Þjóðviljinn - 30.10.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. október 1980
Sjómannasambandsþing um oliuveröið:
Hœkkunin bitni ekki
á sjómönnum einum
Ný spari-
skírteini
fyrir 3
miljarda
í fyrradag hófst hjá bönkum og
sparisjóðum sala verðtryggðra
spariskfrteina ríkissjóðs i 2. fl.
1980, samtals að fjárhæð 3.000
miljónir króna. Útgáfan er m.a.
byggð á heimild i fjárlögum fyrir
árið 1980 og verður lánsandvirð-
inu varið til opinberra fram-
kvæmda á grundvelli lánsfjár-
áætlunar rikisstjórnarinnar fyrir
þetta ár.
Kjör skirteinanna eru hin sömu
og skirteina i 1. fl. 1980. Höfuðstóll
og vextir eru verðtryggðir miðað
við þær breytingar á lánskjara-
visitölu, og skírteinin bundin
fyrstu 5 árin, en frá 25. október
1985 innleysanleg hvenær sem er
næstu fimmtán árin. Skirteinin
eru framtalsskyld, en um skatt-
skyldu eða skattírelsi þeirra og
vexti og verðbætur af þeim, fer
eftir ákvæðum tekju- og eignar-
skattslaga á hverjum tima. Nú
eru gjaldfallnar vaxtatekjur,
þ.m.t. verðbætur, bæði taldar til
tekná og jafníramt að fuilu frá-
dráttarbærar frá tekjum manna
og þar með skattfrjálsar.
Skirteinin eru nú geíin út i
fjórum verðgildum, 10.000, 50.000,
100.000 og 500.000 krónum og
skulu þau skráð á nafn.
Aö frum- ^
kvæði LÍIJ
Vegna samtals við Jóhann Guð-
mundsson forstjóra Framleiðslu-
eftirlits sjávarafurða i Þjv. i gær
vill L.I.O. taka eftirfarandi fram:
A stjórnaríundi Lands-
sambands isl. útvegsmanna 3.
október var samþykkt að fara
þess á leit við sjávarútvegsráðu-
neytið og viðskiptaráðuneytið aö
stofnað skyldi til viðræðna milli
þessara þriggja aðila um að setja
regiur til þess að koma i veg fyrir
landanir á lélegum fiski erlendis.
Eftir viðræður við ráðuneytin
voru reglur, sem L.I.Ú. átti frum-
kvæði að, samþykktar. Þetta
gerðist áður en Jóhann Guð-
mundsson fór til Grimsby og Hull
til að kanna málin, en hann hélt
þangað hinn 12. október.
Á 12. þingi Sjómannasambands
Islands, sem háð var um siðustu
helgi voru nokkrar ályktanir
samþykktar. Eftirfarandi
ályktun var samþykkt um frum-
varp á Alþingi um hækkun tima-
bundins oliugjalds, sem lagt var
fyrir þing Sjómannasam-
bandsins:
12. þing Sjómannasambandsins
itrekar fyrri afstöðu sjómanna-
samtakanna um að þann vanda,
sem hækkun oliuverðs skapar út-
gerðinni i landinu, beri að leysa
með sameiginlegu átaki lands-
manna ailra, en ekki að velta
honum yfir á sjómennina eina,
svo sem gert er ráð fyrir i frum-
varpi til laga um breytingar á
lögum um timabundið oliugjald,-
sem nú liggur fyrir Alþingi.
Þingið telur að Alþingi eigi að
mæta þessum vanda m.a. með
þvi að fella niður þau innflutn-
ingsgjöld sem nú eru á oliuvörum
og leggur áherslu á að við næstu
ákvörðun fiskverðs, verði þessi
mál komin i það horf sem sjó-
menn geta við unað.
Með hliðsjón af framansögðu
leggur 12. þing S.S.l til að umrætt
frumvarp verði fellt.
