Þjóðviljinn - 29.11.1980, Side 9
Mikilvœg réttindamál hafa náðst fram
Helgin 29. — 30. nóvember 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
TRANSCRIBER eru örugglega bestu kaupin í dag Innlend framleiösla
þess vegna mjög góö kjör. Takmarkað framleiðsluupplag. 2. ára ábyrgð
Utsölustaðir: RAFRÁS hf. söluskrifstofa Fellsmula 24. sími 82980 STERIÓ,
Tryggvagótu gengt Skattstpfunni. sérverslun með hágæða hljómtæki
Jafnrétti í líf-
eyrismálum
Brýnasta
baráttumál
ÁSÍ
á næstunni
,,Þó ýmislegt hafi
náðst fram í félagsleg-
um efnum biða samtak-
anna mörg brýn bar-
áttumábog ber þar hæst
jafnrétti allra lands-
manna í lifeyrismál-
um”, sagði Ásmundur
Stefánsson í yfirlitsræðu
sinni á ASÍ-þingi er hann
drap á yfirlýsingu þá
sem rikisstjórnin gaf
samhliða nýgerðum
kjarasamningum um
ýmis félagsleg atriði.
Fæðingarorlof:
530 þúsund
á mánuði
„Rikisstjórnin hefur heitið þvi
að beita sér fyrir nýjum lögum
um fæðingarorlof, er taki gildi 1.
janúar næstkomandi og er frum-
varps að vænta á næstu dögum.
Samkvæmt yfirlýsingu rikis-
stjórnarinnar skulu allir for-
eldrar eiga rétt á 3ja mánaða
fæðingarorlofi. Skal móðirin taka
að minnsta kosti 2 mánuði, en
heimilt er, ef foreldrar eru um
það sammála, að faðirinn taki or-
lof þriðja mánuðinn.
Fæ ðin g aro rlo f s g reiðslur n a r
munu væntanlega verða 530.221 á
mánuði miðað við kaup i desem-
bernæstkomandi, og siðan breyt-
ast ársfjórðungslega i samræmi
við kaupbreytingar samkvæmt 8.
flokki kjarasamnings Verka-
mannasambands Islands, efsta
starfsaldursþrepi. Þetta á við um
foreldra 1 fullu starfi.
Sérákvæði um
fæðingarorlof
Sé foreldri utan vinnumark-
aðar, eða hafi það unnið 515 dag-
vinnustundir eða minna á sl. 12
mánuðum fyrir töku fæðingaror-
lofs, á þaðrétt á l/3hluta heildar-
greiðslna. Er þetta i fyrsta sinn
sem fólk utan vinnumarkaðar fær
rétt til fæðingarorlofs.
Fæðingarorlof skal framlengj-
ast um mánuð sé um fleirbura-
fæðingu að ræða eða alvarlegur
sjúkdómur barns krefst nánari
umönnunar foreldris, og á sama-
hátt getur fæðingarorlof lengst
fyrir fæðingu, ef móður er nauð-
synlegt af heilsufars- eða
öryggisástæðum að hverfa frá
vinnu meira en mánuði fyrir
áætlaðan fæðingardag. Ættleið-
andi foreldri, uppeldis eða fóstur
foreldri öðlast rétt til 2ja mánaða
fæðingarorlofs-greiðslna vegna
töku barns til fimm ára aldurs.
Fæðingarorlofsgreiðslurnar
skulu greiddar frá Trygginga-
stofnun rikisins og verður kostn-
aði vegna fæðingarorlofs þannig
létt af atvinnuleysistrygginga-
sjóði.
Tvö ný atriði
i tryggingum
Varðandi almannatryggingar
er gefið fyrirheit um tvö ný atriði.
I fyrsta sinn fær nú fólk utan
vinnumarkaðar rétt tii fæðingar
orlofs. eða 1/3 af heildargreiðslum
sem verða á desemberkaupi 530
þúsund á mánuði i þrjá mánuði.
1 fyrsta lagi skal hver sá sem
stundað hefur sjómennsku i
a.m.k. 25 ár eiga rétt til töku elli-
ltfeyris frá og með 60 ára aldri.
1 ööru lagi verður Trygginga-
stofnun heimilt að veita fullan ör-
orkustyrk þeim sem missir
a.m.k. helming starfsorku
sinnar, sé viðkomandi orðinn 62ja
ára.
Dagvistun:
10 ára áætlun
Hvað snertir dagvistarmálin er
það væntanlega mikilvægast að
rikisstjórnin gaf yfirlýsingu um
aðhún muni beita sér fyrir þvi að
fullnægt verði þörf fyrir dagvist-
unarþjónustu barna á næstu 10
árum. Verkalýðssamtökin verða
að hafa vökul augu á þróun þess-
ara mála svo áformin verði að
raunveruleika.
