Þjóðviljinn - 30.10.1980, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. október 1980
Ólafur Ragnar Grímsson um Flugleiðamálið:
Heilli Kröfluvirkjun
tapað á tveim árum
Ólafur Ragnar Grims-
son tók til máls i umræ5-
um i efri deild Alþingis
um Flugleiðafrumvarp-
ið siðasta þriðjudag.
I upphafi vakti hann athygli á
ræöu Þorvaldar Garöars
Kristjánssonar sem haföi talaö á
undan honum ogsagöi vilja Sjálf-
stæöisflokksins hafa komiö þar
fyrst og skýrt og greinilega fram.
. Þorvaldur gagnrýndi rikisstjórn-
ina fyrir þaö aö hiin væri ekki
reiöubúin að borga fé beint úr
rikissjóöi til aö styrkja rekstur
Flugleiöa. Sjálfstæöisflokkurinn
vill aö almenningur borgi meö
beinum f járframlögum hallann af
rekstri Flugleiða.
Sömu öfl sem ráöa Geirsarmi
Sjálfstæöisflokksins eru stórir
hluthafar i Flugleiöum og Morg-
unblaðinu og vilja aö rikisvaldiö
styrki þessa fyrirtækjasam-
steypu.
1 umræöum um þessi mál hefur
þaö hvaö eftir annaö komiö fram
aö islenskum stjórnvöldum er
legiö á hálsi fyrir aö hafa ekki
gert sér grein fyrir þróun máls-
ins.
Samþykkja átti rann-
sókn 1978
Það er þvi full ástæöa til aö
minna á þingsályktunartillögu
sem Alþýðubandalagiðflutti fyrir
tveimur árum um rannsókn á
starfsemi Flugleiöa. I henni og
framsöguræðu fyrir henni var
rækilega vakin athygli á öllum
þeim hættum sem nú hafa reynst
veruleiki. Þá töldu þingmenn
Sjálfstæöisflokksins enga ástæöu
til aö kanna þetta mál. Utan
Alþýöubandalagsmanna voru aö-
eins nokkrir þingmenn Alþýöu-
flokksins sem tóku undir þessar
óskir.
Ef Alþingi hefði borið gæfu til
þess veturinn 1978—79 aö sam-
þykkja þessa tillögu þá heföu
þingmenn ekki þurft aö standa
upp nú og segja: Af hverju er
þessi taprekstur, af hverju hafa
þessar fjárfestingar reynst svo
hæpnar, af hverju er þessi óöld
innan fyrirtækisins o.s.frv..
Fyrirtveimur árum sagöi ég aö
brátt myndi koma aö þvi aö
stjórnvöld þyrftu aö gripa inn i
þennan rekstur. Þá stóöu hér á
Alþingi upp varömenn hags-
munaaðilanna i Flugleiöum og
sögöu þvert nei. Sjálfstæöis-
flokkurinn baröist gegn tillögunni
þá en nú spyrja þessir sömu varö-
menn: Af hverju gripu stjórnvöld
ekki fyrr inn i málið.
Beðið um rikisábyrgð i
annaðsinn á fimm árum
Þetta er ekki i fyrsta sinn sem
Alþingi er beöiö um rikisábyrgö
fyrir Flugleiöir. Þaö geröi rikis-
stjórn Geirs Hallgrimssonar 1975.
Þaö er gagnlegt aö rifja upp eitt
og annaö úr þeim umræöum sem
þá uröu á Alþingi. Þá kom fram
sannspár ótti margra um þennan
hæpna rekstur og margar spum-
ingar um aöferöir fyrirtækisins
og fjárfestingar. I annaö sinn er
beöiö um rikisábyrgö á fimm ár-
um, reyndar miklu hærri og þaö
gagnstætt öllum yfirlýsingum
stjórnar fyrirtækisins þá.
Þeir sömu menn sem nú gagn-
rýna rikisstjórnina fyrir seina-
gang, mánuöur hafi liöiö frá
beiöni um rfkisábyrgö til frum-
varps, ættu aö hugleiöa þaö aö
rikisstjórn Geirs Hallgrímssonar
lét átta mánuöi liöa frá beiöni um
rikisábyrgð til þess er hún lagði
fram frumvarp. Þaö sem tók
rikisstjórn Geirs átta mánuöi tók
þessa rikisstjórn einn. Þá fékk
stjórnarandstaöan engin gögn um
máliö, fékk ekkert að vita en nú
hefurrikisstjómin afhent öll gögn
i málinu jafnóðum og þau hafa
borist oghaft samráö viö fulltrúa
þingflokka stjórnarandstööunn-
ar.
Þáverandi rikisstjórn lét kanna
fjárhagsstööu fyrirtækisins sér-
staklega svo þaö er ekki nýtt aö
rikisstjórnin telji þaöskyldu sina
aö kanna rekstrar- og eignastööu
fyrirtækisins og setji skilyröi um
rekstur og annaö fyrir ábyrgð-
inni.
