Þjóðviljinn - 15.10.1980, Blaðsíða 16
MOÐVIUINN
MiOvikudagur 15. október 1980.
Aöaisimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
blaösins i þessunt simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 8152.7, umbrot afgreiðslu 81663
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i áfgreiðslu blaðsins.i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar' á vakt öll kvöld. 81333 81348
60 manna
sambands-
stjórn VSÍ
fundar
vegna verk-
fallshótana
1 fréttatilkynningu sem Þjóó-
viljanum barst i gær frá Vinnu-
veitendasambandi Islands, er
skýrt frá þvi aó 60 manna sam-
bandsstjórn sambandsins hafi
verió boóuó til fundar i dag, mió-
vikudag, vegna hótana ASl um
verkfalisaógeróir.
Þá segir i þessari fréttatilkynn-
ingu aö þá samninga, sem náöst
hafa milli ASI og VSÍ um tilfærsl-
ur millilaunaflokkajmegi meta til
7.5% kauphækkana og aö sáttatil-
laga sáttanefndar geri ráö fyrir
11% launahækkun aó meöaltali.
Segir VSI aö þessi hækkun muni
leiða til 87% verðbólgu i nóvem-
ber nk.
Þvi má bæta hér við,aö sam-
kvæmt útreikningi ASl er mesta
kauphækkun sem felst i tillögu
sáttanefndar 8.6% en minnsta
2.89%.
—S.dór
Frumvarp
um horfna
menn
Lagt hefur veriö fyrir Alþingi
frumvarp til laga um horfna
menn. Frumvarpiö er samiö aö
tilhiutan dómsmálaráöuneytisins
af Armanni Snævarr hæstaréttar-
dómara.
t greinargerö meö frumvarpinu
segir m.a.:
„Þegar maður hefir horfið, þ.e.
þegar þeir sem hagsmuna hafa aö
gæta vegna dauða hans, geta ekki
sannað, hvar hann er niður kom-
inn eða hvort hann er llfs eða lið-
inn, geta skapast ýmis vandamál
i sambandi viö eignir hans og
réttarstöðu.”
1 lögunum er fjallaö um varð-
veislu og ráðstöfun á fjármunum
horfins manns. I greinargerðinni
er minnt á að viö andlát fellur
rétthæfi manns almennt niður. Þá
reynir á sérstaka skiptameöferö
á búi hans, hjúskapur fellur
niöur, refsiábyrgð fellur á brott, á
llftryggingagreiðsiur getur reynt
o.s.frv.
Fyrsta frumvarp um þessi mál
var flutt 1922 af Pétri Ottesen og
Jóni A. Jónssyni; „frumvarp til
laga um sönnun fyrir dauða
sætýndra manna”. En reynslan
hefur veriö sú,aö þeim lögum er
of þröngur stakkur skorinn, og
bæta þessi nýju lög vonandi úr
þvi. I lögunum er fjallað um
hvenær maöur skuli úrskuröaöur
látinn og segir m.a. i greinar-
gerðinni um það:
„Vera má, að maöur, sem horf-
inn er sé á lifi og dómur um, aö
maöur sé talinn látinn, getur vita-
skuld raskað mjög hagsmunum
manns, eignarrétti og persónu-
legristöðu hans. Hafa verður hér
m.a. hugfast, aö eigi er ávallt
sýnt, aö viðkomandi verði sakað-
ur um vitavert tómlæti um aö
koma á framfæri við vandamenn
sina vitneskju um, hvar hann sé
niöur kominn, svo sem þegar
hann hefir sætt fangavist erlendis
eða sætt innilokun á geöveikra-
hæli o.fl.
—gb
Hverjir eru á ferö? Sirkus sem fór landavillt, kannski nýtt farandieik-
hús — eöa kannski Gleöin ogSorgin? (Ijósm gel)
Reykjavíkurkratar áhyggjufullir:
Frumstæður
og ómengaður
kommúnismi!
i ályktun kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins í Reykja-
vik sem haldið var um sl.
helgi er Alþýðubandalagið
i aðalhlutverki/ enda er því
kennt um //aðgerðarleysi"
ríkisstjórnarinnar, verð-
bólgu og aðra óáran i þjóð-
félaginu.
„Einkenni núverandi
ríkisstjórnar segir þar er
kannski það helst, að
Alþýðubandalagið, sem ár-
um saman hefur verið
málsvari aðgerðarleysis í
þjóðfélagsmálum, eykur
áhrif sín jafnt og þétt með
því, (sérstaklega undir-
strikað) að núverandi
ríkisstjórn hefst ekki að og
sjúkleg einkenni verðbólgu
og þenslu verða æ Ijósari."
Meginatriði stjórnmálaálykt-
unar kjördæmisráðs Alþýðu-
flokksins er að öðru leyti vörn
fyrir hávaxtastefnu Alþýðu-
flokksins og Vilmundar Gylfason-
ar.
I sérstakri ályktun um Flug-
leiðir, þar sem tekið er undir flest
sjónarmið Alþýðubandalagsins I
þeim málum, er þessi kafli:
„Hinsvegar telur Alþýðu-
flokkurinn I Reykjavik hættulegt
og andstætt hagsmunum þjóöar-
innar aö ráðast nú á Flugleiðir og
fjandskapast við félagið, eins og
Alþýðubandalagsmenn hafa gert
innan rikisstjórnar og utan.”
1 sérályktun um Alþýðubanda-
lagið og kommúnismann er
endurprentaður rösklega helm-
ingur 28.siðu i stefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins þar sem fjallað er
um breytingar á auðvaldsskipu-
laginu og baráttuna um valdiö.
