Þjóðviljinn - 17.12.1980, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 17. desember 1980
Uppgefið hráefnisverð til
ísal 30 miljörðum of hátt
Að undaníörnu hefur iðnaðarráðuneyt-
ið unnið að rannsókn á verðlagningu
súráls til íslenska álíelagsins, en það er
móðurfyrirtæki ísal, — Alusuisse —, sem
sér verksmiðjunni i Straumsvik fyrir
súráli.
Niðurstaða rannsóknarinnar er sú, að
það innflutningsverð á súráli, sem upp
heíur verið gefið hér er langtum hærra
en eðlilegt má telja miðað við útflutn-
ingsverð i Ástraliu, en þaðan er súrálið
flutt.
Á timabilinu frá ársbyrjun 1974 til júni
1980 nemur þessi „hækkun i hafi” sam-
tals 47,5 miljónum Bandarikjadollara,
og er þá miðað við fob.-verð i báðum
tilvikum, þannig að flutningskostnaður á
engan hlut að þessari hækkun.
Sé gert ráð fyrir að slik hækkun á sið-
asta súrálsfarmi til landsins, sem hingað
kom eítir mitt þetta ár, hafi verið álika
og á tveimur förmum fyrr á þessu ári, þá
nemur þessi „hækkun i hafi” hvorki
meira né minna en 30 miljörðum króna á
sjö árum.
Til samanburðar er vert að hafa i
huga, að á sama tima hafa allar greiðsl-
ur ísal fyrir orkukaup hér numið mun
lægri upphæð en þessum mismun svarar,
eða 31,5 miljónum dollara frá ársbyrjun
1974 til júni 1980, sem svarar um 20
miljörðum króna á sjö árum.
Með þvi að falsa hráefniskostnaðinn
um 30 miljarða króna hefur Alusuisse
/ /
A sama tíma hefur Isal borgað alls
um 20 mlljarða kr. fyrir orkukaup
getað sýnt tap á rekstri dótturfyrirtækis
sins hér og þannig sloppið við skatt-
greiðslur.
Það er breska endurskoðunarfyrirtæk-
ið Coppers & Lybrand i London sem hef-
ur veitt iðnaðarráðuneytinu lið við þessa
rannsókn og staðfest niðurstöður hennar.
í tilefni þessara upplýsinga samþykkti
rikisstjórnin á fundi sinum þann 9. þessa
mánaðar, að óska eftir þvi við Alusuisse
að hið fyrsta yrðu teknar upp viðræður
milli Alusuisse og hennar varðandi þetta
málog jafnframt til endurskoðunar á öll-
um núverandi samningum milli Alusu-
isse og islenskra aðila.
Á blaðamannafundi, sem Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra efndi til
klukkan þr jú i gær var f jölmiðlum afhent
fréttatilkynning um málið og fer hún hér
á eftir:
„Hækkun i hafi” 54,1%
i. Iðnaðarráðuneytið hefur frá þvi i júni sl. unnið að
athugun á verðlagningu á súráli tii íslenska álfélagsins
h.f. Niðurstaða þessara athugana er sú að innflutnings-
verð á súráli til íslands er miklu hærra en eðlilegt má
telja miðaðvið útflutningsverð frá Astraliu. Þegar borin
eru saman sambærileg verð, fob-verö i báðum tilvikum,
kemur i Ijós að á tlmabilinu janúar 1974 til júni 1980 hef-
ur súrálsverð hækkað i hafi sem nemur að meöaitali um
54.1%, cða samtais um 47,5 milljónum bandarikja-
dollara á verðlagi hvers árs. Til samanburðar má geta
þess, að heildargreiðslur ÍSAL fyrir raforku voru 31,5
milljónir bandarikjadollara á sama timabili.