Þjóðviljinn - 03.04.1981, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 03.04.1981, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓDVILJINN Föstudagur 3. april, 1981 / V KÆRLEIKSHEIMILIÐ vidtalid Billy er búinn að brjóta rifbein í rúminu Þau fara höndum um Gull og silfur: Erling Jóhannesson, Siguröur G. Steinþórsson, Steinþór Sæmundsson, Magnús Steinþórsson, Ein- ar G. Þórhallsson, Karen Jóhannesdóttir, Sólborg Siguröardóttir, Guöbjörg Antonsdóttir. Gull og silfur 10 ára 1 dag á skartgripaverslunin Gull & Silfur hf. 10 ára afmæli. Fyrirtækið hóf starfsemi sina á Laugavegi 35 og starfar þar enn. Verkstæöi og verslun var i upphafi á sama stað, en verk- stæðiö er nú til húsa á Lauga- vegi 33a. Auk þess hefur fyrir- lækið rekiö heildverslun síöan 1973 og flutt inn vörur, sem til- heyra gull- og silfursmiöi, hefur m.a. umboð fyrir Svissneska gullbankann hérlendis. Gull & Silfur hefur lagt mikla áherslu á sölu demanta og starfsmenn þess aflað sér sér- þekkingar á þvi sviði. Og ekki skyldi gleymt hinum fjölbreyti- legu trúlofunarhringjum, sem fyrirtækið sendir hvert á land sem er. Einn þáttur starfsem- innar og mjög vinsæll er sér- smiði skartgripa eftir hug- myndum viöskiptavinanna. t tilefni af afmælinu gefur fyrirtækiö 10% afslátt til við- skiptavina sinna. I gangi verður og afmælishappdrætti, sem við- skiptavinir geta tekið þátt i. Verður dregiö i þvi á hádegi laugardaginn 4. april. Vinn- ingurinn er 14 karata hvita- gullshringur með perlu og demöntum að verömæti 4.000 nýkr. — mhg Þessi börn Gunna, 5 ára, fékk að fara með afa og ömmu á fint veit- ingahús, þar sem þjónar gengu um beina. Eftir að hafa horft stórum augum og þagað lengi hvislar hún að afa: — Eru veitingahús fyrir lata? Málshátturinn dag er frá Kína: Ég er alveg hissa á þessum mönnum sem eru hræddir um afkomu steinullarverksmiöja. Fellur ekki ullariönaður undir landbúnaö? Rætt við Öra Bjamason um leikrit hans sem nú verður sýnt í Vestmannaeyjum Langaði að endur- gjalda á einhvem hátt aðstoðina — Mig langaöi aö endurgjalda á einhvern hátt þá aðstoö sem ég fékk, sagöi Örn Bjarnason aöspurður um efnisval leikrita sinna, en Leikfélag Vestmanna- eyja er nú aö setja á sviö lcikrit hans Fyrsta öngstræti til hægri, sem fjallar um lif tveggja ungra drykkjukvenna. Útvarpiö flutti á sínum tima Biöstöð 13, verk um ungan mann i svipuöum sporum. Fyrsta Ongstræti til hægri var frumflutt af Leikfélagi Akur- eyrar og fékk óvenju góðar mót- tökur þar i bæ, var sýnt 21 sinni og uppselt á 16 fyrstu sýning- arnar. Það var siöan sýnt á Noröur-og Austurlandi og mas. i Sviþjóð, á norrænu móti leik- hópa i örebro. Hvað réði viðtök- unum? - Það má hamingjan. vita, seg- ir Orn. En ég er nú að norðan og þekktur fyrir sitthvað á Akur- eyri, þannig að liklega hefur mönnum þar þótt forvitnilegt hvað þessi manngrýla væri að gutla. Þetta leikrit Arnar sem nú á aö sýna i Eyjum f jallar um tvær örn Bjarnason: stóö i striöinu sjálfur. stelpur sem stiga dansinn, drekka, dópa og leika sér i strætinu, eru hvergi fastar i vinnu né eiga fastan punkt i lif- inu. Onnur er siöan leidd gegn- um meðferð, þaðan fylgjum viö henni heim til sin og sjáum hvernig hún tekur á málumáefl ir, en ýmis vandkvæði fylgja þvi að risa uppúrslikum lifnaði. Hin fer hinsvegar aðra leið, er sett i fangelsi, tekur ekki fortölum og heldur sama striki. Orn segist hafa valið ungar stelpur sem aðalpersónur annarsvegar vegna þess hve lit- ið hefur verið skrifað af til- finningalegum átakahlutverk- um fyrir ungar leikkonur og hinsvegar og ekki siður vegna þess, að i þessum brennivins- málum sé ævinlega einblint á karlmanninn. Konur fari þó ekki siður illa útúr ofdrykkju. — Þér virðist þetta efni mjög hugleikið. — Mér