Fé frá fluginu i hótel og
bilaeign
I umræöunum 1975 kemur fram
mikil gagnrýni frá þingmönnum
ýmissa flokka á notkun f jármuna
frá flugrekstri til aö byggja upp
hótelrekstur, bilaleigu, kaffiteriu
osfrv. Þingmenn telja þessa út-
þenslustefnu fyrirtækisins i hæsta
máta óeölilega og vara viö einok-
unartilhneigingum hjá stjómend-
um fyrirtækisins.
1975 köiluöu fjárhags- og viö-
skiptanefndir beggja deilda fyrir
sig fjölda aðiía til aö reyna aö
komast aö þvi hverjar væru eign-
ir fyrirtækisins en ekki fékkst
botn i þaö mál. Þá setti Alþingi
itarleg skilyröi og er rétt aö hug-
leiöa þaö hvort stjórnendur fyrir-
tækisins haf i á þessum fimm ár-
um staöiö viö þessi skilyröi.
Eftirlitsmenn sem rikisstjórn
Geirs Hallgrimssonar skipaöi
komust aö þeirri niöurstööu aö
ekki væri vist aö erfiöleikarnir
væru timabundnir. Þetta er sama
niöurstaöa og eftirlitsmanna nú-
verandi rfkisstjórnar.
1973 voru skipaöir þrir menn til
aö meta eignir fyrirtækisins, en
þeir gátu ekki fengiö neinn botn i
það og segja engan kost aö afla
upplýsinga um þaö.
Seðlabankinn þjónn
Flugleiða?
Eitt af þvi sem ég tel ástæöu til
aö kanna eru afskipti Seölabank-
ans af málefnum Flugleiða. Hvaö
eftir annaö rekst maöur á
stjórnendur Seölabankans meö
fingurinn á einn eöa annan hátt i
rekstri fyrirtækisins notandi
sambönd sin við viöskiptabank-
ana til fyrirgreiðslu sem hefur
veriö andstæö hagsmunum ann-
arra. Má þar nefna kaupin i hús-
næöi Hótel Esju.
Olafur Ragnar vitnaöi i nokkra
þingmenn, sem tóku til máls I
umræöunum 1975, Halldór E.
Sigurösson, Jón Armann Héöins-
son, Ragnar Amalds, Steingrim
Hermannsson og allir vita þeir
um vafasaman rekstur fyrir-
tækisins, linkind stjórnvalda og
tregöu forstjóra fyrirtækisins til
aö veita nægilegar upplýsingar.
Fyrir fimm árum sagöi Stein-
grimur Hermannsson aö stjórn-
völd þyrftu á næstu fimm árum
aö búa sig undir aö þurfa aö
ganga inn I fyrirtækiö og lauk
hann ræöu sinni á Alþingi þannig:
/Égvil endurtaka aö ég samþykki
rikisábyrgöina eingöngu á þeirri
forsendu aö mjög náiö og ná-
kvæmlega veröi fylgst meö
þessum rekstri og Flugleiöum
gert þaö ljóst aö ekki veröur liö-
inn neinn yfirgangur.”
í umræöum um þingsálykt-
unartillögu mina 1978 áttu Flug-
leiöir talsmann i þinginu, Friörik
Sophusson, sem þrætti fyrir öll
þau atriöi sem ég sagöi aö myndu
gerast en þvi miöur haföi ég á
réttu aö standa þvi vissulega
heföi þaö veriö betra bæöi fyrir
fyrirtækiö, Jijóöina og starfsfólkið
aö þeir spadómar heföu reynst
•angir.
Lögmál frumskógarins
— Frjáls samkeppni
Þaö var Utilokaö fyrir Flugleiö-
ir aö halda fluginu áfram i
óbreytti mynd eftir aö Carter
Bandarikjaforseti tók upp hina
nýju flugmálastefnu sina sem for-
stjórar Flugleiöa kalla lögmál
frumskógarins en hugmynda-
fræöingar Sjálfstæðisflokksins
nefna yfirleitt frjálsa samkeppni,
leiftursókn i markaösmálum.
Þessu til viöbótar bættust mis-
tök i rekstri, mistök i fjárfest-
ingu, bæði hvaö snertir DC-8 og
DC-10 þoturnar og ósamkomulag
i Stjórn fyrirtækisins og fjölmarg-
ar ákvaröanir sem geröu þaö aö
verkum aö stjórnendur brugöust
hvorki nægilega vel eöa fljótt viö
aösteöjandi vanda. Þess vegna er
þaö algerlega út i hött þegar
Geirsarmurinn reynir aö flytja þá
söguskoöun aö þaö sé að ein-
hverju leyti rikisstjórninni aö
kenna hvernig komiö er. Málun-
um væri ekki komiö svo illa ef
hlustað heföi veriö á varnarorð
Alþýöubandalagsins og ef Sjálf-
stæöisflokkurinn heföi gengiö til
liös viö okkar i málinu 1978.
