Þjóðviljinn - 04.04.1981, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 04.04.1981, Blaðsíða 18
\ ) i ÞJÓÐVÍLJINN — SIÐA 18 Helgin 4.— 5. april 1981. Hvað tekur við? Framhald af 17. siöu. af ungum konum, sem tilheyrði róttækum kvennasamtökum, samankominn i Greenwich Village og þær voru drepnar er húsiö, sem þær voru i, sprakk i loft upp. Yfirvöld gáfu þá skýr- ingu að þær hefðu verið aö eiga við heimatilbúnar sprengjur sem hefðu sprungið i höndunum á þeim. Kannski er skýringin rétt, hver veit? Ég veit hins vegar að þegar lög- reglan var aö leita aö Patty Hearst lágu kvennasamtök, sem nefna sig SLA, undir grun og var gerð árás á húsið sem þessar kon- ur héldu til i. Svo mörgum skotum var skotið að þvi,að ekki var eftir af þvi tangur né tetur. Þarna var slikur ótti og hatur á ferðinni að ekki er hægt að likja þvi við neitt annað i Bandarikjunum nema ef vera skyldi óttinn og hatriö við svertingjahreyfinguna. En hræðslan við byltingarkonurnar er öllu sterkari. Jafnvel i meinlausustu kvennahreyfingum eru útsendarar frá FBI. — Þegar ég les bækur þinar fæ ég þá hræðilegu tilfinningu að þeir séu með samsæri gegn okk- ur. Ég verö að viðurkenna að eftir að hafa lesið „Kvennaklósettið” oft, stend ég mig stundum að þvl að lita á menn sem viröast vel meinandi út á við frá sjónarhorn- inu ,,þú-ert-einn-af-þeim Kannski eru samt andstæðurnar greinilegri í bandarisku sam- félagi þar sem konum er afdráttarlausara beint inn i glanspikulegt eiginkonu-móöur- hlutverk en hér? — Já, sérstaklega I efri miðstétt. En einnig i Skandi- naviu, þar sem sambandiö milli kvenna og karla er kannski orðið i mestu jafnvægi i heiminum, er það áfram svo að konan ber ábyrgð á barni og heimili þótt hún vinni úti Þær halda áfram i þræls- hlutverkinu. Vinna utan heimilis gerir konur að visu sjálfstæðari, en við verðum enn að biða eftir næsta skrefi þegar karlmenn verða ábyrgir fyrir börnum sin- um. En ég á eftir að svara spurn- ingu þinni um „þá gegn okkur”. Það er hverju orði sannara. Frá þvi aö sögur hófust fyrir 3000 ár- um hafa konur verið valdbeittar, hataöar og verið litið niöur á þær. Þetta er rauði þráðurinn alveg frá Bibliunni og til þeirra Millers og Hemingways á 20. öld. Það er með öðrum orðum alveg yfir- gnæfandi sterk hefð fyrir fyrir- litningu, hatri og ótta við konur, hefð sem speglast jafnt i löggjöf sem bókmenntum. Þegar karl- menn græða á gamalgrónum formum sem stuðla að kúgun konunnar eru þeir að græða á sjálfri kúguninni jafnvel þó að þeir ætli sér það ekki. Ungir menn eru eins og hvitir menn sem segja vegna kynþátta- vandamálsins: „Er ég ábyrgur fyrir þvi sem gerðist árið 1820?” En ef við græðum á kúgun svartra manna erum við ábyrg. Ef við græðum á undirborguðu vinnuafli erum við lika ábyrg. En fæstir eru viljugir til að samþykkja þetta. Þeir segjast sjálfir ekki gera neitt soddan lag- að og þvi ekki hægt að ákæra þá. En þeir gleyma þvi að þeir hagn- ast á kerfinu. Jafnvel þó að ávinningur þeirra sé ekki annar en sá að þeir eigi móöur eða eiginkonu, sem gætir þeirra, taka þeir þátt i „samsærinu mikla” eins og þú segir.' — Og það sem heldur lifinu i þessu samsæri er það að menn sem láta börn sin og fjölskyldu ekki ganga fyrir geta einmitt not- að timann til að komast áfram i