Þjóðviljinn - 17.12.1980, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 17.12.1980, Blaðsíða 12
'V * rcY •• r jv..v 'n t »* * ’1 12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. desember I*M S ZEROWATT ÞVOTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR ítalskar úrvalsvélar, sem unnið hafa sér stóran markaðshlut hér á landi sökum góðrar endingar, einstakra þvottaeiginleika og hagstæðs verðs. Tekur 5 kg. af þvotti. Sparnaðarkerfi (3 kg.) 9 þvottakerfi. 4 skolkerfi. 1 þeytikerfi (500 sn.). Hámarks orkuþörf 2300 w. Hæð 85 cm. Breidd 60 cm. Dýpt 48,5 cm. Tekur 5 kg. af þvotti. 10 mismunandi kerfi. Belgur úr ryðfríu stáli. Hámarks orkuþörf 2400 w. . Hæð 85 cm. Breidd 60 cm. Dýpt 52 cm. Véladeild Sambandsins Ármúla3 Reykjavik Simi 38900 Einar Olgeirsson áritar bók sina „ísland i skugga heimsvaldastefnunnar” i bókabúð Máls og menningar í dag milli kl. 4 og 6 Mál og menning SAMSÆRIÐ Nýjasta skáldsagan eftir Desmond Bagley er komin í bókaverslanir. Suðri Nýjar baekur INIýjar bækur Nýjar bækur Ein af myndum Halldórs Péturs- sonar. Vinir dýranna komin út aftur Vinir dýranna heitir barnabók eftir Guðlaug Guðmundsson, sem komin er út I annarri útgáfu, en hún kom fyrst út árið 1956 og er uppseld. Þessar niu sögur eru af sam- skiptum manna ogdýra, barna og dýra. Ég hefi viljað koma lesendum minum i skilning um það, segir höfundur, að dýrin hafi bæði til- finningu og sál —- og um leið og ég hefi reynt að búa til spennandi frásagnir. Myndir i bókina gerði Halldór Pétursson. Siguróur PÉsson Ljóóvegamenn Geta Ijóð vegið menn? Hjá MALI OG MENNINGU er komin út ný ljóðabók eftir Sigurð Páisson og nefnist hún LJÓÐ VEGA MENN. betta er önnur ljóðabók Sig- urðar, en fyrsta bók hans Ljóð vega saltkom út fyrir fimm ár- um, og vakti þá mikla eftirtekt. Ljóð vega menn skiptist i nokkra hluta: A hringvegi ljóðs- ins I-XII, Enn skin sólin þrjósk, Undir suðvesturhimni, Ljóð úr Hlaupvidd Sex, Nocturnes handa sólkerfinu, Ungæði, Það eitt til sex og Gamla Hofsgatan eða Sú gamla frá Hofi (rue Vielle-du- Temple) I,—VII. Alls eru um fimmtiu ljóð i bók- inni, en hún er 100 bls. að stærð. Barnabók Sigrúnar Eldjárn (Jt er komin barnabókin Allt I plati!, saga og myndir eftir Sigrúnu Eldjárn. Þetta er fyrsta bók Sigrúnar, en hún er kunnur myndlistarmaður, hefur oft sýnt myndir sinar og einnig skreytt allmargar bækur, meðal annars barnabækur. Allt i plati! er ævintýri sem segirfrá tveim börnum sem heita Eyvindur og Halla. Þau fara i | hugsanaleik, leggja siðan leið sina niöur um gat á götunni og lenda i ýmsum ævintýrum neðan- jarðar, hitta einkennilegar skepnursem kallast krókófilarog I fara i leiðangur með einum þeirra vitt um borgina og upp i Hall- grimskirkjuturn. Allt f platiier 48 siður, á hverri siöu teikningar. Saga skipa og siglinga Fjölvaútgáfan er nú að senda frá sér nýja bók, Skipabók Fjölva, eitt stærsta og efnis- ; mesta verk, sem Fjölvi hefur gefið út. Hún inniheldur skipa- og siglingasögu frá upphafi til þessa dags. Meginefni bókarinnar er al- þjóða-siglingasagan, unnin f sam- starfi við Mondadori-útgáfuna I Veróna, en þar við