Þjóðviljinn - 04.04.1981, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 04.04.1981, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Hélgin 4,— 5. april 1981. ritstjornargrein úr aimanakínu 9 miljarða skattalækkun O Á fimmtudaginn var lagt fram á Alþingi stjórnar- frumvarp um breytingar á skattalögum. Samkvæmt ákvæðum þess verða almennir tekjuskattar til ríkisins lækkaðir um 9 miljarða gamalla króna (90 miljónir nýkróna) frá því sem orðið hefði, ef þessir skattar breyttust milli ára í hlutfalli við tekjur O Auk þessara almennu skattalækkana gerir frum- varpið ráð fyrir nokkurri tekjuskattslækkun vegna niðurfellingar 59. greinar skattalaga um reiknuð laun at- vinnurekenda, en á móti því tekjutapi ríkissjóðs er hins vegar reiknað með tekjuaukningu hjá ríkissjóði vegna ákvæðis í frumvarpinu um breytingará f yrningareglum skattalaga. O Þegar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar voru ákveðnar um síðustu áramót var þvf lýst yfir að fólki með meðaltekjur og lægri yrði tryggð skattalækkun sem svaraði ekki minna en 1,5% í kaupi. UOWIUINN Málgagn sósfalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjódfrelsis (Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson. Auglýsingastjóri: Þorgeir Ölafsson. Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guðjón Friðriksson. Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson Blaöamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son. Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttaritari: Þorsteinn MagnUsson. Ctlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir. Skrifstofa: GuðrUn Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Siguröardóttir. Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Bflstjóri: SigrUn Bárðardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Ctkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumóia 6, Heykjavik, simi 8 13 33. Prentun: Blaðaprent hf.. O Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar áttu síðan viðræður við f jármálaráðherra um þetta mál, og tókst fullt samkomulag um tilhögun þeirrar sérstöku skatta- lækkunar. Hvað varðar þá skattalækkun munar lang- mest um niðurfellingu sjúkratryggingagjalds á öllum tekjum síðasta árs innan við 6.750.000,- g.kr. — En auk þess kemur þarna til hækkun persónuafsláttar í 761.000,- g.kr. og nokkur hækkun þeirrar tekjuupphæðar, sem lendir í lægsta skattþrepi. O Vegna þess lágtekjufólks sem enga tekjuskatta greiðir er i frumvarpinu að finna ákvæði um að nýta megi persónuafslátt til greiðslu á eignarskatti, og er þetta nýmæli ætlað til að bæta hag þess lágtekjufólks sem býr í skuldlitlu eigin húsnæði. Athugun sýnir, að 75% þeirra, sem njóta mundu þessa ákvæðis eru elli- og örorkulífeyrisþegar. O Eitt merkasta ákvæði frumvarpsins varðar hags- muni þeirra sem búa í leiguhúsnæði. Hingað til hefur húsaleiga ekki verið frádráttarbær til skatts, en vaxta- frádráttur vegna íbúðakaupa eða bygginga hins vegar verið verulegur hjá mörgum þeirra sem búa í eigin hús- næði. Hér hef ur þvi verið um mismunun að ræða. I nýja skattaf rumvarpinu er nú lagt til að helmingur greiddrar húsaleigu verði frádráttarbær til skatts, og komi það ákvæði til framkvæmda við álagningu á árinu 1982 og varðar þá húsaleigugreiðslur á yfirstandandi ári. O í frumvarpinu eru ákvæði um sérstakar ívilnanir í þágu einstæðra foreldra. Sem kunnugt er var lágmarks- frádráttur einhleypinga og einstæðra foreldra 550.000,- g.kr. á síðasta ári, enda þótt 10% af tekjum þeirra árið áður næmi lægri upphaeð. Nú er þessi lágmarksfrá- dráttur, sem ekki er háður