Þjóðviljinn - 17.12.1980, Page 2
•’ i V / rri‘; i -r »; i a ; ' • » *
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 17. desember 1980
Kærleiksheimilið
Viltu skrifa mér bréf/ mamma, svo ég fái ein-
hverntíma póst líka?
Bóndinn og asninn
Hann tekur lífinu með
heimspekilegri ró, þessi
búlgarski bóndi sem fyllir asna-
kerruna sina af grænmeti og
ávöxtum til að selja ferða-
mönnum sem koma að skoöa
sérkennilega og stórbrotna
fegurð Kaliakra-höfðans á
Svartahafsströnd Búlgariu. Og
asninn biður þolinmóður eftir
heimferðinni. Ekkert liggur á.
(Ljósm. ARJ).
Þeir segja að við sitjum uppi
með álsamninginn til 2014. Ætli
við losnum ekki bara við hann á
næsta ári?
Tekið eftir
Hollt es
heima hvat
Prófessor i Tókió hefur árum.
saman stundaö merkilega rúllu-
rannsókn. Hann safnar klósett-
pappir úr öllum heimi og hefur
tekist að ná saman 300 mismun-
andi tegundum frá yfir 60 lönd-
um. Með samanburðar-
rannsóknum hefur prófessorinn
komist að þeirri niðurstöðu, að
japanski pappirinn sé allra
bestur.
Molar
Gömul
yfirlýsing
Yfirlýsing Bandarikja-
stjórnar við inngöngu lslands i
NATÓ — og skilýrði tslands fyr-
ir inngöngunni:
1. Að ef til ófriöar kæmi mundu
Bandalagsþjóðimar óska svip-
aðrar aðstöðu á Islandi og var i
siðasta strfði, og þaö myndi al-
gerlega vera á valdi Islands
sjálfs, hvenær sú aðstaða yrði
látin I té.
2. Áö allir samningsaöilar
hefðu fullan skilning á sérstöðu
íslands.
3. Aö viðurkennt væri að Island
hefði engan her og ætlaði ekki
að stofna her.
4. Að ekki kæmi til mála, að er-
lendur her eða herstöðvar yrðu
á Islandi á friðartlmum.
viðtalid
Rætt við Sigurð á
á Grænavatni:
Burt
með
útsvör
af til-
búnum
tekjum
Við hefur þótt brenna, að
samkvæmt hinum nýju skatta-
lögum hafi gjöld verið lögð á
„tekjur” hjá bændum, sem alls
ekki eru fyrir hendi. Þykir
bændum að vonum illt undir
sliku að búa. Okkur barst til
eyrna, að i sveitarstjórn Skútu-
staðahrepps i Mývatnssveit
hefði verið flutt tillaga um að
fella niður útsvör sem á slikum
reikningskúnstum væru byggð
og hringdum i Sigurð Þórisson
bónda á Grænavatni til að fá af
þessu nánari fregnir.
— Jú, það er rétt, sagði Sig-
urður, — tillögu um þetta flutti
ég á fundi sveitarstjórnarinnar
og er hún svohljóðandi:
„Sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps ákveöur að fella niður
útsvör búandfólks af þeim
tilbúnu tekjum, sem skattayfir-
völd áætluðu þvi á sl. sumri,
samkvæmt 59. gr. skatta-
laganna, vegna harðærisins,
sem gekk hér yfir 1979. Þó skal
það aðeins gert að þvi marki,
sem persónuafsláttur dekkar
ekki útsvarið.
Jafnframt vitir sveitarstjórn-
in alþingismenn og skattayfir-
völd fyrir að byggja einn aðal-
tekjustofn sveitarfélaganna á
fölskum stofni, þar sem engin
greiðslugeta er til að greiða
gjöld af, en undanþiggja i
staðinn mikiðaf raunverulegum
tekjum hjá þeim, sem betur
mega sin.”
— Þetta er nú skýrt og skor-
inort, Sigurður, en viltu bæta
einhverju við?
— Gjarnan. I greinargerð,
sem fylgir tillögunni, segir m.a.
að á sl. sumri, þegar sýnt var
hvernig skattayfirvöld ætluðu
að útfæra skattalögin, varö
mönnum almennt ljóst, að lögin
voru algerlega óforsvaranleg,
vegna þess hve þau mismunuðu
þegnunum mikið. Hinsvegar
var álitið, að ákvörðun skatta-
yfirvalda yrði ekki breytt nema
með lagabreytingu eða dómi.
