Þjóðviljinn - 09.09.1981, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 09.09.1981, Blaðsíða 15
Það er alveg dæmalaust, hvernig meirihluti Sjálfstæöis- manna i Garðabæ hefur snilist eins og köttur i kringum heitan graut, Isambandi við blessaðan Hafnarfjarðarveginn. Það er ekki laust við að við Gaflarar hristum hausinn yfir allri þessari hringavitleysu. Ég man þá tið, þegar verið var að leggja nýja tvöfalda ak- rein á veginn frá Kópavogi og upp á Arnarneshæð. Siðan var málið stopp, þvi aö Garðbæ- ingar töldu sig hafa fengið það sem þeir þurftu á að halda. Agætis hraöbraut til Reykja- vikur með tengibraut við Flat- imar frá Arnarneshæð. Þeir virtust litið gefa út á það, að Hafnarfjarðarvegur liggur til Hafnarfjarðar og þaðan áfram til Suðumesja, en á öllu þessu svæði búa um 25 þús. manns, riflega 5 sinnum fleiri en i Garðabæ. Nei, þeir þurftu engan Hafnarfjarðarveg þá, spottinn að Arnarnesi nægði. Nú bráð- vantaði Reykj anesbraut svo að Garðbæingar gætu komist á sem stystum tima i Breiðholt og út á land. Auðvitað hlustaði enginn á þessa vitleysu, og eftir mikil átök i bæjarstjórn Garðabæjar og skipulagssýningu á legu Hafnarfjarðarvegar i gegnum Hringið i sima 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum lesendum Hlýhugur íhaldsins í Garðabæ til Hafnfirðinga: Fimmfalt ljósafargan miðbæ Garðabæjar, risu bæjar- búar upp. Nei takk, enga hrað- braut I gegnum bæinn. Við viljum sjávarbraut og fá aðal- umferSna þar með framhjá vbænum, llkt og Hafnfirðingar létu leggja Reykjanesbrautina á sinum tima, framhjá byggðinni. Siðan hófust framkvæmdir eftir að bæjarstjóm Garðabæjar samþykkti að fara i sjávar- braut, en þá kom aftur babb i bátinn. Meirihlutinn sveik og vildi frekar fara i gegnum mið- bæinn, þvertofan i fyrri yfirlýs- ingar. S iöan var byrjaö að grafa en ibúar mótmæltu að sjálf- sögðu og sýndu fram á að hér var um kolólöglegar fram- kvæmdir aö ræða. Meirihluti bæjarstjórnar rýkur þá til og lætur Ibúa skrifa undir mótmæli. Vilt þú fá Reykjanesbraut eða ekki? Auð- vitað vilja þeir allir fá Reykja- nesbraut. Jæja, þá skaltu skrifa uppá. Hafnfirðingar, koma okkur barasta ekkert við. Þeir geta ekið hraðbrautina. Mér er spurn: hvaða hrað- braut? thaldsmeirihlutinn i Garðabæ er enn að koma aftan að Hafnfiröingum. Framhald Hafnarfjarðarvegar verður engan veginn greiðfær vegur. Þar verður komið upp þremur umferðarljósum á helstu gatna- mótum auk tveggja gang- brautarljósa. A nokkur hundruð metra kafla á þjóðvegi veröur komið upp fimmföldu um- ferðarljósafargani. Ég spyr: hvar er sjávarbraut- in? Fimmfalt umferðarljósa- fargan leysir litið umferðarhnút á milli Vifilsstaðavegar og Engidals. Bæjaryfirvöld i Hafnarfirði. Þið getið ekki látið bæjaryfir- völd I Garðabæ gera Hafnar- fjarðarveginn að engu, einungis vegna þess að þeir hafa fengið það, sem þeir þurfa á að halda, og vilja fara að snúa sér aö ööru. Hinir geta átt sig; — Það er tónninn sem ihaldiö i Garða- bæ sendir Göflurum. BilstjóriúrHafnarfirði. PABBI, MAMMA OG GEIMVERUR Bryndís Gunnarsdóttir, sem er 7 ára, teiknaði þessa mynd af Tuma og Timmu, en þau eru syst- geimnum, kini sem eiga heima ein- Bryndísar. hvers staðar úti í að sögn Hrafnhildur Gunnars- dóttir er eldri systir Bryndísar. Hún teiknaði mynd af Stínu og Stjána þetta væri mynd af pabba og sagði blaðamanni, að og mömmu. Barnahornid Miðvikudagur 9. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 fc Utvarp j|F kl. 19.20 fsland - Tyrkland Það kom flestum ef ekki öllum knattspyrnuáhuga- mönnum, bæði innlendum og erlendum, mjög svo á óvart þegar isienska landsliðið rót- burstaði það tyrkneska s.I. sumar. Þrátt fyrir steikjandi' hita sýndu islensku strákarnir sannfærandi Ieik og náðu að skora þrisvar hjá Tyrkjum meðan þeir svöruðu aðeins einu sinni. Sannariega óvænt og gleðileg úrslit. í kvöld heyja þessar þjóðir með sér kappleik að nýju. öruggt má heita aö ekki verði sami lofthiti á Laugardals- vellinum og i Istanbúl fyrir ári, og þvi spurning hvort Tyrkir komi á óvart og steli senunni i kuldanum. Við Lýsing Hermanns hefst kl. 19.20. skulum samt vona að svo fari ekki, heldur endurtaki islenska liðið leikinn frá i fyrra. Hvað um það, Hermann Gunnarsson ætlar aö lýsa siöari hálfleik i útvarpinu i kvöld fyrir þeim sem komast ,ekki á völlinn, og hefst lýs- ' ingin kl. 19.20. Eitt er vist, að hart verður barist i kvöld, — og að lokum: „Strákar, þið farið nú ekki að láta Tyrkina ræna ykkur stigum. Það er nóg komið af þessum Tyrkjaránum! ” „Karpov teflir gegn Karpov” heitir myndin um heimsmeist- arann Heimildarmynd um KARPOV Sjónvarpið sýnir I kvöld sovéska heimildarmynd um heimsmeistarann i skák, Ana- toly Karpov. Ævi heimsmeist-. arans er rakin i máli og Sjónvarp kl. 20.40 myndum, svo og skákferill hans, og rætt við Karpov sjálf- an. Ekki er að efa að brugðið verður upp afar við- felldinni mynd af heimsmeist- aranum og skákáhugamenn munu án efa sitja sem limdir við kassann i kvöld. Myndin hefst kl. 20.40 og það er Hall- veig Thorlacius sem þýðir úr rússnesku. Mikil átök hafa orðið i sumar milli atvinnuleysingja og lögreglu. 1 kvöld er á dagskrá stutt fréttamynd um orsakir þeirra. Óeirðimar 1 Bretlandi Klukkan 22.10 i kvöld er á dagskrá 20 minútna frétta- mynd, sem fjallar um óeirð- irnar i Bretlandi s.l. sumar og orsakir þeirra. Myndin er bresk og er að vona að unnt sé i þessari stuttu mynd að gera grein fyrir þeim aðstæð- um sem leitt hafa til óreirð- anna. Þýðandi og þulur er Gylfi Pálsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.