bætist ágrip af islenskri siglingasögu, sem rekur i samþjöppuðu formi alla þætti hennar frá irskum skinnbátum, knörrum og byrðingum land- námsmanna, til skuttogara, loðnuveiðiskipa og gámflutninga- skipa nútimans. Skipabók Fjölva er i sama flokki og Flugvélabók Fjölva, sem kom út fyrir nokkrum árum. Bókin er 336 bls. istóru broti og til skýringar frásögninni eru um 1150 myndir af skipum af öllum stærðum og gerðum og frá öllum timum, allt frá eintrjáningum og upp i risavaxin oliuskip og kjarn- orkuskip nútimans. Frumhöf- undar alþjóða-siglingasögunnar eru ítalirnir Enzo Angelucci og Attilio Cucari, en Þorsteinn Thorarensen þýddi bókina úr itölsku en endursamdi og frum- samdi stóra hluta verksins. Is- lenska siglingasagan með fjölda teikninga af islenskum skipum er svo samin i samstarfi af þeim bræðrum Þorsteini og Oddi Thorarensen. 1 skipabók Fjölva er rakin jöfnum höndum saga kaupsigl- inga og hernaðarsagan, sem aftur endurspeglast i islensku siglinga- sögunni, þar sem rakin er bæði þróun fiskiskipa, flutninga- og farþegaskipa, en einnig rakin ýtarlega þróun varðskipa og baráttan i þorskastriðunum. Hér er bæði lýst útlendum sjóhetjum eins og Nelson og Graf von Spee og islenskum eins og Eiriki Kristóferssyni og Guðmundf) Kjærnesteð. Gálgafrestur, ný Ijóðabók Gálgafrestur heitir ný Ijóðabók eftir Aðalstein Asberg Sigurðs- son. Eins og heitiðber með sér, er bókin bölsýn, enda túikar hún hina síðustu og verstu tima, þar sem menn mæta lokuöum hliðum. I ávarpsorðum spyr skáldið: — Er lif okkar þrotlaust þrælafár? Og I umsögn á bókarspjaldi segir: ,,Við lifum i ótta við tortimingu. Er maðurinn I óðaönn að teggja snöruna um eigin háls? Hvar endar þessi leikur?” Þetta er þriðja ljóðabók Aðalsteins Ásbergs. Hann byrjaði kornungur að yrkja og náði strax samstæðum ljóðrænum tón i fyrstu ljóðabókum sinum, Ósánar lendur og Förunótt, sem voru þrungnar af spurn ungs manns um tilveruna. Á bókarkápu segir, að still Aðalstelnn Asberg Sigurðsson. Aðalsteins Ásbergs verði fágaðri og undiraldan máttugri. Bókin er myndskreytf af ungri listakonu, önnu Gunnlaugsdóttur. Gálga- frestur er 80 bls.. Útgefandi er Fjölva-útgáfan. Húsið á sléttunni Bókaútgáfan Setberghefur sent frá sér barna- og unglingabókina „Húsiö á sléttunni”, en höfundur er Laura Ingalls Wilder. Samnefndar kvikmyndir sem sýndar eru I islenska sjónvarpinu eru byggðar á þessum bókum. Þetta er önnur bókin i bóka- flokknum „Lárubækurnar”, en I fyrrahaust gaf Setberg út fyrstu bókina „Húsið I Stóru-Skógum”, sem strax hlaut frábærar viðtök- ur hér á landi. „Lárubækurnar” hafa veriö þýddar á fjölmörg tungumál og verið endurútgefnar hvað eftir annað. Bókin er 240 blaðsiður i þýðingu Herborgar Friðjónsdóttur, en ljóðin i bókinni þýddi Böðvar Guðmundsson. Þá ber þess að LAURA INGALLS WILDER HÚSIÐ Á SLÉTTUNNI geta aö bókin er prýdd 90 teikn- ingum eftir ameriska listamann- inn Garth Williams. Svefnbekkir og svefnstólar til sölu. Hagkvæmt verð. Sendum i póst- kröfu. Upplýsingar á öldugötu 33, simi 19407. -----------------------------------i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.