En þar sem nú hefur komið á
daginn, að sumum sveitarfélög-
um virðist stætt á þvi að fella
niður svokölluð barnaútsvör, þá
hlýtur sveitarstjórnum einnig
að vera heimilt að fella niður
útsvar af stofni, sem enga stoð á
i veruleikanum og einungis er
búinn til af skattayfirvöldum.
— Hvernig afgreiddi hrepps-
nefndin þessa tillögu þina?
— Tillögunni var visað til
framtalsnefndar, til athugunar,
þvi til þess að geta framkvæmt
þessa hugmynd þurfum við að
fá aðgang að skattaframtölum.
Eftir þvi höfum við leitað við
skattstjóra. Endanlegt, skrif-
legt svar höfum við ekki fengið
ennþá, en ég býst við neitun. Og
vera má, að lögum samkvæmt
sé hægt að neita. En hitt sýnist
alveg ljóst, að sé sveitarfélög-
um stætt á þeim loddaraleik,
sem leikinn hefur verið með
barnaútsvörin, þá ætti ekki
siður að vera heimilt að íella
niður útsvör sem svona eru til
komin. Og ástæðan fyrir þvi, að
ég flutti þessa tillögu, var m.a.
sú, aö koma þessum málum
ofurlitið af stað.
Við kærðum álagninguna i
sumar og það stendur skýrt i
lögunum að skattstjórar eigi að
hafa afgreitt kærur innan
tveggja mánaða frá þvi þeim
berast þær. Tillagan kom fram
28. nóv.. Þá voru liðnir um þrir
mánuðir frá þvi að kærufrestur
var útrunninn hjá okkur og
ekkert svar hafði borist. Og sú
nefnd, sem Ragnar Arnalds,
fjármálaráðherra, skipaði i
sumar til að kanna þetta, hafði
þá ekki komið saman nema einu
sinni. Við væntum okkur mikils
af þeirri nefnd, en hún virðist
vera heldur svifasein.
— Hvað um eldra fólkið?
— Margt af eldra fólki missir
tekjutryggingu sina vegna
þessara tilbúnu tekna. Og
barnabætur barnlausra hjóna,
sem aðeins hafa tilbúnar
„tekjur”, eru teknar upp i þessi
gjöld.
Það er ekki fyrir menn með
einhverja samvisku að inn-
heimta gjöld, eftir þessum lög-
um, þvi þau hygla fyrst og
fremst þeim, sem betur mega
sin.
— mhg
Þekkirdu þau?
Sjá nýrri mvnd i Lesendadálki á
siðu 15«
1 |iiiihiiiiihhi
Bírjfir Enni. valevni i SuSuroy, skrivnr: Heldur Vígdis enn Khomeini
Hver er þaö sem setur dæmin
svona skemmtilega upp: heldur
Vigdisi en Khomeini?
Svar: það er frambjóðandi
Þjóðveldisflokksins færeyska i
Suðurey, sem skrifaði grein
undir þessari fyrirsögn i blaðið
14. september nú fyrir
skemmstu þegar kosningastrið
var háð þar i eyjum.
Hann á við það, að heldur vilji
hann leysa orkumál Færeyinga
með þvi að leggja kapal til
íslands og sækja eftir honum
rafmagn en vera háður
sihækkandi oliuverði.
Eða eins og segir i blaðinu:
„Hugsa vit so um teir
hækkandi oljuprisir og tær
tömandi oljukeldurnar, og so
sammeta tær við tær ævigu
okrukeldurnar, so skuldi ongin
ivi verið um, hvör rætta loysnin
var.
Gott samstarv við grannar
okkara fyri norðan vildi hetta
eisini fört til, og sjálvandi hevði
mær dámt munandi betri at
samstarvast við Vfgdis enn
Khomeini.”
Umferðaruppeldi
Refsingar fyrir brot á
umferðarlögum geta verið með
ýmsu móti og mismunandi
áhrifarikar. Mjög vel hefur
gefist árum saman i Prag að
kveðja gangandi vegfarendur,
sem fara rangt yfir götu, i um-
ferðarskóla lögreglunnar —
klukkan átta á sunnudags-
morgnum og stendur kennslan
til hádegis. Og nú lesum við
dæmi frá New York:
Verslunarstjóri braut
umferðarreglurnar og var
dæmdur i nauðungarvinnu.
Hann varð að skrifa þúsund
sinnum setninguna „Ég á að
sýna tillitssemi i umferðinni”.
<
Q
O
Almáttugur!
Hverþolir svona
langdregið
tanna-stripptis?