Þjóðviljinn - 29.11.1980, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 29.11.1980, Blaðsíða 23
Helfiin 29. — 30. nóvember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 23 DÍLLINN HER Eirikur Guðjónsson skrifar um útvarp og sjónvarp Bandarísku lífsgildin Dagskrá vikunnar sem leiö er ekki þess eölis aö hægt sé aö semja langar heimspekilegar vangaveltur um hana nema vera kynni aö hún sé framlag rikisins til fánýtishyggjunnar. — Eins og vera ber um fjölmiöla sem reknir eru af rikisvaldi sem foröast aö hafa stefnu, vekja spurningar og valda umræöum. Gott dæmi um þessa stefnu að vilja ekki reita neinn til reiði, er sú pólitik sem rekin er af lista- og skemmtideild sjónvarpsins, þegar valdar eru kvikmyndir fyrir föstudags- og laugardags- kvöld. Það virðist vera sjónar- miðið núna að gefa kvikmynda- áhugafólki eitthvað til þess að smjatta á, á föstudagskvöldum, og hinum amerikaniserðu eitt- hvað til þess að gráta yfir á laugardagskvöldum. — Hester-stræti sem sýnd var á föstudaginn fullnægði vissulega kröfuhörðum kvikmyndaáhuga- mönnum, og „Kærleikurinn gerir kraftaverk”, var vægast sagt ódulbúin erting á tára- kirtlunum. Raunar fylgdi á eftir dagskrárliður sem sjálfsagt verður ómissandi i framtiðinni, það er langur þáttur um fræga fólkið i Amerikunni að baða sig upp úr sviösljósunum, saman- ber óskarsverölaunaveitingin ofl. i þeim dúr. Það verður að veita sjónvarp- inu sérstaka viðurkenningu fyrir mjög öflugt og vel unnið starf að kynninguog útbreiðslu þeirra lifsgilda sem okkar bestu vinir og verndarar þ.e. Banda- rikjamenn, búa við. Það er til dæmis ómetanlegt aö blessuö börnin fái tækifæri til þess að sjá jafn gagnmerka og vel unna þætti eins og „Lassie” og „Húsið á sléttunni”. Þvi sannið þiðtil, þó að þessir þættir láti litið yfir-sér og séu tiltölu- lega sakleysislegir við fyrstu sýn, þá eru uppeldisáhrifin sem fimmhundruö sllkir skammtar i bernsku geta haft, sjálfsagt alveg ótrúleg. — Þetta er meðal annars skýr- ingin á þvi hvers vegna undir- skriftaherferöir fyrir endurupp- töku á kanasjónvarpi, hafa mis- heppnast. Vel upplýstir tslend- ingar hafa sjálfsagt fyrir löngu gert sér grein fyrir að meðan islenska sjónvarpsins nýtur við þá er hitt óþarft. — Hljóðvarpiðhefur aftur á móti veriö með ýmsa fjörkippi i sam- bandi viö fréttaskýringar og annað þvi tengt efni, núna sið- ustu misserin, þó ýmislegt annaö mætti betur fara. Eðlismunur fjölmiðlanna or- sakar það meðal annars aö hiö talaða orð hlýtur aö vera á þvi tungumáli sem talað er i land- inu, og þar af leiöandi er ekki hægt aö leysa kanaútvarpið full- komlega af hólmi, með þvi islenska,— Annars væri nú ansi gaman að fá samanburð á vægi tveggja málaflokka i fréttatimum þessara fjölmiöla,og þeir mála- flokkar sem mér eru i huga eru vegamál og bilar. OG Rússnesk máltæki Mann- lífið í mið- borginni Þeir sem dvalist hafa erlendis að vetri til þekkja örugglega þá tilfinningu hvað það er unaös- legt að stinga sér inn á krá eftir verslunarferð eða þegarmaöur er að koma af bókasafninu og fá sér kaffibolla eða bjór eftir þvi hvernig skapið er. Á köldum desemberdögum veit ég ekkert betra en þá þjónustu sem boðiö er upp á i Danmörku: heitt jóla- glögg og piparkökur. Einhverra hluta vegna hefur sú venja ekki komist á hér á landi þrátt fyrir gamalgróin tengsl viö Dana- veldi, enda færi