Þjóðviljinn - 04.07.1981, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.—5. júlí 1981
Við höfum ákveðið að vekja til lifsins siðu Haf-
steins Hafliðasonar, garðyrkjumanns, sem ^ir i
blaðinu i fyrra og verður hún nú með nokkuð öðru
sniði. Með Hafsteini sér um siðuna Sævar Jóhanns-
son og munu þeir m.a. svara spurningum frá les-
endum. Þá verða þeir með ýmsar minni greinar,
mataruppskriftir og fieira skemmtilegt. Lesendur
geta sem sagt hringt eða skrifað Sunnudagsblaðinu
(Þátturinn ,,Af görðum og gróðri”) og lagt inn
spurningar um garðrækt, blómahirðu, eiginleika
plantna, sumarblóm, plöntusjúkdóma eða hvað sem
þeim dettur i hug sem snertir garða og gróður. Og
liétr er fyrsta spurningin
„Ég hef svolitinn garðblett við
hús mitt sem mig langar að lifga
upp á. Hvaða trjátegundir eru
fljótvaxnastar? Mig langar að
setja röð af trjáplöntum meðfram
blettinum, en nenni helst ekki að
biða i marga áratugi eftir að þær
nái einhverri hæð.
M.A.
Svar til M.A.
Þegar svona er spurt, er oft
erfitt með svör. Auðvitað dettur
manni i hug alaskaösp sé minnst
á hraðvaxta tré. Þær er hægt að
fá i mannsstærð frá gróðratöðv-
unum. Hafi þær hlotið nostursam-
legt uppeldi eru þær með þétt og
sterkt rótarkerfi og eru fljótar að
ná sér aftur á strik eftir umplönt-
unina.
Þegar þú gróðursetur aspir,
þarftu að nafa holuna þaö
stóra og djúpa að pláss sé fyrir
einar hjólbörur af taði i botninn
og siðan rúmlega 10 sm moldar-
lag þar ofan á áður en tréö er sett
niður. Aspir þarf að gróðursetja
um það bil 20 sm dýpra en þær
stóðu i gróðrastöðinni. Nauðsyn-
legt er að setja staur með hverju
tré, þvi til stuðnings. Staurinn
þarf að reka þéttingsfast niöur i
holuna áður en tréð er gróöurset,
hann þarf að vera það langur að
hann nái upp undir krónu trésins.
Binda þarf saman tré og staur á
tveim stöðum, að ofan og neöan.
Brugðið er voðfelldu bandi (t.d.
nælonsokk) um stofn trésins,
krossbundið milli þess og staurs-
til þeirra félaga:
ins og fest við hann, þegar tréð er
komið i holuna. Siðan skal fyllt
velallt i kring um rótarklumpinn
með frjórri mold sem þjappaö er
allt i kring. Skiljið eftir borð á
holunni og þar i skal hellt tveim
til þrem fötum af vatni, helst
volgu, sem látið er sjatna áður en
holan er fyllt með afgangnum af
moldinni. Þetta siðasta moldar-
lag skal ekki troða eða væta, þvi
það á að einangra og halda
rakanum á rótunum. Varist að
vökva i tima og ótima, slikt tefur
fyrir rótarmyndun og er ekki
réttlætanlegt nema að þrálátir
þurrkar gangi.
M.A. segir i spurningunni að
bletturinn hennar sé iitill, og þá
fara nú að renna á mig tvær
grimur hvað varðar asparvalið.
öspin verður nefnilega hræðilega
stór og varpar af sér enn þá
stærri skugga i laufskrúðanum.
Þvi held ég að M.A. ætti að hætta
að hugsa sér trjáröð, hver ösp
þarf u.þ.b. tuttugu til þrjátiu fer-
metra fullvaxin til að njóta sin til
fulls. Vel gæti ég hugsaö mér að
M.A. tæki upp á þvi að gróður-
setja havaxna runna i kring um
garðinn sinn. Sirenur eru harð-
gerðar og fremur hraðvaxta, auk
þess blómstra þær glæsilega á
hverju ári rauðbleikum ilmandi
skúfum. Hér á ég við bogsirenu,
gljásirenu og blendingana
„Elinóru” og „Isabellu”, þær ná
milli tveggja og þriggja metra
hæð á riokkrum árum. Eins mætti
nefna rauðtopp og blátopp sem
SUMAR
MATSEÐILL
TOURISIMENU
VIÐ BJÓÐUM SUMARMATSEÐILINN:
REYKJAVI'K
Árberg, Ármúla 21.
Brauðbær, Þórsgötu 1.
Hótel Borg, Pósthússtræti 11.
Hótel Esja, Suðurlandsbraut 2.
Hótel Hekla, Rauðarárstíg 18.
Hótel Loftleiðir, Veitingabúð, Reykjav.
Hótel Saga, v/Hagatorg.
Hressingarskálinn, Austurtræti 22.
Kráin, v/Hlemmtorg.
Matstofa Austurbæjar, Laugavegi 116.
LANDSBYGGÐIN
Hótel Borgarnes, Borgarnesi.
Hótel Húsavík, Húsavík.
Hótel Höfn, Hornafirði.
Hótel Höfn, Siglufirði.
Hótel KEA, Súlnaberg, Akureyri.
Hótel Mælifell, Sauðárkróki.
Hótel Ólafsfjörður, Ólafsfirði.
Hótel Reykjahlíð, v/Mývatn.
