Þjóðviljinn - 09.09.1981, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.09.1981, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 8. september 1981 ÞJODVILJINN — SIÐA 3 Suðureyri: Kaupir S.Í.S. Freyju? Aö undanförnu hafa staöiö yfir viöræöur milli Sjávarafuröa- deildar Sambandsins og hluthafa i Fiskiöjunni Freyju h.f á Suöur- eyrium kaup á hlutabréfum i fyr- irtækinu. Attu Freyjumenn frum- kvæöi aö þeim viöræöum. ' Nokkrir af stærstu hluthöfunum i Freyju h.f. hafa óskað að draga sig út ilr fyrirtækinu en leggja jafnframt á það áherslu, að tryggja megi áframhaldandi rekstur og uppbyggingu fyrir- tækisins og byggöarlagsins um leið. Af hálfu Sjávarafurða- deildar hefur verið lögð á það áhersla aö heimamenn teldu al- mennt að þessum tilgangi yrði betur náð með þvi að Sambandiö gerðist aðili að rekstrinum. Það er einnig eindreginn vilji Sjávar- afurðadeildar, að heimamenn taki sem mestan þátt i fyrirtæk- inu. 1 þvi skyni hefur verið rætt við félagasamtök á Suðureyri um verulega þátttöku þeirra i kaup- unum. Samkomulag er um að Sjávarafurðadeild hafi forystu um samninga. Meðal núverandi hluthafa i Freyju hf., eru Suðureyrar- hreppur og Súgandafjarðardeild Kaupfélags ísfirðinga. Hyggjast þeir aðilar ekki farga sinum hlut- um. Sjávarafurðadeild telur, að hagsmunir þeirra, sem við hana skipta, séu betur tryggðir, en áður, með þvi að auka hlutdeild deildarinnar i útflutningi, sem nemur framleiðslu Fiskiðjunnar Freyju hf. Fjármagn það sem Sambandið mundi nota i þessu skyni, er úr sérsjóðum Sjávar- afurðadeildar. Viðræðum um málið er ekki lokið en sýnt þykir að bær hafi leitt til þess að skapast hafi grundvöllur fyrir samninga um eigendaskipti á hlutabréfum i Fiskiðjunni Freyju hf. að sögn þeirra Arna Benediktssonar og Kjartans P. Kjartanssonar á fundi, sem þeir héldu um þetta mál með fréttamönnum. Freyja hf. rekur frystihús, — hið eina á staðnum, — saltfisk- verkun, skreiðarverkun o.fl. og á hlut i togara. Framleiðslu- verðmæti i fyrra nam 25 millj.nýkr. en tap varð þá á rekstrifyrirtækisins. Um 140—150 manns hafa atvinnu við fyr- irtækið og þvi ekkert smáræði i húfi fyrir þetta litla byggðarlag að rekstur þess stöövist ekki. Fyrir Fiskiðjuna Freyju hf. hafa aðallega tekið þátt i þessum viðræðum þeir Óskar Kristjánsson og Páll Friðberts- son, en af hálfu Sambandsins þeir Sigurður Markússon, Arni Benediktsson og Kjartan P. Kjartansson. Ætla má að samn- ingaviðræðum ljúki i þessari viku. — mhg Ein af ijósmyndunum frá Færeyjum, sem sýna gamla færeyska báta Formaður stjórnar Verkamannabústaða: 20-25 íbúðir eru enn til sölumeðferðar Fráleitt að 90 íbúðir standi auðar „Þaö er auövitaö fráleitt aö 90 ibúöir i Verkamannabústööum standi auöar um þessar mundir og til samanburöar má geta þess aö þaö sem af er þessu ári hafa um 70 íbúöir komiö til sölumeö- feröar, en þaö er helst viö eigendaskipti aö ibúöirnar standa auöar nokkurn tima, jafnvel 1—2 mánuöi”. Þetta sagöi Guöjón Jónsson, formaöur stjórnar