vist hrollur um bindindispostula viö að heyra slikt nefnt. Það er sannleikur að jólaglögginu fylgir alveg sér- stök stemmning, ekki sist á gamalli krá eins og Hviids vin- stue sem býður upp á bæjarins besta glögg I Höfn. Veitingastaðurinn Hornið hefur nú tekiö upp þann siö að blanda I glögg og bjóöa upp á það I desember, jafnframt þvi sem matseöillinn hefur verið aukinn og endurbættur meö Sigurjón á Alafossi, Jón Páls- son, Guðmundur Sigurjónsson, Páll Guttormsson og Pétur Sig- fússon. Visa Eftirfarandi visu fengum við senda og látum hana flakka. Skitapakk og öfund ill ærnum veldur kláöa. Þessi krata-kærleiksstill ku nú flokknum ráða Sk.E. írsk spakmæli Slæmur karlmaöur er sá sem dáist aö sakleysinu, en slæm kona er þannig kona sem maður verður aldrei þreyttur á. Oscar Wilde Fyrirgefðu alltaf óvinum þinum; ekkert angrar þá meira. Oscar Wilde Kenniö Englendingum að tala og Irum aö hlusta og þá munu þessi tvö þjóöfélög veröa sið- menntuð. Oscar W'ilde velja sérhvaðsem þeirvildu, en undir borðum lék Guðmundur Ingólfsson á pianó tónlist af létt- ara og ljúfara taginu. Góö stund þaö. Margir hafa bent á það hve miöborgin hefur lifnaö við á allra siöustu árum. Þar eiga veitingahúsin stóran hlut að máli. Þau bjóða upp á mikla fjölbreytni og greinilega kunna þeir borgarbúar sem hafa tima og peninga til aö heimsækja veitingahúsin vel aö meta. A Torfunnier alltaf fullt um miöj- an daginn af konum sem fá sér kaffi og rjómatertu mitt i búöarápinu, á Horninu eru þaö pizzurnar og léttu vinin, og Torgiö gefur kost á að fylgjast meö mannlifinu á því gamla Lækjartorgi. Mannlifiö og borgarmenningin er aö breyt- ast, þeim til ánægju sem vilja endurlifga og vernda þaö litla sem eftir er af gömlu Reykja- vik. — ká Úr skúffunni hennar ömmu Glimukappar Islands áriö 1912. ömmu hafa þótt þessir menn fjallmyndarlegir enda myndin vel varðveitt i skúffunni. Og óneitanlega eru þeir glæsilegir. Þarna er Jóhannes á Borg i fornmannabúningi, Hallgrimur Benediktsson. (faðir Geirs), Meö þvi skemmtilegra sem maður gerir er að grúska i gömlum myndum. Þessi skaut upp kollinum I myndasafni Þjóðviljans og mun hún vera tekin I íslenskri þingmannaheimsókn til Moskvu, lik- lega einhvern tima á 7. áratugnum. Þeir sem sjást þarna I kærleiks- höndum sovéskra meyja eru Guölaugur Gislason, Gils Guðmunds- son, Ingvar Gislason núverandi menntamálaráðherra og Eysteinn Jónsson. Sá sem giftist vegna ástar nýtur hamingju um nætur en þjáist á daginn. Konan hlær þegar hún getur og grætur þegar hún vill. Gómsætt er vinið þegar fögur brúður fyllir hornin. Gjöfin kostar litiö en ástin getur reynst dýr. Lestu bænir þinar einu sinni áður en þú gengur til orustu, — tvisvar sinnum áður en þú leggur upp i sjóferð, — þrisvar sinnum áður en þú gengur i hjónaband. Karlmaður án konu er jafn illa farinn og húfulaus maður i hriö. Syndir eiginmannsins nema staðar á þröskuldinum — syndir eiginkonunnar ganga rakleitt til stofu. Sá sem ekki kvænist ungri ekkju kynnist ógæfunni aldrei til hlitar. ööru visi mér áöur brá. Forseti og varaforseti ASI báöir úr Verslunarmannafélagi Reykja- víkur, annar kommi en hinn ihald. steikum og súpum, ábætisrétt- um og kökum, auk skötuselsins sem er hreinasta kóngafæða. Blaðamönnum varboðiði mat um siöustu helgi,og máttu þeir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.