Hótel Reynihlíð, v/Mývatn.
Hótel Stykkishólmur, Stykkishólmi.
Hótel Varðborg, Akureyri.
Hótel Varmahlíö, Skagafirði.
Hver-inn, Hveragerði.
Hvoll, Hvolsvelli.
Staðarskáli, Hrútafirði.
Valaskjálf, Egilsstöðum.
Sævar Jóhannsson
Umsjón: Hafsteinn Hafliðason og
LfíuS moLD
verða ekki alveg eins hávaxta.
Enn lægri eru svo ýmsir kvistir
t.d. birkikvistur, bjarkeyjar-
kvistur og loðkvistur. Þessum og
ýmsum öðrum runnategundum
má blanda saman til að fá léttari
og liflegri umgjörð um garðinn.
* VRTNfÍ
V>"3op>puÐ
rrkouo
cft.|osm
mOLDftR.LP|&
Aðrar hraðvaxta tegundir eru
svo auðvitað alaskaviðir og viðja,
en þau eru bæði úfin og fyrir-
ferðarmikil. Ég get ekki mælt
með þeim i litla garða. Þau henta
aftur á móti þeim mun betur i
skjólbelti og hraðvaxta limgerði
þar sem rými er nægilegt á allar
hliðar, en limgerði er nú saga útaf
fyrir sig.
Grasagarð-
urinn í
Laugardal
Júlibyrjun. Allir þrastar-
ungar orðnir fleygir, starr-
arnir orpnir aftur og nætur-
fjólan varpar höfgum ilmi
yfir allan bæinn. Grasagarð-
urinn i Laugardal er núna
tekinn til við að skarta gull-
unum. Hvernig væri nú að
taka sér eina kvöldstund til
að rjátla þar um stiga og lita
á sumarsýningu plöntufylk-
ingarinnar.
Fullkomin eru formin og
fagrir litirnir: 1 tslands-
deildinni opnast sem óðast
hver blómkrónan af annarri
— ekki er að sjá gengisfall á
þeim, má með sanni segja.
Það er lika lyngbúi sem
sindrar bláum blómunum
innan um blóðrauö blöðin,
önnur blöð á íslandi eru ekki
rauðari þessa dagana. Af
erlendum plöntum má
benda á alpasúruna —
Polygonum alpina, skart-
andi hvitum skúfum sem eru
eins og gerðir af perlu-
böndum. Lyklarnir (primúl-
urnar) eru lika farnir að
leika sér með litrófið, og sist
fá goðalyklarnir slæma
dóma fyrir slaka hönnun,
eiginlega ættu þeir að heita
tólfguðablóm eftir visinda-
heitinu sinu Dodekatheon
sem er komið úr grisku.
Og enda þótt einföldu
bóndarósirnar séu nú að
draga sig i hlé úr þjóðdansa-
keppninni þá hefur annar
dansflokkur tekið við og stig-
ur léttari takt — vatnsber-
arnir. Hver er eins lipur og
Aquilegia formosa?
I'
MeÖ Baldn
yfír BreiÓafjörÓ
Þú sparar bensínið og styttir leiðina vestur á ffirði verulega, ef
þú flytur bílinn með m.s. Baldri ffrá Stykkishólmi til
Brjánslækjar. Sigling yffir Breiðafjörðinn með viðkomu í
Flatey, getur orðið ein ógleymanlegasta minning sumarsins.
Sumaráætlun m.s. Baldurs er þessi:
Mánudaga: 1. júní til 28. september.
Frá Stykkishólmi kl. 9.00 árdegis.
Frá Brjánslæk kl. 14.00 síðdegis.
Áætlaöur komutími til Stykkishólms ki. 18.00.
Þriöjudaga: 2. júní til 29. september.
Frá Stykkishólmi kl. 14.00 síödegis,
eftir komu póstbifreiöarinnar frá Reykjavfk.
Frá Brjánslæk kl. 18.00 sfödegis.
Áætlaöur komutími til Stykkishólms kl. 21.30.
Fimmtudaga: 2. júlí til 24. september. m
Frá Stykkishólmi kl. 9.00 árdegis.
Frá Brjánslæk kl. 14.00 sfödegis.
Áætlaöur komutími til Stykkishólms kl. 18.00.
m.s. Baldur
Afgreiðsla í Stykkishólmi: Sími (93)8120.
Brjánslæk: sími um Patreksfjörð.
Föstudaga: 5. júní til 25. se^ember.
Frá Stykkishólmi kl. 14.00 síödegis,
eftir komu póstbifreiöarinnar frá Reykjavík.
Frá Brjánslæk kl. 18.00 síödegis.
Áætlaöur komutími til Stykkishólms kl. 21.30.
Laugardaga: 4. júlí til 29. ágúst.
Frá Stykkishólmi kl. 9.00 árdegis.
Sigling um Suöureyjar.
Frá Brjánslæk kl. 14.00 síödegis.
Áætlaöur komutími til Stykkishólms kl. 19.00.
M.s. Baldur fer 2 eöa fleiri feröir f mánuöi
milli Reykjavíkur og Breiðafjaröarhafna, sem
eru nánar auglýstar hverju sinni.
Einnig fæst m.s. Baldur leigöur á sunnu-
dögum til siglinga um fjöröinn.
Farþegar athugiö, aö bílflutninga er nauö-
synlegt aö panta meö fyrirvara.