Þjóðviljinn - 06.02.1981, Blaðsíða 15
/
Föstudagur 6. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Hringiö i sima 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eöa skrifið Þjóðviljanum
frá
lesendum
Illur aöbúnaður
er viöa pottur brotinn. Ég hef ég er i núna, en hef ekki heyrt
fariö á nokkra fundi i Sókn, sem orö um þetta þar.
Þar sem suöuvinna fer fram er góö loftræsting nauösyn.
Hneyksli á Nesinu?
He Igi Magnússon
hringdi:
— Ég var aö lesa i Þjóöviljan-
um frásögn af aöbúnaöinum á
verkstæöi Jósafats Hinriks-
sonar i Súöavoginum, og mig
langar til aö segja ykkur sögu af
minum samskiptum viö þennan
atvinnurekanda.
Ég vann hjá honum fyrir 3—4
árum, þegar hann var meö
verkstæði i Skúiatúni. Þar var
aðbúnaöurinn engu betri en
fram kemur i lýsingu Þjóövilj-
ans: allt i rusli og drasli. Þarna
voru þungir kranar með sog-
blöökum og kom fyrir hvað eftir
annað að þeir hrundu. Maður
var látinn standa þarna á
óstöðugum plönkum, og ég varð
aldrei var við það, þennan tima
sem ég vann þarna, sem var nú
að visu ekki lengi, að neinn
kæmi til aö lita eftir með þessu.
Einu sinni varð ég fyrir þvi aö
klemmast milli tveggja járnbita
svo fingurinn fór i sundur
fremst. Þá sagði Jósafat mér aö
setjast smásund og jafna mig,
og halda svo áfram með vinn-
una. Þaö var ekki einu sinni til
plástur á staðnum, heldur fékk
ég limband til að setja á fingur-
inn.
Þetta endaöi náttúrlega með
þvi að ég fór á slysadeildina og
þurfti að sauma mörg spor i
fingurinn. Mér var sagt þar að
hefði ég komið klukkustund
seinna hefði farið verr. Og
aldrei fékk ég neinar bætur, þótt
ég væri frá vinnu útaf þessu i
marga daga.
Mér finnst alveg bráðnauð-
synlegt að kynna fólki betur
nýju löggjöfina um eftirlit með
vinnustöðum og aðbúnaði; það
Ég hef "fylgst nokkuð með
blaðaskrifum um verslunar-
mál á Seltjarnarnesi og hafa
þau vakið furðu mina.
Ungir og efnilegir verslunar-
menn tóku við versluninni á
Melabrautfyrir nokkrum árum.
Þjónusta þeirra hefur verið frá-
bær og vöruúrval gott, það er
meira en hægt er að segja um
fyrri eigendur. En nú skilst mér
að eigi aö hrekja þessa duglegu
menn af Nesinu.
Verslunarmiðstöö á að risa og
þeir hafa sótt um aöstöðuna. En
ungu mennirnir voru sviknir,
vegna þess að Vörumarkaður-
inn á að fá aðstöðuna. Þá skilst
mér að þeir hafi ætlað að koma
upp verslun i húsnæði ísbjarn-
arins, en bæjarstjórn neitaði
þeim um leyfi. Eins fór fyrir
bakara nokkrum sem hafði ver-
ið lofað um aðstöðu. Hann var
svikinn en Vörumarkaöurinn
fékk leyfið. Eigandi þess fyrir-
tækis mun lika vera bróðir eins
bæjarstjórnarmannsins.
Nú spyr ég: er þetta ekki
hneyksli? Sjálfstæðismenn sem
stjórna Nesinu kenna sig við
frjálsræði og einstaklings-
hyggju. En nú vinna þeir að þvi
að koma upp einokunaraðstöðu
fyrir Vörumarkaðinn á Sel-
tjarnarnesi. Þaö er von min að
fólk á Seltjarnarnesi sjái hvað
þarna er á ferðinni og kjósi ekki
oftar spillta eiginhagsmuna-
seggi til að sjá um mál sin.
