Þjóðviljinn - 30.10.1980, Síða 3
Fimmtudagur 30. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Þijú félög sameinast
Wmm
Sunnudagurinn næsti veröur stór dagur hjá bóka-
gerðarmönnum á tslandi. Þá verður hið nýja
stéttarfélag þeirra — Félag Bókagerðar-
manna — stofnað formlega. Það mun svo taka til
starfa 1. janúar nk.og þá um leið verða þrjú stéttar-
félög lögð niður. Það eru Hið isl. prentaraféiag,
elsta stéttarfélag á landinu, stofnað 1897, Bók-
bindarafélag islands sem stofnað var 1906 og Graf-
Iska sveinafélagið sem stofnað var 1973. Hér á
myndinni eru formenn þessara félaga f.v. Ólafur
Emilsson formaður HtP, Arnkeil B. Guðmundsson
formaður Bókbindarafélagsins, Arsæll Ellertsson
formaður Graffska sveinafélagsins og svo Magnús
E. Sigurðsson, sem verður formaður hins nýja
félags, Fél. Bókargerðarmanna.
(Ljósm.—eik—)
Verkamanna
félagið
Dagsbrún
Félagsfundur
verður haldinn i Austurbæjarbiói í dag
fimmtudaginn 30. okt kl. 5 síðdegis.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Nýir kjarasamningar.
Á fundinum verður dreift nýjum kjara-
samningum og kauptöxtum.
Dagsbrúnarmenn mætið vel á fundinn
Stjórnin.
Listamenn
Kjallari 90 ferm. i steinhúsi, rétt hjá
Hlemmi, er til sölu. Leirbrennsluofn
ásamt rennibekk ofl. getur fylgt. Upplýs-
ingarisima 20266.
Ný tegund tíðatappa tekin af
markaði i Bandarikjunum
Tapparnir eru
varhugaverðir
Sjaldgœfur eitrunarsjúkdómur er
rakinn til notkunar þeirra
Eru tiðatapparnir llfshættu- sjúkdómsvaldandi gerla og flestir
legir? Að minnsta kosti ein teg-
und þeirra, Rely tappar, sem ný-
lega kom á markað I Bandaríkj-
unum, liggur undir þeim grun og
hafa bandarisk heilbrigðisyfir-
völd bannað sölu og dreifingu
þeirra. Virðist tappinn eiga sök á
þvi að gerillinn Staphyiococcus
Aureus, sem við eðlilegar að-
stæður veldur ekki sýkingu i leg-
göngum kvenna, nái að fjölga sér
svo að eiturefni sem hann fram-
leiðir sfist út i blóðrásina. Veldur
það útslætti, hækkandi hita og
eins konar sjokkeinkennum og
hafa 19 dauðsföll á þessu ári verið
rakin til sjúkdómsins I Banda-
rikjunum. Sjúkdómstilfellin eru
hins vegar nær 350 talsins og
stærsti hluti sjúklinganna er
konur, sem notað hafa tappa i
tiðablæðingum. Rely tappar hafa
ekki verið á markaði hér á landi.
En hvað er það sem gerir tappa
varhugaverða? Lengi hefur það
verið viðurkennd staðreynd að
blóðósa tappi er ákjósanlegasta
gróðrastia fyrir ýmsar tegundir
Helmingi
fleiri í Sókn
Sóknarkona hafði samband við
okkur ogbenti á að I grein Bjarn-
friðar Leósdóttur „Fyrirvinna
þjóðarinnar” sem birtist hér i
blaðinu 24. október s.l., heföi
verið rangt farið með tölu félaga i
Sókn.
— Bjarnfriður sagði, að i Sókn
væru 2000 konur, en þaö kom
fram á félagsfundi s.l. mánu-
dagskvöld, að i Sókn eru 4078
félagar, eða rúmlega helmingi
fleiri, — sagði Sóknarkonan, og
leiðréttist þetta hér með. — ih
læknar vara konur við notkun
tappanna ef þær eru með sýkingu
ileggöngum eða útferð. A undan-
förnum árum hefur sogkraftur
tappanna verið aukinn markvisst
og á vaxandi útbreiðsla lykkj-
unnar trúlega sinn þátt i þeirri
þróun þar sem henni fylgja
venjulega miklar blæðingar.
Aukinn sogkraftur veldur þvi að
sjaldnar þarf að skipta um tapp-
ana, — þeir eru lengur að fyllast
og gerilvöxtur i þeim verður
geysilega hraður. Rely tapparnir
erue.k. hápunktur iþessari vöru-
þróun og með miklu magni trefja-
efna hefur tekist að tvöfalda sog-
kraft þeirra miðað við gömlu
tappana. Enda reyndust flestar
bandarisku kvennanna hafa
notað einmitt þessa tegund af
töppum!
1 viðvörun bandariskra heil-
brigðisyfirvalda vegna þessa
máls hafa konur verið áminntar
um að henda þeim birgðum Rely
tappa, sem kunni að leynast i
baðskápnum, — nota aðrar teg-
undir sem ekki safna eins miklum
vökva i sig, — skipta oftar um
tappa og nota þá ekki um nætur
og þegar draga fer úr blæðingum.
Á það hefur hins vegar verið bent
að of ör skipti á töppum valda oft
ofþornun I slimhúð legganganna:
hún verður viðkvæmari fyrir
hnjaski og þar með sýkingum!
Eins og fyrr segir hafa Rely
tappar ekki verið á markaði hér á
landi og eru algengustu tegund-
irnar hér o.b.og Tampax.Giskað
er á að hátt i tvær miljónir tappa
séu seldar hér árlega en þeir eru
misstórir og sogkrafturinn mis-
mikill. Virðist fyllsta ástæða til
þess að vara konur við þvi að nota
tappana eingöngu og alltaf og
hvetja þær til að láta ekki auglýs-
ingaskrum um notagildi þeirra og
öryggi villa um fyrir sér. — AI
Tónlistarskóli Akureyrar,
Hríseyjardeild
ásamt grunnskóla Hriseyjar óska eftir að
ráða tónlistarkennara i fullt starf frá 1.
jan. n.k., Umsóknarfrestur til 15. nóv.
Umsóknir sendist skólanefnd.
Upplýsingar veittar i simum 96-61763 og
96-61704.
TEKKOSLOVASKIR
DAGAR
AÐ HÓTEL LOFTLEIÐUM
30. OKT.-2. NÓV.
STÓRKOSTLEG SKEMMTIATRIÐI
TEKKNESKIR DANSAR LÁTBRAGÐSLEIKUR
FYRRVERANDI HEIMSMEISTARI í HAPPDRÆTTI Á HVERJU KVÖLDI
HARMONIKULEIK Aðalvinningur: Skíðaferö til Tékkóslóvakíu.
TRÍÓ SEM LEIKUR FYRIR DANSI TÉKKNESKUR MATSEÐILL
TÉKKNESK SÖNGKONA Framreiddur af tékkneskum matreióslumönnum.
GOÐA SKEMMTUN
HOTEL
LOFTLEIÐIR