Þjóðviljinn - 28.08.1981, Síða 5
Vegahandbókin:
Föstudagur 28. ágúst 1981 þjóÐVILJINN — SIÐA 5
Komin
út á
ensku
Nú er hægt ad
SPARA
Bókaútgáfan Örn ogörlygur hf.
hefur nú sent frá sér bókina: Ice-
land road guide, og er þar um aö
ræða enska Utgáfu Vegahandbók-
arinnar, en ný útgáfa þeirrar
bókar kom út á lslandi fyrir
nokkrum vikum.
Þetta er önnur útgáfa bókar-
innar á ensku, og var fyrri útgáf-
an löngu uppseld og ófáanleg.
Bætir bókin þvi úr brýnni þörf,
ekki sist með tilliti til þess að
ferðalög útlendinga á eigin bif-
reiðum eöa bilaleigubilum hafa
farið vaxandi á undar.förnum ár-
um.
í ensku útgáfunni er að finna
kort af öllu vegakerfi landsins,
ásamt upplýsingum um leiðir og
merkisstaði. Þá eru einnig i bók-
inni kaflar, þar sem einstökum
stöðum er lýst ýtarlega, auk þess
sem i bókinnieru gatnakort af öll-
um kaupstöðum landsins.
Ritstjóri ICELAND ROAD
GUIDE er örlygur Hálfdánarson,
en höfundur texta er Steindór
Steindórsson frá Hlöðum.Umsjón
með kortavinnslu i bókina hafði
Jakob Hálfdánarson, en þýöing
texta á ensku er eftir þá Einar
Guðjohnsen og Pétur Kidson
Karlson. Bókin er sett, prentuö og
bundin i Prentsmiðjunni Odda hf.
Arne Sivertsen
Þjálffræði
wvwvwvw
LÍKAMSÞJÁLFUN
FRA IJKRMSKC TIL FULLORDINSiRA
Þjálffræði
Ot er komin bókin Þjálffræði
eftir norska iþróttakennarann
Arne Sivertsen. Karl GiAmunds-
son iþróttakennari þýddi, en Ut-
gefandi er IÐUNN. — Þetta er
annað hefti af þremur sem ánu
nafni heita Likamsþjálfun frá
bernsku til fullorðinsára.
Bók þessi kom fyrst út I Noregi
1969 og var Sigurd Eggen læknir
höfundur þeirrar geröar ásamt
Ame Sivertsen. önnur útgáfa,
aukin og endurbætt, kom út 1973,
en litlu áður andaðist Sigurd
Eggen. Siöasta gerö bókarinnar,
sem Arne Sivertsen stóð einn að,
birtist i fyrra undir nafninu Barn
i vekst.
Fyrsti hluti þessarar bókar,
Liffærafræði — lifeðlisfræði, kom
á islensku i vor, en hinn síöasti,
Hreyfingarfræði, er væntanlegur
innan tiðar. — Þjálffræði rekur
helstu þjálfaðferðir við iþrótta-
iðkanir af ýmsu tagi. Bticin er
prýdd mörgum skýringarmynd-
um. 1 kynningu forlagsins segir
svo um efni bókarinnar: „1 heilu
lagi veitir þessi bók vlðtækt yfirlit
um lfkamsþjálfun og vaxtarrækt.
Hér er fjallaö um hreyfingar-
þroska bama, liffærafræði hreyf-
ingarfæra, lifeðlisfræði þjálfunar,
þjálffræði.... Loks er svo gerð
grein fyrir likamsbeitingu viö
dagleg stik-f, i skóla og við
iþróttaiðkanir.
Bókin erætluðöllum sem starfa
að iþróttauppeidi barna og ungl-
inga: kennurum, iþróttakennur-
um, þjálfurum og leiðbdnend-
um”. — 56 blaðsiöur, Prentrún
prentaði.
Eigum örfáa bíla af eftirtöldum tegundum
á veröi fyrir gengisfellingu
Sýningarbílar á staðnum
Komiö og gerið góð kaup
Greiðsluskilmálar
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Sími 33560