Þjóðviljinn - 06.02.1981, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 06.02.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 6. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Markiis B. Þorgeirsson tekur við styrknum f samgönguráðuneytinu I gær. — Ljósm.: — eik. Markús fékk styrk Til þess að kynna björgunarnetið A fjárlögum þessa árs er sjóslysanefnd falið að ráðstafa kr. 2 miljónum gkr. til félaga og einstaklinea er vinna aö slvsa- varnarmálum. 1 jær var Markúsi B. Þorgeirssyni afhentur þessi styrkur i samgönguráðuneytinu til kynningar á þvi björgunarneti sem við hann er kennt og hann hefur fundið upp. Markús hefur nú ekki undan með framleiðsluna á netinu, enda hefur það vakið verulega athygli meðal annars I Vestmannaeyjum, þar sem hann kynnti það á sjómannadaginn. MarkUs hyggst nota styrkinn til þess að ferðast um landið á kom- andi sumri og kynna netið I sam- ráði við deildir Slysavarna - félagsins, sjómannafélög og hafnaryfirvöld. Markús bað Þjóðviljann i gær Heimili aldraðra á vegum saf naða? Gísli Sigurb jörnsson forstjóri elliheimilanna Grund og Áss hefur afhent séra Ólafi Skúlasyni dómprófasti í Reykjavík 100 þúsund kr. til varðveislu og síðar afhendingar þeim kirkju- söfnuði í Reykjavík sem fystur kemur sér upp heimili fyrir aldraða innan sóknarmarkanna fyrir 1983. Gisli hafði nýlega boð inni að Grund fyrir presta og oddvita Reykjavikursafnaðanna, þar sem hann ræddi um aðstæður aldraðra og benti á, að sjaldan hefði þörfin veriðmeirifyrir markvisst starf i þeirra þátu. I þakkarræðu sagði Ólafur Skúlason dómprófastur ma., að sú upphæð sem Gisli hefði afhent sér yrði einskonar rásmerki fyrir forystumenn safnaðanna og auk- in hvatning til að sinna þessum málum af enn meiri dugnaði og áræði en áður. Símamenn Mótmæla bráðabirgða- lögunum Félagsráð Félags isl. simamanna mótmælti á fundi sin- um 28. jan. sl. harðlega þeim ákvæðum i bráðabirgðalögum rikisstjórnarinnar, sem fela i sér 7% kjaraskerðingu 1. mars nk. og riftun kjarasamninga BSRB frá sl. hausti. Segir i ályktun félagsráðsins, að þeir samningar hafi af stjórn- völdum verið túlkaðir sem hógværir láglaunasamningar til eftirbreytni fyrir aðra, en allir samningargerðir siðar hafiíalið i sér meiri kjarabætur.Með bráða- birgðalögunum verði opinberir starfsmenn fyrir meiri skerðingu kjara en bæturnar námu. Varar félagsráð að lokum viö endurteknum aðgerðum til rift- ingar kjarasamningum og telur að slikt hljóti að leiða til ófarnaðar. sérstaklega að geta þess að vegna nauðsynlegrar skipulagningar tekur hann þegar á móti pöntun- um um kynningu á netinu i sima 91-51465. Björgunarnet Markúsar B. Þorgeirssonar hefur vakið óskipta athygli. Þing Alþýðusam- bandsins samþykkti til að mynda áskorun til Alþingis um að samþykkja þingsályktunartillögu Helga Seljans um sérfræðilega úttekt á björgunarnetinu og að á grundvelli hennar yrði tekin af- staða til hvort ákvæði skuli sett i reglugerð um skyldu til að hafa björgunarnet um borð i skipum, svo að þau séu tiltæk á hafnar- svæðum. Sjóslysanefnd hefur einnig tekið i sama streng, auk þess sem Slysavarnafélagið, Siglingamálastofnun og fleiri aðilar hafa sýnt málinu áhuga og velvilja. _ ekh Bæjarráð Kópavogs lýsir undrun vegna uppsagna fóstra Auglýslr stöðurnar eftlr frest til 10. feb. Bæjarráð Kópavogs hefur lýst undrun sinni vegna þess að fóstrur sem starfa þar i bæ skuli ekki hafa dregið upp- sagnir sinar til baka. Gefur bæjarráðið þeim frest til 10. febrúar ella verða stöður þeirra aug- lýstar lausar til um- sóknar, en þær hyggjast leggja niður störf 20. Fóstur hafa að undanförnu staðið f harðri kjarabaráttu og standa fast við þá kröfu að verða hækkaðar upp i 13. launaflokk og fá að auki launaflokkahækkanir eftir tvö ár og fjögur ár i starfi, auk undirbúningstima sem þegar hefur verið samið um. 1 samþykkt bæjarráðs Kópa- vogs er tiundað að fóstrur hafi fengið meiri hækkun en aðrir launþegar og segir þar að staðið hafi verið við gefin fyrirheit af hálfu bæjarins. Hjá Kópavogsbæ starfa 3(Þ40 fóstrur á fimm dagheimilum auk leikskóla og skóladagheimila. Fóstrur hafa staðið þétt saman um kröfur sfnar jafnt i Reykja- vik, Akureyri sem i Kópavogi og þvi hlýtur sú spurning að vakna hvar Kópavogsbær ætlar að finna fóstrur til starfa, fyrst þær sem fyrir eru sætta sig ekki við þau kjör sem boðið er upp á. — ká Trillukarlar stofna félag Hinn 18. janúar sl. var stofnað i Reykjavik Félag