Þjóðviljinn - 29.11.1980, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 29.11.1980, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 29. — 30. nóvember 1980. Auglýsing frá norrænu myndlistarstöðinni á Sveaborg. Nordlskt Konstcentrum Sveaborg C 53 SF-00190 HELSINGFORS 19 Sími: 0-668 554 NORRÆN TEIKNISÝNING Norræna myndlistarmiöstööin á Sveaborg i Helsingfors, Finnlandi, er samnorræn stofnun, sem hefur aö markmiöi aö efla norrænt samstarf á sviöi myndlistar. Myndlistarmiö- stööin hóf starfsemi sina 1978, og er hún aöallega i þvi fólgin aö sjá um norrænar farandsýningar og koma upp sýningum I sýningarsai Sveaborgar. Sumariö 1981 veröa opnaöar á Svea- borg 5 gistivinnustofur fyrir norræna myndlistarmenn. 1 júni 1981 veröur opnuö á Sveaborg sýning á norrænni teikni- list. Sýningin veröur sumarmánuöina á Sveaborg, en siöan veröur hún send um hin Noröurlöndin. Aætlaöur sýningartimi er eitt ár. Meö teikningu er i þessu sambandi átt viö eintóna (mono- krom) mynd, sem unnin er á pappir með blýanti, tússi, koii, krit eða með annarri samsvarandi tækni. Starfandi myndlistarmönnum á Noröurlöndum er boöin þátt- taka meö eftirfarandi skilyrðum : — Senda skal til sýningar minnst 3 og mest 5 teikningar. — Myndlistarmiðstöðin áskilur sérrétt til aö halda þeim teikn- ingum sem valdar verða til sýningar til dagsins 31.5. 1982. — Hver mynd, sem send er til dómnenfndar, skal merkt á bakhlið með nafni listamanns, heimilisfangi og nafni lista- verksins. — Þau verk sem tekin eru til sýningar eru tryggð allan sýn- ingartimann. 1 sýningarlok verða myndir endursendar listamönnum að kostnaðarlausu. — Sýnd verk geta verið til sölu, en sala getur ekki farið fram fyrr en i lok sýningartimabilsins. Þóknun fyrir sölu fer eftir reglum hvers sýningarstaðar. (Sýningarsalur Norrænu myndlistarmiðstöðvarinnar tekur 20%). — Fyrir verk, sem valin eru til sýningar.er greidd sýningar- leiga, 100 finnsk mörk fyrir hvert verk. — Verk, sem hafnað er, eru endursend listamanninum ótryggð, en á kostnað myndlistarmiðstöðvarinnar, fyrir maflok 1981. — Mvndlistarmiðstöðin er ekki bótaskyld vegna skemmda á listaverkum vegna ófullnægjandi pökkunar eða viö flutning til Sveaborgar. 1 dómnefnd eru: Listamaðurinn, prófessor Robert Jacobsen, — Per Bjurström, forstjóri Nationalmuseum i Stokkhólmi, — og umsjónarmaður sýninga á myndlistarmiðstöðinni, Tage Martin Hörling. Teikningarnar skulu vera óinnrammaðar. Fylgja skal nákvæm verklýsing ásamt upplýsingum um listamanninn. Teikningar þurfa að berast i siðasta lagi þ. 16.2.1981. Frekari upplýsingar gefur umsjónarmaður sýninga Norrænu myndlistarmiðstöðvarinnar, simi: 0-668 466. Við þökkum af alhug vinsemd og virðingu við andlát og út- för eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa Ragnars Jónssonar Stórholti 26 Sérstakar þakkir skulu færðar læknum og hjúkrunarfólki Borgarspitalans, sem önnuðust hann i veikindum hans,og stjórn Skógræktarfélags Reykjavikur við útför hans. Guð blessi ykkur öll. Magnúsina Bjarnadóttir Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Jóhannes Noröfjörð Páiina Aðalheiður Ragnarsdóttir Oddur Halldórsson og barnabörn. ------------------------------ Eiginkona min og móðir okkar Laufey Jónsdóttir Stangarholti 12 verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 2. desember kl. 13.30. Jörgen Þorbergsson Agnar Jörgensen Svana Jörgensdóttir Sigurður Jörgensson Asa Jörgensdóttir .............. .................................... ' Þökkum af alhug ölium fjær og nær er sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu Jóhönnu Steinþórsdóttur Kristján EyfjörðGuðtnundsson Klara Kristjánsdóttir Páll Þorkelsson Guöm. Skúli Kristjáns. Aslaug Magnúsdóttir Rakel Kristjánsdóttir Steinþór D. Kristjánsson Guðfinna Þorvaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ársþing B.l. 1 Hafnarfirði Ársþing Bridgesambandsins Þing Bridgesambands lslands 1980 verður haldið i dag, I veit- ingahúsinu Gafl-inum við Reykjanesbraut i Hafnarfirði. Setning hefst kl. 10.30 f.h. Á dagskrá eru venjuleg aöal- fundarstörf, t.a.m. kosning aðal- stjórnar og varastjórnar, keppnir og keppnisreglur og reikningar B.l. Veitingar verða á staðnum og verða stutt kaffihlé fyrir og eftir hádegi, auk matarhlés. Áætlaöur kostnaður vegna veitinga er kr. 10.000,- á mann. Suðurlandsmótið i tvimenning Um slöustu helgi fór fram i Vest- mannaeyjum hið árlega Suöur- landsmót i tvimenning. Alls tóku 14pör þátt i keppninni, 6 frá Vest- mannaeyjum, 4 frá Laugarvatni, 3 frá Selfossi.og frá Bridgefél. Reykjavikur kepptu sem gestir Jakob R. Möller form. BR og Hrólfur Hjaltason. Spilamennska hófst á föstu- dagskvöld og voru spilaðar 5 umferðir þá. Efstir voru þá Jón Hauksson og Pálmi Lörens, en þeir Vilhjálmur og Sigfús frá Sel- fossi fylgdu þeim fast eftir. Keppni hófst svokl. 10 á laugar- dagsmorgni, enda stefnt að þvi að ljúka spilamennsku I mótinu fyrir kvöldmatjsem og tókst. Þeir Jón og Pálmi héldu forystunni allt þangaðtil þremur umferöum var ólokið en þá tóku þeir Vilhjálmur Þ. Pálsson og Sigfús Þóröarson forystuna og sigruðu nokkuö örugglega. Röð efstu para varð þessi (meöal: 546): Sigfús Þóröarson — Vilhj.Þ. Pálss.Self. 682 Jón Hauksson — PálmiLórens Vm. 653 Sigurgeir Jónsson — Bjarnhéö. Eliass. Vm 597 Jakob R. Möller — HrólfurHjaltason B.R. 565 Haukur Guðjónsson — ÞorleifurSigurl. Vm. 561 Leif Osterby — Brynj. Gestss. Self. 552 Helgi Bergvinsson — Hjálmar Þorl. Vm. 547 Arangur heimamanna hefur sjaldan eða aldrei verið betri en einmitt i þessu móti eöa fjögur af sjö efstu sætum. Laugvetningar blönduðu sér ekki I keppni efstu manna að þessu sinni. Góður keppnisstjóri var Sigur- jón Tryggvason. Boðsmót Bridge- félags Kópavogs Helgina 6.-7. des. efnir félagiö tilBoösmóts með þátttöku 32 para og verður félögum i Reykjavik, á Reykjanesi og Selfossi boðið að senda fulltrúa sina til mótsins, sem veröur meö barómeter-sniöi og 3 spil milli para. Vegleg verö- laun verða veitt þremur efstu pörunum. Spilaö veröuri Þinghóli viö Hamraborg og hefst mótiö kl. 13.30 á laugardag. Keppnisstjórar veröa Vil- hjálmur Sigurösson og Jónatan Lindal. Eftir 4 umferöir i hraðsveita- keppni B .K. er staða efstu sveita þessi: Rúnar Magraisson 2746, Armann J. Lárusson 2739, Jón Þorvarðar- son 2736, Sigurður Vilhjámsson 2693, Jón Andrésson 2685 og Sverrir Þórisson 2627. Meöal: 2592. Fréttabréf frá Bridge- félagi V-Hún. Hvamms- tanga: Laugardaginn 15. 11. sl. var haldiö opiö mót I tvimenning, barómeter, með þátttöku 14 para, 7 frá Hvammstanga, 1 frá Siglu- firöi, 4 frá Borgarnesi og 2 frá Hólmavik. Keppnisstjóri var Guðmundur Kr. Sigurösson úr Reykjavik og mótið viö hann kennt, „Guðmundarmót”. Bókaverðlaun gáfu Kaupfélag V-HUnvetninga og Verslun Sig- urðar Pálmasonar. Orslit urðu þessi (yfir meðalskor): stig Kristján Bjömsson — KarlSig.Hvammst. 71 Guðjón Pálsson — Viöar Jónss. Sigluf. 55 Jón A. Guöm. — RUnarRagn.Borgarn. 51 Unnsteinn Arason — Guöjón Karlss. Borgarn. 41 Baldur Ingvarss. — EggertLevy Hvammst. 28 Eyjólfur MagnUss. — Flemming Jessen Hvammst. 