Alþýöuflokksmenn hafa i þess-
um umræöum gengiö lengst og
Eiöur Guönason krafist þess aö
stjórn Flugleiða fari frá. Samt
sem áöur vitir þingflokkur hans
Alþýöubandalagiö fyrir afskipti
af þessu máli.
Allar þeirra yfirlýsingar
marklausar
I byrjun september kynnti
stjórn Flugleiöa almenningi
gleöifregnir. Allt væri i besta lagi
meö reksturinn,fyrirtækiö ætti vel
Auglýsing um skipulag
i Seltjarnarneskaupstað
Samkvæmt lögum nr. 19/1964 er hér með
auglýst eftir athugasemdum við breyt-
ingartillögu að aðalskipulagi Seltjarnar-
ness,
Tillagan nær yfir svæðið frá landamerkj-
um Seltjarnarness og Reykjavikur að
austan að Bakkavör, Skólabraut og
Fornuströnd að vestan.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu
byggingafulltrúa Seltjarnarness frá og
með deginum i dag til 15. desember n.k.
Hlutaðeigendum ber að skila athuga-
semdum sinum til bæjarstjórnar
Seltjarnarness eigi siðar en 31. desember
1980 að öðrum kosti teljast þeir hafa sam-
þykkt tillöguna.
27.október1980
Skipulagsstjóri
rikisins
Bæjarstjóri
Seltjarnarness
• Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
Onnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu annfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
ólafur Ragnar Grlmsson
pingsjá
fyrir skuldum og myndi innan 12
mánaöa skila 900 miljón kr. hagn-
aði. Mörg blöö slógu þessu upp
sem miklum fagnaöartíöindum
og þegar ég leyföi mér aö benda á
aö veruleikinn væri nú reyndar
ekki svo, var þaö kallað aöför og
ókurteisi. A sama hátt var annar
eftirlitsmaður Flugleiöa for-
dæmdur þegar hann leyföi sér aö
benda á aö ýmislegt væri vafa-
samt i þessari skýrslu fyrirtækis-
ins og Geirsarmurinn og þing-
flokkur Alþýöuflokksins sam-
þykkti vitur á okkur. En hver var
niöurstaðan, hver var sannleikur-
inn? Tæpum tveimur mánuöum
siöar lýsir Siguröur Helgason þvi
yfir i blööum aö ef hann fái ekki
rikisábyrgö aö upphæö 6 milj.
dala fyrir byrjun nóvember þá
hrynji fyrirtækiö. Og þaö er ekki
einu sinni ljóst hvort fyrirtækiö
eigi veö fyrir þeim ábyrgöum
sem fariö er fram á. Yfirlýsingar
Siguröar Helgasonar, 5 ár aftur I
timann hafa allar reynst mark-
leysa.
Að tapa heilli Kröflu-
virkjun á 2 árum
I greinargerö eftirlitsmanna er
vakin athygli á þvi aö þeir sendu
stjórnendum fyrirtækisins 50
spurningar en svörin reyndust
ófullnægjandi. Fyrir tæpum mán-
uöi sendu þeir viöbótarspurning-
ar en ekki hafa borist svör viö
þeim.
Stjórnendurnir hafa ekki einu
sinni sýnt rikisstjórninni fjár-
streymisáætlun á greiðslugrunni,
og ekki heldur hvernig greiöslu-
staöa fyrirtækisins gagnvart
skuldbindinum sinum næstu
mánuöi er. Ég lýsi þvi yfir sem
form f járhags- og viðskiptanefnd
ar þessarar deildar aö viö mun-
um krefjast þess aö fá allar
upplýsingar sem Alþingi og rikis-
stjórn telur nauösynlegar.
Frá 1978 hefur fyrirtækiö tapaö
upphæö sem nemur andviröi
einnar Kröf lu virkjunar .
Stjómendur þess hafa þrisvar
sinnum haft I hótunum nú síðast
fyrir helgina þegar krafist var 6
milj. kr rikisábyrgðar , annars
kæmi til stöðvunar.
Alþýöubandalagiö hefur skýra
og ljósa stefnu I þessu máli. t
fyrsta lagi veröi skiliö á milli
áhættu-og grundvallarflugs og fé
almennings ekki hætt i áhættu-
flugi. t ööru lagi aö starfsfdlk
fyrirtækisins beri meginábyrgö á
rekstrinum og ráöi feröinni. t
þriöja lagi aö stjórnvöld fái aö-
stööu til aö fylgjast meö rekstri
fyrirtækisins.
-€b.
SKIPAUTGtRB RIKISINS
Ms. Coaster Emmy
fer frá Reykjavik 4. nóv.
vestur um land til Akureyrar
og snýr þar viö.
Ms. Esja
fer frá Reykjavik 6. nóv
austur um land til Vopna-
fjaröar.
Ms. Hekla
fer frá Reykjavik 7. nóv.
vestur um land í hringferö.
Viökoma samkvæmt áætlun.