Þjóðviljinn - 04.07.1981, Síða 3
Helgin 4.-5. júli 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Ur fórum Jóns Sigurðssonar
Á að leyfa kaþólskum
að messa á Islandi?
Jón Sigurðsson forseti
skrifaði lengi vel frétta-
bréf i blað eitt i Osló, sem
þá hét Kristíanía, blaðið
var nefnt Christiania
Intelligenssedler. Jón
kemur þar víða við, ræðir
um atvinnumál, fólks-
fjölgun, bókaútgáfu, er-
lenda ferðamenn og margt
fleira. Hér grípum við þar
niður í fréttapistil frá 27.
apríl 1864, að Jón er að
segja frá trúarlífi og þá
þeirri uppákomu að
komnir eru kaþólskir
prestar upp á landið, og
vita lúterskir ekki hvaðan
á þá stendur veðrið.
Það er langt siðan nokkuð hefur
verið fréttnæmt af trúarlifi voru
og fátt tiðinda af trúarbragða-
deilum, trúarlegum vakningum
og öðru þviumliku. Kennimaður
af skóla Grundtvigs, sem hér var
á ferö fyrir alllöngu, gaf oss þá
einkunn, að vér hefðum aldrei
verið guðhræddir, værum trú-
lausir. Henderson hafði hér á
aðra skoðun, og er fróðlegt að sjá,
að englendingar, sem enginn
frýr trúarlegs innrætis eða til-
finningadýptar, skuli verða sliks
betur varir hjá oss en þeir danir
sem við þetta fást Vér teljum á-
stæðuna þá, að danir sinna meir
talæði en tilfinningum, en enskir
aftur séu heldur tilfinninganna en
málgleðinnar, sem vel hæfir um
vorn hugsunarhátt. Danskur at-
hugandi sem dregur ályktanir af
reynslu sinni verður þviaðdraga
frá það sem sagt hefur verið vilji
hann komast nærri þeim sanna
tilfinningahita sem englendingur-
inn leggur til.
Fyrir nokkru urðu hér svolitlar
hræringar vegna mormónatrúar,
en linnti fljótt, og sjást þeirra nú
engin merki. Hinsvegar sendi ka-
þólska kirkjan hingað tvo presta
, um leið og hún stofnaði garð-
yrkjuskóla i Alten, og hafa þeir
dvalið hér til skiftis i ýmsum
plássum, án þess þó að hafa að
marki haft i frammi nokkurt trú-
boð eða snúningstilraunir. Þeir
reyndu einusinni að stofna til
kapellu hér i Reykjavik, en yfir-
völd urðu samstundis frá af
hræðslu og komu i veg fyrir allar
framkvæmdir. En kaþólisminn er
þolinnt fyrir nokkru tilkynnti
annar frönsku prestanna opinber-
lega að hann hygðist halda pré-
dikun og guðsþjónustu að heimili
sinu. Safnaðist þar saman stór
áheyrendahópur og hlýddi á prest
prédika á islensku um ágæti hinn-
ar kaþólsku kirkju.
Efni þetta vakti mikla eftirtekt,
og ræðan sjálf, ekki sist hjá stift-
amtmanni, biskupi og dómkirkju-
presti, sem til þess voru kallaðir
að gæta hjarðarinnar og enga
hugmynd höfðu um þessa djarf-
legu árás Ulfsins kaþólska. Þeir
munu hafa gripið til þess hefð-
bundna lausnarráðs að spyrjast
fyrir i Kaupmannahöfn um það
hvað gera skuli, hvort lög leyfi að
kaþólikkarnir rógberi á þennan
hatt trúarsetningar landsins og
haldi opinberlega á lofti annarri
kenningu, sem vér höfum
hingaðtil vanist að höfð sé að
jöfnu við trúarbrögð hund-
tyrkjans. Vér biöum nú hinnar
náðugu ákvöröunar með skipinu
Jón Sigurösson
frá Höfn, en á meðan er um að
gera að gæta stöðu sinnar og
sperra eyrun. Það rikir mikil
spenna um Urslit málsins þvi að
almenningur er fús að hlýða á ka-
þólska prestinn og kenningar
hans, og ekki siður sinn eigin
prest mótmada þeim kaþólska;
ég hygg hinsvegar aúðfyrirséna
mikla óánægju ef rikisstjórnin
léti hafa sig til að stöðva hina
frjálsu boðun, og einbyði lUters-
dóm. Það yrði nokkurskonar
gjaldþrotsyfirlýsing af hálfu
hinna geistlegu landsfeðra, og ég
vona að til sliks komi ekki. Það
væri stórfurðulegt ef vér værum
svo langt sokknir frá menningar-
stigi 16. aldar, að prestar vorir
reyndust þess nú vanmegna að
sjá viö þeirri kenningu, sem þeir
þá gerðu burtræka.
MA þýddi
Löngu áöur en kaþólska kirkjan var reist i Reykjavik, voru sendir
hingaö tveir prestar „sem dvöldu til skiftis i ýmsum plássum, án þess
þó aö hafa haft að marki i frammi nokkurt trúboö eöa snúningstil-
raunir”, eins og Jón Sigurösson segir i fréttabréfi sinu.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartún29 Sími 20640
Húsgögn Alvars Aalto
Hinn heimsfrægi finnski arkitekt Alvar Aalto hannaði
flest húsgögn sín upp úr 1930. Síðan hafa þau öðlast
sívaxandi vinsældir um allan heim; eftirsótt af hinum
vandlátu vegna forms og frágangs. Hin sérstaka
samlíming finnska birkisins sem einkennir húsgögn Alvars
Aalto gerir þau afar sterk. Bogadregnar og mjúkar línur
þeirra skapa rólegt og notalegt yfirbragð og gerir þau
auðveld í allri umgengni. Þessi húsgögn verðá fallegri eftir
því sem þau eru notuð lengur.
Gjörðu svo vel að kynna þér verð og gæði
Pípulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveituteng-
ingar.
Simi 36929 (milli kl.
, 12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin). i