Þjóðviljinn - 30.10.1980, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 30. október 1980
UOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ó’rfsson.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson.
Umsjónarmaöur sunnudagsbiaös: Guöjón Friöriksson.
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason,
Sigurdór Sigurdórsson.
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Ellsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guörún Guðvaröardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir,
Bára Sigurðardóttir.
Sbnavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir,
Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6,
Reykjavik, slmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Fœðingarorloffyrir
öll foreldri
• Eitt af þeim 12 atriðum sem f jallað er um í yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar um félagslegar úrbætur er fæð-
ingarorlof. Þar segir: ,,Rikisstjórnin mun stefna að því
með lagasetningu að koma fæðingarorlofi fyrir öll
foreldri frá og með 1. janúar 1981."
• í yf irlýsingunni kemur fram, að heimavinnandi hús-
mæður sem einskis fæðingarorlofs hafa notið hingað til
skulu nú fá eins mánaðar laun kr. 440.000,- við hverja
barnsfæðingu. Það er þeirra fæðingarorlof. Sömu upp-
hæð skulu þær konur fá greidda i fæðingarorlof, sem
vinna f yrir launum utan heimilis skemur en 516 stundir á
ári, en það samsvarar um þriggja mánaða vinnu.
• Konur sem vinna fyrir launum utan heimilis 516 —
1031 stund á ári, það er þrjá til sex mánuði, skulu fá
tveggja mánaða laun við barnsfæðingu, eða 880.000,-
krónur í fæðingarorlof.
• Konur sem vinna fyrir launum utan heimilis 1032
stundir á ári eða lengur, það er í um það bil sex mánuði
eða meira skulu fá þriggja mánaða laun við hverja
barnsfæðingu, eða 1.320.000- krónur.
• Hér er krónutalan miðuð við núverandi laun, og sam-
kvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á hún síðan að
hækka í fullu samræmi við almennar kaupbreytingar.
• Hér er sannarlega um mikla og góða réttarbót að
ræða fyrir mikinn f jölda af konum, bæði heimavinnandi
húsmæður og þær sem afla tekna utan heimilis.
• Ekki eru mörg ár liðin síðan konur í verkalýðsf élög-
unum innan A.S.Í. öðluðust fyrst rétt til einhvers fæð-
ingarorlofs. Og það er f yrst nú sem ríkið tekur að sér að
standa að einu og öllu leyti undir greiðslum fæðingaror-
lofsins. Allt til þessa hefur atvinnuleysistryggingasjóði
verið gert að standa undir þeim greiðslum á fæðingaror-
lofi kvenna innan A.S.I., sem lögboðnar eru. Nú er þeirri
kvöð af sjóðnum létt.
• Hingað til hafa margar ungar konur í verkalýðs-
félögunum, sem unnið hafa skemur en þrjú ár aðeins átt
réttá fæðingarorlof i í þrjár vikur. Nú öðlast þær rétt til
fæðingarorlofs í þrjá mánuði séu þær við störf utan
heimilis í hálft ár eða lengur.
• Það er líka einkar athyglisvert, að í yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar um fæðingarorlof ið er gert ráð fyrir
þvi að greiðslur fæðingarorlofs séu ekki mismunandi
háareftirþvíhvaða launum foreldri vinnur fyrir, heldur
er miðað við kr. 440.000,- á mánuði fyrir alla jaf nt. Þann-
ig getur láglaunakona t.d. í Iðju orðið á hærra kaupi þá
þrjá mánuði sem hún nýtur fæðingarorlofs, heldur en
hún ber út býtum aðra mánuði ársins. Kona sem vinnur
fyrir háum tekjum á sínum vinnustað fær hins vegar
heldur ekki nema 440.000,- á mánuði meðan hún er í fæð-
ingarorlofi, og missir þá nokkurs í launum. — Þetta er
jafnaðarstefna sem ástæða er til að fagna sérstaklega
og þyrfti að verða til fyrirmyndar víðar.
