Þjóðviljinn - 27.08.1981, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 27.08.1981, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 27. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Að vinna fyrir verkalýðsfélag Að undanförnu hefur mikið verið rætt um lýðræði innan verkalýðshreyfingarinnar. Af því tilefni leitaði blaðið álitstveggja manna sem um áraoil hafa gengttrúnaðarstörfum fyrir verkalýðshreyfinguna. Helgi Arnlaugsson Sveinafélagi skipasmiða: Erfitt að fá fólk til starfa Heigi Arnlaugsson formaöur Sveinafélags Skipasmiöa. (Ljós- mynd — Keth). Þjóðviljinn leitáöi til Helga Arnlaugssonar formanns Sveina- félags Skipasmiða, en hann hefur verið formaður þess siðustu tutt- ugu árin. Við spurðum hann fyrst hvernig gengið hefði að fá fólk til stjórnarstarfa i Sveinafélagi Skipasmiða. — Það hefur verið mjög erfitt undanfarinár að fá fólk tilstarfa. Þetta er nú litið félag hjá okkur. Ég hef til dæmis verið að leita að manni til að taka við af mér án þess að það hafi tekist. Það er li'ka algengt i þessu félagi að menn fari í önnur fög eins og til dæmis húsasmi'ði. Ég hef lengi verið að leita að ungum og ferskum mönn- um i þetta starf. — Það eru margar ástæður fyr- ir þvi að menn fáist ekki til starfa aðrar en þærsem ég nefndi áðan. Sjálfsagt hefur það sitt að segja hve langur vinnutiminn er.Þaðer svo margt sem fólk hefur að sækja til á seinni timum, skemmtanir, sjónvarp og fleira. Svo lika hitt að með þessari auknu vinnu sem veriö hefur sið- ustu tiu til tuttugu árin, þá vinna menn svo mikla eftirvinnu, að það er erfitt að fá menn til að vinna sjálfboðaliðavinnu á sama tima og félagar þeirra eru að vinna eftirvinnu fyrir kaupi. Þetta hefur lika verið dragbitur á starfið. Það var iðulega fyrr á ár- um að ég þurfti að hætta vinnu fyrr á minum vinnustað til að sinna stjórnarstörfum i verka- lýðsfélaginu-á meðan vinnufélag- ar minir komu auðvitað Ut með hærra kaup en ég. Þetta á sinn þátt i þvi að menn draga heldur við sig að ganga i' þessi störf. — Við höfum reynt ýmislegt til að virkja fólk og vekja áhuga. Við höfum reynt að létta yfir félags- starfi og fundum. Okkur tókst að blása lifi i' fundina um tima með kvikmyndasýningum úr faginu, erindaflutningi og fleiru. En þvi miður dofnaði yfir þessu með timanum. —óg ✓ Asmundur Hilmarsson: Y firborðs- kennd umræða Ásmundur Hilmarsson sem sat i stjórn Trésmiðafélags Reykja- vikur i 2 ár og vinnur nú hjá Sam- bandi by ggingamanna hafði þetta að scgja um félagsstörf sin i verkalýðshreyfingunni. — Ég get eiginlega sagt eins og Guðmundur Sæmundsson að ég hafi verið „pikkaður” upp af göt- unni vegna áhuga mins á verka- lýðsmálum. Ég hafði einfaldlega áhuga og gaf migfram til starfa. Þvi var vel tekið. Áður var ég bú- inn að starfa lengi i starfshópum og nefndum i félaginu. — Það er kosiö til stjórnar á hverju einasta ári hjá trésmiðum. Annars eru öll meiri háttar mál- efni unnin i starfshópum og ráð- um hjá okkur. Ef ég mætti nefna sem dæmi, þá störfuðu margir starfshópar fyrir siðasta ASI þing