Þjóðviljinn - 04.04.1981, Side 3
Hclgin 4.-5. april 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIBA 3
J
ÓIi Vestmann Einarsson yfirkennari bókageröardeildar Iönskólans IReykjavik fyrir framan hina nýju
og fullkomnu setningartölvu. (Ljósm. —gel —)
Með því fullkomn-
asta sem til er
BókagerðardeiIdin í Iðn-
skólanum í Reykjavík hef-
ur nú f engið setningartölvu
af Linotype- gerð með um
brotsskermi/ og er þetta
tæki með því fullkomnasta
sem til er í þessari grein.
Segja má að möguleikar
þessarar tölvu í setningu
séu nær ótakmarkaðir.
Framfarir í örtölvutækni
hafa orðið gifurlegar á
bókagerðarsviðinu nú allra
síðustu ár og haf a þær ver-
ið svo hraðar að það sem
taldist nýjast og best í gær
er orðið úrelt í dag. Fáar
starfsgreinar, ef nokkrar
hafa orðið eins fyrir barð-
inu á örtölvutækninni hin
síðari ár, í atvinnulegu til-
liti, og prentverkið.
Prentdeildin er elsta verk-
námsdeild Iðnskólans i Reykja-
vik og þar sem þessi tölvutækni i
prentverki hefur rutt sér mjög til
riims hér á landi, er nauðsynlegt
fyrirdeildina að eiga tæki af full-
komnustu gerð til kennslu. Segja
má að bókargerðardeildin i Iðn-
skólanum í Reykjavik sé vel búin
tækjum, enda nauðsynlegt þar
sem rai er hægt að ljúka námi i
bókbandi og prentun i skólanum
án þess að gera námssamning við
meistara.
Of f kikið mál yrði að útskýra þá
möguleika, sem þessi nýja tölva
býður uppá,og ef til vill aðeins
fyrir fagmenn að skilja það, en
fullyrða má að hún valdi einni af
mörgum byltingum á sviði setn-
ingar nú hin allra siðustu ár. Að
minnsta kostiein prentsmiðja hér
á landi hefur fengið tölvu af sömu
gerð og til eru svipaðar tölvur
viðar, þótt þær séu ef til vill ekki
alveg eins fullkomnar.
—S.dór.
Tónlistarskóla
Kópavogs
V ornámskeið
fyrir 6 og 7 ára börn hefst mánudaginn 27.
april og lýkur fimmtudaginn 14. mai.
Tekið verður á móti umsóknum til 8. april
á skrifstofu skólans, Hamraborg 11, 2.
hæð, kl. 10—11 f. hádegi.
Skólastjóri.
Skrifstofumaður
Starf skrifstofumanns hjá Hveragerðis-
hreppi er laust til umsóknar. Aðalverk-
efni: Vélritun, simavarsla og almenn af-
greiðsla.
Upplýsingar á skrifstofu hreppsins, simi
99-4150.
Umsóknarfrestur er til 10. april.
Sveitarstjóri Hveragerðishrepps.
,, Vegna fjarveru sendiherrans í opin-
berum erindum svo og páskanna,
verður þjóðhátíðardagur Danmerkur
ekki haldinn hátíðlegur að þessu sinni
á afmcelisdegi drottningarinnar,
en í þess stað daginn fyrir
Grundlovsdaginn, eða 4. júni 1981”
KGL. DANSK AMBASSADE
Reykjavik, den 1. april 1981
í Búlgariu bjóðurn við upp á eitt glæsilegasta hótel i Evrópu — Grand Hótel Varna.
Almennt viðurkennt af þeim, sem gist hafa þar, sem það besta. Á Hótelinu eru auk
rúmgóðra herbergja og „svita”, þrir veitingastaðir, Cafe-teria, þrir barir,
næturklúbbur, heilsuræktarstöð, bowling, billard, coreconbúðir og úti- og
inni-sundlaugar, góð baðströnd og Sauna.
Allt á sama stað.
Auk þess bjóðum við fjögur 1. flokks hótel á sólarströndinni, öli með baði,
WC og svölum.
Ein stærsta baðströnd Evrópu.
Við fljúgum i áætlunarflugi Flugleiða til Kaupmannahafnar og strax á eftir með þotum
Balkanairlines til Sofiu.
Þar bjóðum við upp á vikuferð frá Sofiu til llilaklausturs, Plovdiv
Gabrovov, Velikov, Turnevo og Varna. 7 daga ferð 1. flokks hótel fullt fæði.
Á baðströndunum bjóðum við 1-2-3 vikur og 4 vikur, ef ekki er farið i viku-
ferðina.
Vinsælt matarmiðakerfi, eins og peningur i vasa. Þú borðar hvar sem er,
hvenær sem er og hvað mikið sem þú vilt.
50% uppbót á erlendan gjaldeyri, ef skipt er á hótelum.
Iðandi baðstrandarlif, en einnig fjöldi tækifæra til að fara i skoðunarferðir
um landið og á Iystiskipum er tveggja daga ferð til Istanbul og þriggja daga
ferð til Yalta — Istanbul og Odessa — Yalta. Skipsferðir greiðast hér
heima.
Flogið alla mánudaga frá 25. mai-14. sept.
Hægt að stoppa i Kaupmannahöfn i bakaleið.
Sumarferðir eru að fyllast.
Bókið strax.
Ekki missir sá sem fyrstur fær.
ódýrasta og ein besta orlofsferð, sem völ er á hér á landi.
Spyrjið þá sem hafa farið íslenskir fararstjórar
i Búlgariu,
i Sofiu
og á
ströndinni
€SÞ
Ferðaskrifstofa
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoóavog 44-104 Reykjavik - Simi 86255.