Þjóðviljinn - 28.07.1981, Síða 3
Þriðjudagur 28. júll 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Vöruskiptajöfnuður:
Óhagstæö-
ur um 228
milj. í jum
Vöruskiptajöfnuður í júni i ár
varð óhagstæður um kr. 227.962
en var á sama tima i fyrra óhag-
stæður um kr. 253.980. Á timabil-
inu janúar-júni i ár varð hann
óhagstæður um kr. 447.615 en
fyrir sama timabil i fyrra óhag-
stæður um kr. 324.422.
A timabilinu jan.-júni i ár voru
fluttar út vörur fyrir kr. 2.804.119
en inn voru vörur fluttar fyrir kr.
3.251.734. Sambærilegar tölur i
fyrra voru: Út fyrir kr. 1.864.413
og inn fyrir kr. 2.188.835. Bæði ár-
in er ál og álmelmi hæsti útflutn-
ingsliðurinn. 1 ár hafa verið flutt
inn 3 skip fyrir samtals kr. 42.232.
Eru þetta 2 vöruflutningaskip frá
Noregi og eitt fiskiskip frá
Færeyjum.
Meðalgengi erlends gjaldeyris
milli ára er talið 46.6% og verður
að hafa það i huga við samanburð
á þessum tölum. Ath. Allar upp-
hæðir gfú i 1000 nýkr.
Fimm
piltar
slasast í
bilveltu
Fimm piltar slösuðust i bilveltu
á Siglufjarðarvegi á föstudags-
kvöld. Fór billinn út af veginum i
Hraundal og valt. Þrir slösuöust
alvarlega og voru fluttir til
Reykjavikur en hinir tveir á
sjúkrahúsið á Siglufirði. Enginn
mun vera i lifshættu. Fjórir pilt-
anna eru frá Siglufirði en einn úr
Fljótunum.
— hs.
Slasaðist
er hann
féU
niður stiga
Sjöára drengur sem var á þrjú-
sýningu i Nýja biói i Keflavik á
sunnudag slasaðist illa þegar
hann féll niður stiga i hléinu. Var
fallið þrir metrar. Drengurinn
handleggsbrotnaði og missti
framtennur og var fluttur á
Borgarspitalann. Er talið lán að
hann skyldi ekki slasast meira en
raun varð á.
— hs
Ólafur Guð-
mundsson
sökk á
laugardag
Ölafur Guðmundsson NS 83
sökk skammt norðan Loð-
mundarfjarðar á laugardags-
morgun. Var báturinn á leið til
Siglufjaröar og sökk á mjög
skömmum tima. Skipverjum sem
voru tveir tókst þó að senda
neyðarkall sem vaktmenn hjá
Nesradiói heyrðu.
Litil trilla, sem stödd var i ná-
grenninu bjargaði mönnunum en
þar sem engin talstöð var i trill-
unni varð að sigla æðispöl að
næsta bát til að láta vita i land um
afdrif manna og báts. Var þá
þegar hafin leit að bátnum.
— hs
Japaninn fékk vegg
Japaninn Takeo Yamashita
hefur nú þegið veggboð Emils
Hjartarsonar, en listmálarinn
auglýsti eftir vegg til að mála á
fisk hér I blaðinu I fyrri viku.
Veggurinn Emils á Siðumúla 30
er þáttur i stærri áætlun Japan-
ans um að hylja jörðina fiski frá
Havæ til vesturstrandar
Ameriku lengri leiðina, einsog
sjá má á uppdrættinum, en
Takeo rissaði upp frumhug-
mynd sina að Reykjavikur-
fisknum á myndina af Emil og
veggnum.
