Þjóðviljinn - 29.11.1980, Blaðsíða 11
Helgin 29. — 30. nóvember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
/
Island-F ilipps ey j ar:
Sigurinn er
í sjónmáli
Kvennasveitin tapaði fyrir Kanada
Frá Einari Karlssyni, frétta-
manni Þjóðviljans i Valetta á
Möltu, 28. nóvember:
islenska karlasveitin
tefldi í dag við Filipps-
eyjar og er allt útlit fyrir
sigur okkar.
Helgi ólafsson lenti i vand-
ræðum i byrjuninni gegn stór-
meistaranum Torre, sem tefldi á
siðasta Reykjavikurmóti, og
mátti þola þirðja tapið i röð.
Jón L. var greinilega orðinn
þreyttur, enda hefur hann teflt i
'öllum umferðunum átta. Þrátt
fyrir það náði hann jafntefli við
Mascarinas.
Þeir Margeir og Jóhann eiga
báðir biðskákir gegn Rodriguez
og Pacis og eiga að vinna þær létt.
Stúlkurnar tefldu i dag við
Kanda. Aslaug Kristinsdóttir
tapaði fyrir Yerenberg, en jafn-
tefli gerðu Sigurlaug Friðþjófs-
dóttir og Roos, og Birna Norðdahl
og Day. 1—2 tap.
Helstu úrslit á efstu borðum:
Ungverjar — Júgóslavar 2—2
(jafntefli á öllum borðum) Eng-
land — Sovétrikin 1,5—2,5 (jafn-
tefli gerðu Miles og Karpov,
Stean og Polugajevski og Nunn og
Balashov, en Kasparov vann
Speelman). Tékkóslóvakia —
Sviþjóð 2,5—1,5.
Ungverjar halda forystunni
með 22,5 vinninga af 32 mögu-
legum.
Jafnt hjá
fslandi og
Skotlandi
Frá Einari Karlssyni, frétta-
manni Þjóðviljans á ólympiu-
skákmótinu á Möltu.
tsland og Skotland skildu jöfn
2—2, þegar biðskákir höfðu verið
tefldar i 7. umferð. Margeir gerði
auðvelt jafntefli, en Jón L. þurfti
öllu meira að leggja á sig. Eins og
égsagðii gær, missti Jónaffyrir-
sjáanlegum vinningi f tima-
hrakinu.
Hvitt: Jón
Svart: Pritchett
Jón lék 39. Rd7? ?
(Vinninginn er að fá með 39.
Hxc8-Hxc8 40. Dh8+!-Kd7 (41. —
Dxd5 42. Dh4+) 42. Rxb6og siöan
43. Rxc8. Til að hafa þetta sem
ýtarlegast, þá gengur ekki 39.
Dxf6 vegna 40. Dh6+-Kf7 41.
Hc7 + -Kg8 42. h4 og vinnur).
En skákin tefldist þannig:
39. Rd7 + ??-Ke7
40. Dxf7-Kxf7
41. Rxe5-Kg7
42. Hxg6+-Kh7
43. Hc6-Hxc6
44. Rxc6-Hxe4
45. Kf3-Hh4
46. Ke3-Hh3 +
47. Kd2-Hxb3
48. Kc2-Hh3
49. Rb4-Hxh2 +
50. Kc3-Hh3+
51. Ke2-a5
52. Rd5-Hh6
53. Kc3-Hc6 +
54. Kd4-Kg7
55. b4-Kf7
56. Bxa5-Bxa5
57. Re3-Ke6
58. Rc4-Ha6
59. Kc5 og hélt
jöfnu.
Þegar 7 umferðum af 14 er
lokið, er staðan þessi:
20.5 vinn. Ungverjaland
19.5 vinn. Júgóslavia
19 vinn. Sovétrikin
18.5 vinn. England, Sviþjóð
18 vinn. Finnland ( + biðskák),
Búlgaria, Tékkóslóvakia
17 vinn. Kanada (+ biðskák),
Kina, Kúba, Holland, Pólland,
Bandarikin
16.15 vinn. Kolombia, Frakkland,
Island, Filippseyjar, Rúmenia,
Skotland, Spánn og ísrael.
Staðan i kvennaflokki er þessi:
16.5 vinn. Ungverjaland
16 vinn. Sovétrikin
13.5 vinn. Pólland, Rúmenia.
Islenska kvennasveitin hefur 11
vinninga.
Póst- og símamálastjóri:
Þjónustan greidist
af almannafé
Jón Skúiason, póst- og sima-
málastjóri, hafði samband við
okkur vegna fréttar á baksfðu
blaðsins i gær, þar sem vitnað er I
umsögn Jóns vegna þingsálykt-
unartillögu um eftirgjöf á afnota-
gjaldi fyrir sima elli- og örorku-
lifey risþega. V
— Ummælin sem höfö eru eftir
mér eru tekin úr samhengi i frétt-
inni, — sagði Jón, — og gefa ekki
rétta mynd af minni afstöðu. Ég
er hlynntur þvi aö elli- og örorku-
lifeyrisþegar fái þessa þjónustu.
Agreiningurinn er hins vegar um
þaö, hvort þessi þjónusta eigi að
greiðast af almannafé eöa leggj-
ast sem aukaskattur á almenna
simnotendur. Hér er um að ræða
upphæð sem nemur u.þ.b. 150
miljónum á ári samkvæmt nú-
gildandi gjaldskrá. Ég tel að
þetta eigi að taka af almannafé,
en ekki af sfmnotendum.
1 öðru lagi vil ég taka fram, aö
Póst- og simamálastofnunin fer i
öllu eftir fyrirsögn samgöngu-
ráðuneytisins um framkvæmdir á
reglugerö i þessum efnum og
þangaö leitum við með öll vafaat-
riði, — sagöi Jón að lokum.
—ih
nýju
smapeningarnir...
..fara beint í budduna. Seðlarnir
leggjast að sjálfsögðu inn á
reikning í Alþýðubankanum.
Nú þarf að passa
smápeningana.
Kaupið buddu
fyrir áramótin.
Alþýðubankinn hf
Laugavegi 31 - Sími 28700
Útibú: Suöurlandsbraut 30 - Sími 82900
UOItm SVO VEL
ad líta inn í Vörumarkaðinn hf.
1 dag kl. 2-6
Við kynnum úrval heimilistœkja, reiðhjóla,
húsgagna, barnafatnaðar, leikfanga, pottablóma,
gjafavöru, kerta og sœlgœtis
Kjötiðnaðarmenn okkar gefa gestum að smakka
ú jólamatnum og kynna áleggsúrvalið sem þeir bjóða
Mjólkursamsalan kynnir ís og ístertur
JEL O. Johnson & Kaaber kynna kaffi
Auk þess heimsœkir Lúðrasveit Reykjavíkur okkur
og leikur fyrir gesti kl. 14.30
Vinsamlega athugið
að á kynningunni
er ekkert ti! sö/u
Vörumarkaðurinniif.
Ánnúla 1 A, simi 86111.