Þjóðviljinn - 04.07.1981, Síða 12

Þjóðviljinn - 04.07.1981, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.-5. júlí 1981 Rœtt við dr. Grethe Jacobsen um uppruna Islendinga, stöðu íslenskra kvenna á söguöld og lýsingar á þeim í fornbókmenntum Landnám. Kona mátti nema þaö land sem hún gat leitt um tvævetra kvigu voriangan daginn, sólsetra á milli. „Konur á lslandi gátu fengiö skilnaö bæöi fyrir og eftir kristnitökuna og voru almennt mikiu sjálfstæöari og áhrifameiri en konur t.d. í Dan- mörku og Sviþjóö” segir dr. Grethe. „Af Norðmönnum í föður- ætt og írum í móðurætt” ,,íslenskar konur höfðu sérstöðu meðal norræna kvenna á söguöld. Þær höfðu mun meiri mögu- leika á áhrifum og völdum en kynsystur þeirra, eink- um i Svíþjóð og Danmörku, bæði fyrir og eftir kristni- tökuna", segir Grethe Jac- obsen doktor í sagnfræði, en hún var ein framsögu- manna á ráðstefnu sem haldin var í Skálholti 21.-26. júní um breytingar í stöðu kvenna á miðöldum. Grethe er dönsk að upp- Viö spyrjum Grethe fyrst hvers vegna hún hafi fengiö áhuga á aö kanna hiut kelta i þjóöerni tslend- inga: „Eg rakst á grein fyrir alllöngu þar sem fram kom að blóðflokkar Islendingaannars vegarog tra og Skota hins vegar sýna verulegan skyldleika, mun meiri en t.d. við aðra Noröur-Evrópubúa, þar á meðal Norðmenn. Þetta voru niö- urstöður tlr mannfræöirannsókn- um Jóns Steffensen, en beina- rannsóknir frá vikingatimanum sýna hliöstæðar niðurstöður. Um þetta leyti var að vakna mikill áhugi á kvennasögulegum rannsóknum og þar með var áhugi minn á vikingakonum vak- inn. Viö iestur Landnámabókar staöfestist enn frekar þessi skoð- un og þaö er nú almennt viöur- kennt að hinn norski þáttur sé þar mjög miklaður, og má vel sjá ástæöur þess. t nú týndu handriti af Landnámu (sem til er afrit af) runa, en hefur búið í Bandaríkjunum um langt árabil. Hún lauk námi í bókasaf nsf ræði í Dan- mörku og fór til Banda- ríkjanna árið 1968. Þar hóf hún nám í sagnf ræði og tók BA próf 1976, og MA- próf nokkru síðar. MA ritgerð hennar fjallaði um stöðu konunnar á Norðurlöndum á víkingatímanum. Doktorsr itgerð sína ,,Guilds in medieval Den- mark: The social andecono- mic role of merchants and frá þrettándu öld segir: „En vér þykjumsk heldr svara kunna útlendum mönnum, þá er þeir bregða œs þvi, at vér séim komn- ir af þrælum eða illmennum, ef vér vitum vlst várar kynferðir sannar”. „Þú telur þá aö þaö sé hlutur hinna ófrjálsu tra sem mest er fyrir borö borinn i Landnámu?” „Já, og þá einkum kvennanna. Það vantar skráðar mæöur fjöl- margra barna og ég tel að i flest- um tilfellum sé það vegna þess aö þær voru ambáttir. Vikingarnir komu sem kunnugt er viöa við á ferðum sinum og tóku þræla og ambáttir, einkum á Irlandi. Margir þeirra fóru kvenmanns- lausir frá Noregi, enda höfðu kon- ur almennt ekki sömu ástæður til aö flýja Harald konung og karl- menn. Margir þessara manna voru landlausir og ókvæntir, en konur kvæntra vikinga voru oft meö ung börn og lögðu þvi ekki arfisans" varði hún siðan við háskólann i Wisconsin. Hún hefur ritað fjölda greina um konur á Norður- löndum á miðöldum og kannað sérstaklega Land- námabók með tilliti til keltneskra landnema á (s- landi. Á ráðstefnunni í Skálholti flutti Grethe er- indi sem nefnist: „Breyttist staða kvenna við kristnitökuna? Saman- burður á lögum og frá- sögnum frá fyrri hluta miðalda." upp i vikingaferðir. Þær nutu lagaverndar i Noregi, þótt þær yröu eftir. Þær norsku konur sem