Þjóðviljinn - 13.12.1980, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 13.12.1980, Blaðsíða 24
■pi* merkió sem ávallt tryggir vandaóri og betri bækur Líney Jóhannesdóttir Aumingja Jens Saga um misheppnaðan listamann? Saga þriggja kynslóða? Vægðarlaus samtíðarlýsing? Kvenna- saga? Ekkert af þessu og allt I senn - og miklu meira. Þó er ytri efnisumgerð aðeins lif sex persóna í sömu götunni einn vetrarpart. Þetta er göldrótt og margþætt skáldsaga, rituð af beyglausri til- finningu og mikilli ratvísi. VERÐ KR. 13.710. FÉLAGSVERÐ KR. 11.650. Ólafur Haukur Símonarson Galeiðan Tímabær og vel gerð nútima skáldsaga um verk- smiðjustúlkur á vinnustað og I einkalífi. Lesandi slæst í hóp stúlkna sem vinna í dósaverksmiðju og lifir með þeim súrt og sætt fáeina daga. ( bókinni birtist glöggt það galeiðumynstur sem líf þeirra er hneppt i, en á þessum dögum gerast einnig atburð- ir sem gætu breytt lifi þeirra, a.m.k. reynist sam- staða þeirra vonum meiri þegar í odda skerst... VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Guðlaugur Arason Pelastikk Nýstárleg og skemmtileg skáldsaga sem gerist á sjónum eitt sildarsumar á 6. áratugnum. Lifandi lýsing á heimi sjómannsins, séðum með augum átta ára drengs sem fær að fljóta með einn túr og síðan annan og enn annan. Vel skrifuð bók sem hefur fengið mjög lofsamlega dóma gagnrýnenda. VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Dee Brown/Magnús Rafnsson Heygðu mitt hjarta við Undað Hné Þessi bók, „Bury My Heart at Wounded Knee“, kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1970 og sló öll fyrri sölumet. Þarna var gerbylt viðteknum hugmyndum um margrómað timabil í bandarískri sögu, og erfitt var að véfengja þær sagnfræðirannsóknir sem að baki lágu. Auk þess þótti bókin afburða listaverk. Bókin er prýdd fjölda Ijósmynda af helstu indíána- foringjum sem koma við sögu og henni fylgja ræki- leg kort og nafnaskrá. VERÐ KR. 19.760. FÉLAGSVERÐ KR. 16.795. Ernest Hemingway/Stefán Bjarman Hverjum klukkan glymur Frægasta skáldsaga Hemingways, sem gerist á Spáni á tfmum borgarastyrjaldarinnar. Andstæður lífs og dauða, ástar og haturs í samþjöppun þriggja daga að baki viglínu fasistaherjanna. Höfundi hefur þótt takast undra vel að sýna í hnotskurn spænskt þjóðlíf og hugsunarhátt á þessum örlaga- riku timum og opna þaðan víðari útsýn. VERÐ KR. 19.760. FELAGSVERÐ KR. 16.795. Marek Hlasko/Þorgeir Þorgeirsson Áttundi dagur vikunnar „Það er gengið hreint til verks í þessari stuttu skáldsögu. Hvergi slegið úr og i ... Hér er hvergi athvarf að finna, hvorki fyrir hugsjónir né vonir né heldur ævintýrið mikla, ástina, sem þau Agnéska og Pietrek setja á allt sitt traust. Umhverf i og hugar- ástand persónanna verða eitt i þessu magnaða riti kornungs pólsks höfundar sem heldur undarlega vél áhrifamætti sinum i blaséruðum heimi“. Á.B. Þjv. 23/11. VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400. William Heinesen/Þorgeir Þorgeirsson í>að á að dansa Spánýtt safn eftir hinn aldna færeyska snilling, með nýjum sögum frá Þórshöfn. Bókin kemur út samtímis á dönsku og íslensku, fjórða bókin i sagnasafni Heinesens i þýðingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar. Hér segir frá ástarkvölum Fabíans unga, frá fordæðunni og prestaflennunni Teodóru, frátrúar- fári og ofstopa i sögunni Aðventa og titllsagan segir frá sögulegu brúðkaupi á hinni afskekktu Stapaey, þar sem skuggalegir atburðir urðu, skip- brot, strandrán, meira að segja brúðarrán! Óvið- jafnanleg bók sem gefur fyrri verkum Heinesens ekkert eftir. VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Einar Olgeirsson/Jón Guðnason ísland í skugga heimsvaldastefnunnar Þessi bók rekur örlagaríkustu atburði fslands- sögunnar á þessari öld og gefur innsýn i það sem gerðist á bak við tjöldin. Dregnar eru upp persónu- legar svipmyndir af ýmsum stjórnmálaleiðtogum sem komu við sögu og mun þar margt koma á óvart. Frásagnamaður er einn mlkilhæfasti og harðskeyttasti stjórnmálamaður þessa tímabils og einn fremsti sagnfræðingur okkar færði í letur. VERÐ KR. 19.885. FÉLAGSVERÐ KR. 16.900. Guðbergur Bergsson Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans Bráðskemmtileg skáldsaga í stíl prakkarasagna um athafnamanninn Ara Fróðason og ferð hans gegnum þjóðfélagið, sem hefst á leikvelli og lýkur í eftirminnilegri laxveiðiferð. Með þessari bók sýnir Guðbergur Bergsson enn á sér nýja hlið og spurn- ing er hvort skáldgáfa hans nýtur sin ekki einmitt best í þeim ærsla- og fjarstæðustfl sem hér er að finna. VERÐ KR. 14.820. FÉLAGSVERÐ KR. 12.600. Jakobína Sigurðardóttir Snaran önnur útgáfa þessarar klassisku framtíðar-hroll- vekju. „Sú mynd sem höfundur dregur upp af „venjulegum fslenskum alþýðumannl" kemur ekki á óvænt, en um leið er hún það sterk að hún hlýtur I senn að vekja eftfrtekt og ugg. Og þungi þeirrar viðvörunar sem Jakobína ber fram i framtíðarlýs- ingu sinni vex af þvi að hún spáir atburðum sem eru svo ískyggilega nátengdir því sem þegar hefur gerst". Þjv. 17/12 1968. VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400. Mál || og menning

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.