Kvenréttindafélag
íslands:
Vðl ekki
óháð
kvenna-
framboð
„Stórráð kvenna, leynivopnið
og samráð kvenna þvert á flokks-
bönd”, sögðu konur i sveitar-
stjðrnum um þá hugmynd að
konur bjóði fram sérlista luá
stjórnmálaflokkunum. 9
Þetta kom fram á ráðstefnu
sem Kvenréttindafélag Islands
hélt með konum i sveitarstjórn-
um 25. og 26. okt. 1980. A ráðstefn-
unni voru flutt 12 framsöguerindi
sem gefin hafa verið út i frétta-
bréfi KRFl ásamt niðurstöðum
þeirra fimm starfshópa sem
störfuðu á ráðstefnunni. Um
þverpólitiskan kvennalista segir
svo i fréttabréfinu:
„Þverpólitiskur kvennalisti er
ekki leiðin til breytinga. Sem
þrautalending gætu kvennahreyf-
ingar i hverjum stjórnmálaflokki
fyrir sig sett upp kvennalista og
haft um það samráð þvert á
flokksbönd. Margar hæfar konur
eru i röðum þessara kvennasam-
taka og þær verða að brjóta sér
braut með einhverjum hætti.
Tilraun með þessum hætti
hefur verið reynd með góðum ár-
angri. I einum stjórnmálflokki i
Sviþjóð þótti forystumönnum þar,
konum sækjast seint inn i sveitar-
stjórnir og hvöttu þær til aö bjóða
fram sérlista til hliðar við al-
mennan framboðslista flokksins,
sem þær og gerðu með þeim ár-
angri aö margar konur komust i
örugg sæti i þeim kosningum.
Margir lýstu ánægju sinni með
þessa hugmynd um sérlista
kvenna hjá hverjum stjórnmála-
flokki — kölluðu hana leyni-
vopnið og samráð kvenna þvert á
flokksbönd stórráð kvenna. For-
ystumenn KRFl buðu fram
starfsaðstöðu i húsakynnum
félagsins að Hallveigarstöðum ef
til þess skyldi draga að þessi
framkvæmd sæi dagsins ljós”.
Áskrifendaþraut Þjóðviljans:
Júlíverðlaun dregin útl
Askrifendaþraut Þjóðviljans
nýtur mikilla vinsælda og bárust
fjölmargar lausnir á þrautinni
scm birtist i júnimánuði. Verð-
laun eru dregin út mánaðarlega
og aðaiverðlaunin siðan drcgin
25. september n.k. Eru þá i boði
hljómflutningstæki frá Fálkanum
og koma þcir einir til greina við
þann drátt sem sent hafa inn
réttar lausnir á öllum þrautun-
um.
Júliverðlaunin hafa verið
dregin út og skiptast þau milli 5
heppinna áskrifenda Þjóðviljans.
Þeir eru þessir:
Hjálmar Sveinsson, Kaðla-
staðakoti, Borgarfirði.
Halia Halldórsdóttir, Baldurs-
götu 9, Reykjavik.
Margrét örnólfsdóttir, Lyng-
brekka 13, Kópavogi.
Guðný Ýr Jónsdóttir, Skóla-
vörðustlg 17 b, Rvk.
Þessi fengu sumsé forláta
norskar skiðapeysur frá Geysi h/f
og geta þau vitjað vinninga sinna
til Þjóðviljans, Siðumúla 6,
Reykjavik.
Hin verðlaunin I júli, kristals-
vasi frá Kristjáni Siggeirssyni
h/f, sem hannaður er af finnska
meistaranum Alvar Aalto, hlaut
Maria L. Eðvarðsdóttir. Hrisdal
Miklaholtshreppi. Getur hún og
vitjað vinningsins til Þjóðviljans
ellegar beðið um heimsendingu
dýrgripsins.
Um helgina birtist annar hluti
getraunarinnar og eru menn
hvattir til að senda inn lausnir
fyrir 25. ágúst n.k. Þá eru i verð-
laun útvarps- og segulbandstæki
frá Gelli h/f og forkunnarfagur
borðlampi frá Rafbúðinni Domus
Medica. —Auk þess verður viku-
lega dregið um smávinninga
ýmiss konar. Þeir sem ekki eru
áskrifendur að Þjóðviljanum
verða það sjálfkrafa um leiö og
lausnir eru sendar inn.
Þessi glæsilegi kristalsvasi eftir finnska hönnuðinn Alvar Aalto er
meðal júllverðlauna I áskrifendaþraut Þjóðviljans sem dregið var i um
helgina. Kemur frá Kristjáni Siggeirssyni h/f.
önnur júllverðlaunin i áskrifendaþrautinni voru þessar norsku skfða-
peysur frá Geysi h/f. Komu i hlut fjögurra heppinna áskrifenda Þjóð-
viljans.