Þjóðviljinn - 06.02.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 06.02.1981, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. febrúar 1981 Skákþing Reykjavíkur: Jón stefnir hrað- byri á sigur Jón L. Árnason hefur nú náO öruggri forystu á Skákþingi Reykjavikur. t 9. umferð mótsins sem tefld var á miövikudaginn vann hann Þóri ólafsson á meöan greinarhöfundur tapaöi fyrir Braga Haildórssyni. Þau umskipti hafa orðið til þess aö Elvar Guömundsson er nú kom- inn i 2. sætiö eftir aö hafa lagt Björgvin Víglundsson aö velli. Staöan eftir 9 umferöir er þessi: 1. Jón L. Arnason 6 1/2 v. + 1 frestuö skák. 2. Elvar Guömundsson 6 v. + 1 frestuð skák. 3. -4. Helgi Óiafsson og Bragi Halidórsson 5 v. +1 frestuð skák hvor. 5. Dan Hansson 5 v. 6. -7. Sævar Bjarnason og Karl Þorsteins 4 1/2 v. 8.-9. Björgvin Vigiundsson og Þórir Ólafsson 3 1/2 v. 10.-11. Bendikt Jónasson og Hilm- ar Karlsson 2 1/2 v. + 1 biöskák hvor. 12. Asgeir Þ. Arnason 2 1/2 v. Næsta umferö mótsins verður tefld á sunnudaginn, og eigast þá við Þórir og Bragi, Helgi og Björgvin, Elvar og Dan, Asgeir og Sævar, Karl og Hilmar og Benedikt og Jón L. Ekki alls fyrir löngu komu út hin nýju alþjóðlegu Eloskákstig. Þar kennir að venju margra grasa. Það sem vekur hvað mesta athygli er, að skærasta stjarna Sovétmanna um þessar mundir, Harry Kasparov, er kominn i 6. sæti og skýtur aftur fyrir sig mörgum heimsþekktum skák- mönnum. Heimsmeistarinn Karpov er að venju efstur, en engu að siður hefur hann hrapað tilfinnanlega á stigum, hefur tap- að heilum 35 stigum frá þvi siðast. Karpov vann mörg skák- mót á siðasta ári, en slök frammi- staða i nokkrum sveitakeppnum og i mótinu i Buenos Aires gerir þessa lækkun að verkum. Mikhael Tal er þo sá skák- maöur sem mest hefur lækkaö. Hann gerði sér litið fyrir og tap- aði 150 stigum. Geri aðrir betur. Samkvæmt listanum eru 30 bestuskákmenn heims þessir: 1. Karpov 2690 2.- 3. Kortsnoj og Portisch 2650 4.- 5. Spasski og Hiibner 2635 6. Kasparov 2625 7,- 9. Timman, Polugajevskí og Beljavski 2620 10.-11. Mecking og Gellar 2615 12.-13. Larsen og Anderson 2610 14. Ljubojevic 2605 15. Balashov 2600 16.-17. Romanishinog Sosonko 2595 18.-19. Gulkoog Miles 2590 20.-21. Ribliog Petrosjan 2585 22.-26. Hort, Kupreitchik, Nunn, Jusupovog Alburt 2575 27. Vaganian 2565 28. Sax 2560 29.-30. Talog Seirawan 2555 Karpov er skráður nr. 1, en þess má geta að þeir skákmenn sem ekkert tefla i 3 ár eöa meira detta af listanum, en stigin eru geymd ef þeim skyldi detta i hug að tefla aftur. Stigin rýrna þó samkvæmt kerfinu um 5 stig miðað við hvert ár. Þó að Bobby Fischer hafi ekki hreyft peð svo vitaö sé i meira en 8 ár er hann i raun langstigahæsti skákmaður heims með 2745 Élo-stig. Hann hefur tapað 40 stigum á fjarverunni. Þvi má bæta við að á timabili var hann kominn yfir 2800 stig en tapaði slatta af stigum við það að sigra Spasski með 5 vinninga mun I einviginu 1972. Úr sýningu AL á Pæld’IÖI. AL og Utangarðsmenn: Tvöfalt prógramm N.k. sunnudag kl. 20 býöur Alþýöuleikhúsiö upp á ..tvöfalt prógramm” i Háfnarbiói — hiö umdeilda u n gli n ga I e ikr i t „Pæld’iöi” ásamt Utangarös- mönnum meö Bubba Morthens I broddi fylkingar. Pæld’iöi hefur nú verið sýnt yfir 40 sinnum i hartnær öll- um skólum á höfuðborgarsvæðinu og byggðarlögunum i kring og hafa nú um 10.000 manns, aöal- lega unglingar, séð