Verkamannabústaöa igær, þegar hann varspuröurum fuliyröingar Dagblaösins um aö allt aö 90 ibúöir i Verkamannabústaöa- kerfinu stæöu nú auöar i Reykjavik. „Það er verið að reyna að skapa tortryggni i garð Verka- mannabústaðakerfisins,” sagði Guðjón Jónsson, ennfremur. ,,A vegum Verkamannabústaðanna, sem rikið og sveitarfélögin leggja fjármagn i er verið að gera veru- legt átak til lausnar húsnæðis- vandanum og þetta kerfi er hið eina sem leysir þann vanda á félagslegan og sanngjarnan hátt. 1 gegnum það er mönnum gert kleift að eignast þak yfir höfuðið og enn sem komið er komast færri að en vilja og þurfa. Um þessa lausná húsnæðisvandanum verða þvi allir félagslega þenkjandi menn að slá skjaldborg gegn árásum eins og þeim sem verið hafa i blöðunum undanfarið.” — En hvernig fara eigenda- skiptin fram? „íbúðin er ekki metin fyrr en flutt hefur verið úr henni,” sagði Guðjón, „og matið getur tekið allt að tveimur vikum. Ef menn eru ósammála um matið, seljandi kannski óánægður, getur það tek- ið lengri tima. Það er stjórn Verkamannabústaðanna sem kaupir ibúðina og gerir þær lag- færingar á henni sem nauðsyn- legar eru áður en hún er afhent nýjum eiganda. Þetta er leið sem tefur eigendaskiptin nokkuð en er nauðsynleg þvi annars myndu heilu hverfin drabbast niður. Eigendaskiptin geta þvi tekið allt að tveimur mánuöum og á meðan stendur ibúðin auð. Einstaka sala tekur hins vegar lengri timat jafnvel ár ef ibúðin lendir td. í skiptameðferð hjá fógeta, en það er undantekning,” sagði Guðjón. Nú eru i sölumeðferð 20—25 ibúöir i Reykjavik og standa þær margarauðar vegna þess. Áætlað hefur veriöað rúmlega 100 ibúðir kæmu til endursölu i ár og sóttu 600 manns um þær þegar auglýst var. „Þörfinfyrirþessar ibúðirer ótviræð,” sagði Guðjón, „og á hverjum degi kom 5—10 manns sem eru i húsnæðisvandræðum en ekki voru i hópi umsækjenda. Ollum ibúðum sem losna á þessu ári hefur þegar verið úthlutað.” — En er ekki eitthvað um aö þessar ibúöir séu leigöar út? „1 Konnun sem stjorn verKa- mannabústaða lét gera i sumar kom i ljós að 6—7% ibúöanna höfðu verið leigðar út, sumar að visu með leyfi réttra aðila. Hins vegar er það andstætt vilja laganna, að maður sem fær út- hlutað eignaribúð vegna þess að hann er i húsnæöisskorti noti hana ekki heldur leigi hana öðrum. Núer búið að skrifa öllum þessum aðilum og fara fram á að þeir skili ibúðinni i sölu ef þeir þurfa ekki á henni aö halda eða sækium leyfitil að leigja hana út, sagði Guðjón Jónsson að lokum. — AI. Pétur Sumarliða- son látinn Pétur Sumarliðason kennari, Kópavogi, er látinn, 65 ára að aldri. Péturfæddist á Bolungarvik 24. júli 1916. Hann var kennari að ævistarfi, lengst af við Austur- bæjarskólann. Hann var skrif- stofumaöur i Kópavogi á árunum 1950 til 1955 og skólastjóri Barna- og unglingaskólans að Búöum i Fáskrúðsfirði 1955 til 1957. Frá 1957 til dauðadags kenndi hann viö Austurbæjarskólann i Reykjavik. Péturskrifaði talsvert i blöð og flutti erindi i útvarp. Hann var