viðskiptalifinu eða alveg eins inn- an verkalýöshreyfingarinnar. Alþýðusambandið, sem er mjög öflug pólitisk hreyfing i Noregi, er einokað af karlmönnum, sem geta skiliö konu og börn eftir heima neðan þeir sjálfir fara á námskeið og fundi um helgar. Þaö eru toppmennirnir sem þurfa mest á eiginkonu að halda, sem ávallt er reiöubúin, svo að þeir geti átt sér friðsælt heimili sem athvarf þegar þeim hentar. — Þú veist að það sem hamlar konur mest er að þær eiga ekki konu. Vestu mennirnir eru þeir, sem hafa völdin, þvi að þeir hafa ekki þá mannúðlegu reynslu sem felst i þvi aö gæta barna. Getur þú t.d. hugsað þér mann sem gætir barns sins hálfa vikuna og vinnur svo við framleiðslu kjarnorku- sprengju i hlutastarfi. E.t.v. gæti hann þaðken ég trúi þvi þó varla. — Og svo að lokum. Hver er framtiðarsýnin? — Við lifum á timum sem er spennandi að lifa og spennandi að vera kona. Konur verða ekki bara að taka eigin framtið i sinar hendur heldur framtið alls mannkynsins. Ég held að við sé- um að lifa endalok þess sem kall- ast hin hefðbundna vestræna gyðinglega og kristna menning, menning sem byggst hefur á föðurveldi, kirkjuveldi og öliu þvi sem við þekkjum svo vel. Við verðum bókstaflega að byggja upp nýtt samfélag. Heimurinn á 21. öld verður allt öðru visi en sá sem við nú þekkjum. Fyrst og fremst verður hann byggður á nýrri tækni sem gerir lifs- baráttuna léttari. Viö höfum meira vald yfir náttúrunni, yfir eigin lifi en við höfum nokkurn tima haft áöur sem kynþáttur. Biblian hefur verið bók okkar i 3000 ár, við þurfum nýja bók. Grundvallarhugtök hins vestræna heims eru sum hver ekki brúkleg fyrir mörg okkar og ef viö höldum áfram að endurtaka þau er það vegna einhvers konar örvænt- ingar eða neyðar. Við höfum ábyrgðina og það eru mikil for- réttindi að geta beitt heila okkar, sál og tilfinningum til að finna það út hvað skiptir okkur mestu máli sem fólk. Við getum sent menn til tunglsins en við skiljum ekki okkar eigin kynferöi. Við skiljum ekki tilfinningar okkar og skiljum ekki hvernig barnið lærir. Við reynum, en það er erfitt, og við erum mjög takmörkuð. Ég tel að við eigum möguleika á að byggja heim sem er meira i okkar eigin stil en einhvers imyndaðs guðs. — Ný Biblia og nýtt samfélag er ekki bara ógnvekjandi fyrir karlmenn. Hér erum viö komnar að þvi sem við töluðum um áðan, menningarlegum viðmiðunum. Mörgum konum hrýs hugur við feminismanum vegna þess að missir hinnar hefðbundnu rómantisku ástar með sin hefðbundnu markmið skilur eftir tómarúm sem verður að eins kon- ar örvæntingu. — Hversu margar konur hafa reynt hina rómantisku ást? Þú hefur bernskureynslu og táninga- reynslu. Ef þú ert heppin giftir þú þig manni sem þú ert rómantiskt ástfangin i, en hversu lengi? Flestir fá aldrei að reyna rómantiska ást, a.m.k. ekki sem Skoðið glæsilega ARISTON Með Ariston gæði og Ariston útlit verður valið auðvelt á Ariston þvottavélinni. Sparnaður: hún tekur inn heitt og kalt vatn, eða ein- göngu kalt sem gerir mögulegt að leggja í bleyti við- kvæmt tau við rétt hitastig. Annað for kerfi fyrir suðu- þvott, mikil stytting á vinnutíma. þvottavél St.verð kr. 6.798.- Afb.verð kr. 7.147.