Þjóðviljinn - 04.07.1981, Síða 5

Þjóðviljinn - 04.07.1981, Síða 5
MEST, r Ovanalegasta jassbandið Óvanalegasti jassdúett fyrr og si&ar eru án efa Hilton systurnar Daisy og Violet, en sú fyrrnefnda spilaði á altsaxofón en sú siðar- nefnda á pianó. Arið 1930 sögðu þær við fréttamenn: „Við erum okkar eigin jasshljómsveit”. Það sem merkilegast var við þær systur, var að þær voru siamstviburar, samvaxnar á mjöðmunum. Þær systur ku ekki hafa haft gott eyra fyrir tónlist, en það aftraði þeim ekki frá þvi að verða vellrikar á uppátækjum sinum. Þær þóttu mjög merkar sem siamstviburar, þvi þær reyndu mikið til að „losna undan andlegum áhrifum” hvor frá ann- arri. Þegar önnur átti stefnumót, reyndi hin að blunda á meðan. Tuttugu riki neituðu þeim um giftingarvottorð, en þó giftust þær báðar að lokum. önnur giftist dansara, en það hjónaband fór út um þúfur fljót- lega. Hin giftist skömmu siðar og var gift allt þar til þær létust samtimis úr inflúensu árið 1960, þá fátækar grænmetissölukonur. _____Helgin 4,—5. julf 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 VERST'BEST Versta óperusýningin Versta óperusýning sem um getur, er sýning á Carmen i Metropolitan óperunni i New York. Maria Jeritza og Enrico Caruso fóru með aðalhlutverkin og voru lifandi hestar notaðir til að draga vagn þeirra um sviöið i lokaatriðinu. Einn hesturinn ærð- ist við ljósi á sviðinu, en afgang- urinn af þeim gerði stykki sin á sviðsgólfið, primadonnunni til mikillar skelfingar. Stuttu siðar átti Caruso að myrða primadonn- una, en hversu oft sem hann stakk hana, dó hún ekki. „Deyðu, — viltu gera svo vel og detta niður dauö”, hrópaði Caruso. „Ég dey ekki fyrr en þú finnur hreinan blett á sviðinu, þar sem ég get hnigið niður”, hrópaði Jeritza á móti. Versta misritun í sögu dagblaða Margar og góðar sögur eru til um misritanir i dagblöðum. Þær svæsnustu tilheyra kóngaíólki og öðrum háttsettum en þessi er tal- in sú alversta: Arið 1915 fór Woodrow Wilson forseti i leikhús með ástkonu sinni Edith Galt. 1 Wrashington Post daginn eftir stóö þessi fyrirsögn: „The president spent most of his time entering Mrs. Galt”. Þetta er varla hægt að þýða, en i stað entering átti auðvitað aö standa entertaining (skemmta). Annars finnst okkur ekki siðri fyrirsögnin i Daily Mirror (sem sumir kalla Daily Horror) um Elisabetu drottningu, þegar hún gekk yfir Waterloo brú „ — as the Queen pissed over the bridge — ”..... Besti hægfara hjólreiðamaðurinn Hægfara hjólreiðar eða kyrr- stæð reiðhjólastaða er sjaldgæf og göfug iþrótt, sem japaninn Tsugunobo Mitsuishi á heimsmet i. Hann vann i heimsmeistara- keppni i greininni árið 1965 og tókst að halda reiðhjólinu upp- réttu og hreyfingarlausu i fimm klukkustundir og tuttugu og fimm minútur. Geri aðrir betur! Migrene- sjúklingar ættu að forðast ákveðnar fæðutegundi Migrenesjúklingar og aðri sem hafa vanda til að fá höfui' verk, hafa margir tekið eftir þ' að það er ekki sama hvaða mí þeir borða. Raunar er þvi haldi fram af mörgum læknum a ýmisskonar aukaefni og litarefni matvælum valdi mörgum ofnæir og höfuðverk og hafi slæm áhrif taugakerfi manna. En af þeir matartegundum sem flesti borða aö staðaldri, eru nokkra sem taldar eru sérlega varhugs verðar fyrir þá sem hafa tilhneig ingu til að fá migrene eða slæn höfuðverkjaköst. Þess skal þ getið að mjög er mismunand hvaða fæðutegundir eiga vil hvern, og kemst fólk fljótlega a< þvi, ef það ihugar nokkrar viku hvað það borðar, hvaða áhrif þal hefur á veikindin. Þær fæðuteg undir sem migrenesjúklingum e: ráðlagt að forðast eru t.d. svina kjöt, sykur (einkum hvitur) súkkulaði, ýmsar ostategundir bananar, sitróna, og laukur. Yfir leitt er lambakjöt talið best fyrii migrenesjúklinga, þvi margii þeirra þola einnig illa nautakjöt Migrene er ekki nýr sjúkdóm ur, vitað er um hann þegar 40( f.kr., þegar Hippocratus skrifað: um hann. Ef það skyldi vera ein- hverjum huggun, þá var lengi vel talið að vel gefið og næmt fólk hefði öðru fremur tilhneigingu til migrene. Migrene hefur alltaf verið mun algengara hjá konum en körlum og koma köstin oft i sambandi vif tiðahringinn. A St. Thomas sjúkrahúsinu London hafa verið gerðar ná kvæmar rannsóknir á sjúkdómn um og komið i ljós að ójafnvægi hormónum virðist mjög oft eigi sök á sjúkdómnum. Með þvi a( gefa Duphason hormón með Bi vitaminum hefur tekist aö lækn; um 80% af sjúklingunum. Þá hef ur verið reynt að leita orsaki höfuðveiki ýmiss konar til tauga gigtar og er hún i mörgum tilvik um aðalorsökin. En þrátt fyrir ai hormónatrulfanir valdi oftas migrene breytir það ekki þeirr staðreynd, að mataræði hefui mikil áhrif á köstin, lengd þeirrs og tiðni. Byggöur á sjálfstæöri grind. Fjaðrir ofan á hásingunum. 50 cm. upp í grind. Driflokur standard. Vél 4 cyl, bensínvél 2000 cc. 121 hp sae. 4ra gíra gírkassi — Tvískiptur millikassi, hátt og lágt drif. Hjólbarðar 205 X16, últra mynstur. Tvær palllengdir 180 cm og 218 cm. HI-LUX4X4 Torfærubifreið ffyrir íslenska afdalavegi. Bfll sem farlö hefur slgurför um heiminn. Lipur og sparneytinn. Vinnutæki sem hentar einstaklega vel íslenskum aðstæöum. lU* ím 1 ; VERÐKR: 108.000“ Bíll sem kemst hvert sem er hvenær sem er. TOYOTA iTTTífiiiMlin 1 472 b- wTOYOTA UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SÍMI 44144 UMBOÐIÐ Á AKUREYRI: BLÁFELL S/F ÓSEYRI 5A — SfMI 96-21090

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.