Þessir starfshópar eru opn- ir og stjórnin sendir út áskorun- arbréf til allra félaga um aö taka þátt i starfinu. U ndirbúningur samninganna hófst i febrúar, þá fóru starfs- hópar af stað. Starf þeirra hefur legið niöri um hásumariö en er Ásmundur Hilmarsson: Opnir starfshópar hjá trésmið- uin. farið af stað af krafti á ný. Starfs- hóparnir eru auðvitað opnir og félagarnir eru meiren velkomnir. Ég þekki ekki annað en opið starf i minu verkalýösfélagi en það er ekki þar með sagt að allt sé eins og það ætti aö vera. Starfshættir og vinnubrögð eru mismunandi hjá hinum ýmsu verkalýðsfélög- um. — Það eru allir á þeirrj skoðun að það þurfi ýta undir starf sem flestra félaga. Hins vegar finnst mér umræðan hafa verið yfir- borðskennd svoekki sé meira sagt um lýðræði innan verkalýðs- hreyfingarinnar upp á sfökastiö. Það erekkert fullkomið lýðræði með stórum staf til. Virkt lýðræði þýðir stöðugar breytingar á stað og stund. Fyrir mér er ekkert sjálfsagt — þaðanaf siður heilagt i þessum málum. Það hefur verið reyntaðlétta yfir fundunum, með ýmsum ráðum og sjálfsagt að freista nýrra leiða i þeim efnum. — óg Minnisvarði um Ara fróða Sl. sunnudag var vigður minnisvarði um Ara Þorgilsson fróða á Staðarstað á Snæfells- nesi. Minnisvarðinn er eftir Ragnar Kjartansson mynd- höggvara en forseti Islands Vig- dis Finnbogadóttir afhjúpaði varðann. Við sama tækifæri var opnuð sundlaug með heitu öl- kelduvatni sem mun búa yfir miklum heilsumætti. Séra Rögnvaldur Finnboga- son á Staðastað sagði i viðtali viö blaðið, að það hefði verið fyrir fjórtán árum að, forveri hans séra Þorgrimur Sigurðs- son og fleiri sveitungar hefðu komið fyrst saman i þvi skyni að heiðra minningu Ara fróða með einhverjum slikum hætti sem gert var. Rögnvaldur kom inn i starfshóp um málið fyrir um fjórum árum. Og fyrir fáum árum komst nokkur skriður á málið, er nokkur fjárveiting fékkst frá Alþingi. Þá hefur nefndin sem vann að undirbún- ingi einnig fengið fé úr sýslu- sjóði, menningarsjóði Kaupfé- lags Borgfirðinga og frá Menntamálaráðuneytinu. Minnisvarðinn stendur viö kirkjuna. Talið er að Ari fróði hafi verið fyrstur klerka á Staðastað. Til dæmis hefur Árni Magnússon haldið þvi fram og fjöldi fræðimanna rökstyður að svo sé. 1 erindi Björns Þorsteinssonar kom fram enn itarlegri rökstuðningur fyrir þvi að Ari hefði verið á Staðastað. Athöfnin fór'þannig fram að fyrst var messað i kirkjunni á Staöastað. Sóknarpresturinn séra Rögnvaldur Finnbogason flutti prédikun, og kirkjukórinn söng undir stjórn önnu Bjarna- dóttur. Anna söng einnig ein- söng. Þórður Gislason flutti ræöu. Forsetinn Vigdis Finn- bogadóttir afhjúpaði minnis- varðann eins og áður sagði. Viö sama tækifæri var vigð sundlaug við félagsheimilið. Sundlaugin sem er 16 x 8 m, fær vatn frá Lýsuhól, en um laugar þarna eru til heimildir allt frá Sturlungu. Þetta er heitt öl- kelduvatn sem á að búa yfir lækningamætti. Viö laugina er litil setlaug með 50 gráðu heitu vatni. 