sýninguna. A næstunni eru svo fyrirhugaðar leikferðir i fjarlægari byggðar- lög, sú fyrsta á Austfiröi vikuna 9,-13. febrúar. Vegna anna við sýningar i skól- um út um borg og bi hefur þvi miður ekki verið hægt að sýna verkið svo neinu nemur á al- mennum markaði. En nú eru fyrirhugaöar örfáar sýningar i Hafnarbiói á næstu vikum. Það hefur mikið verið rætt og ritað um þetta innlegg Alþýðu- leikhússins i málefni unglinga landsins og þá aðallega frá hendi hinna fullorðnu. En unglingarnir hafa svo sannarlega kunnað að meta þessa umfjöllun um hluti, sem allir lenda i einhverntima — nefnilega aö verða ástfanginn i fyrsta sinn. Utangarðsmenn hafa og ekki síður veriö umdeildir þrátt fyrir vinsældir sinar og rétt er að taka fram að „Pæld’iði” og Utangarösmenn verða með sam- eiginlegt prógramm aðeins i þetta eina sinn. ,Úr þessu öllu saman hefur oröiöhin fjörlegasta og ánægjulegasta sýning Leikfélag Reykjavikur sýnir Ótemjuna eftir William Shakespeare Þýöing: Helgi Háifdanarson Forleikur: Böövar Guömundsson Leikstjórn: Þórhildur Þorleifs- dóttir Búningar: Una Collins Tóniist: Eggert Þorleifsson Ótemjan eða Snegla tamin eða The Taming of the Shrew er eitt af æskuverkum Shakespeares og ber þess reyndar merki að vera samið áður en höfundur hafði náð fullum þroska sem skáld. Ótemjan er ærslaleikur meiri en gengur og gerist hjá skáldjöfrin- um og textinn er ekki eins rismik- ill og viðast hvar annars staðar. En allt um það er Ótemjan haganlega gert sviðsverk, eins og raunar vinsældir þess i timans rás hafa sannaö óumdeilanlega. Verkið fjallar að parti um sam- skipti kynjanna sem mönnum verður tiðrætt um þessa dagana. Þaö segir frá Katrinu sneglu sem alræmd er orðin fyrir óhemju- skap sinn og frekju og yngri systur hennar Bjönku, sem er ljúf og blið eins og ungri stúlku ber að vera. Bjanka fellur sem sagt inn i munstrið en Katrin hefur gert uppreisn gegn þvi. Það kemur raunar berlega i ljós að meðal ástæðna fyrir uppreisn Katrinar er afbrýðissemi gagnvart Bjönku, sem er augljóslega eftir- læti föðurins, en um leið er hún i andstöðu gegn rikjandi hefðum og venjum. Enginn þorir þvi að kvænast henni (en þangaö til þaö gerist fær Bjanka ekki að giftast) þar til aðvifandi kemur ofurhugi nokkur og galgopi sem er nægi- lega djarfur til að biðja um hönd hennar, giftast henni, brjota vilja hennar á bak aftur og vinna ástir hennar. Meðan þessu fer fram eru hinar persónurnar i leiknum i flóknum loddaraleik og dulargervisdundi aö keppa um hina eftirsóttu Bjönku. Þó fer það svo að þegar upp er staöið er það Petrúsió sem hefurhreppt hnossið. Það er ljóst að i verkinu má finna dregin skörp skii milli Katrinar og Petrúsió annars vegar og annara persóna hins vegar, milli þeirra Allt á fullu sem þora að vera þeir sjálfir og fara ótróðnar slóðir og hinna sem einatt feta farinn veg ánetjaðir venjum og siöum og fela sig gjarnan i alls kyns dulargervum. Þessi skilningur skin mjög sterklega út úr uppsetningu Þór- hildar Þorleifsdóttur, og hann markast skýrast i þeim mun sem er á leikstil Þorsteins Gunnars- sonar og Lilju Guörunar Þor- valdsdóttur annars vegar (i hlut- verkum Katrinar og Petrúsiós) og hinna leikaranna. Þorsteinn og Gilja Guðrún leika hreint og beint og af miklum krafti og einlægni. Hinir eru allir i óeðlilegum stell- ingum. Bjanka sifellt i penum uppstillingum með þvingað