Þjóðviljinn - 28.07.1981, Side 16
UOBVIUINN
Þri&judagur 28. júli 1981
Gengi
krónunnar
helst
stöðugt
hefur aðeins breyst
um 4%
frá áramótum
Frá áramótum hefur gengi is-
iensku krónunnar ekki breyst
nema um 4% ef mið er tekiö af
svonefndu vegnu meöalgengi.
Þetta kemur fram i nýútkomnu
yfirliti Þjóöhagsstofnunar um
framvindu efnahagsmála fyrri
hluta árs.
Frá 1.1. 1981 til 30.6 hækkaöi
verð á Bandarikjadollar um 17%
miðað við Isl. krónu, en svo sem
kunnugt er þá er gengi dollars
mjög sterkt sem stendur. Verð
flestra Evrópumynta lækkaði
gagnvart islenskri krónu. Þannig
lækkaði pundið um rúm 4%
danska krónan um rúm 5% og
þýska markið um tæp 4%
Þessi hækkun á gengi Isl, krónu
gagnvart Evrópumyntun stafar
af viðmiðun islenskrar krónu við
meðalgengi, en hin mikla hækkun
dollars hefur halað það upp.
Gengi islensku krónunnar hefur
ekki verið svo stöðugt um árabil.
Á fyrra helmingi ársins var
halli á vöruskiptajöfnuöi, miðað
við fob verðmæti útflutnings og
innflutnings, 8 miljónir króna. En
á sama tima i fyrra var nokkur
afgangur á vöruskiptajöfnuði.
Verðmæti útflutnings á fyrstu 6
mánuðum ársins var 1% minna
en I fyrra, reiknað á föstu gengi,
en verðmæti innflutnings var
rúmlega 4% meira.
Á útflutningshliðinni munar
mest um samdrátt i útflutningi
áls og kisiljárns.
Vegna hins háa gengis krón-
unnar má einnig merkja nokkra
tilhneigingu til þess að neytendur
kaupi vöru innflutta frá ,,lág-
gengislöndum’’ Evrópu. Um
þetta segir Þjóðhagsstofnun:
„Samanburður innflutningstalna
viö veltutölur i ýmsum iðngrein-
um bendir til, að eftirspurn hafi
sveigst nokkuð frá innlendri
framleiðslu að innflutningi fyrstu
mánuði ársins”.
—*eng.
Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaösins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i afgreiöslu blaðsins 1 sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Frosnu hvalkjöti skipaö út til Japan.
Jóhann Sigurjónsson hjá Hafrannsóknastofnun:
Bann við búrhvala-
veiðum í gildi 1983
Á nýafstöðnu þingi alþjóöa
hvalveiðráðsins var m.a. sam-
þykkt aö banna búrhvalsveiöar
og skera nokkuö niöur kvótann á
langreyöum. Aðrar banntillögur
voru felldar.
Þjóðviljinn haföi samband við
Jóhann Sigurjónsson liffræðing
hjá Hafrannsóknastofnun til að
forvitnast um hvalveiðina i
sumar og eldri og nýrri reglur um
veiöarnar.
Jóhann, hve mikiö hefur veiöst i
ár?
— 1 sumar hafa veiðst liðlega
190 langreyðar, 4—6 sandreyðar
og 1 búrhvalur. Þess ber þó að
geta að aðal veiðitimi búrhvala
og sandreyða er ekki enn kominn.
Hvaö má veiöa samkvæmt nú-
gildandi reglum af þessum teg-
undum?
— Um veiðarnar er i gildi svo-
kallaður rolling kvóti, þ.e. að það
má veiða ákveöinn fjölda á 6 ára
timabili. Þannig hefur mátt veiða
á 6 árum samtals 1524 langreyðar
eða 254 að meöaltali á ári. Um
leið er i gildi hámark en það er 304
á langreyðum. Það hefur mátt
veiða 84 sandreyöar að meðaltali
á ári eftir þessum sex ára kvóta
og verður það óbreytt næstu ár.
Hvernig brcytast reglurnar að
ööru levti?
— Þær breytast til dæmis
þannig að eftir 1982 má ekki veiða
nema 194 langreyðar. Sandreyða-
veiðar mega vera óbreyttar eins
og áður sagðien búrhvali má ekki
veiða samkvæmt samþykktum
alþjóða hvalveiðiráðsins eftir
árið 1982. En um búrhvalaveiðar
eru aðrar reglur i gildi en sex ára
kvótinn. Þar er gefinn árskvóti
sem er 130 dýr i ár og næsta ár.
Það er þvi fyrst 1983 sem bann við
veiðum á búrhveli fer að segja til
sin. Þess má að lokum geta að
kvótinn fyrir hrefnuveiðar er
óbreyttur eða 200 dýr á ári.