Þá voru á þinginu samþykktar
ályktanir um atvinnuöryggi fiski-
manna og fjárhagslega afkomu,
þar sem m .a. er mótmælt sifelldri
stækkun fiskiskipaflotans. Sam-
þykkt var ályktun þar sem mót-
mælt er kröfu um fækkun áhafna
á farskipum og gerð krafa til lög-
gjafans um setningu laga um há-
marksvinnutima og lágmarks
hvild áhafna á farskipum.
Þá voru samþykktar ályktanir
um öryggis- og tryggingamál sjó-
manna, þarsem m.a. er bent á að
lögskráningu sjómanna sé enn
ábótavant, itrekuö er krafa um
sjálfvirkan sleppibúnað á gúm-
björgunarbátum, krafist er auk-
inna fjárveitinga til landhelgis-
gæslunnar, þingið telur eflingu
hennar þjóðarnauðsyn, þá bendir
þingið á nauðsyn betri og full-
komnari læknaþjónustu fyrir sjó-
menn og loks gerir þingið þá
kröfu til stjórnvalda að breytt
verði lögum um dánar- og slysa-
bætur sjómanna, þannig að
tryggingarfjárhæðin hækki stór-
lega frá þvi sem nú er.
Istjórn Sjómannasambands ts-
lands voru kjörnir:
Formaður: Óskar Vigfússon,
Hafnarfirði, varaformaður: Guð-
mundur Hallvarðsson, Reykja-
vik, ritari: Emil Páll Jónsson,
Keflavik.
SAMBANDSSTJÓRN : Þórður
Ólafsson, Þorlákshöfn, Sigfinnur
Karlsson, Neskaupstað, Guðjón
Jónsson, Akureyri, Bárður Jens-
son, Olafsvik, Hákon J. Há-
konarson, Reykjavik, Ársæll
Pálsson, Hafnarfirði, Rúnar
Grimsson, ísafirði, Skjöldur Þor-
gri'msson, Reykjavik, Ólafur Þór
Ragnarsson, Reykjavík, Hafþór
Rósmundsson, Siglufirði.
Svartoliubrennsla
Eimskips:
Sparnaöur
60 milj. á
skip árlega
Á þessu ári hefur aðalvélum 6
skipa Eimskips verið breytt til
svartoliubrennslu. Þessi skip eru
Laxfoss, Fjallfoss, Lagarfoss,
Háifoss, Irafoss og Múlafoss.
öllum skipunum nema Laxfossi
var breytt hér innanlands af
Straumi h.f. i samvinnu við
tæknideild E.Í., en undirverk-
takar voru Gjörvi og Volti.
Breyting hvers skips tekur um
10 daga og kostar um 50 milj.
króna. Verðmunur á svartoliu og
gasoliu t.d. i Rotterdam er nú um
$75per tonn og miðað við eðlilega
siglingu skipanna sparast um $
112.000 á ári á skip, eða isl.kr. 60
miljónir. Eitthvað meiri
rekstrarkostnaður og viðhalds-
kostnaður er á skipum sem
brenna svartoliu, en engu að siður
er þessi fjárfesting hagkvæm.
(Úr fréttabréfi
Eimskipafélagsins)
Flutti fyrir-
lestur um há-
skólanám
íslendinga
Ingvar Gislason menntamála-
ráðherra flutti i fyrradag fyrir-
lestur við Manitobaháskóla um
Háskóla islands og háskólanám
islcndinga i boði rektors há-
skólans.
Ýmis samtök íslendinga i
Manitobafylki og Torontoborg
hafa jafnframt boðið mennta-
málaráðherra að vera gestur
þeirfa nokkra daga. Eiginkona
ráðherrans, frú Ólöf Auður Er-
lingsdóttir, er með i ferðinni og
sérstakur fylgdarmaður ráð-
herrans er Bjarni Gunnarsson
stjórnarráðsfulltrúi.
Menntamálaráðherra er
væntanlegur úr boðsferðinni 5.
nóvember n.k.
