Þjóðviljinn - 03.04.1981, Síða 6

Þjóðviljinn - 03.04.1981, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. april, 1981 Utanríkisráðherra staðfestir að Bandaríkjamenn vilja auka veru- lega olíubirgðarými sitt: Langarumræður voruá Alþingi i gær um hugmyndir um oliuhöfn og birgðastöð fyrir Bandarikja- heri Helguvik, en tilefni umræðn- anna var að nokkrir þingmenn Reykjaneskjördæmis hafa lagt fram tillögu um aö framkvæmd- um við þessa birgðastöð verði hraðað. Hugmynd um byggingu birgðastöðva i Helguvik kom Helguvik i sér aukningu birgða- rýmis Ur 111924 kúbikmetrum i 186000 kUbfkmetra. Miðað við aukningu á birgöarými fyrir flug- vélabensin þá væri aukningin 66%. Efhins vegar væri miðaö við heildarbirgðarými þá væri um að ræða aukningu upp á 36%. Utan- rikisráðherra sagðist telja að i umræðum um aukningu birgða- Um er að Séð til Keflavikur frá Helguvik ræða 66% aukningu Alþýðubandalagið leggur áherslu á að nauðsynlegar mengunarvamir megi ekki tefjast vegna hernaðar- framkvæmda fram sem lausn á þeirri mengun- arhættu sem nU stafar af oliu- tönkum Bandarikjahers i Kefla- vfk. Hins vegar hefur komið i ljós aö Bandarikjamenn viija auka verulega birgðarými sitt fyrir oliu samhliða flutningi á tönkun- um. Að sögn utanrikisráðherra óska þeir eftír 66% aukningu birgðarýmis. Tillaga áður- greindra þingmanna kom fyrst til umræðu fyrir áramót en var haldið áfram f gær. Verður hér nokkuð greinfrá þessari umræðu. Ólafur Jóhannesson utanrikis- ráðherra, tók fyrstur til máls og rakti fyrst þá umræðu sem orðið hefur um mengunarhættu af oliu- tönkum hersins og nauðsyn á úr- bótum. Siðan greindi hann frá óskum Bandarikjahers um aukn- ingu á birgðarými og hvert birgðarýmið væri núna. Kom þá m.a. eftirfarandi fram: Þegar litið er á allt eldsneytis- rými hersins þá er það eftirfar- andi a) 65183 kúbikmetrari Keflavik. b) 46741 kúbikmetrar i leigu- geymum i Hvalfiröi. c) 50874 kúbikmetrar i geymum NATO i Hvalfirði. d) 45787 kúbikmetrar I leigu- geymum flotans i Hvalfirði. Samtals gerir þvi núverandi heildargeymslurými 208585 kúbikmetra en það samsvarar 158524 tonnum. Ef reistir væru oliutankar í Helguvik samkvæmt óskum Bandarikjahers þá yröi heildar- birgðarými hersins eftirfarandi: a) 32000 kúbikmetrar á Kefla- vikurflugvelli. b) 154000 kúbikmetrar f Helgu- vik. c) 50874 kúbikmetrar i NATO- stöð i Hvalfirði. d) 45787 kúbikmetrar i leigðum geymum i Hvalfirði. Samtals gerir þetta 282661 kúbfkmetra. Utanrikisráðherra sagði að við byggingu tankanna i Helguvik yrði eftirfarandi tekið úr notkun eða lagt niður: 65183 kúbikmetra geymar i Keflavik og 46741 kúbikmetra geymar i Hvaifirði. Utanrikisráðherra sagði jafn- framt að ef aðeins væri litið á eidsneytisbirgðir fyrir stöðina i Keflavik þá fæli bygging tanka I rýmis væri eðlilegra að nota 66% sem viðmiöunartölu. Utanrikisráðherra sagði að þó hér væri ,bara’ um 66% aukningu birgðarýmis að ræöa er Banda- rikjamenn óskuðu eftir þá væri þetta engu að siöur veruleg aukn- ing. Hann sagði jafnfraiíit að hann hefði aldrei gefið yfir- lýsingu um að hann myndi fall- ast á þessa aukningu né aðra stækkun á birgðarými enda hefðu engar ákvarðanir ver- ið teknar um þetta mál, og ekki væri liklegt að slik ákvörðun yrði tekiná næstunni. Ráðgert er að á þessu ári fari fram jarðvegskönn- un á Helguvikursvæðinu og á næsta ári verði hönnun fram- kvæmd og þvi gæti ekki komið til framkvæmda fyrr en i fyrsta lagi árið 1983 og framkvæmdir myndu taka um 7 ár. Utanrikisráðherra sagði, að það væri hans skoðun að nauðsyn- legt væri að endurnýja