• Hér er einnig ástæða til að fagna því, að hið nýja
fæðingarorlof verður ekki eingöngu bundið við mæður,
heldur geta foreldrar komið sér saman um það hvernig
orlofstimanum skuli skipt milli móður og föður, en gert
er ráð fyrir að í þeim efnum ráði þó vilji móðurinnar
jafnan úrslitum.
• Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Starfs-
mannafélagsins Sóknar segir um yf irlýsingu ríkisstjórn-
arinnar í Þjóðviljanum í gær:
• „Félagsmálapakkinn er góður og mun betri en ég
átti von á. Kaflinn um fæðingarorlofið hefur mikið að
segjafyrir konur innanVerkamannasambandsinsog Iðju
en þar eru þeir hópar sem hingað til hafa verið hvað
verst settir... Ég er mjög ánægð með að það skuli vera
talað um foreldri. Þar með er karlmönnum opnuð leið til
að njóta fæðingarorlofs. Það er annað sem líka gleður
mig, greinin um aðekki megi segja ófrískum konum upp
starfi. Það hefur viljað brenna við að Sóknarstúlkum
væri sagt upp ef þær urðu barnshafandi."
• Þetta voru ummæli Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur
sem um árabil hefur verið í forystu eins helsta verka-
lýðsfélags láglaunafólksins í landinu.
• Það er sannarlega ekki lítils virði að geta nýtt að-
stöðu í ríkisstjórn til slíkra réttarbóta fyrir alþýðu sem
fæðingarorlof ið er. Slíkar réttarbætur er ekki auðvelt að
draga til baka, þótt skipt verði um ríkisstjórn.
—k.
klippt
! Myglo og
stöngulsýki
Þaö er full ástæöa til aö menn
! spyrji sig og aöra þessa
dagana: sósialdemókrat — hvaö
er þaö? Margir telja aö veröldin
| sé aö veröa ansi sósialdemó-
I kratisk, og þvi fer fjarri aö Al-
þýöuflokkurinn hafi nokkurn
einkarétt á þvi einkennisoröi.
, Alþýöubandalagiö sé oröiö svo
I og svo kratiskt, Framsóknar-
flokkurinn hefi lengi haft ýmis
skýr krataeinkenni og kratiskir
, sjúkdómar herji á Sjálfstæöis-
flokkinn likt og mygla i kartöflu-
haug. Hann Hannes okkar
Hólmsteinn, sú mikla hjálpar-
, hella og samviáka vinstri
I raanna, vill raunar meina aö
kratismi eöa „lýöræöisjafn-
I aöarsamhyggja” sé á góöri leiö
[ meö aö ganga af allri „katp-
Isýslueinkafrjálshyggju” vest-
rænna þjóöfélaga dauöri, og
Ióviöa sé ástandiö verra en á Is-
landi.
En er nú ástæöa til aö ör-
, vænta? Er ekki þróunin einmitt
á hinn veginn, aö kapitalismi og
borgarahyggja kreppi aö krat-
ismanum og ógni tilveru hans?
< Margt bendir 1 þá átt. Aö
Iminnsta kosti aö þvi er tekur til
hins aldna vigis sósialdemó-
krata á íslandi, Alþýöuflokks-
■ ins. Þaö sýna best atburöir siö-
Iustu daga, sem þó eru ekki
nema rökrétt framhald lang-
vinnrar þróunar (eöa stöngul-
• sýki, svo aftur sé gripiö til kart-
| öflumálfars).
j Horfin sjónarmið
hotfinna krata
II sambandi viö ástandiö i Al-
þýöuflokknum og þann félags-
, anda sem þar rikir nú: Hvaö
■ heföu forgöngumenn verkalýös-
stefnu og jafnaöarmennsku,
þeir sém mótuöu Alþýöuflokk
, fyrstu áratuganna, sagt um
■ undirbúning fiokksþings á þessu
| herrans ári 1980? Ætli þeir væru
ekki fegnir margir hverjir aö
, þurfa ekki aö taka þátt I þeim
• „félagsstörfum” sem nú eru
talin einna nauösynlegust?