Úrlausn á málum
sjómanna
Viðeigandi úrlausn á loforðum
til sjómanna fékkst ekki á árinu
1979 til samræmis viö gefin fyrir-
heit. Þess vegna voru þau málefni
tekin inn i sameiginlega kröfu-
gerð verkalýðshreyfingarinnar á
sl. vetri. Stærst þessara mála eru
þau, er lúta að rétti sjómanna til
launa i veikinda- og slysaforföll-
um og lögskráningu. Lausn á
þessum málum fékkst svo sl. vor
og á sjómaður nú rétt til allt að 4
mánaða launa i veikindatilfell-
um og 7 mánaða i slysatilfellum,
ef um er að ræða 4 ára samfellda
ráðningu hjá sama útgeröar-
manni. Við samningsgerð nú kom
fram loforð frá rikisstjórninni um
að beita sér fyrir þvi að rikis-
sjóður greiði sjómannasamtök-
unum ti'u milljónir króna á árinu
1981 til könnunar á öryggisbúnaði
skipa til erindreksturs og eftir-
lits með lögskráningu. Krafan um
aðlögfestir verðifridagará öllum
fiskiskipum yfir jóladagana er
enn til umræðu.
Aðbúnaður og
hollustuhættir
As.l. vori voru samþykkt ný lög
um aöbúnað og hollustuhætti á
vinnustöðum, sem taka gildi um
þessi áramót. En endurskoðun
laganna hefur lengi verið i kröfu-
gerö samtakanna. Meö lögunum
eru lagðar forsendur að varan-
legum úrbótum i' vinnuverndar-
málum og verklýðssamtökin fá
nýja möguleika til þess að hafa
áhrif á vinnuumhverfi starfs-
fólks.
I tengslum við nýgerða kjarasamninga gaf rikisstjórnin fyrirheit um
tvö ný atriði varðandi almanna tryggingar: Sjómenn eiga rétt á töku
ellilifeyris frá og með 60 ára aldri, hafi þeir stundað sjómennsku I
25 ár, ogheimilt er að veita þeim fullan örorkustyrk sem missir a.m.k.
helming starfsorku sinnar, sé viðkomandi orðinn 62ja ára.
Ljósm. frá ASl-þingi — gei.
Unga fólkið og
húsnæðislögin
Þá er nauðsynlegt að minna á
að sl. vor voru sett ný lög um
Húsnæðismálastofnun rikisins, en
þau lög eru sett i framhaldi af
margitrekuðum yfirlýsingum
rikisstjórna allt frá árinu 1974.
Það hefur þannig tekið alllangan
tima að koma þessu máli i höfn.
Allir þekkja siaukna erfiðleika
ungs fólks við að koma þaki yfir
höfuö sér, og bindum við miklar
vonir við það að þessi nýju lög
bæti úr þessu brýna hagsmuna-
máli.
Atvinnuleysis-
tryggingar
Fulltrúar Alþýðusambands Is-
lands áttu ýtarlegar viðræöur viö
fulltrúa rikisvaldsins um at-
vinnuleysistryggingar i sam-
bandi við nýafstaðna kjarasamn-
inga. Þeim viðræðum er ekki
lokið, en af hálfu fulltrúa rikis-
stjórnarinnar liggja þó fyrir lof-
orð um gagngerar breytingar. Vil
ég nefna að bótatimabilið verður
lengt i 180 daga úr 130, fellt verður
niður skerðingarákvæði vegna
tekna maka, sem tekið hefur at-
vinnuleysistryggingaréttinn af
stórum hluta giftra kvenna,
bætur verða hækkaðar verulega
og breytingar gerðar á skrán-
ingu, þannig að aðalreglan verður
vikuleg skráning i stað dag-
legrar.”
Hér lýkur tilvitnun i umfjöllun
Asmundar Stefánsonar um fé-
lagslegan þátt nýgerðra kjara-
samninga. —ekh
„TRANSCRIBER er einstakur plötuspilari" úr umsögn danska High
Fidelity, maí 1979. Hefur Microtracer í stað tónarms. Microtracer er
festur við lokið og er álíka stór og tónskelin í venjulegum tónarmi.
Microtracererauðveldari í notkun, t. d. þarftu aldrei að snerta hann.
Lengdin er 3.8 cm. frá legu til nálar. Hann hefur minni
núningstregðu. Hámarks legufrávik (tracking error) er 0.1° og hann
getur ekki rispað plöturnar, ekki runnið til, ekki hoppað, ekki
skemmt nálar, ekki valið rangt spor.
Hreyfimassi (moving mass) venjulegra tónarmaerminnst 150gr.
(t.d. B&O) en algengt er að hann sé 250gr. og þar fyrir ofan.
Microtracerhefuraðeins 13.4 gr. hreyfimassa. Mikilvægter: Tregða
hans er 1 /70 af tregðu venjulegra arma og það stór minnkar
plötuslit. Listræn bygging úr gleri og áli (glerið er hert triplex
öryggisgler). Plötudiskurinn færist fyrir tilstilli fótósellu.
Transscriber hefur allsstaðar vakið óskipta athygli frá því er
hönnuður hans Dr. Gammon kynnti hann 1978.