1 kaffiveislu i félagsheimilinu hélt Kristin Thorlacius á Staða- staö ræðu. Björn Þorsteinsson sagnfræðingur flutti afar fróö- legt erindi um Ara fróða Þor- gilsson. Anna Bjarnadóttir söng einsöng við undirleik Asdisar Rikharðsdóttur. Þórður Kára- son flutti erindi um Staðastaða- klerka. Ragnar Kjartansson sagði frá þvi hvernig listaverkið varö til. Þá flutti forsetinn stutta tölu og afhenti stúlkunni, sem vigði sundlaugina rós. . Við þetta tækifæri var vigö sundlaug viö félagsheimilið. i sundlaug- inni er heitt ölkelduvatn sem mun vera sérdeilis heilsusamlegt. (Ljósmynd Bæring Cecilsson) Minnisvarðinn sem Ragnar Kjartansson gerði um Ara fróða á Staðastað. Steinsmiðjan í Kópavogi vann minnisvarðann. (Ljós- mynd Bæring Cecilsson) Vigdis Finnbogadóttir afhenti telpunni sem vigði sundlaugina rós I heiðursskyni. (Ljósmynd Bæring Cecilsson) U tanríkisráðherra - fundur Norðurlanda: Afvopnun- tekin fyrir Afvopnunarmál verða meðal umræöuefna á fundi utanrikis- ráöherra Norðurlandanna, sem haldinn veröur i Kaupmanna- höfn i næstu viku, 2.—3. septem- ber. Þá verða hafréttarmálin tekin sérstaklega fyrir i kjölfar ráö- stefnunnar i Genf og „ástand al- þjóðamála” að venju, öryggis- mál, friðargæsla Sameinuðu þjóðanna, gangur mála fyrir botni Miðjarðarhafsins og i Afriku sunnanverðri, alþjóöa- samvinna i efnahagsmálum og mannréttindamál. Stöðu- mælarnir farnir! 1 gær voru stöðum ælarnir um- deildu, sem settir höfðu verið upp við Skólavöröustig (og sumir reyndar fjarlægðir jafn- óðum) tcknir i burtu og voru það starfsmenn umferðardeildar borgarinnar sem það gerðu. Var það gert samkvæmt fyrir- mælum gatnamálastjora, sem lagði til við borgarráð i gær að stöðumælarnir yrðu fjarlægöir. I samtali sem Þjóðviljinn átti við formann umferðarnefndar, Sigurð G. Tómasson i gær kom fram að umferðarnefnd samþykkti á sinum tima að bif- reiöastöður yrðu leyfðar á umræddu svæði við Skólavörðu- stig. I samþykkt umferðar- nefndar var ekki að finna orð um að þarna yrðu settir upp stöðumælar, sagði Sigurður, en þegar þessi tillaga umferöar- nefndar var samþykkt i borgar- ráði skömmu seinna var hengt aftan i hana „enda verði settir upp stöðumælar beggja vegna götunnar”. Umferðarnefnd hefur nú fengið málið til umfjöllunar á ^- Al. Tillögur á Fjórðungsþingi: Hóla- staður til vegs og virð- ingar Mikill hugur er I Norð- lendingum að endurreisa Hóla- stað sem menningar-og menntasetur og liggja fyrir Fjórðungsþingi Norðlendinga, sem haldið verður f næstu viku, tvær tillögur þar að lútandi. Annarsvegar er lagt til, að komið verði upp á Hólum kirkjulegri menningarmiöstöð og aö undirbúningur aö endur- reisn staðarins sem sliks verði hafinn á timamótum i sögu Hóla næsta ár. Hin tillagan lýtur aö þvi, að hraðaðverði uppbyggingu Hóla sem alhliða menntaseturs á sviöi búvisinda á Norðurlandi i tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarskólans á Hólum 1982. Ennfemur að þá verði haldin ráðstefna um uppbygginguna og búnaöarfræöslu, svo og stöðu hinna ýmsu greina land- búnaðarins i fjórðungnum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.