5145—1856
Barna-
hornið
Skrýtlur
Oddur litli fékk mynda-
bók í jólagjöf. Hann sat
lengi og skoðaði mynd-
irnar. Einkum varð hon-
um starsýnt á mynd af
dreng og nauti. Nautið
var að elta drenginn.
Loks lagði Oddur bókina
frá sér. Hann átti að fara
að sofa. En undir eins og
hann vaknaði morguninn
eftir, bað hann um bókina
og fór enn að skoða sömu
myndina.
„Mamma, mamma",
kallaði hann glaðlega.
„Þaðergott, nautið hefur
ekki náð drengnum enn
þá".
Nonni: Mamma, sagðir
þú ekki að ég yrði veikur,
ef ég borðaði sætindi úr
krukkunni á búrhillunni?
Mamma: Jú, það sagði
ég, drengur minn.
Nonni: En taktu nú
eftir, mamma. Ég verð
ekkert lasinn af því.
Hér eru tvær myndir, sem eru alveg eins — eða
hvað? Við nánari athugun kemur i ljós, að á neðri
myndina vantar 5 atriði, sem eru á þeirri efri.
Getur þú fundið þau?
Vinnuvernd
Útvarp
? kl. 22.40
Vinnuvernd er hugtak sem
heyrist nú æ oftar. A undan-
förnuni árum hafa menn verið
að gera sér betur grein fyrir
mikilvægi þess að fólki liði
sæmilega á sinum vinnustað,
þar sem það eyðir stórum
hluta ævinnar.
Gylli Páll Hersir og
Snjólaug Gunnlaugsdóttir ætla
að fjalla um ýmislegt er lýtur
að vinnuvernd i tveimur
útvarpsþáttum á næstunni, og
verður sá fyrri fluttur i kvöld.
Þá taka þau fyrir vinnuálag,
hávaða og streitu. Þau Gylfi
og Sigurlaug hafa bæði verið
við nám i Danmörku i nokkur
ár og má búast við að þau
fræði okkur um ástand
þessara mála meðal Dana.
— ih
Djassinn
dunar
• Útvarp
kl. 23.05
Þeir sem fara að sofa hérna-
megin við miðnætti i kvöld
eiga þess kost að sofna með
ljúfa djasstóna i eyrunum.
Djassþátturinn er i umsjá
Gerard Chinotti og kynnir er
Jórunn Tómasdóttir. —ih
Gerard Chinotti.
Um atvinnuleysi
bílaiðnad og fleira
Sjónvarp
ry ki. 21.20
Bogi Agústsson og Guðjón
Einarsson sjá um Fréttaspegil
I kvöld og fjalla m.a. um bna-
iðnaðinn I heiminum og þá
erfiðleika sem að honum
steðja. Stuttlega verður skýrt
frá gangi mála i Póllandi og
M orAnr.trlnndi.
Af innlendum vettvangi
taka þeir félagar fyrir at-
vinnuleysi á Islandi, en
stjórnarandstaðan heldur þvi
fram að það færist i vöxt, og
mun Svavar Gestsson félags-
málaráðherra rökræöa málið’
við fulltrúa stjórnarandstöð-
unnar. Loks verður fjallaö um
málefni heyrnarskertra og
fylgst með undirbúningi og
daglegu starfi þeirra sem
flytja fréttir á táknmáli i sjón-
varpinu. —ih
Tígur og dreki
Sjónvarp
kl. 22.30
Föstudagsmynd sjónvarsins
er að þessu sinni bandarisk
sjónvarpsmynd frá árinu 1971
og hcitir á frummálinu Kung
Fu. 1 islenskri þýðingu Guðna
Kolbeinssonar hefur hún hlot-
ið nafnið Merki tigursins og
drekans.
Leikstjóri er Jerry Thorpe,
rúmlega fimmtugur leikstjóri,
sem einkum hefur fengist við
gerð sjónvarspmynda. Aðal-
hlutverkið leikur David
Carradine, og má búast við
góðum leik frá h'onum.
Myndin gerist i Bandarikjun-
um, nánar tiltekið i „villta
vestrinu”, þar sem verið er að
leggja járnbraut. Einn verka-
mannanna er Caine, sem er
eftirlýstur maður i Kina. —ih
David Carradine I „Kung Fu”.