A þeim árum er sósialisminn
. var aö festast i sessi sem féiags-
■ hreyfing og hugsjón á Islandi og
| þegar allir eöa velflestir sósial-
I istar voru saman i flokki, þá
| böröust menn ekki um forystu-
■ sætin, heldur unnu hver á sinum
I staö svo sem kraftar entust.
Væru menn kallaöir til forystu,
| þá gegndu menn kalli og gengu
• tilstarfa, en væri mönnum skip-
I aöur annar bás, þá störfuöu
I menn af ekki minna kappi og
| gleöi þar. Menn geröu siöferöi-
• legar kröfur til sjálfra sin og
I félaga sinna, enda litu menn á
I sig sem samverkamenn viö aö
| leysa aökallandi þjóöfélags-
. legan vanda. Samhyggjan
I næröist af félagsskapnum
I sjálfum og glæddist viö daglega
| baráttu fyrir sameiginlegum
. hagsmunum og hugsjónum. Af
I þessu leiddi aö menn litu ekki á
I svokölluö forystustörf sem feng
| og hnoss heldur sem skyldu og
■ kvöö.
I__________________________
Jón Baldvin Hannibalsson rit-
stjóri minnist Stefáns Jóhanns I
blaði sinu i gær meö þvf aö af-
neita fööur sinum og setja rétt-
trúr.aðarsiimpil á eyöimeri.ur-
göngu Alþýöuflokkgir.s gegnum
tföina. t nútfmanum stefna
allir Aiþýöuflokksmenn aö
sama marki...
(Raunar er óþarfi og allt aö
þvi skammarlegt aö vera aö
rekja þetta fyrir félagsvönu
fólki: Siöferöi gömlu kratanna
er auövitaö rikjandi í svo ákaf-
lega mörgum hagsmuna- og
áhugafélögum enn þann dag I
dag, og út i hött aö leita aö
dæmum úr einhverri gullinni
fortiö — nema aö þvi er tekur til
Alþýöuflokksins.)
Valdapólitiskur
flokkur
útávið og innávið
Þegar svo er komiö fyrir Al-
þýöuflokknum, aö hver ryöst
um annan þveran til aö hreppa
forystu- og tignarsæti I
flokknum, þá segir þaö fróölega
en um leiö sorglega sögu: Ekki
aöeins útáviö er flokksstarfiö
oröiö aö valdapólitisku tafli,
heldur einnig innáviö. Enginn
starfar lengur f flokknum fyrir
flokkinn, heldur einvöröungu
fyrir sjálfan sig, og þá er nú
hætt viö aö hugsjónirnar séu
litiö á dagskrá. Togstreita mis-
munandi sjónarmiöa um
stefnur og starfsaöferöir má
heita regla i hverjum hugsjóna-
flokki. En um slikt er ekki aö
ræöa i Alþýöuflokknum. „Viö
erum báöir traustir hægri
kratar”, segir Vilmundur
Gylfason um sig og MagnUs
Magnússon. Enginn þátttakandi
i kapphlaupinu um stööur innan
Alþýöuflokksins færir fram
neitt þaö sem á skylt viö póli-
tiskan ágreining viö annan
keppnismann.
Þess vegna eru þærliössveitir
sem „fory stumannaefnin”
safna um sig, ekki einkenndar
málefnum og stefnu heldur ein-
vöröungu persónum og poti.
Enginn er borinn fram af fylgis-
mönnum sinum, heldur bjóöa
menn sig fram sjálfir og safna
siöan liöi. I bændaglimu kusu
bændur sér liösmenn. Svipaöan I
hátt hafa hinir framagjörnu I I
Alþýöuflokknum. Og hafa I
gleymt þvi aö stundum féllu •
bændur báöir.
Alþýðuflokkur j
varð úlfaflokkur
Félagsböndin i Alþýöu- .
flokknum eru hætt aö vera sam- I
tengjandi og sameinandi afl.
