Þjóðviljinn - 14.04.1981, Blaðsíða 7
Þriöjudagur 14. april 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Þrýstingur á
AUisuisse
í Ástralíu
Hér fer á eftir grein sú um
skattamál dótturfyrirtækis
Alusuisse i Astraliu, sem
greint er frá á forsiöu Þjóö-
viljans I dag.
Greinin birtist I fagtima-
ritinu Metal Builetin þann 24.
mars s.I. og bar yfirskriftina:
Alusuisse faces Australian
pressure.
Til skýringar skal tekið
fram aö Swiss Aluminium
Australia (lika nefnt Austra-
swiss) er dótturfyrirtæki Alu-
suisse og fæst við báxit-
vinnslu og súrálsframleiöslu i
Astralíu, — aö hluta til i sam-
vinnu viö þarlenda aðila.
I lok greinarinnar I Metal
Bulletin er stuttlega minnt á
deilu Islenskra stjórnvalda við
Alusuisse nú. Millifyrirsagnir
eru Þjóðviljans, en gefum
Metal Bulletin orðiö:
Frá þvi er skýrt i grein
Australian Financial Review
að dótturfélag Alusuisse,
Swiss Aluminium Australia,
hafi greitt „óverulega fjárhæð
i skatt” árin 1972—1979 þrátt
fyrir að hagnaður af við-
skiptum á timabilinu nam
122.7 milljónum ástralskra
dala.
Málin ekki skýrð
Blaðið vitnar I ársskýrsu
Austraswiss 1979 og segir að
félagiö hafi átt viðræöur við
áströlsku skattstrfuna varð-
andi skattastöðu slna „til að
skýra hvaða kaflar tekju-
skattslaganna eigi réttilega
viðum Austraswiss og þá sér-
staklega i sambandi við sam-
eiginlegar framkvæmdir i
Gove”.
1 skýrslu Alusuisse
sagði að „staðan hefði ekki
verið skýrð”, en aö fyrirtækið
„væri ekki skuldbundiö til að
greiða skatt núna vegna upp-
safnaðs taps fyrri ára og fra-
dráttar samkvæmt námu-
vinnsluákvæöum tekjuskatts-
laganna”.
Blaðið sagði að Austraswiss
L.
Samsæti
eldri
Barö-
strendinga
Barðstrendingafélagið i
Reykjavik hefur haldið fólki, sem
ættað er Ur Barðastrandasýslum
eða hefur haft þar langa búsetu,
sem náð hefur 60 ára aldri, sam-
sæti á skirdag, undanfarin 35 ár.
bessi samkoma verður i Domus
Medica á skirdag. Guörún
Tómasdóttirmun syngja og fleira
verður á dagskrá. HUsiö verður
opnað kl. 2.
Kvennadeild Barðstrendinga-
félagsins, sem hefur veg og vanda
af þessum samkomum, veitir
kaffí og kræsingar.
Vonast er til að sem allra flestir
eldri Barðstrendingar sjái sér
fært að koma og njóta dagsins.
Málverka-
sýning á
Húsavík
Ingvar Þorvaldsson opnar mál-
verkasýningu i SafnahUsinu á
HUsavik fimmtudaginn 16. april
kl. 16. A sýningunni eru 40 vatns-
litamyndir. Sýningin er opin dag-
lega kl. 16—22 og henni lýkur ann-
an páskadag.
heföi bakað sér miklar af-
skriftir og vaxtagjöld, sem
fyrirtækið hefði fært á móti
talsverðum hluta ágóða af við-
skiptum sfnum. Arangurinn
væri sá að þótt fyrirtækið hefði
hagnast um 19.18 milljón dali
árið 1979 hefði skattskyldur
nettóhagnaður þess ekki
numið nema 1.99 milljón
dölum og hefði það aðeins
greitt 2.000 dali I skatt.
Alusuisse i Ziirich gat ekki
tjáð sig um neinar viðræöur
við áströlsku skattyfirvöldin,
en vissi ekki um neitt vanda-
mál. Alusuisse vitnaði i reikn-
inga Austraswiss og sagði að
félagið hefði eytt miklum fjár-
munum I framkvæmdir og að
194.87 milljón dalir væru úti-
standandi af samanlögðum '
lánum og skuldabréfum i árs-
lok 1979. Arin 1972—1979 var
hagnaður af viðskiptum
Austraswiss 122.65 milljón
dalir, en þegar reiknað hefði
verið með afskriftum og
vaxtagjöidum hafi fyrirtækinu
ekki verið gert að greiða
skatta nema af 8.62 milljónum
dala. Arin 1972—1979 hafi
félagið gert ráð fyrir afskrift-
um er námu 52.85 milljónum
dala og greitt vaxtagjöld að
upphæð 61.26 milljónir dala.
Nýir samningar?
