Þjóðviljinn - 29.11.1980, Blaðsíða 5
Helgin 29. — 30. nóvember 1980. ÞJQÐVILJINN — SIÐA 5
Gálgajrestur Gervasoms styttist óðum:
Sannfærð um að mál-
ið verður endurskoðað
með hliðsjón af
afstöðu Amnesty,
segir Guðrún
Helgadóttir
Taka Islenska sendiráösins I
Paris hefur vakið mikla athygli.
Hefur verið haft eftir utanrikis-
ráðherra að þessi uppákoma
verði ekki málstað Gervasonis til
framdráttar. Nú eru aöeins fá-
einir dagar eftir af þeim fresti
sem Friðjdn Þdrðarson dóms-
málaráðherra veitti I máli
Gervasonis, en sem kunnugt er
ákvað hann að brottvfsun hans
tæki gildi 2. desember. Þjdðvilj-
inn hafði tal af þremur þeirra
fimm ræðumanna,' sem töluðu á
útifunditil stuðnings Gervasoni á
Lækjartogi I september sl. og
spurði þá hvort atburöirnir I
sendiráðinu I Paris hafi á ein-
hvern hátt breytt afstöðu þeirra
til máls Gervasonis.
im
Guðrún.
sagði Jdn Baldvin Hannibalsson
ritstjdri — Að vísu skal tekið
fram að ég hef ekki séð eða heyrt
erindi það sem þessir náungar i
sendiráðinu i Frakklandi sendu
frá sér, en ég tel augljóst mál að
þeir séu i allt annarri aðstöðu en
hann. Það gildir eitthvað allt
annað um þá, það sést á þvi að
þeir eru kvaddir á brott af lög-
reglunni með friðsamlegum hætti
og þeir ganga lausir.
Gervasoni er i alveg sérstakri
aðstöðu. Við þurfum ekki að ótt-
ast innrás herskylduafneitara frá
Frakklandi þótt við veitum hon-
um hér hæli. Ég lit á mál Gervas-
onis sem einstaklingsbundið
mannúðarmál.
Einstaklingsbundið
mannúðarmál,
segir Jón Baldvin
Hannibalsson
— Min afstaða er með öllu
dbreytt, sagði Guðrún, og ég er
alveg fullviss þess að hvorki
dómsm á 1 aráðherra né
nokkur.annari rikisstjórninni hafi
minnstu löngun til að hrekja
Gervasoni úr landi. Ég er sann-
færð um að málið verður endur-
skoðað með hliðsjón af afstöðu
Amnesty International. Þar
kemur upp algerlega ný hlið á
málinu, sem rennir enn frekari
stoðum undir það að hann fái að
vera hér, úr þvi að hann er nú
einu sinni kominn.
Hinsvegar er ljóst að dóms-
málaráðherra er nokkur vandi á
höndum.þar sem Gervasoni kom
Haraldur.
Jón Baldvin
óumdeilanlega inn i landið með
ólöglegum hætti. En ekkert land
hefur krafist þess að fá hann
framseldan og þvi er engin aug-
ljós ástæða fyrir þvi að reka hann
i burtu.
Kjarni málsins er sá, að Gerva-
soni er hér á landiog þess vegna á
ábyrgð okkar. Fráleitt er að ein-
hver hætta sé á þvi, að hingað fari
tugir fransmanna að flykkjast;
ætli útlendingaeftirlitið myndi
ekki stöðva þá? —eös
Trausti
talinn af
Vélbáturinn Trausti ÞH 8
frá Kópaskeri er nú talinn af,
en bátsius hefur verið leitað
siðan aðfaranótt fimmtu-
dags á öxarfirði.
Með bátnum fórust tveir
menn: Kristinn Krist-
jánsson skipstjóri, 29 ára að
aldri.og lætur hann eftir sig
unnustu og börn, og Baröi
Þórhallsson, 37 ára, sem
lætur eftir sig eiginkonu og 3
börn. Þeir voru báðir bú-
settir á Kópaskeri. Vél-
báturinn Trausti ÞH var 20
'lesta eikarbátur smiöaður
1972.
Fyrirlestur:
Orkunotkun
í sjávarútvegi
Prófessor Valdimar K. Jónsson
flytur fyrirlestur á vegum Verk-
fræðistofnunar Háskóla islands
þriðjudaginn 2. desember. Fyrir-
lesturinn nefnist „Hagkvæm
orkunotkun i sjávarútvegi” og
fjallar um svartoliu-notkun, sigl-
| ingarhraða og rétta notkun á
skrúfum m.a.
Fyrirlesturinn verður haldinn i
húsi verkfræði- og raunvisinda-
deildar Háskóla Islands við
Hjarðarhaga i stofu 158 og hefst
kl. 17:15.
Þessi fyrirlestur er annar i röð
fyrirlestra til kynningar á starf-
semi Verkfræðistofnunar.
