Þjóðviljinn - 17.12.1980, Side 11
Jólatréssala við Fáksheimilið
Kiwanisklúbburinn Elliði selur jólatré við Fáksheimilið einsog
undanfarin ár.
Jólatréssalan er opin kl 1—10 um helgar og kl. 5—10 virka
Haoa llm helaar koma iólasveinar i heimsókn og lúðrasveit
leikur. Ágóðanum af sölunni verður varið til kaupa á sjón-
varpstæki og húsgögnum fyrir sambýliö að Auðarstræti 15, sem
Styrktarfélag vangefinna tók i notkun nýlega.
r
Arni Elvar sýnir i Hárskeranum
Arni Elvar sýnir um þessar mundir nokkur myndverk i húsa-
kynnum Hárskerans að Skúlagötu 54. barna er um að ræða
grafik og mónóprent, sem er fágæt og gömul aðferð og tryggir
kaupandanum að aðeins eitt eintak er til af hverri mynd. Efni
nokkurra myndanna er sótt i tónlistarlifið. Myndirnar eru allar
ti! sölu. Eigandi Hárskerans er Pétur Melsteð.
bjarnar, Stuðlaberg, máiað
1949, eftir Svavar Guðnason og
Mynd, máluð 1976, eftir
Gunnar Orn Gunnarsson.
Litprentanirnar eru limdar
á tvöfaldan karton, 16x22 cm
og fylgir umslag. Kortin eru
öll prentuð i Grafik hf., mjög
vönduö að allri gerð og raunar
tilvalin jólakort.
Aður hefur Listasafn
Islands gefið út 44 litprentuð
kort i sömu stærð af verkum
margra merkustu listamanna
þjóðarinnar, og eru þau öll
fáanleg i safninu. Þessi korta-
útgáfa er þáttur i kynningu
safnsins á islenskri myndlist.
Gunna Hanna ólafsdóttir og
Björgvin Guðmundsson i hlut-
verkum sinum.
Dario Fo
í Stykkishólmi
Leikfélagið Grimnir i
Stykkishólmi æfir nú af kappi
gamanleikinn Markólf eftir
Dario Fó, sem Signý Páls-
dóttir þýddi fyrir félagið.
Leikstjóri þessa sprellfjöruga
leiks er Jakob S. Jónsson. Ætl-
unin er að frumsýna verkið i
félagsheimili Stykkishólms
laugardaginn 20. desember og
hafa siðan fleiri sýningar i
Hólminum og nágranna-
byggðunum yfir jólin og ára-
mótin.
Leikarar er sjö: Elin Jónas-
dóttir, Svanhildur Jónsdóttir,
Guðrún Hanna ólafsdóttir,
Jóhannes B jörgvinsson,
Vignir Sveinsson, Björgvin
Guðmundsson og Guðmundur
Agústsson.
4 ný kort frá
Listasafninu
Listasafn Islands hefur
undanfarin 18 ár látið gera
cftirprentanir af vcrkum is-
lenskra myndlistarmanna. Nú
cru nýkomin út 4 litprentuð
kort af eftirtöldum verkum:
Skógarhöllin, máluð 1918,
eftir Jóhannes S. Kjarval,
Blanda og Langadalsfjall,
málað 1928, eftir Snorra Arin-
Félag einstæðra foreldra
hefur að venju gefið út jóla-
kort til styrktar starfsemi
sinni með myndum eftir börn,
en einnig eftir tvo fulloröna
myndlistarmenn að þessu
sinni, Baltazar og Rósu
Ingólfsdóttur.
Mynd eftir Gunnar örn Gunn-
arsson á einu kortanna.
Jólakort
FEF
Miðvikudagur 17. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐÁ XI
Indriöi Aðalsteinsson, Skjaldfönn skrifar:
Vænstu dilkarnir
gengu í Jökulfjörðum
Það fer nú að styttast í þessu
blessaða ári 1980 og ekki seinna
vænna að senda snöggsoðið
fréttabréf héðan frá Djúpi.