Hótel Loftleiöir:
Tékkneskir dagar
dag hefst að Hótel
Loftleiðum kynning á
Tékkóslóvakíu. Að henni
standa, auk hótelsins,
Ferðaskrifstofa Kjartans
Helgasonar og sendiráð
Tékkóslóvakíu i Reykja-
vík. Ellefu skemmti-
kraftar og tveir kokkar
eru komnir til landsins af
þessu tilef ni og munu þeir
sjá gestum Víkingasalar
fyrir mat og skemmtan
fram á sunnudagskvöld,
2. nóvember.
Blaðamenn fengu sýnishorn
af þvi sem fram verður borið á
kynningunni, og veröur að
segjast sem er, að gestir Vfk-
ingasalar eru öfundsverðir.
Maturinn sem tékknesku kokk-
arnir framleiða úr islensku hrá-
efni er afar ljúffengur, enda
sagði Þórarinn yfirmatsveinn á
Loftleiðahótelinu aö þetta væru
menn sem kynnu vel til verka.
„Bestu kokkar sem við höfum
fengið á þessar þjóöakynningar
hingað til” — sagöi Þórarinn.
Þá eru iistamennirnir ekki af
lakari sortinni. Trió Ferdinands
Skrobak mun leika fyrir dansi.
Þetta eru þrir afbragðsgóöir
hljóðfæraleikarar, sem hafa
Tékknesku matsveinarnir
ásamt starfsbróöur sinum
Þórarni, yfirmatsveini á Loft-
leiðahótelinu (f. miðju).
spilað saman i 15 ár og eru
sannarlega færir i flestan sjó,
enda hafa þeir leikið um borð i
alþjóðlegum skemmtiferða-
skipum og eru mjög eftirsóttir á
þeim vettvangi.
Fleira tónlistarfólk er i
hópnum, og má þar nefna
heimsfrægan harmonikusnill-
ing, Rajmund Kákoni, og konu
sem leikur listavel á fiölu og
syngur lika. Þjóðdansar verða
sýndir og Juraj Ronaj sýnir
töfrabrögö af mikilli kúnst.
Siðast en ekki sist má nefna lát-
bragðsleikarana Antonin
Klepac og Miroslav Horacek,
sem eru bæði liðugir og sniðugir
og vöktu mikla kæti meðal
blaðamannanna.
Listamennirnir munu
skemmta viðar en á Loftleiða-
hótelinu meöan á dvöl þeirra
stendur, m.a. á Reykjalundi og
Landsspitalanum.
Tékkóslvakia er oröin vinsælt
ferðamannaland. Að sögn hr.
Kovacs, fulltrúa tékknesku
ferðaskrifstofunnar Cedoc, sem
hér er staddur til að kynna land
sitt, komu 19 miljónir erlendra
ferðamanna þangað I fyrra, eða
næstum helmingi fleiri en Ibúar
landsins eru. Kjartan Helgason
hefur staöið fyrir ferðum héöan
til Tékkóslóvakiu, og afhenti hr.
Kovacs honum silfurmedaliu
fyrir gott samstarf. Tékkósóva-
kia hefur mikið aö bjóða sem
feröamannaland allan ársins
hring, allt frá ölkeldum til
skiðalanda og gamalla kastala i
mið-evrópskum stil.
Jafnframt þvi sem aö ofan er
talið og fram fer i Vikingasal
sýna tékknesk fyrirtæki vörur i
sýningarskápum hótelsins, og
kvikmyndasýningar veröa I
ráöstefnusal. Tekiö er á móti
borðpöntunum I sima 22322 og
22321 meöan á kynningunni
stendur. —>b
Látbragösleikararnir vöktu mikla hrifningu blaöamanna
Kjartan Helgason tekur viö silfurmedalfu úr hendi hr. Kovacs.
boröiö sitja f,v, Jarmila Kralova, fyrirliöi tékkneska hópsi
Sveinn Sæmundsson, blaöafulltrúi Flugleiöa, og Emil Guömun
son, hótelstjóri. Ljósm. _gel—