englabros (Lilja Þórisdóttir skilaði týpunni prýðilega), Ragn- heiður Steindórsdóttir i hlutverki vonbiðils hennar Lúsentsió er sifellt i dramatiskum elskhuga- stellingum, o.s.frv. Þannig eru allir að ofleika eða draga upp skripamyndir, nema þau tvö, og undirstrikar þetta hversu þau skera sig frá hinum og að þau eru i raun réttri jafningjar. Sú umgerð sem nýr forleikur og sviðsmynd Steindórs Sigurðs- sonar gefa sýningunni veita gnægð tækifæra til hinna fjöl- breytilegustu bragða og uppá- koma, og þessi tækifæri nýtir Þórhiídur afar vel. Forleikurinn gerist á fundi leikara 'þar sem þeir ræða til hvers þeir séu eigin- lega að leika þetta verk, og maður sér þá klæðast leikbúning- um sfnum, og sumar kvennanna meðal annars bregða sér i karl- gerfi. Þetta undirstrikar það að hér er leikur á ferð og gefur ýkj- um, stilfærslu og óraunsæi lausan tauminn. Leikmynd Steinþórs er mjög andnatúralisk, þar ægir saman hinum kynlegustu hlutum, m.a. þremur kirkjuturnum úr Reykjavik og stöðumæli, en hún er fyrst og fremst haganlega gerð til að leika i, virkur sjónrænn rammi fyrir hreyfingar og upp- stillingar og stilbrenglun hennar ýtir undir stillegt frelsi sýningar- innar. Hér koma einnig til aö- stoðar hugmyndarikir og snjallir búningar Unu Collins. Úr þessu öllu saman hefur orðið hin fjörlegasta og ánægjulegasta sýning. Leikhópurinn gengur fram af miklu öryggi og leikgleði og allir kraftar eru vel saman stilltir. Það er verulega góð heildarmynd á sýningunni sem. ekki spillist af bráðskemmtilegri tónlist Eggerts Þorleifssonar sem fyllir út i skiptingar af mikilli hugkvæmni, og svo auðvitað texta Helga Hálfdanarsonar, sem er þess konar sælgæti að hægt er að kjamsa á lengi án þess að verða bumbult. Saga Shakespeares á islensku leiksviði hefur verið nokkuð skrykkjótt, sýningar misjafnar og aðsókn yfirleitt fremur dræm. Hins vegar held ég að islenskt leikhús geti ekki, fremur en önnur leikhús á vesturlöndum, verið án þessa makalausa höfundar. Við skulum vona að þessi sýning verði lyftistöng undir frekari átök við verk hans. Sverrir Hólmarsson Sambandsfrystihúsin: Minni frysting — mciri skreið Samkvæmt upplýsingum Sigurðar Markússonar, framkvstj. Sjávarafurðadeildar SIS flutti deildin út sjávarafurðir fyrir 49.450 milj. kr. (gamalla) á sl. ári, cif-verð. Er aukningin i krónutölu frá árinu áður 43%. Eftir afurðaflokkum greinist veltan þannig að 72% má rekja tii frystra afurða, 22% til skreiðar, 4% til fiskimjöls og lýsis og 2% til ýmissa annarra afurða. Útflutningur frystra afurða nam 31.300 lestum, 4.600 lestum minni en árið áður og stafar af samdrætti i fyrstingu. Heildar- framleiösla frystra sjávarafurða hjá Sambandsfrystihúsunum nam 32.900 lestum, 3.500 lestum- minna en árið áður. Frysting karfaafurða jókst nokkuö og grálúðufrysting jókst verulega. Frysting annarra tegunda minnkaði. Mikil aukning varð á saltfisk- framleiðslu svo og skreiðar, enda fjórfaldaðist skreiðarútflutningur á vegum deildarinnar, varö 4.200 iestir- á móti 1.100 lestum árið áður. Ekki urðu neinar teljandi sveiflur i hlutdeild einstakra markaða i heildarútflutningi á frystum botnfiskafurðum. Bandarikin voru að venju I fyrsta sæti með 76% af magninu, (77% árið 1979), i öðru sæti voru Sovétrikin með 14%, (12%) og i þriðja Bretland með 8%, (10%). — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.