- RAFIÐJAN H.F. Kirkjustræti 8 Sími: 19294 A: Sérstakur sparnaðar- rofi (tvær vatnshæöir fyrir3eða5k[ió). Vindurá milli skolana. B: C: Verzlið við fagmenn Viðgerðar- og varahluta- þjónusta Smiðjuvegi 10 Kópavogi Sími: 76611 Er með þrem sápu- hólfum (þvottaefni má setja í öll hólfin í upphafi þvottar ásamt mýkingarefni). Stöðva má vélina þótt hún sé í miðju þvottakerfi með þvl að ýta á valrofann, hægt er að láta hana byrja aftur á sama stað án þess að rugla kerfið. E: Sérstakt kerfi fyrir — ullarfatnað. G: Þvottakerfi eru 15 og vinduhraði 600 snún- ingar á mínútu. H: Barnalæsing er á hurð og valrofi er líka meó öryggisbúnaöi gagnvart börnum. F: Ljósmerki kemur meðan vélin er í gangi og annað Ijós þegar hún hitar vatniö. eitthvað varanlegt. Rómantisk ást kemur og fer. Ef þú vilt umfram allt rómantik, skalt þú ekki gifta þig, þá ert þú a.m.k. opin fyrir þeim möguleikum sem hin rómantiska ást krefst. — Já, er ekki rómantikin skelf- ir hjónabandsins? — Kannski við ættum að finna okkur nýja rómantiska hugmynd. Allt er á fleygiferð og það sem gerðist á 7. áratugnum var skref I rétta átt. Ungt fólk fer saman i hópum og er ekki nauðsynlega parað, eldra tekur það Ibúð á leigu og býr saman. Þarna myndast form fyrir allar tegundir vinskapar án þess að hjónabandið sé með i spilinu. Hjónaband þýðir að vera út af fyrir sig. Við þörfn- umst vináttu, sérstaklega meðal kvenna. — Hafa konur ekki oft flúið i hjónaband af þvi að heimurinn gagnvart einstaklingnum er svo grimmur? Einsömul kona er óvernduð. — Það er varla svo slæmt hér i Skandinavinen i Bandarikjunum, svo sem á Spáni, Frakklandi og ttaliu svo að dæmi séu tekia er einsömul kona hlutur sem allir hafa rétt til að vera á veiðum eftir. Karlmenn horfa á þig á götunni eins og þú sért sýningar- gripur. Þetta er fremur afleiðing hefðar og menningar heldur en kynferöis. Þetta er aðferð til að niðurlægja konu og er hræðilegt vandamál fyrir konur, vandamál sem ég get ekki sé fljótfundna lausn á. — t Noregi og einnig vist i Bandarikjunum eru að byrja svo kallaðir karlahópar. En þeir verða að fara sér hægt og gæti- lega þvi að orðstir þeirra er i veði og miklir erfiöleikar... — Ég held að karlmenn verði fyrst og fremst að vera yngri þegar þeir mynda slika hópa. Flestir, sem nú eru i þeim, eru einhvers staðar i kringum 35 ára gamlir og það er of seint. Frá unga aldri læra strákar ekki að tjá tilfinningar sinar heldur bæla þær. Þú grætur ekki, sýgur ekki þumalinn, situr ekki i fangi eftir vissan aldur og þú mátt ekki klaga, bara að taka öllu sem karl- maður. Karlmaður verður að gera þaö sem karlmaður á að gera. Um tvítugsaldur eiga þeir þegar erfitt með að opna sig og 30 ára eru þeir frosnir. — Eina tilfinningin sem þeir mega liklega tjá er ofbeldis- hneigöin? — Já, það er leyft. Og hjarta- áfall, að sjálfsögöu. (GFr þýddi) v^rmir, jAfgreiðum teinangrunar nlast a Stór 'Reykjavikur< Isvœðið frá Imánudegi föstudags. Afhendum vöruna á byggingarst viðskipta jmönnum að' 'kostnaðar lausu. jHagkvœmt og greiðsluskil »málar við flestra hœfi. einangrunai ^^■plastið fmmlciðslirvörur I pipueinangrun iog skrufbútar I orgarplast | h f Borgarneii I nmi93 nro kvöld og helganimi 93 7355 Pípulagnir Nýlagnir, breyting- ar, hitaveituteng- ingar. Sími 36929 (milli kl. 12 og l ogeftir kl. 7 á . kvöldin).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.