Veturinn var snjóléttur og góð-
viðrasamur og vorið hlýtt og gott,
en nokkuð þurrt og tafði það
sprettu nokkuð, en hún varð þó
yfirleitt góð að lokum nema á fá-
einum bæjum þar sem kal var til
drátta. Heyskapartið var óvenju
hagstæð, nema seinasta vika júli;
heyfengur yfir meðallaga og gæði
i besta lagi.
Haustið gott til 4. október, en þá
gerði illviðrakast sem stóð i 3 vik-
ur með jarðbönnum og innistöðu
fjár.
Þeir bændur, sem þá áttu eftir
að slátra verulegum hluta sins
fjár, urðu fyrir tilfinnanlegu
afurðatjóni, þvi dilkar léttust
verulega á krafsjörð eða húsvist
og munaði viða 1—2 kg. á meðal-
tali fyrri og seinni sláturfjárhópa
frá sama heimili.
25. október hlýnaði og tók upp
allan snjó og hefur verið snjólaust
til þessa.
Kaupfélagsstjóraskipti.
f vor urðu kaupfélagsstjóra-
skipti hjá Kaupfélagi Isfirðinga.
Sigurður Jónsson hætti eftir 2ja
ára starf og við tók Hafþór Helga-
son sem áður var kaupfélags-
stjóri hjá Kaupfélagi Saurbæ-
inga, Skriðulandi.
Það mun ekki heiglum hent að
stjórna K.t. og rétta það við, en
rekstur félagsins hefur gengið
mjög illa mörg undanfarin ár og á
köflum verið tvisýnt um tilveru
þess, en félagssvæði K.l. nær yfir
N-ls., Bolungarvik, og Súganda-
fjörð, auk Isafjarðar. Hinn nýi
kaupfélagsstjóri hefur að flestra
dómi farið mjög vel af stað, gert
róttækar breytingar á rekstri og
mannahaldi og verið óhræddur
við að fitja upp á nýjungum og
gengið sjálfur i öll verk, ef þurft
hefur. Hann virðist gera sér grein
fyrir þvl, sem margir fyrirrenn-
arar hans hafa ekki áttað sig á, að
bændur á félagssvæðinu eru
fjöregg K.I., og samkvæmt þvi
lagt sig fram um að styrkja tengsl
þeirra við félagið og efla sam-
vinnu bænda innbyrðis.
Má þar nefna að flutningar
sláturfjár i sláturhús K.I., á tsa-
firði, sem i vaxandi mæli hafa
fariðfram landveg allt að 230 km.
með stórum vörubilum einkaað-
ila frá Isafirði, voru orðnir svo.
dýrir að engu tali tók, eða á sið-
asta hausti, 1979, 900 kr. á lamb.
Fyrir forgöngu Hafþórs tóku Inn-
djúpsbændur sjálfir að sér að aka
sláturfé i Djúpbátinn annaðhvort
á eigin farartækjum eða mönnuðu
til skiptis hóflega stóran vörubil
sem Hafþór útvegaði, og þannig
hjálpaði hver öðrum, með þeim
árangri að sparnaður i flutningi
sláturfjár er nú talinn a.m.k. 10
Indriði Aðalsteinsson
Fréttamolar
frá Djúpi
miljónir, að ekki sé nú talað um
þann ávinning sem ekki verður
metinn til fjár, aukin samkennd
bænda við félag sitt og meiri
skilningur á gildi samstarfs og
samhjálpar.
Vænir dilkar.
A siðasta ári var hæsta meðal-
vigt yfir landið, hinna stærri slát-
urhúsa, hjá K.I.. Allar likur eru á
að K.I. haldi þessu sæti i ár, þó
enn hafi ég ekki séð skrá yfir
vænleika hjá hinum ýmsu slátur-
húsum.
1 haust var slátrað hjá K.I.
10.350 dilkum og meðalvigt er
16.67 kg eða röskum 2 kg hærri en
landsmeðaltalið i ár.
Hæsta meðalvigt þeirra, sem
lögðu inn 100 dilka eða meira, var
hjá Páli Jóhannssyni Neðra-Bæ,
Snæfjallahreppi, eða 18.35 kg., en
verulegur hluti af fé hans gengur
Hér á islandi hefur verið stofn-
að félagið SAMHYGÐ, sem hefur
að meginmarkmiði að stuðla að
jafnvægi og jákvæðri þróun
mannsins og er félagsskapur
þessi nú þegar starfandi I einum
40 þjóðlöndum víðs vcgar um ver-
öldina.