alla tið virkur i samtökum sósial- ista og lagði þar mikið starf aö mörkum. Péturs verður minnst i Þjóðviljanum siðar. — ekh. j Leikfélag Akureyrar jlómlrú Ragnheiður á fjalirnar IVetrarstarf Leikfélags Akur- eyrar hefst um miöjan næsta , mánuö, er leikritiö Jómfrú IRagnheiöur veröur frumsýnt. Þar er á feröinni ný leikgerö Brietar Héðinsdóttur á verki , Guömundar Kambans, Skál- Iholti. Æf ingar eru þegar hafnar, en í helstu hlutverkum eru Guö- björg Thoroddsen sem leikur , Ragnheiöi, Marinó Þorsteinsson Iveröur I hlutverki Brynjólfsbisk- ups og Hákon Leifsson leikur • Daða. Leikmynd gerir Sigurjón IJóhannsson, en þaö er Briet sem leikstýrir. Ekki er aö efa aö sýn- ingin mun sæta tiðindum, þarna • eru ungir leikarar aö stiga sin I fyrstu spor I atvinnumennsku, Guöbjörg útskrifaðist si. vor frá Leikiistarskóla islands og Há- kon lék fyrir nokkrum árum meö menntaskóianemum á Akureyri. Barnaleikrit verður annað verkefni vetrarins. Þá verður sýnt Hlynur og svanurinn á Heljarfljóti i sviðsetningu Þór- unnar Siguröardóttur, en hún mun gera nýja leikgerö fyrir L.A að þessu leikriti Christinu Anderson sem L.R. sýndi i skól- um höfuðborgarinnar i fyrra- vetur. Guðrún Auðunsdóttir mun gera leikmynd og búninga. Þriöja verkið verður ekki af lakara taginu, þar stiga þrjár systur Tjekovs á sviðið. Kári Halldór mun leikstýra þeirri sýningu, en hann var sem kunn- ugt er aðstoðarleikstjóri i sýn- ingu Sænska leikhússins á Kon- unum frá Niskavuori sem sýnt var hér um siðustu helgi. Syst- urnar leika þær Guðbjörg Thoroddsen, Ragnheiður Arnardóttir og Sunna Borg, en Ingibjörg Björnsdóttir fer einnig meö stórt hlutverk. Syst- urnar veröa væntanlega frum- sýndar i febrúar. Eitt verk enn fer á fjalirnar, það verður gamanleikur, en ekki hefur enn verið ákveðið hvaða verk það verður. Andrés Sigurvinsson mun leikstýra þvi. I vetur verða fastráðnir hjá LA þau Sunna Borg, Theodór Júliusson, Gestur E. Jónasson, Marinó Þorsteinsson, Frey- geröur Magnúsdóttir, Þórey Aðalsteinsdóttir, Guðbjörg Thoroddsen og Andrés Sigur- vinsson, en þau siðast töldu vinna nú i fyrsta sinn með þeim norðanmönnum. Þá er siðastan en ekki sistan að nefna Þráin Karlsson sem tekur nú aftur til starfa hjá LA sem yfirmaður tæknideildar og leikari. Andrés Sigurvinsson sagði i samtali við Þjóðviljann að það væri ætlunin að halda námskeið i vetur fyrir unglinga. Fjár- málin sem mjög voru til um- I ræöu fyrir svo sem ári og leiddu til þess að starfið lagðist niður I um sinn eru i sæmilegu horfi, i ■ það minnsta er til fé til að koma I upp þessum sýningum. Leik- I húsráðsérum stjórnina.en i þvi I sitja, stjórn leikfélagsins, einn ■ fulltrúi Akureyrarbæjar og einn I fuiltrúi starfsfólks. Andrés sagði að nú yrði aftur • ástæöa fyrir fólk viðs vegar af I landinu aö leggja upp i menn- * ingarreisu til Akureyrar, eftir J að fjórða atvinnuleikhúsið og I það eina utan Reykjavikur er I aftur komið á kreik. — ká ;

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.