Þjóðviljinn - 06.02.1981, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.02.1981, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN Föstudagur 6. febrúar 1981 Abalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Listahátíð IReykjavík Samþykkt var i borgarstjórn i gærkvöld að tilnefna Guðrúnu Helgadóttur sem fulltrúa Reykja- vikur i stjórn Listahátiðar. Davið Oddsson hafði á fundi borgarráðs lagst gegn þeirri til- högun en fylgdi þvi ekki eftir þegar málið kom til kasta borgar- stjórnar. Vöruskiptajöfnuður 1980 Var óhag- stæður um 34,2 miljarða Samkvæmt t i 1 - kynningu sem Hagstofa íslands sendi frá sér i gær varð vöruskipta- jöfnuður okkar íslend- inga i viðskiptum við önnur ríki óhagstæður um 34,2 miljarða gam- alla króna á árinu 1980. Árið 1979 varð vöru- Sennilega hefur aldrei verið önnur eins gróska i leikhúslffi Reykvikinga eins og þessi misserin. Myndin er tekin rétt fyrir sýningu á leikriti Aristofanesar Plútus i hinu nýstofnaða Breiðholtsleikhúsi, sem sýnir I Fellaskóla. A myndinni sjást f.v. Eyvindur Erlendsson, Kristin Bjarnadóttir og Kristin S. Kristjánsdóttir. (Ljósm.: gel) Áætlun um endurbyggingu Torfunnar: Guðrún Helgadóttir Borgarstjórn samþykkir Viðræður við fóstrur Á fundi borgarstjórnar i gær- kvöldi spunnust nokkrar um- ræður um uppsagnir fóstra á dag- vistunarheimilum Reykjavikur- borgar. Að tillögu Guðrúnar Helgadóttur var samþykkt að borgarstjórn feli launamáladeild borgarinnar að hefja þegar i stað viðræður við Starfsmannafélag Reykjavikurborgar um kjör fóstra i tilefni uppsagna þeirra og þeirra vandamála er skapast ef þær hætta störfum. Margar fóstrur voru á áheyrnarpöllum og fögnuðu þær úrslitum málsins. Borgarstjórn: skiptajöfnuðurinn óhag- stæður um 13,7 miljarða kr. Á árinu 1980 voru alls fluttar inn vörur fyrir rúmlega 480 miljarða króna, þar af nam innílutningur á skipum og flugvélum rúmlega 23 miljörðum, innflutningur á vegum Landsvirkjunar og Kröfluvirkjunar rúmlega 4 milj- örðum og innflutningur til Islenska álfélagsins og íslenska járnblendifélagsins nær 43 milj- örðum. Á árinu 1980 voru fluttar út vörur fyrir alls 446 miijaröa króna, þar af nam útílutningur á álmelmi rúmlega 54 miljörðum, og útflutningur á kisiljárni 8 milj- örðum. Þess skal getið að i desember var vöruskiptajöfnuðurinn hag- stæður um nær fjóra og hálfan miljarð. Við samanburð við utanrikis- verslunartölur 1979 veröur aö hafa i huga, að meðalgengi er- lends gjaldeyris árið 1980 er talið vera 37.8% hærra en það var á árinu 1979. Viðræður og um framtíöarskipan mála Stjórn Torfusamtakanna hefur lagt linurnar varðandi frekari uppbyggingu húsanna á Berhöfts- torfu og farið þess á leit við menntam áIaráðuneytið og Reykjavikurborg að sett verði á laggirnar sameiginleg nefnd þessara aðila til að ræða fram- tiðarskipan mála á Torfunni. Samtökin vinna nú að áætiun um endurbygginguna og kynntu blaðamönnum fyrstu skrefin á fundi i gær. i bigerð er að skipa framkvæmdanefnd til að sjá um uppbygginguna með þátttöku rikis og borgar. við ríkið Reykjavíkurborg í borgarstjórn i gærkvöld var erindi samtakanna um viðræður til umræðu og var samþykkt að taka þátt í þeim með 8 atkvæðum meirihlutans gegn 4 atkvæðum Sjálfstæðisflokksins. Afstaða Sjálfstæðisflokksins