var það. Ég stóð i þessu striði sjálfur, það er ekkert leyndarmál, og mér fannst ýmsir aðilar eiga inni hjá mér framlag, kannski sérstak- lega það fólk sem rétti mér hjálparhönd á sinum tima. Svo hefur vakað með mér vonin um að geta etv. á einn eða annan hátt opnað augu krakka fyrir þvi, að það eru tvær hliðar á þessu máli. Þaö er fyrst voða gaman og spennandi að drekka; sú tilfinning varir ekki nema skamman tima, siðan koma upp allskonar sálarkreppur sem aukast og magnast og fyrr en varir er vandamálið orðið nær óviöráðanlegt fyrir marga. — En getur einhver lært af reynslu annarra? — Þaö er sjálfsagt fátitt, enda er þetta ekki hugsað alveg þannig. En unglingar eru áhrifagjarnir og það er haldið aö þeim þessari brennivinshug- ljómun hvert sem litið er og varla boðið upp á aðra afþrey- ingu. Ég reyni að lýsa hinni hliöinni. — A öngstræti sérstakt erindi til Vestmannaeyinga? — Ekkert fremur en annarra. Þetta er vissulega mikill út- gerðarbær og mikiö unnið, — og mikið drukkið þegar fólk á fri, enda litið um annaö tómstunda- gaman. Það er greinilega mikill áhugi hjá leikhópnum að vinna þetta verkefni vel og koma boð- skapnum til skila. Hópurinn er ekki stór, en býsna sterkur, að þvi er mér virðist. Sigurgeir Scheving setur leik- inn á svið og er vafalaust heppi- legur i það verk, leikmyndin er sú sama og Sigurjón Jóhanns- son gerði fyrir Akureyringa, sömuleiðis sér Ingvar Björns- son um ljósin. Magnús Magnús- son er yfirsmiður leikmyndar. Mariur tvær, þ.e. Mariu i stræt- inu og Mariu 7 árum yngri leika systurnar Harpa og Guðrún Kolbeinsdætur og hina stúlkuna, önnu leikur Edda Aðalsteins- dóttir. Sigurður Scheving leikur Rónann og höfuðkempa Vest- mannaeyjaleikfélagsins, Unnur Guðjónsdóttir, leikur staðar- konu. Foreldra Mariu leika þau Halldór öskarsson og Jóhanna Jónsdóttir. Það er stefnt á frumsýninguna um páska og ég verö að viðurkenna að ég hlakka sjálfur mikið til að sjá verkið i útgáfu þessa hóps. -vh Mongóli gerðist geimfari A mánudaginn lenti I Sovét- ríkjunum geimfariö Sojus 39. Hann haföi fariö i um þaö bil hálfsmán. leiöangur tU geim- stöövartvistirnisins Saljút-6 og Sojus T-4, þar sem fyrir voru tveir sovéskir geimfarar og gekk feröin vel. Það sérstæöa við þetta ferðalag var einkum það, aö um borö i Sojus-39 vai mongólskur geimfari, sem heit- ir Zjúgderdemidjin Gúrragtsja Sovésk blöð leggja þungar áherslur á að Gúrragtsja sé af þjóö sem fyrir nokkrum áratug- um lifði við miðaldaskipulag, en i Mongóliu var fram á þriöja áratug aldarinnar lamaveldi skylt þvi sem stóð nokkru leng- ur i Tibet. Sjálfur er Gúrragtsja fæddur i hirðingjatjaldi og komst á hest- bak um svipað leyti og hann Dzannibekof og Gúrragtsja frá geimfara. læröi að ganga. Hann iauk við herflugskóla i Sovétrikjunum og hefur starfað sem verkfræðing- ur við mingólska flugsveit. Þrjú ár eru siðan hann hóf geimfara- þjálfun. Hann flaug með Sojus- 39 undir stjórn Vladimirs Dzjannibekofs, sem hefur oftar en einu sinni tekiö þátt i geim- flugi. Til marks um það hve mikil tiðindi þetta geimflug var Mongólum má nefna, að for- Mongóliu viö þjálfun I æfingastöö sætisráðherra landsins, her- málaráðherra og forseti Vis- indaakademiu Mongóliu fylgdu landa slnum til geimskips i Bækonúr i Kazakstan. Gúrr- agtsja er annar Asiubúinn I geimnum: hinn fyrsti var Viet- nami. Þeir Gúrragtsja og Dzjanni- bekof hafa þegar fengið Lenin- oröuna fyrir geimflugið, en það er hefð orðin i Sovétrikjunum. — áb. Eigirðutvö brauð, seldu þá annað og kauptu blóm. Hugsa sér þegar ég t verð verkfræöingur! Þá hanna ég stóra brú! Nei, ekki nóg með það! Ég verð frægur! AHir panta hjá mér vegi, r-----------:—r-1 verksmiðjur, undirgong

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.