Þjóðviljinn - 09.09.1981, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.09.1981, Blaðsíða 1
UOWIUINN Miðvikudagur 9. september 1981 —199. tbl. 46* árg. Deila Norðmanna og Dana um veiðar við Jan Mayen: Eigum að semja um veiði Dana Stjóm og trúnaðarráð VR: Samstaða, með A.S.I. Á fundi trúnaðarráðs og stjórnar Verslunarmannatélags Reykjavikur i gær var samþykkt að leggja áherslu á samstöðu með öðrum félögum i Alþýðusam- bandi tslands i komandi kjarasamningum. Er þar með fallin um sjálfa sig tillaga sem Jóhanna Sigurðardóttir bar fram istjórn VR fyrir nokkrum dögum um að VR stæði eitt sér i komandi kjarasamningum. Tillagan um samstöðu með ASt var samþykkt með öllum greidd- um atkvæöum á fundinum, en 35 manns eiga sæti i trúnaðarráði. Jóhanna Sigurðardóttir sat ekki fundinn. 1 samþykktinni er lögð áhersla á samstöðu um mik- ilvæga málaflokka sem hljóta að vera sameiginleg hagsmunamál allra launamanna eins og t.d. kauptryggingin. Ahersla er lögð á að VR ljúki kröfugerð sinni sem fyrst og tekið fram að félagið muni eins og hingað til fara sjálft með þær sérkröfur sem það gerir á hendur atvinnurekendum. bá varlýstsérstökum stuöningi við þá meginstefnu sem fram kom i samþykkt 54ra manna nefndarinnar 31. ágúst s.l. Ennfremur var samþykkt að segja upp gildandi kjarasamn- ingum félagsins. — AI. — segir Lúðvik Jósepsson ,,Eins og þessi deila stendur núna, þar sem Norðmenn hafa gefist upp á þvi að halda uppi sinni yfirlýstu landhelgi við Jan Mayen i deilu sinni við Dani, þá þurf- um við að knýja fram samninga þessara aðila við okkur um veiði úr loðnustofninum. Hrein- an fiskveiðisamning til bráðabirgða meðan deilan hefur ekki verið leyst,” sagði Lúðvik Jósepsson i samtaii við Þjóðviljann i gær. Lúðvik sagði það vera ljóst af þessum deilum Norðmanna og Dana, að Norðmenn treystu sér ekki til að verja landhelgina við Jan Mayen. ,,bað er svo umdeil- anlegt, hvað Jan Mayen eigi mikla landhelgi, en Norömenn hafa ekki ennþá treyst sér til þess að halda uppi miðlinunni við Grænland. beir hafa lýst yfir miðlinu og við höfum fallist á það fyrir okkar leyti að miðlinan gildi, enda höfum við fullar 200 milur til Jan Mayen og það vilja Danir lika út frá Grænlandi. bessi deila er i raun okkur ekki viðkomandi, þar sem hún virkar ekki á okkar linu.” — Er ekki ljóst að afleiðingar þessarar deilu bitna fyrst og fremst á okkur? „Jú, þarna er verið að veiða stofn sem er okkur afskapiega mikilvægur. Eg hef sagt það áð- ur, að þessi mál verði að taka upp af Islands hálfu sem samninga um veiöar á tilteknum stofni, við Dani og Norðmenn. Við höfum náð samkomulagi við Norðmenn hvað eigi að veiða mikið úr stofn- inum, en okkur vantar þetta sam- komulag við Dani. Meðan ekki er búið að koma sér saman um þessa linu, þá þurfum við að ná fram samningi um fiskveiðarnar. Auövitaö eigum við að gera kröfu til Dana, þvi það er grundvallar- atriði I væntanlegum Hafréttar- sáttmála að þjóðir komi sér sam- an um veiöi úr stofni sem gengur á milli landhelgissvæða. bó ekki sé búið að ganga frá skiptilinu þá er hægt að gera samning um hvað veiða á úr, stofninum, og hvernig á að skipta þvi. Af okkar hálfu á þvi að ieggja megináherslu á viöræöur við Dani.” — Segi Grænlcndingar sig úr EBE, hvernig horfa mál þá við? ,,bá er málið orðið miklu auð- veldara, þvi það er miklu auö- veldara fyrir okkur aö semja viö Grænlendingaheldur en við Dani. Viö ættum einnig að geta náö samningum vð Færeyinga þvi þeir njóta friðinda innan okkar landhelgi”, sagöi LUðvik Jóseps- son. -lg. í kvöld I 1 dag kl. 18,15 munu Islend- • ingar leika við Tyrki i undan- I rásum heimsmeistarakeppn- I innar i knattspyrnu. bó hvorugt | liðið eigimöguleika á aðkomast • i Urslitakeppnina sem háð I veröur á Spáni aö ári komanda I er ljóst að ekkert veröur gefiö | eftir f þessum leik. Tyrkir eiga • harma að hefna frá leiknum i I fyrra og sigri Islendingar ná þeir I mjog svo viöunandi stöðu i riöli | sinum ikeppninni. Siöustu daga ■ hefur i'slenski landsliðshópurinn I æft af kappi undir handleiöslu I Guðna Kjartanssonar, lands- | liðsþjálfara og tók — eik, ■ ljósmyndari bjóðviljans þessa I mynd á siðustu æfingunni, sem I haldin var i gærkvöldi. baö eru I þeir Pétur Pétursson og Ómar • Torfason, sem berjast hat- I rammlega um boltann. Sjá bls. 11 Lands- Veiða á okkar kostnað — segir Hjálmar Vilhjálmsson um