byggist á þvi að þeir telja ekki rétt að borgin eigi neina aðild að uppbyggingu Torfunnar og er þess skemmst að minnast að þeir lögðu til að 10 miljón gamalla króna framlag til Torfusamtakanna yrði strikað út af fjárhagsáætlun borgarinnar. Sú tillaga var felld og samtökin fá þennan styrk i ár. t menntamálaráðuneyti hefur verið vel tekið i erindi samtak- anna en i bréfi þeirra er m.a. ósk um að samningurinn við rikið verði endurskoðaður. Þar er sem kunnugt er tekið fram að á leigu- timanum muni rikið ekki leggja fé til endurbyggingar húsanna og i samræmi við það er ekki eyrir ætlaður á íjárlögum til þeirra hluta. —AI/ÞJ Hefur þjónustu Flug- leiða h.f. hrakað? Tel það ekki vera, segir Sveinn Sœmundsson blaðafulltrúi Miklar sögur ganga af þvi að allri þjónustu Flugleiða h.f. hafi hrakað mjög mikið siðustu mán- uöina. Er þar bæði átt við innan- og utanlandsflug. Fólk, sem haft hefur samband við Þjóðviljann út af þessu máli, segir það áberandi, hvað allri þjónustu vegna innan- landsflugsins hefur hrakað. Sagð- ar eru sögur um að fólk hafi þurft að hanga marga klukkutlma i óvissu i hinum lélegu flugskýlum úti um land vegna þess að ferðir hafi fyrirvaralaust verið felldar niður, bilanir orðið á vélum o.s.frv.. Þá eru sögur um seink- anir og niðurfellingu ferða fyrir- varalaust i utanlandsfluginu margar. Við inntum Svein Sæmundsson blaðafulltrúa Flugleiða h.f. eftir þvi hvort þjónustunni hefði hrak- að. Hann sagðist álita, að svo væri ekki. Hann benti þó á, að hugsanlega hefði einhver minnkun orðið á þjónustu, vegna fækkunar starfsfólks, en sagðist ekki trúa, að þar væri um neitt umtalsvert að ræða. Varðandi niðurfellingu á ferð- um, bæði innan lands og utan, sagði Sveinn, að við bilanir gæti enginn ráðið, og einnig sagði hann, að Flugleiðir h.f. 'settu mjög strangar öryggiskröfur, og þvi kæmi fyrir að ferðum seinkaði eða þær féllu niður, vegna hins umhleypingasama veðurs hér á landi. Stundum lokuðust vélar inni á flugvöllum úti á landi vegna veðurs og kæmi það þá nið- ur á þeim stöðum sem fljúga verður dagflug til. Að lokum sagði Sveinn, að hann gæti fullvissað fólk um að starfs- fólk Flugleiða h.f. væri allt af vilja gert til að halda uppi eins góöri þjónustu og frekast væri unnt, en veðurguðirnir tækju stundum af þvi völdin. —S.dór Kaupir dýrari orku Talsverðar umræður urðu i borgarstjórn i gærkvöld um orkukaup Rafmagnsveitu Reykjavikur frá Landsvirkjun. Vegna orkuskorts undanfarinna vikna lá fyrir að skammta þyrfti raforku til almenningsveitna ef ekki fyndust önnur úrræði. Landsvirkjun gerði samkomulag við tslenska járnblendifélagið um rekstrarstöðvun i 2—3 mánuði og gat af þeim sökum boðið Raf- magnsveitu Reykjavikur um helming þeirrar orku sem annars færi i að kynda ofna járnblendis- ins. Ljóst var að þessi orka yrði dýrari en almenn gjaldskrá segði fyrir um og næmi munurinn 1,17 miljón nýkr. á mánuði. Ef Raf- magnsveita Reykjavikur hafnaði þessu boði kæmi til orkuskömmt- unar og að mati rafmagnsstjóra yrði tapið af þeim sökum mun meira en umframkostnaðurinn við raforkukaupin. Samþykkt var þvi að taka fyrrgreindu boðið Landsvirkjunar með 14 sam- hljóða atkvæðum, Albert Guðmundsson sat hjá.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.