núverandi oliutanka i Keflavik og byggja nýja tanka á öðrum stað. Utan- rikisráðherra minnti á eftirfar- andi rök fyrir flutningi geym- anna: a) Tankarnir væruilla staðsett- ir og væru nú alveg inni i byggð. b) Hætta á mengun vatnsbóla frá tönkunum. c) Tankarnir stæðu i vegi fyrir skipulagi byggðar. d) Um væri að ræöa ófullnægj- andi lendingaraöstöðu og sú leiðsla er lægi tíi geymanna frá höfn væri nokkuð óvarin. Fram kom hjá utanrikisráð- herra aö frá hans sjónarmiði virt- ust fyrirhugaðir tankar i Helgu- vik vera helst til of nærri byggð. Hann sagöist telja hæpið aö nýju geymarnir hefðu i för meö sér meiri árásarhættu en þeir gömlu, en hitt væri vissulega rétt að elds- neytisgeymarnir hijóti ætið að verða eftirsótt skotmörk i hernaði. Svavar Gcstsson félagsmála- ráðherra, tók næstur til máls og þakkaði utanrikisráðherra hinar tölulegu upplýsingar, og sagði að ekki hefðu áður komið fram opin- berar upplýsingar um núverandi geymslurými i samanburði við þingsjá framkvæmdaáform. Svavar sagði að af þessum tölum væri ljóst að gert væri ráð fyrir veru- legri aukningu geymslurýmis Bandarikjahers. Aukningin væri svo mikil að ástæða væri til að spyrja hvaða rök mæltu með þessari aukningu. Svavar sagði að ljóst væri að engin fram- kvæmdaáform væru fyrirhuguö á næstunni og þvi væri áðurgreind tillaga noklíurra þingmanna Reykjaneskjördæmis ótimabær. Svavar Gestsson sagöi að af- staða Alþýðubandalagsins I þessu máli væri skýr. Alþýðubandalag- ið væri reiöubúið meöan herinn væri hér að taka þátt i þvi að koma I veg fyrir þá mengunar- hættu er stafaði af oliubirgðum Bandarikjamanna. Alþýöu- bandalagið væri hins vegar ekki reiðubúið að fallast á að Banda- rikjaher yrði ieyft að framkvæma meiriháttar aukningu á geymslu- rým i fyrir eldsneyti, en slik fram- kvæmd væri i reynd hernaðar- framkvæmd. Alþýðubandalagiö vildi þvi skilja á milli mengunar- varna og hernaðarframkvæmda. Væri fengist við málið út frá sjón- armiði mengunarvarna þá ættí að vera hægt að leysa Helguvikur- málið þegar þaö kæmist á dag- skrá sem raunverulegt verkefni, en samkvæmt orðum utanrikis- ráðherra væri þetfa enn á könn- unarstigi. Stefán Jónsson sagði aö tryggja yrði að vatnsból Njarðvikinga og Keflvikinga væri verndað fyrir mengun og hefði fyrr mátt huga að þvi máli. Alls ekki mætti tef ja framkvæmdir i þessu skyni með þvi að tengja slíkt við byggingu birgðastöðvar og oliuhafnar. Stefán lagði áherslu á að núver- andi ollugeymar yrðu sem fyrst lagðir niöur og jarðvegurinn þar hreinsaöur,en tankarnir eru fyrir ofan vatnsból staðarins. ólafur Ragnar Grimssoni minnti á aö hann hefði þegar á Al- þingi 1978—79 lýst þvi yfir að nauðsynlegt væri að gripa til varna vegna mengunar frá oliu- geymum hersins og hefði hann átt verulegan þátt i þvi að Alþingi samþykkti i mai 1978 ályktun um könnun á mengunarhættu á svæð- inu. Það væri þvi alrangt sem sumir staðhæfðu að Alþýðu- bandalagsmenn væru á móti nauösynlegum ráðstöfunum til að fvrirbyggja mengunarhættu. Ólafur Ragnar lagði áherslu á að Alþýðubandalagið vildi ekki gera mengunarvarnir að neinni verslunarvöru við Bandarikja- menn, þannig að þeir fengju i staðinn rétt til aukinna hernaðar- umsvifa i landinu. Flutnings- menn áðurgreindrar tillögu virt- ust hins vegar vilja gera meng- unarvarnirnar að verslunarvöru með þvi að Bandaríkjamenn fengju i staðinn að stórauka elds- neytisbirgðir sinar. Athyglisvert væri að fyrirhugað væri að sér- stakur sjóður NATO greiddi þess- ar mengunarvarnir, sjóður sem eingöngu er notaður til að fjár- magna hernaðarframkvæmdir. Ólafur