Almennur opinn fundur verður haldinn i félagsheimilinu kl.
16:30—19:00 um störf rikisstjórnarinnar, kjarasamningamál og hags-
munamál kjördæmisins. — Frummælandi verður Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra. — Fundurinn er öllum opinn. Frjálsar umræður og
fyrirspurnir.
Alþýðubandalagsfélag Akraness og nágrennis
Félagsfundur verður haldinn f Rein mánudaginn 20. okt. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Stjórnmálaviðhorfið, Skúli Alexandersson.
2. Inntaka nýrra félaga.
3. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs.
4. Blaðaútgáfa.
önnur mál.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Keflavík
Fundur I Tjarnarlundi n.k. fimmtudagskvöld 16.10. kl. 20:30. Kosin
verður uppstillingarnefnd og rætt um vetrarstarfiö. Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Umræður um fjölskyldupólitik
Sfðasti fundurinn i umræðufundaröö um fjölskyldupólitik verður
haldinn fimmtudaginn 16. okt. kl. 20.30 aö Freyjugötu 27. Fundarefni:
Samantekt og úrvinnsla á efni fyrri funda og ræddar hugmyndir að til-
lögum sem leggja á fyrir fulltrúaráðsfund ABR og landsfund.
Félagar fjölmennið og takið þátt i stefnumótun ABR fyrir landsfund.
Ath: Nýr fundarstaður.
Stjórn ABR
Iþróttir
Framhald af bls. 11.
söfnuði, og segist hann hafa lært
margt af þvi starfi, enda sé það
fólgið i predikunum og sálgæslu.
Aöspurður um stærsta sigur
sinn i körfuboltanum, sagði Cosic
að það hefði verið 1968, þegar
Júgóslaviu tókst i fyrsta sinn að
sigra Sovétmenn. „Siðan þá höf-
um við átt fremur gott með að
sigra Rússana. Það kom mér t.d.
ekki mjög á övart, þegar við sigr-
uðum þá i úrslitaleiknum á
Öly mpiuleikunum i Moskvu
(íeiknum lauk meö 101-91, eftir
iramlengingu)” bætti hann við.
Á morgun verður Kresimir
Cosic i eldlinunni i Laugardals-
höllinni ásamt félögum sinum i
Cibona Zagreb. Hann er 2.03 m á
hæð og yfir 100 kg að þyngd. Þaö
verður gaman að fylgjast með þvi
hvernig tslandsmeisturum Vais
gengur að ráða við kappanna.
—IngH
Blikkiðjan
Ásgaröi 1, Garöabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboð
SÍMI53468
Allur akstur
krefst
varkárni
fS
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
UUMFERÐAR
RÁÐ
TOMMI OG BOMMI
FOLDA