hlutfalli af tekjum, hækkaður samkvæmt frumvarpinu í nær 800.000,- g.kr. hjá einhleypingum, en um 75% þar til viðbótar hjá ein- stæðum foreldrum og verður hjá þeim um 1.400.000,- g.kr. Taliðer að þessi sérstaka 75% hækkun á lágmarks- frádrætti hjá einstæðum foreldrum kosti ríkissjóð um 600 miljónir g.kr. á þessu ári, og í frumvarpinu er nú kveðið á um að upphæðir þessa lágmarksf rádráttar ein- hleypinga og einstæðra foreldra skuli hér eftir hækka í samræmi við skattvísitölu og er það nýmæli. • Hér verður ekki gerð grein fyrir öllum þeim ákvæðum skattaf rumvarpsins sem máli skipta, en aug- Ijóst er að með f lutníngi þess hef ur ríkisstjórnin f yllilega staðið við það loforð, sem verkalýðshreyfingunni var gefið um áramót og varðaði skattamálin. • Hér skal að lokum vakin athygli á ákvæði í frum- varpinu um niðurfellingu þeirrar lagagreinar er veitti heimild til að áætla laun á atvinnurekendur, en þessi lagaákvæði bitnuðu á siðasta ári mjög harkalega á f jöl- mörgum einyrkjum, ekki síst bændum. Auðvitað á það ekki að geta átt sér stað, að lagðir séu skattar á tekjur^ sem bæði skattstjóri og viðkomandi framteljandi eru * sammála um að aldrei haf i orðið til, eins og Ragnar Arn- alds f jármálaráðherra benti á í viðtali sem birtist hér í blaðinu um síðustu helgi. Þess vegna ver nú lagt til að þessi lagagrein falli niður. Af þeim um 3000 einstakling- um sem í reynd guldu hennar á síðasta ári voru nær 2000 bændur. Klöpp og Klapparvör I Skuggahverfi (nú bensinstöðin KIöpp viö Skúlagötu). Ömefnin í Reykjavík „Eigum við að skreppa niður á Klambratún?” spurði ég dóttur mina s.l. sunnudag i hlákunni miklu sem þá var. Hún var til i það og þegar við komum niður á túnið tók hún á sprett eins og litið lamb og ég horfði á eftirhenni. Svo datt hún beint á magann og varð öll rennandi blaut og fór að háskæla. Hún er bara tveggja ára. Dóttir min, sem verður rúm- lega tvitug um næstu aldamót, venst við að segja Klambratún eins og Reykvikingar hafa gert siðan býlið Klambrar var reist þarna i mýrinni. Það er að visu horfið fyrir mörgum árum og i staðinn kominn vel skipulagður skrúðgarður. Opinber tilskipun var gefin út að Klambratún skyldi heita Miklatún og nafnið Klambratún þurrkað út. Svei- attan. Klambratún skal það samt heita. Og ávallt skal ég nefna túnið svo við börnin min. Eg er nefnilega ihaldssamur á örnefni og vil láta bæi heita Glóru, Rass og Látalæti en ekki skira þá upp Fagrahvamm, Birkilund eða eitthvað annað álika fordildarlegt. ömefnum i Reykjavik er ðsköp litill sómi sýndur af yfir- völdum og yfirleitt flestu þvi sem varðar sögu og þróun borgarinnar. Að visu er nú stór- aukinn skilningur og áhugi á gömlum húsum en hver lætur sigskipta minjar t.d. um forna sjósókn frá Reykjavik eða búskap á borgarlandinu. Hvaö ert.d. orðið eftir af öllum gömlu le n d i n ga r v ö r u n u m og uppsátursstöðunum?. Það er búið að kaffæra þetta allt meira eða minna með þykku lagi af mold og grjóti. Or Vesturbænum var mikiö útræði öldum saman, sennilega allt frá dögum Ingólfs Arnar- sonar. Gömlu formennirnir og hásetarnir, sem margir hverjir þóttu æriö garpslegir, settu svip sinn á Vesturbæinn allt f ram til aldamóta og elstu menn geta talið upp einar 10 lendingarvarir og uppsátursstaði á Vestur- bæjarsvæðinu. Þeir voru Grófin (sbr. götunafnið), Steinhúsvör (i geil milli tveggja klappabelta fyrir neðan núverandi Norður- stlg), Hliðarhúsvör (frá vestur- hluta Hamarshússins að Ægis- götu) Bakkavör (frá örfiris- eyjargranda að austurjaðri Bakkastigs), Garöhúsvör (niðurundan Garðhúsabænum. nú Bakkastig 9), Ánanaustsvör