fóru I viking með mönnum sinum, áttu oft erfiða æfi, hörð lifs- barátta á sjó og landi og tiðar barneignir tóku sinn toll. Ýmis- legt bendir til að hinar irsku am- báttir hafi verið harðgerðari og Hfsseigari, þótt vissulega hafi margarhinna norsku kvenna sýnt mikinn dugnað og úthald.” „Þær mæöur sem ekki er getiö um i Landnámu eru þá fyrst og fremst írskar ambáttir?” „Mér sýnist það augljóst. Af nefndum mönnum i Landnámu eru aöeins um 15% konur og börn eru viöa tilgreind án mæðra. Þær norsku konur sem getið er um i Landnámu fá almennt meiri og itarlegri umfjöllun en karlmenn og þvi er ekki ástæða til að ætla að þeim sé visvitandi sleppt. Hins vegar hafa hinar irsku formæður almennt ekki notið mikillar virð- ingar, þar sem þær voru ambátt- ir. Undantekning er þó Melkorka, en hennar er fyrst og fremst getið vegna þess að hún er konungs- dóttir. Það fyrirkomuiag sem Höskuldurhafði á sinum hjúskap- armálum er hann var giftur Jór- unni, en hélt Melkorku sem frillu var vissulega ekki óalgengt.” „Hver áhrif höföu þessar Irsku konur á vikingasamfélagiö?” „Þær höfðu fyrst og fremst áhrif gegnum uppeldi barnanna og þá ekki sist trúarleg áhrif, þvi þær voru flestar kristnar. Sú staðreynd, að kristnitakan geng- ur mun átakaminna fyrir sig á tslandi en i nágrannalöndunum, sýnir að kristin áhrif eru veruleg hér á landi löngu fyrir kristniboð manna Olafs konungs Tryggva- sonar. Almennt hefur verið talið aö þessi kristnu áhrif væru komin frá irskum munkum fyrir land- nám, en ég tel að áhrif irskra kvenna eftir landnám séu þar ekki minni.” „Hvernig heldur þú aö sambýli hinna irsku ambátta og norsku kvenna hafi veriö háttaö?” „Miðað við þá möguleika sem sambýli frjálsra og ófrjálsra hef- ur, held ég að það hafi verið all- gott. Þó að Þorgerður reiðist mjög þegar Egill Skallagrimsson faðir hennar vill gifta hana ölafi syni Melkorku og Höskulds, skira þau þó elsta og elskaðasta son siim eftir hinum Irska langafa hans, konunginum Mýrkjartani. Það þóttiheldur ekKi minnkun að vera hjákona höfðingja á íslandi og eftir kristnitökuna hélt slikt áfram, þótt hvarvetna i Evrópu þýddi frillulifnaður nánast bann- færingu hinnar katólsku kirkju. Þetta er aöeins eitt dæmi um önn- ur áhrif kristnitöku á Islandi, en i öörum Norður-Evrópulöndum.” „ÞU fjallaðir einmitt um áhrif kritsninnar stööu kvenna I erindi þfnu í Skálholti. Geturöu sagt frekar frá því?” „Ég hef komist að þvi við rannsóknir minar á konum á vik- ingatimanum og fram á söguöld, að konur á tsiandi höfðu mun meira sjálfstæði en konur á öðr- um Norðurlöndum. Konur gátu t.d. fengið skilnað bæði fyrir og eftir kristni á tslandi, en i Noregi bannaði kirkjan skilnað. Aður höfðu það nánast eingöngu verið karlmennsem gátu fengið skilnað i Noregi og þvi má segja að kirkj- an hafi þarna bætt stöðu kvenna, þar sem hún leyfði ekki að karl- menn yfirgæfu fyrirvaralaust konu og börn. Þetta náði ekki til tslands, enda höfðu konur hér, einkum ef þær voru af góðum ætt- um, jafnan átt fremur auðvelt með aö fá skilnað við menn sina. Fjöldamörg dæmi eru úr tslendingasögunum þar sem konur skilja við menn sina eöa láta óbeint drepa þá ef þeir hafa slegið þær, sbr. þær Guðrúnu ósvifursdóttur, sem skilur við Þorvarð og Hallgerði langbrók, ei allir eiginmenn hennar láta lifiö beint eða óbeint vegna þess að þeir gefa henni kinnhest. Kyn- hlutverk voru vissulega mjög af- mörkuö á þessum tima og brot á

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.