Þjóðviljinn - 01.05.1981, Síða 9
Föstudagur 1. mai 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Jón Gunnar Arndal sjúkranuddari aö starfi.
Vantar mann
til að kenna á
hvíta stafinn
A endurhæfingarstöö Styrktar-
félags lamaöra og fatlaöra aö
Háaleitisbraut 13 starfar sjúkra-
nuddari að nafni Jón Gunnar Arn-
dal. Jón Gunnar hefur veriö
blindur siðan 1962, greinir ekki
einu sinni mun dags og nætur.
Eftir aö hann missti sjónina
starfaöi hann um margra ára
skeiö á vinnustofu Blindrafélags-
ins en árið 1972 hélt hann til Finn-
lands til náms við „De synskad-
ades Yrkesskola,” eöa starfs-
skóla fyrir blinda. Þaöan útskrif-
aöist hann sem nuddari, kom
heim og starfaöi i 3 ár hjá Styrkt-
arfélaginu. Siðan var hann viö
frekara nám viö sama skóla i
Finnlandi á árunum 1976-1977
og útskrifaöist meö starfstitilinn
„konditionsskötare”, sem hefur
verið kallaö sjúkranuddari á
islandi.
Við erum tveir Islendingar,
sem höfum numiö við þennan
finnska skóla”, segir Jón Gunnar,
„og námið þar var veitt okkur að
kostnaðarlausu. Þetta er gifur-
lega dýr skóli, fáir nemendur og
margir kennarar og það er
greinilega ekkert til sparað þarna
til að gera hinn blinda virkan i at-
vinnulifinu á ný. Það var ómetan-
legt fyrir mig að eiga kost á að
dvelja þar.
Hvað um menntunarmál
blindra hér á landi?
Það er rekin grunnskóladeild
innan rikisskólanna og starfar við
Laugarnesskólann. Þegar þeim
skóla sleppir, vandast málið, þvi
aö það er enginn framhaldsskóli
til i landinu fyrir blinda. Blindir
og sjónskertir hafa stundað nám
á öllum Norðurlöndunum, svo og
Bretlandi. Nei, ég á ekki von á
slikum skólum hér á landi i bráð.
Það er sama að segja um endur-
hæfinguna, slik aðstaða er ekki
fyrir hendi hér. Fólk verður að
fara utan til að læra, hluti eins og
meðferð á hvita stafnum.
Blindraletur geta menn lært
hér á landi?
Já, en núna er lögð minni
áhersla á útgáfur á blindraletri
en var áður Aðaláherslan er á
hljóðútgáfum. En mér finnst að
allir sjónskertir eigi að læra
blindraletur. Ég hefði ekki getað
stundað mitt nám að öðrum kosti
og ekki getað stundað mina vinnu
eins og ég geri. Ég held hér mitt
eigið kartótek á blindraletri yfir
mina sjúklinga. Ég ráðlegg öllum
sem eru hræddir við að þeir séu
að missa sjónina að læra blindra-
letur.
Hvernig er þinum vinnudegi
háttað?
Ég vinn frá klukkan 9—16 og tek
13 sjúklinga á dag sem ég æfi og
nudda. Það er aðallega um að
ræða fólk með vöðvabólgu sem
það hefur fengið af einhæfri at-
vinnu, eða fólk með brjóskbreyt-
ingar. Þetta er skemmtilegt starf
en það er lika erfitt. En fólk er
undantekningarlaust mjög elsku-
legt og afar þakklátt. Ég man
aldrei eftir að mér hafi mislikað
við sjúkling frá þvi að ég byrjaði.
Sama er að segja um mina vinnu-
veitendur. Mér hefur verið sér-
lega vel tekiö frá þvi ég sóttifyrst
um vinnu hér fyrir 8 árum.
Þaö sem er mest aðkallandi i
málum blindra er að gera þá
sjálfstæðari. Til dæmis vantar
nauðsynlega mann til landsins
sem getur kennt notkun hvita
stafsins. Hann er ómissandi
hjálpartæki fyrir hinn blinda; án
hans gæti hann ekki hreyft sig út
úr húsi. En meðferð hans krefst
þjálfunar en það er enginn á land-
inu sem er fær um að kenna hana.
— j-
Frá Fósturskóla
S
Islands
Umsóknir um skólavist næsta skólaár
þurfa að berast skólanum fyrir 1. júni nk.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðu-
blöð fást á skrifstofu skólans.
Skólastjóri
Samvinnufélögin
áma hinu vinnandi fólki
til lands og sjávarallra heilla
á hinum löngu helgaða haráttu-
og hatiðisdegi alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar
$ SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja
sendir félagsmönnum sínum
og íslenskri alþýðu baráttukveðjur
á hátíðisdegi launafólks.
Svölukaffi
— GlæsUegar veitlngar
— Tískusýningar — Skyndihappdrætti
SVÖLURNAR, félag fyrrverandi og núverandi
flugfreyja, halda sina árlegu kaffisölu i Súlnasal
Hótel Sögu, föstudaginn 1. mai. Húsið opnað kl.
14.00.
Stórglæsilegir vinningar, þ.á m. flugfarseðlar, leikföng o.fl.
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR TIL LÍKNARMÁLA.