smábáta- eigénda og er stærð bátanna mið- uð við 12 tonn eða minna. Hér er um að ræða hina svonefndu trillu- karla en ekki skemmtibáta- eigendur og telja trillukarlarnir sig enga samleið eiga með listi- bátaeigendum, sem vonlegt er. Nú hefur þetta nýja félag Doðað Margir frægir í La Bohéme Fjöldi kunnra söngvara tekur þátt i sýningu Þjóðleikhússins á La Bohéme nú i vetur. Ólöf Kolbrún Harðardóttir mun syngja hlutverk Mimiar, Ingveld- ur Hjaltested hlutverk Musettu, Garðar Cortes Ruldolfos og Halldór Vilhelmsson Marcello. John Speight syngur Schaunard, og Eiður Gunnarsson kemur frá Achen til að syngja hlutverk Collines. Og i hlutverkum Alcin- dorosogBenoitsverða þær gömlu kempur Guðmundur Jónsson og Kristinn Hallsson. Þá hefur Sieglinde Kahman verið boðið að syngja sem gestur hlutverk Mimiar i vor og sömu- leiðis mun Kristján Jóhannsson syngja Ruldolfo og verður það frumraun hans á islensku leiksviði. Elin Sigurvinsdóttir mun einnig syngja hlutverk Musettu á nokkrum sýningum og fleiri söngvarar verða með i sýn- ingunni þegar liður á vorið. Það er franski hljómsveitar- stjórinn Jean-Pierre Jacquillat sem stýrir uppfærslunni I þessari vinsælu óperu og er þaö I fyrsta sinn að hann stjórnar óperuflutn- ingi hér á landi, en hann hefur er- lendis,m.a. I Paris.fengist mikiö við óperustjórn. Leikstjóri verður Sveinn Einarsson og honum til aðstoðar Þuriður Pálsdóttir en um leikmynd sér Steinþór Sigurðsson, en hann hefur ekki unnið aö leikmynd fyrir Þjóðleikhúsið siðan i Hafið bláa hafið 1973. La Bohéme verður flutt á frummálinu og frumsýn- ingin er fyrirhuguð 3. april. til fundar i Lindarbæ nk. laugar- dag 7. janúar kl. 16.00. Fundar- efnið verður sú léiega aðstaða sem þessir aðilar eiga við að búa i Reykjavikurhöfn. A fundinn mun koma Gunnar B. Guðmundsson hafnarstjóri i Reykjavik og ræða þessi hafnarmál og hvað á döfinni er i þeim málum. Skyldu þau fá pláss á skóladagheimili þegar fram í sækir? Almennur fundur hjá FEF á laugardag: Skóladagheimili skipulag og starf Fyrsti umrœðufundurinn af fjórum Félag einstæðra foreldra heldur almennan félagsfund um skóiadagheimili, starf þeirra og skipulag á laugardaginn kemur. Hefst fundurinn kl. 14 að Hótel Heklu við Rauðarárstig. Svavar Sigmundsson,formaður FEF, sagði i samtali við Þjóövilj- ann i gær að þessi fundur væri liður i sérstakri fundaröð sem ákveðið hefur verið að gangast fyrir á næstunni. A hinum fund- unum þremur verður fjallað um talgalla barna, sem hafa verið mikið til umræðu á undanförnum misserum, fjarvistir foreldra frá vinnu vegna, veikinda barna og afstöðu atvinnurekenda til þess máls og loks er ætlunin að fá full- trúa stjórnmálaflokkanna til að skýra hvað liggur að baki fjöl- skyldupólitik hvers flokks. A fundinum á laugardag mun Gerður Steinþórsdóttir, formaður félagsmálaráðs Reykjavikur- borgar hafa framsögu um skipu- lag dagvistarmála i borginni og ungur drengur, Hrafn Jökulsson, segir frá reynslu sinni af skóla- dagheimili. Þá mun Bergur F elixson, framkvæmdastjóri dagvistarheimila mæta á fundinn og sagði Svavar að það væri von sin að foreldrar og starfsfólk á skóladagheimilum létu sig ekki vanta á laugardag. I ráði var að fá fóstru til að ræða um innra starf á dagvistarstofnum en af þvi verður ekki, enda halda fóstur þessa sömu helgi kjaramálaráð- stefnu sina. Svavar Sigmundsson sagði að lokum að nú væri verið að leggja siðustu hönd á hús félagsins við Seljanes og hefur verið ráðinn forstöðumaður til þess. I húsinu munu einstæðir foreldrar i hús- næðiseklu fá inni hálft ár i senn þar til þeir hafa komist i annað húsnæði. — Ai er nýtt í Lifeyrissjóður verslunarmanna vill vekja eftirtekt á nýjum lögum um starfskjör launafólks og skyldu- tryggingu lifeyrisréttinda frá 9. júni 1980. Þar segir m.a.: öllum launamönnum og þeim, sem stunda at- vinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi,er rétt og skylt að eiga aðild að lifeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps. Af þessu tilefni vill sjóðurinn biðja þá aðila sem vinna verslunar- eða skrifstofustörf eða skyld störf á sviði viðskipta og þjónustu og eru utan við lifeyrissjóði að athuga stöðu sina i lifeyrisréttindamálum. Mun s jóðurinn veita allar nánari upplýsingar um þessi mál. Vinsamlegast hafið samband við Stefán H. Stefánsson i sima 84033. Lífeyrissjóður verzlunarmanna Grensásvegi 13, sími 84033.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.