Félagsböndin eru ekki friöbönd ,
og marka ekki griöastaö heldur •
þvert á móti vigvöll þar sem !
launsátriö er jafn sjálfsagt og
burtreiöarnar. Um völlinn reika
forystukomplexeraöir menn J
sem ekki sjá neitt verkefni æöra I
en þaö aö efla eigin dýrö. I
Félagsskapurinn er þeim ekki 1
uppspretta afls vegna sam- J
hyggju og bræðralags, heldurer I
hann þeim einvörðungu tæki- I
færi til liössafnaöar utan um 1
einstaklingshyggju sína. Þetta j
þýöir um leiö aö þaö hefur ræst |
sem jafnaðarmenn fyrri tiöa i
óttuöust að mundi dynja yfir
sem afleiöing hins skefjalausa
kapphlaups kapitalismans um ,
gróöa, völd og áhrif: „hver i
maður er öðrum úlfur”.
Og auövitaö gætir þessarar |
borgarahyggju hjá fleirum en .
fáeinum komplexamönnum. Ef ■
þeir væru einir I sök, uppskæru
þeir ekkert nema fyrirlitningu |
félaga sinna fyrir bolabrögðin. ■
Hiö alvarlega fyrir Alþýöu- i
flokkinn er þaö, aö meginhluti I
flokksmanna viröist h'ta á þetta j
sem eðlilegt ástand og eru þvi •
orönir úlfar sjálfir.
Hvað má
sigurvegara
til varnar verða? j
I slikum félagsskap er enginn
öðrum tryggur lengur en hann
sjálfúr telur sig hafa gott af.
Þess vegna er hætt við þvi aö I
sigur á einu flokksþingi sé
skammgóður vermir. Þaö koma ,
fleiri flokksþing og fleiri tæki-
færi til „lýöræöislegrar af-
greiöslu”. Sá sem sigrar I dag, I
liggurívalnum á morgun, nema |
hann geti skapað einhverja sér- ,
staka vamarmúra I kringum ■
sig.
Aður fyrr töldu menn Alþýöu-
flokkinn virki og háborg jafn- ,
aöarstefnu og fleiri dyggöa. Nú i
er þaö löngu liöin tiö og flokkur- I
inn hefur um skeiö likst |
vallgrónum rústum þar sem ,
stefnulausir menn slægju.
tjöldum sinum til einnar nætur
eöa svo. En senn rekur aö þvl,
aö Alþýöuflokkur veröi samheiti ,
á mörgum virkjum harösvlr- ■
aöra ójafnaöarmanna sem
búast til langrar setu og þekkja
ekki lýöræðislega vegferö nema ,
úr hrollkenndri endurminningu. ■
Og eins og oft vill veröa, er
vopnabúnaöurinn meira miö-
aöur viö innbyröis átök en fólk- ■
orustur viö stéttaróvini og aöra I
drauga fortiöarinnar sem Al- I
þýöuflokkur nútlmans telur til |
hindurvitna. —iut ■
oa skorid
Kvennaverkfalls minnstá Selfossi:
Vilja umræðufundi árlega
Sjö kvenfélög og klúbbar á Sel-
fossi gengust fyrir fundi þar I bæ
föstudaginn 24. október s.l. til aö
minnast þess aö fim m ár voru þá
liöin frá kvennaverkfallinu
mikla.
Sjötiu manns sóttu fundinn. A
dagskrá voru ávörp, skemmti-
atriöi og fjöldasöngur, svo og
frjálsar umræöur um jafnréttis-
mál. Borin var upp áskorun til
allra kvenna á landinu aö beita
sér fyrir kvennaverkfalli 24. októ-
ber fimmta hvert ár, og var hún
samþykkt meö 27 atkvæöum gegn
16. Þá var samþykkt samhljóöa
ályktun um aö skora á kvenna- og
jafnréttissamtök i landinu aö
beita sér fyrir umræöufundum
um jafnréttismál 24. október ár
hvert. — ih