loðnuveiðar Dana ,,bví er fljötsvaraö. Ég er lftiö hrifinn af þessari ákvöröun Norö- manna aö leyfa dönskum skipum aö veiöa loönu óáreittum innan landhelginnar viö Jan Mayen. Viö höfum ekki ennþá fengiö neinar tölur um veiöar Dana viö Jan Mayen en höfum lagt drög aö þvi aö fá þær tölur”, sagöi Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræö- ingur i samtali viö bjóöviljann i gær. „Við höfum lagt okkar snörur bæöi i Færeyjum og eins hjá kollegum okkar i Danmörku, en fáum þessar tölur sjálfsagt ekki fyrr en undir mánaöamót. ,,bað þarf ekki aö gera þvi skóna, að þessi loðna sem Danir eru nú að veiða, sé úr einhverjum stofni sem ekki hefur verið veitt úr áður. betta er nákvæmlega sú loöna sem viö höfum verið að veiða, frá þvi loðnuveiðar hdfust héðan að marki 1963—4”. — Hvaöa áhrif telur þú aö þessi veiöi Dana geti haft á loönustofn- inn? „Einhver verður aö vera ábyrgur ef menn á annaö borð hugsa sér aö umgangast þessar veiðar á ábyrgan hátt. bessar veiðar EBE landanna, óum- samið, þýða einfaldlega að Is- lendingar.að minnsta kostii' bili, verða að skera niður eigin veiöar, til þess að halda stofninum við. Ég veit ekki hve mikiö þessir höfðingjar koma tilmeð að taka á þessu timabili, en það er ljóst, að stærö loðnustofnsins hefur gengiö saman á undanfömum árum eftir að veiðamar stórjukust. Seiða- fjöldi hefur einnig stórminnkað þennan samatlma, þóttþað þurfi ekki endilega að standa í sam- bandi við aukna veiði, en grun- samlegt er þaö engu að siður. Ég held að það sé alveg ljóst, aö ef eitthvað nýtt veiöiapparat kemur inn imyndina, sem veiðir á fullu án nokkurra takmarkana, þá getur þetta ekki fariö öðruvisi á endanum, en fór með sildarstofn- ana áður fyrr”. — Finnst þér Norömenn slakir I sinni landhelgisgæslu? „Ég vil sem minnstblanda mér i milliríkjamál, aö öðm leyti öi ég hef þegar gert. Mér finnst heldur slakt hjá Norðmönnum að reyna ekki að halda EBE flotan- um úti fyrir landhelginni við Jan Mayen, fyrst þeir hafa tekið hana á annað borö. — Er þaö ástand sem nd er aö skapast, aö þinum dómi iöngu fyrirséö? „betta er aö minnsta kosti það sem við vorum skithræddir um, og höfum veríð nánast siðan norskar veiðar hófust á þessu svæöi. Við eigum eftir að mæla hrygningastofn næsta árs, það verður gert I október, en mér finnst aömenn verði að gefa eftir eitthvaðlágmark til að hrygna.Ef að á að miöa við eitthvert slikt markmið, þá eru engir eftir til að klippa af nema við. betta hlýtur endanlega að koma niður á okkur*’. — Hvemig lýst fiskifræöingum EBE á þessi mál. Er mikil óbil- girni hjá þeim I þessum efnum? „Manni finnst já vera ákaflega mikil óbilgirni hjá EBE i þessum málum yfirleitt og kannski sérstaklega i loðnumál- unum. beir ætia sér miklu meiri hlut en nokkur sanngirni er,að þvi okkur lslendingum finnst. betta er fiskistofn sem við höfum hingað til nýtten EBE rlkin ekki að neinu marki og til þess þarf að taka tillit. betta er grænlenskt hafsvæöi og væntanlega Græn- lendingar sem ættu með nýtingu þessaö gera.en eiga ekki til þess nein skip. Lausnin fyrir okkur liggur þá i því aö Grænlendingar segi sig dr EBE? „Vitanlega” sagði Hjálmar að lokum. —lg. Framkvæmdastjóri Verkamannabústaða: Nýjar íbúðir vikulega Rfkharöur Steinbergsson fram- kvæmdastjóri verkamannabd- staöa: Tværtilfjórar nýjar ibúöir afhentar I viku hverri. Nd eru um 2200 Ibúöir i Reykja- vik sem falla undir Verkamanna- bústaöakerfiöog á næsta ári bæt- ast um 250 viö. Eru nýjar Ibúöir afhentar I viku hverri aö sögn Rfkharös Steinbergssonar, fram- kvæmdastjóra Vcrkamannabú- staöa, sem bjóöviljinn ræddi viö i gær. Stjórn Verkamannabústaða hefur nýverið fest kaup á 14 ibúð- um af byggingafélaginu Miðafli hf. bessar íbúðir eru við Kamba- sel og verða afhentar I j anúarli* og i lok mars á næsta ári, sagði ftlkharður. — bá er óðum aö ljúka bygg- ingu á 60 Ibúöum i raöhúsum i Hólahverfi. Við höfum þegar af- hent 10 þessara ibúða og gerum ráð fyrir aðíviku hverriverði af- hentar 2 til 4 ibúðir. Afhendingu þeirra ætti aö veröa lokiö I febrúarmánuði. — bá hefur verið hafin bygging 176 ibúða á Eiösgranda. Aformað er að fyrstu ibúðirnar þar veröi tilbúnar og afhentar um mitt næsta ár. bað sem er næst á dag- skránni hjá okkur utan Eiðs- granda eru um 100 fbúöir á Artúnshöfða og I Selási einnig 100 ibúöir. _óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.