25 Simon Gunnarsson — SverrirHjaltas. Hvammst. 23 Mótið fór mjög vel fram og erum við þakklátir þeim spil- urum, sem lögðu á sig langa ferö til aö taka þátt i þvl meö okkur. Sérstaklega erum við þakklátir Guðmundi Kr. fyrir hans þátt I að koma á þessu móti og hans rögg- sömu stjórnun. Vonumst viö til að geta átt hann aö oftar. 18/11 sl. lauk hjá okkur 5 kvölda tvi- menning, þar sem 5 efstu pörin áunnu sér rétt til þátttöku á svæðismót Bridgesambands Norð-Vesturlands, sem haldið verður seinna i vetur. Crslit: stig Karl og Kristján 603 EyjólfurogFlemming 585 örnogEinar 561 Baldur og Eggert 540 Eggert og Þorsteinn 539 Meðalskor var 540 stig. I stjórn Bridgefélags V-HUn. eru örn Guöjónsson form, Baldur ur Ingvarsson og Aðalbjörn Bene- diktsson. Bridgedeild Skagfirðinga Fjórða umferö tvimennings-^ keppni Skagfirðinga var spiluö I Drangey, Siðumúla 35, siöastlið- inn þriðjudag. í efstu sætum eru nú: Bjarni Pétursson — Ragnar Björnsson 504 Jón Stefánsson — Þorsteinn Laufdal 497 Björn Eggertsson — Karl Adolfsson 483 Guörún Hinriksdóttir — Haukur Hannesson 467 Andrés Þórarinsson — HjálmarPálsson 467 Hjalti Kristjánsson — Ragnar Hjálmarsson 462 Sigmar Jónsson — SigrUn Pétursdóttir 450 Jón Hermannsson — Ragnar Hansen 449 Lokaumferðin verður spiluö á sama stað þriðjudaginn 2. desem- ber. Frá B.R. Eftir 10 umferðir af 13 í sveita- keppni félagsins er staöa efstu sveita orðin ansi tvisýn : Sævar Þorbjörnsson stig 142 Sveit Samvinnuferða 139 HjaltiEliasson 129 Jón Þorvaröarson 125 SigurðurB.Þorst. 124 Karl Sigurhjartarson 115 n v Umsjón: Ólafur Lárusson Næsta miðvikudag eigast m.a. við sveitir Sævars — Samvinnu- feröa og Sævars — Hjalta, svo aö mótið ræðst að likindum þá. Frá TBK: 28 pör mættu til leiks sl. fimmtudag hjá félaginu i 3ja kvölda Butler-tvimenning Spilað eri 2x14 para riðlum. Staða efstu para er þessi: stig Bragi Jónsson — Rafn Kristjánsson 65 Páll Valdimarsson —- ValurSigurðsson 65 Hermann Lárusson — Orwell Utley 61 Ingólfur Böðvarsson — Guðjón Ottósson 51 Dagbjartur Pálsson — VilhjálmurPálsson 48 Gisli Steingrimss. — SigurðurSteingr. 48 Frá Bridgedeild Breiðfirðinga Þegar eínu kvöldi er ólokið i Butler-tvimenningskeppni félagsins, er staða efstu para þessi: stig Kristján ölafsson — RunólfurSiguröss. 444 Albert Þorsteinss. — SigurðurEmilsson 440 Magnús Oddsson — Þorsteinn Laufdal 419 Jón Stefánsson — Ólafurlngimundars. 409 Ester Jakobsdóttir — Erla Sigurjónsd. 406 Ingibjörg Halldórsd. — SigvaldiÞorsteinss. 397 Guðjón Kristjánsson — Þorvaidur Matthiasson 397 Frá Bridgedeild Barð- strendingafélagsins 4. umferð I Hraðsveitakeppn- inni var spiluð i Domus Medica, mánudaginn 24. nóvember. Staða 6 efstu sveita er nú þannig: 1. Ragnar Björnsson 1858 2. Öli Valdimarsson 1843 3. Agústa Jónsdóttir 1791 4. Viðar Guðmundsson 1774 5. Baldur Guðmundsson 1742 6. Gunnlaugur Þorst. 1736 Frá Bridgefél. Breiðholts Lokið er 3ja kvölda hraðsveita- keppni hjá félaginu. Orslit urðu þessi: 1. sv. Baldurs Bjartm. I383st. (auk hans voru i sveitinni: Rafn Kristjánsson, Sigriöur Rögn- valdsdóttir og Hannes R. Jónsson). 2. sv. Bergs Ingimundar. 1308 3. sv. Ölafs Garðarss. 1285 st. Hjá félaginu verða spilaðir eins kvölds tvimenningskeppnir fram til jóla. Allir velkomnir. Sænski yísnasöngvarinn JERKER ENGBLOM syngur lög eftir Bellman, Evert Taube og Birger Sjöberg á visnastund í Norræna húsinu sunnudaginn 30. nóv. kl. 17. Miðar við innganginn, kr. 1000. Verið velkomin NORRÆNA HÚSIO

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.