SAMHYGÐ er hópur fólks, sem
fæst við það vandamál hins dag-
lega l.ifs, segir i frétt frá telaginu.
Það er ekki stjórnmálaflokkur,
trúflokkur, ný sálfræði né heim-
spekistefna.
Samhygð segir, að neysluþjóð-
félagið hafi gert einstaklinginn aö
einu af meltingarfærum sinum
með að mata hann viðstöðulaust
andlega og likamlega, einangrun
hans vaxi, hugmyndafræði og til-
vist sérfræðinga leysi ekki hvers-
á gósenlöndum Jökulfjarða.
Aðrir stærri innleggjendur sem
náöu 18 kg meðaitali voru Birkir
Friöbertsson Botni i Súgandafirði
og viö hér á Skjaldfönruen lagðir
voru inn frá heimilinu 430 dilkar.
Þess er einnig vert að geta að
fjárflesti bóndi sýslunnar, Jón
Guðjónsson, Laugabóli i
Nauteyrarhreppi, lagði inn i fyrri
slátrun 500 dilka sem vógu að
meðaltali 18.30 kg, en á þriðja
hundrað dilkar frá honum sem -
siðar var slátrað höfðu lést svo
vegna snjóakaflans sem fyrr er
um getið að meðalvigt yfir allan
hópinn hjá Jóni fór niður i 17.50
kg. Á þeim bæjum sem hér er á
minnst er 50—70% ánna
tvilembdar.
Þyngsta dilk átti Agúst Gisla-
son Botni i Reykjarfjaröarhreppi
eðu 28.6 kg en Jón á Laugarbóli
kom fast á hæla honum, en hans
þyngsti dilkur vóg 28,3 kg.
Sauðfjárræktaríélög hafa verið
að risa á legg hér við Djúp sein-
ustu ár og i vetur er fyrirhugað að
sæða um 300 ær til að hraða sem
mest kynbótum fjárins og auka
frjósemi. Með þvx- ásamt bættri
fóðrun eiga sauðfjárbændur hér
að geta tryggt stöðu sina verulega
á afurða-,,toppnum”, svo er fyrir
að þakka afbragðsgóðum og við-
lendum sumarlöndum. Þess má
að lokum geta að dilkar hér eru i
flestum tilvikum 2—3 vikum
yngri en viðast annars staðar i
landinu, þvi hér hefst sauðburður
yfirleitt ekki fyrr en um og eftir
20. mai og beit sláturlamba á kál
eða ræktað land hér á haustinu
heyrir til algerra undantekninga.
1.12. 1980
Indriði Aöalsteinsson
Skjaidfönn.
dagsleg vandamál og leiðir
sjálfsflótta svosem áfengi,
skemmtanir og vinna skili tak-
mörkuðum árangri.
Hamingjustundir lifsins
tengjast trú á sjálfan sig, opinni
framtið og löngun til aö gefa af
sjálfum sér, segir Samhygð og
vill benda á aðferðir til aö þroska
þessa þrjá þætti. Vikulegir
klukkutima fundir eru undir-
staðan, en þar vinna þátttak-
endur með hugaræfingum, sem
viðhalda trúnni á þá sjálfa og
stefnufestu i daglegu lifi. Þátt-
taka er öllum heimil án skuld-
bindinga, en kynning á starfinu
er á fimmtudögum kl. 20 i hús-
næði félagsins á Tryggvagötu 6 i
Reykjavik, simi 29670.
Nýtt félag, SAMHYGÐ:
Jafnvægi og þróun
J ólatónleikar í kirkju
Tónlistarskólinn I Reykjavlk heldur tónleika I IBústaöakirkju miövikudaginn 17. desember kl. 8. 30i slðdegis.
A efnisskrá eru m.a. verk eftir Hindemith, Tsjaikovski, Grieg og Gustav Holst en flytjendur strengjasveit
Tónlistarskólans og nokkrir nemendur á blásturshljóðfæri. Þá mun kór skólans syngja jólalög undir stjórn
nemenda tónmenntakennaradeildar. Aögangur er ókeypis og öllum heimill.