Ragnar sagði að stað- setning nýrra oliugeyma i Helgu- vík leystu i reynd ekki vandamál ibúa Keflavikur og Njarðvikur, þvi aðeins eðli vandans breyttist með flutningi geymanna til Helguvikur. t þessu sambandi benti hann á að það svæði I ná- grenni Helguvikur þar sem stað- setja á geymana er svæöi sem i gildandi aðalskipulagi Keflavik- urkaupstðar er ætlað sem aðal- byggingarsvæði staðarins á næstu árum. Þvi hafi ekki verið svarað hvaða svæði ættí að koma istað þess. Þá væru annmarkar á þvi að byggja framtiðaríbúðar- húsnæði á þvi svæði sem gömlu tankarnir eru nú, vegna þess hversu nálægt svæðið er flug- brautunum og mikill hávaði og óþægindi af flugvélum. Einnig lægi fyrir að leiðslur frá tönkun- um i Helguvik myndu liggja um kaupstaðarsvæðið og því yrðu menn ekki lausir við oliukerfiö úr byggðinni. ólafur sagði að Al- þýðubandalagið vildi þvi aðrar lausnir i þessu máli og myndi hann kynna þau sjónarmið og hugmyndir i þeirri þingnefnd er fengi tillöguna um Helguvik til meðferðar. Ólafur Ragnar lagði aö lokum áherslu á aö aukning eldsneytis- birgðarýmis sem og ákvarðanir um byggingu sprengjugeymslu á Keflavikurflugvelli og staðsetn- ingu AWACS-flugvéla sem teknar voru á siöustu mánuðum rikis- stjórnar Geirs Hallgrimssonar væri liður i.auknum hernaðarum- svifum Bandarikjamanna á Norður-Atlantshafi. Þessar að- gerðir stórykju árásarhættuna á landið I hugsanlegum átökum stórveldanna. Auk þeirra þingmanna sem nefndir hafa veriö, tóku eftirtald- ir þingmenn til máls og hvöttu til að hraöað yröi framkvæmdum við byggingu oliugeyma i Helgu- vik: Kjartan Jóhannsson, Geir Hallgrimsson, Jóhann Einvarðs- son, Magnús H. Magnússon, Karl Steinar Guðnason. Umræðu um máliö var ekki lokið er þetta var skrifað. —þ Frá Leigjenda- samtökunum: Telja óheimilt aö hœkka húsaleigu Af gefnu tilefni vilja Leig- jendasamtökin vekja athygli á eftirfarandi: 1) . Samkvæmt gildandi lögum um verðstöðvun (lög um kjaramál) er óheimilt að hækka húsaleigu. 2) . Samkvæmt þessum lögum er óheimilt að hækka húsaleigu i samræmi við hækkun visitölu húsnæðis- kostnaðar frá 1. janúar og 1. april s.l. 3) . Verðstöðvun þessi gild- ir fram til 1. mai næstkom- andi. 4) . Hafileigusalar hækkað húsaleigu 1. april s.l. verður að litaá það sem grátt april- gaman. (fréttatilkynning). Menntamála- ráðherra:________ Vill sam- komulag um Keldna- landið Viðræðunefnd skipuð i borgarráði Menntamálaráðherra hefur skrifað borgarráði og óskað eftir þvi að gerö verði tilraun til að ná samkomu- lagi um Keldnaland og sam- þvkkti borgarráð i gær að skipa nefnd þriggja borgar- ráðsmanna til viöræðna um þau mál. Eins og komið hefur fram i tengslum við umræður um aýju aðalskipulagstillöguna hafði aldrei náöst samkomu- lag viö Keldur um þá af- mörkun byggingasvæöa sem eldra aðalskipulagið (frá 1977) gerði ráð fyrir. Hluti byggöarinnar og sá hluti hennar sem byrja átti að byggja á var inni á landi Keldna i fullkominni óþökk þeirra sem þar ráða rikjum, Háskólans og menntamála- ráðuneytisins. Var þetta ein ástæða þess að ráðist var I endurskoðun skipulagsins. Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins hafa neitað að viöurkenna þessa annmarka á gömlu tillögunni og telja þeir rétt að taka landið eignarnámi en til þess þarf sem kunnugt er heimild frá rikinu. A þeirri skipulagstillögu sem nú hefur verið lögð fram er Keldnaland afmarkaö i samráði við forráöamenn Keldna en formlegt sam- komulag hefur ékki verið gert milli rlkis og borgar þar um. —AI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.