Siðan vekur kjördæmisþing
Alþfl. I Rvik athygli á „að þennan
ómengaða og frumstæða komm-
unisma er að finna I svokallaðri
stefnuskrá Alþýðubandalagsins”.
Höfundar þessa plaggs er ekki
getið að ööru leyti en þvi, að for-
málsorö fyrir ritinu ritar Ragnar
Arnalds, núverandi fjármálaráð-
herra. Vert er að vekja rækilega
athygli á þvi, að menn sem hafa
frumstæðan og ómengaðan
kommúnisma I stefnuskrá sinni,
eins og hér að framan greinir,
sitja nú í rikisstjórn, og hafa þar
meiri áhrif en áður,annars vegar
vegna djúpstæðs klofnings i Sjálf-
stæðisflokki og hins vegar vegna
sinnuleysis i Framsóknarflokki.”
—ekh
! Fundur hjá bóka-
| gerðarmönnum; |
j Einróma j
' stuðningur ;
! við samninga-.
nefndina I
Bókageröarmenn héldu 1
Ifélagsfund i fyrrakvöld, þar I
sem staöan i samningamál- I
unum var rædd, en eins og I
, menn eflaust muna slitnaöi
uppúr samningaviöræöum
þeirra og prentsmiöju-
eigenda á dögunum vegna
krafna bókagerðarmanna.
A þessum félagsfundi var *
Isamþykkt ályktun þar sem I
fundurinn lýsti yfir ein- I
dregnum stuðningi við •
, samninganefnd bókagerðar- *
Imanna i þessu máli.
Að sögn Magnúsar Einars I
Sigurðssonar, formanns hins I
, nýja félags bókagerðar- ’
Imanna, var einhugur á I
fundinum og menn ákveðnir I
i að gefa ekkert eftir i at- >
, vinnuöryggiskröfunum.
Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra:
Vandi frystíhúsa og
útgerðar réði fiskverði
Sjávarútvegsráðherra
Steingrímur Hermannsson
boðaði til fréttamanna-
fundar í gær til að skýra út
hvað það var sem lá að
baki fiskverðsákvörðunar
1. okt. sl./Sem svo mjög er
umdeild, einkum meðal
sjómanna. Sagði ráðherra
að margt hefði verið sagt
um þetta mál og ýmislegt
miður skynsamlegt.
Steingrfmur sagði aö sam-
kvæmt útreikningum Þjóöhags-
stofnunar, sem hann lét fram-
kvæma, heföi halli á frysti-
iönaðinum veriö um 8% áður en
hið nýja fiskverö var ákveöiö. Á
móti kæmi hins vegar að gengis-
sig i september heföi verið 7.5%
og miðað við aö fiskverð hækkaöi
aðeins um 8% til skipta eins og
gert var, ættu endar að ná saman
hjá frystihúsunum.
Þá benti ráöherra á, að vegna
hækkaðs oliuverös, auk annarra
hækkana á siðustu mánuðum,
stæöi útgerðin nú mjög höllum
fæti. Til að mynda væri taliö að
lausaskuldir útgerðarinnar við
banka og oliusölurnar væru á
milli 18 og 20 miljarðar króna, þar
af væri oliuskuldir á milli 13 og 14
miljarðar króna. Vegna þessa
bága hags útgeröarinnar hefði
verið ákveðið að hækka oliugjald-
ið úr 2.5% i 7.5% framhjá skipta-
verði til sjómanna. Frumvarp
þess efnis hefði þegar verið lagt
fram á Alþingi.og sagðist Stein-
grimurekki hafa lagt það fram ef
ekki hefði legið fyrir samþykkt
um þaö i rikisstjórninni. Þá sagð-
ist Steingrimur vera mótfallinn
þessu oliugjaldi og þá ekki siður
þeim reglum,sem fylgt væri við
greiðslu þess, en greitt er eftir
fjölda veiddra fiska en ekki eftir
oliueyðslu, sem væri sanngjarn-
ara, en lög um oliugjaldið væru
fyrir hendi og eftir þeim yrði að
fara, þótt ástæða væri til að
endurskoða þau lög.
Þá sagði Steingrimur að
gengissig yrði að halda áfram til
að halda uppi frystiiðnaðinum
eftir þessa nýju fiskverðshækkun.
Aöspuröur um hvort þetta væri
ekki bara áframhald á þeim ára-
tuga gamla vitahring sem Islend-
ingar hafa veriö í; gengisfelling,
verðhækkanir og gengisfelling á
ný, kvað hann það rétt vera, en
mönnum hefði ekki tekist að
benda á aðrar færar leiðir.
Ráðherra nefndi margar tölur
máli slnu til sönnunar um tap út-
gerðar og frystihúsanna^og eru
þær tölur allar frá Þjóöhagsstofn-
un komnar. Þá kom það fram i
máli ráðherra að samkvæmt út-
reikningi Þjóöhagsstofnunar
hefðu sjómenn haldiö best sinum
hlut vinnandi stétta hvað kaupi
Steingrímur taldi að sjómenn
tieföu haldiö sinu betur en fiestir
aörir. (Ljósm. gel)
viðkemur frá árinu 1974 til 1980
(áætlun). Ariö 1974 hefðu tekjur
kvæntra sjómanna verið (meðal-
tal) 1.203 þús kr.,iðnaöarmanna
1.111 þúsund kr. og verkamanna
978 þús. kr. Arið 1980 væri áætlað
að kaup sjómanna væri 12.860
þús. kr.,iðnaðarmanna 9.410 þús.
kr. og verkamanna 8.430 þús. kr.
Steingrimur tók það skýrt fram
að þaö væri sin skoöun að sjó-
menn ættu að hafa góð laun, en
taka yrði tillit til afkomu útgerðar
og frystihúsanna við kaupákvörð-
un sjómanna. —S.dór