Ekki i tengslum
við Gervasoni
— Nei,ég sé alls enga ástæðu til
að breyta minni afstöðu i máli
Gervasonis, sagði Haraldur
ólafsson lektor. — Við eigum að
veita honum hér landvistarleyfi,
ef ekki tekst að tryggja honum
örugga vist annarsstaðar. Sam-
kvæmt þeim fréttum sem ég hef
er þessi hópur sem settist að i
sendiráðinu ekki i neinum tengsl-
um við Gervasoni eða aðra þá,
sem hafa farið svipaðar leiðir og
hann.
Einstaklingsbundið
mannúðarmál
—Afstaða min hefur ekki breyst,
Engin ástæða
fyrir brottvisun
— Þessir atburðir hafa ekki
minnstu áhrif á mál Gervasonis i
sjálfu sér, en hinsvegar óttast ég
að þeir geti skaðað málstað hans,
sagði Guðrún Helgadóttir al-
þingismaður. — Svona mál eru
flókin og þetta gæti ruglað afstöðu
fólks og ýtt undir fordóma, en
kemur máli Gervasonis ekki
nokkurn skapaðan hlut við.
Guðrún var spurð hvort afstaöa
hennar til rikisstjórnarinnar væri
óbreytt i þessu máli, en eins og
menn eflaust muna sagðist hún
ekki styðja rikistjórnina lengur,
ef Gervasoni yrði visað úr landi.
Sáttatillagan í flugmannadeilunni felld:
„Sáttasem jarinn
skaut yfir markið”
„Nýmæli ef launþegar seldu atvinnurekanda
sjálfdæmi um vinnustað og kjör”,
segir Björn Guðmundsson flugmaður
t gærkvöldi voru talin atkvæði
um sáttatillögu Gunnars G.
Schram sáttasemjara I flug-
mannadeilunni. Flugmenn
reyndust ósammála. Tillagan var
samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta af Félagi Loftleiða-
flugmanna. Jafnframt var hún
samþykkt af stjórn Flugieiöa hf.
Hins vegar felldi Félag isl. at-
vinnuflugmanna tillöguna með
yfirgnæfandimeirililuta atkvæða.
Þar sem einn aðilinn af þremur
felldi tillöguna nær hún ekki fram
að ganga. Um 100 manns eru I
flugmannafélög unum tveimur.
Kosningaþátttaka var um 90%.
„Sáttatillagan fellur FlA-mönn-
um alls ekki i geð, eftir því sem ég
best veit,” sagði Björn Guð-
mundsson fyrrverandi formaður
Félags ísl. atvinnuflugmanna i
samtali við blaðið siðdegis i gær,
áður en talning hófst.
„Samkvæmt tillögunni verður
allstórum hópi manna, sem áður
störfuðu hjá Flugfélagi Islands
skákaö út ef samdráttur verður
i vesturfluginu,” sagði Björn.
„Þessir menn verða þá látnir
hætta vegna manna sem eru eldri
I starfi, en hafa aldrei komið
nálægt innanlandsflugi.
Sáttasemjarinn hefur kannski
varla skilið það verkefni sem við
var að fást, þvi hann dregur inn i
sáttatillöguna hluti sem ekkert
koma starfsaldri við og kallar
hana siðan sáttatillögu um sam-
einingu starfsaldurslista. Það er
gert ráð fyrir þvi' i' tillögunni að
menn undirgangist að fara að
vinna erlendis á þeim kjörum
sem forráðamönnum Flugleiða
dettur i' hug. Að visu er gert ráð
fyrir þvi að menn vinni hjá félög-
um sem Flugleiðir eiga aðild að,
en það hefur sýnt sig að þeir eru
ekki lengi að fá sér aðild að ýms-
um fyrirtækjum úti um heim. Ég
held að islenskir launþegar verði
tregir til að selja vinnuveitandan-
um sjálfdæmi um það, hvar þeir
eigi að vinna, hve lengi og á
hvaða kjörum. Það væri þá ný-
mæli i islenskri verkalýðspóli-
tik”, sagði Björn Guðmundsson.
Hann sagöist telja að Gunnar G.
Schram sáttasemjari hefði skotið
yfir markið með þessari tillögu-
gerö sinni.
—eös
Aðventukmnsar
aðventu-og.
jólaskm iingar
Nú er aðventan að hefjast.
Margir halda þeim gamla, góða sið að
skreyta hjá sér af því tilefni.
Komjð við í Blómavali við Sigtún.
Skoðið hið stórkostiega úrval okkaraf
aðventukrönsum og skreytingum,
smáum sem stórum. Eigum jafnframt
fyrirliggjandi allt efni til aðventu- og
jólaskreytinga.
Allskonar jólaskraut, jólaskreytingar og
efni til slíks.
Fallegt úrval af blómstrandi jólastjörnum
rauðum og hvítum.
Gróðurhúsinu við Sigtún: Símar36770-86340