Minna má á það, að þeim rikj-
um hefur fjölgað innan hvalveiði-
ráðsins sem vilja friða hvali al-
gjörlega og hafa riki gagngert
gerst aðilar að ráðinu aö undan-
Förnu til að stuðla aö þvi. — óg.
Rekstur
rikissjóðs
i jafnvægi
„1 júnilok nam rekstrarhallinn
frá áramótum 62 m. kr. eða 2.4%
af tekjum rikissjóðs á fyrri helm-
ingi ársins”, segir Þjóðhagsstofn-
un um rikisfjármálin, og bætir
við; „Samanburður rekstraraf-
komunnar i ár og undanfarin ár
sýnir, að i hlutfalli við tekjur er
rekstrarhallinn svipaður og i
fyrra en miklum mun minni en
árin 1976—1979, er hallinn til júni-
loka pam 8—13% af tekjum”.
t skýrslu Þjóðhagsstofnunar
um framvindu efnahagsmála
kemur einnig fram að allnokkur
munur er á þvi hvaða þættir rikis-
útgjalda hafa einkum aukist, en
slikt ætti að vera nokkur visbend-
ing um hvert stjórnvöld beina fé.
Þannig hefur orðið 81% aukning á
útgjöldum til tryggingamála frá i
fyrra. Einnig hefur orðið mikil
aukning á fé til vega- og sam-
göngumála og til iðnaðar- og
orkumála. — ene
Aðalforstjóri
FAO hér í
heimsókn
Aðalforstjóri Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, FAO, Hr. Edovard
Saouma, kom til tslands i gær og
mun i dag sitja fund með em-
bættismönnum frá öllum Noröur-
löndunum. A miövikudag hefst
siöan opinber heimsókn aðalfor-
stjórans til Islands i boði Pálma
Jónssonar iandbúnaðarráðherra.
Auk fundar með landbúnaðarráð-
herra mun hann hitta að máli dr.
Gunnar Thoroddsen, forsætisráð-
herra, Ólaf Jóhannesson, utan-
rikisráðherra og Steingrim Her-
mannsson, sjávarútvegsráð-
herra.
Hr. Saouma mun heimsækja
ýmsar stofnanir landbúnaðar og
sjávarútvegs. Heimsókninni
lýkur að morgni föstudags 31.
júli.
Sigurfari 1L SH 105 viö Faxagarö I Reykjavikurhöfn. Skipiö er þaö stærsta sem skipasmiöastöö Þor-
geirs og Ellerts h/f á Akranesi hafa smiöaö til þessa. A innfelldu myndinni sjást feögarnir og útgeröar-
menn Sigurfara II. þcir Hjálmar Gunnarsson t.d. og Gunnar Iljálmarsson. Mynd-gel.
Þorgeir og Ellert h/f á Akranesi
afhenda nærri 500 lesta skuttogara
Glæsllegt togskip
tll Grundarfjarðar
Á laugardaginn afhenti skipa-
smiöastöö Þorgeirs og EUerts á
Akranesi, eigendum stærsta
skip sem smiðað hefur verið f
skipasmiöastööinni á Akranesi.
Skuttogarinn Sigurfari II sem
er eign feöganna Hjálmars
Gunnarssonar og Gunnars
Hjálmarssonar 1 Grundarfirði,
er tæp 500 tonn af stærð, búið
öllum fullkomnustu tækjum til
siglinga og veiða. Skipið var af-
hent formlega að viðstöddum
gestum, á Engeyjargrunni, en
það var Jósep H. Þorgeirsson
alþm. sem afhenti skipið fyrir
hönd smlðastöðvarinnar.
Þetta er þriðja skipið sem
Þorgeir og Ellert hafa smiðað
fyrir Hjálmar Gunnarsson i
Grundarfiröi á nokkrum árum.
Skipið ber sama heiti og fyrsta
skipið sem Þorgeir smiðaöi, en |
það var i ársbyrjun 1941 fyrir •
réttum 40 árum. Sá Sigurfari I
var mikið happaskip, og auðn-
aðist fáum skipum að bjarga
jafnmörgum mannslifum og i
þvi.
Frágangur og útbúnaður er ■
allur með besta móti, og ber
iðnaöarmönnum á Akranesi
góðan orðróm.
Benedikt Guðmundsson ■
skipaverkfræöingur hjá Þor-
geiri og Ellert er aðalhönnuður
skipsins.
Sigurfari II kom til heima- ■
hafnar á sunnudag, en skipiö fer
strax á togveiöar. Skipstjóri- á
Sigurfara II er Gunnar ,
Hjálmarsson. — lg- |