Alusuisse kann að verða
fyrir þrýstingi af hálfu ann-
arra ástralskra aðila. Hinn 9.
mars sagði Paul Everingham,
ráðherra norðurlandsmála I
Astalfu, að stjórnin væri að
„athuga að semja á ný um öll
ákvæði samningsins varöandi
bauxftvinnslu I Gove við Nab
alco sameignarfélagana”.
Rikisstjórnin væri að ihuga
tekjuaukningu með þvi að
taka hundraðshluta af ágóða
Nabalco.
Einnig eru skiptar skoðanir
milli Alusuisse og islensku
rikisstjórnarinnar vegna
verðsins, sem krafist er fyrir
súrál handa álbræðslu ISALs
(MB 24. mars.)
Fyrsta kvennarokkhljómsveitin.sem heitir Grýlurnar kemur fram á tónleikum SATT á laugardags-
kvöld.Forystugrýlaner margreynd I poppinu, en þaö er hún Ragnhildur Gisladóttir söngkona og hljóm-
borðsleikari. Hinar heita Inga Rún, Linda Björg og Herdis. Ljósm: Ella
Tónleikar SATT í Austurbæjarbíói:
Kvennahli óms veit
Tónleikar veröa i Austurbæjar-
biói á laugardagskvöld kl.19. Þaö
eru samtökin SATT sem aö
hljómleikunum standa, en þar
koma fram Þeyr, Utangarös-
menn, Start, Fræbbiarnir og
fyrsta kvennarokkhljómsveit
islands Grýlurnar.
Egill Clafsson formaður SATT
gerði grein fyrir aðdraganda tón-
leikanna á fundi með blaða-
mönnum og sagði þar, að til-
gangur samtaka poppara hefði
verið að reyna að efla flutning
lifandi tónlistar i landinu. Fyrir
nokkrum árum lifðu margar
hljómsveitir sæmilegu lifi með
þvi að ferðast á milli staða og
spila, en á síðustu árum hefur
vegur þeirra minnkað, þær
drógust uppog dóu, en diskóið tók
völdin. SATT ætlar sér að hefja
gagnsókn, með þvi að koma upp
stað hér I bæ, þar sem flutt verður
lifandi tónlist af ýmsu tagi og þar
sem staösett verður eins konar
tónsmiðja (workshop) poppara.
SATT ásamt Visnavinum og
Jassvakningu hafa nú fest kaup á
húsi við Vatnsstig, jafnframt þvi
sem verið er að litast um eftir
hagkvæmarahúsnæði fyrir slikan
skemmtistað. Tónleikarnir á
laugardag eru húsakaupunum til
styrktar og allur ágóði rennur i
hússjóð.
Það sem eflaust mun vekja
mesta athygli við tónleikana á
þessum laugardeei fyrir páska
eru Grýlurnar. 1 fararbroddi
þeirra er Ragnhildur Gisladóttir
söngvari og hljómborðsleikari
sem lengi hefur átt þann draum
að stofna kvennahljómsveit. Með
henni eru þær Inga Rún sem
leikur á gitar, Linda Björg sem
slær trommur og Herdis sem
plokkar bassann. Grýlurnar eru
fyrsta kvennarokkhljómsveitin
hérlendis, en erlendis gefa konur
körlum ekkert eftir á tónlistar-
sviðinu. Nú er að sjá hvort grýlu-
söngur þeirra stelpnanna á eftir
að siá 1 gegn, en sjálfar segjast
þær flytja „létta blöndu.” —ká
Mynd-
efnið frá
Grænlandi
Ingibjörg V. Friðbjörnsdóttir
hefur opnað sýningu á vatnslita-
og oliumyndum i Stúdentakjall-
aranum viö Hringbraut. Þetta er
jfyrsta einkasýninglngibjargar, en
hún hefur stundað nám við Mynd-
lista- og handiðaskóla lsl., Mynd-
listaskóla Reykjavikur, Aka-
demiuna I Arósum, og Grafiska
Verkstæðinu i Nuuk (Godthab) i
Grænlandi. Myndefniö I mörgum
verkanna er sótt til Grænlands.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
11.30—23.30., og lýkur 30. april.
Aðgangur er ókeypis og veitingar
á staönum
OPIÐ TIL KL. 22 ANNAÐ
KVÖLD OG TIL HÁDEGIS
LAUGARDAG
Súpuhænur -krónur: . 16,30 kg
Svínahamborgarahryggur 89,00 kg
Svið 13,80 kg
Nautahakk 1. flokkur 49,90 kg
Sykur 7,20 kg
Græn epli 8,40 kg
Waitrose saltkex - 8,65 pk
Búlgörsk jarðarber 16,75 heildós
Ananas sneiðar 14,95 heildós
J
HAGKAUP
SKEIFUNNI 15