Litla-Selsvör (i fjörunni við enda Vesturgötu), Miðsels- og Oddgei rsbæjarvör (nokkru sunnar en Litla-Selsvörin), Stóra-Selsvör (við endann á Hringbraut) og Grandabót (i krikanum milli Bráðræðisholts og Eiðsgranda). Flestar þessara vara eru löngu horfnar. en siðast var ein sú merkasta og elsta, Stóra - Selsvör, fyllt með mold og grjóti fyrir aðeins fáum árum. Sömu sögu er að segja um varirnar i Austurbænum. Búið er að eyðileggja þær allar. Þar voru Naustin, Sölvhólsvör, Klapparvör, Móakotsvör, Byggðarendavör og Frosta- staðavör. Gömlu götunöfnin i Reykjavlk fela mörg i sér langa og mikla Guðjón Friðriksson skrifar sögu. Seljavegur i Vestur- bænum ert.d. kennd við Selin en af þeim bæjum var róið frá Sels- vörum. Reyndar eru sumir af Seijabæjunum uppistandandi,en þeir munu hafa verið fimm. Elstur er Sel sem siðar var kallað Stóra-Sel og á uppruna sinn langt aftur I öldum og var m.a.s. prestssetur uVn Hrið. Þar er nú steinbær frá 'siðustu öld sem kúrir bak við húsin við Holtsgötu 41 eða þar um bi. Miö- sel er merkilegur gamall bær sem stóð við Seljaveg 19 en var rifinn fyrir örfáum árum. Litla-Sel, Jórunnarsel og ívars- sel standa enn. ( Fæstir velta fyrir sér hvað liggur á'bak við götunöfn. Af hverju heitir t.d. Bræðra- borgarstlgur svo? Hann dregur nafn sitt af fyrsta steinhúsinu ' sem reist var þar vestur frá og var kallað Bræðraborg vegna þess aö það reistu bræðurnir Bjarni og Sigurður frá Hæðar- enda I Grímsnesi. Þetta hús stendur ennþá og er nr. 14 viö Bræðraborgarstig, næst fyrir norðan Bókaforlagið Iðunni, ákaflega traustlegt hús með þykkum veggjum. Og af hverju heitir Vitastigur svo? Hann er kenndur við i nnsigl ingarvita sem eitt sinn var i Skuggahverf- inu beint andspænis Bjarna- borg. Til eru ljósmyndir af vita þessum. Borgin er reyndar öll morandi af örnefnum. Sjálfur er ég alinn upp við Barónsstig beint á móti Vörðuskóla sem svo heitir nú, Þegar við krakkarnir ætluðum að fara að leika okkur fórum vð ýmist „upp i Holt” eða „niður á Flöt”. Hið fyrrnefnda táknaði að fara upp i Skólavörðuholtið en hið siðarnefnda á svæðið þar sem nú stendur Heilsuverndar- stöð, Domus Medica og fleiri mannvirki. Og meðal annarra orða. Hvernig stendur á hinu dular- fulla nafni Barónsstígs? Þannig stendur á þvi að franskur barón gerðist bóndi uppi á Islandi og var jafnan nefndur hér Barón- inn á Hvitárvöllum. Hann lét árið 1899 reisa afarstórt fjós skammt frá sjónum fyrir neðan Rauðarárland.Var það nefnt Barónsfjósið og stendur reyndar enn; þar eru nú húsa- kynni Rafmagnsveitu Reykja- vikur (á horni Barónsstigs og Hverfisgötu). Árið 1903 var ákveðin gata þarna upp úr og hún kennd við baróninn af þvi að fjós hans stóð þar við. Frakkar koma reyndar meira við sögu i borginni þvi að einn stigur er við þá kenndur, Frakkastigur. Það stafar af þvi að Frakkar reistu spitala fyrir sjómenn sina við sjóinn innar- lega i Skuggahverfi. Hann stendur enn meðst við Frakka- stig og hýsir nú Tónmenntaskól- ann. Þannig mættilengi telja. Þaö væru mikil helgispjöll að fara að breyta gömlum götunöfnum, en hlúa mætti betur aö öðrum sögulegum minjum i bænum. Ég vil að lokum taka undir þau sjónarmiö Hrafns Gunnlaugs- sonar að flytja beri gömlu húsin i Arbæ aftur niður i miðbæ þar sem þau eiga heima og þar sem þau koma að mun betri notum heldur en nú er. Ef Dillonshús stæði t.d. enn á horni Suöurgötu og TUngötu væri þaö vinsælasta og mestsótta kaffihús bæjarins. Uppbygging borgarinnar verður að haldast i hendur við alúö til þess sem fyrir er; annars veröur hún óskapnaður.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.