Þjóðviljinn - 09.09.1981, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 09.09.1981, Qupperneq 6
fi SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. september 1981 Aður en gripið var til þessara aðgerða, var því spáð að verðbólgan myndi verða um 70% á þessu ári. I staðinn er raunin sú, að verðbólguhraðinn er kominn niður undir 40% og verður um 40% innan ársins 1981. Við skulum gera okkur vel ljóst, að það sem mestu skiptir um lifskjörin er ekki magn, heldur gæði þeirrar þjónustu og þeirra kjara, sem við búum við á hverjum tíma. Við höfum orðið þess vör, að viðhorf okkar eiga vaxandi stuðningi að mæta, enda er Alþýðubandalagið nú eina aflið, sem af ábyrgð og raunsæi hefur þrek til þess að standast árásum afturhaldsaflanna snúning. Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra, formaður Alþýðubandalagsins: Varnarmúr um lífskjörin Ræða flutt á almennum stjórnmálafundi í Vík í Mýrdal 4. september sl. Svavar Gestsson hélt þessar ræbu á almennum stjérnmálafundi I Vlk f Mýrdal og mun þaö hafa veribeinn fjölmennasti stjóriimálafundur sem þar hefur veriö haldinn um langan tima. Fyrir nokkrum dögum átti ég þess kost að sitja fund félags- málaráðherra Norðurlanda. Fundurinn ræddi um það hvernig unnt væri að bæta félagslega samhjálp nútimasamfélagsins þegar hagvöxtur fer minnkandi. í megindráttum má segja að vandamálinséusvipuö viðfangs á öllum Norðurlöndunum, en þó er eitt aðalatriði algjörlega frá- brugðið á Islandi: Hér er full at- vinna. Þegar norrænir starfs- bræður mínir fjalla um félagslega þjónustu koma þeir jafnan að at- vinnuleysinu, þvi vofan ægilega skilur hvarvetna eftir sig spor i manniegu samfélagi: Það var sama hvort rætt var um heil- brigðismál, félagslega þjónustu sveitarfélaga, skólamál, trygg- ingamál — ævinlega var atvinnu- leysið versti vágesturinn sem skapaði ótal vandamál sem opin- berir aðilar verða að glima við og þó ekki sist á vettvangi dóms- mála þar sem afbrotum fjölgar stöðugt. Hrikalegast kemur þetta vandamál fram gagnvart unga fólkinu sem kemur vel menntað úr skólakerfi Norðurlandanna út á atvinnumarkaö þar sem gróða- sjónarmið eru i fyrirrúmi þar er þekkingu þessa fólks hafnað og gert litið úr vinnuvilja einstakl- inganna « Afleiðingarnar birtast i stórfelldum félagslegum vanda- málum og sjúkdómum, ekki sist geðrænum og einn fylgifiskur at- vinnuleysisins er vaxandi fikni- efnaneysla, rikjandi vonleysi og svartsýni. Hvergi hafa þessar staöreyndir tekið á sig óhugnan- legri birtingarform en i Bretlandi þar sem þúsundir ungmenna fá orku sinni útrás með innbrotum og eyðileggingarstarfsemi. I framhaldi af þessu blasir við alls- herjarupplausn samfélagsins og þá er skammt yfir i enn skelfi- legri tiðindi eins og þau sem við nú lesum um i sögubókum að gerst hafi i Þýskalandi á dögum Weimarlýðveldisins þegar nasisminn skaut rótum og náði að hremma æðstu völd með veru- legum stuðningi i almenn m kosn- ingum Forgangsverkefni: Atvinnuöryggi Þessi mynd atvinnuleysisins og afleiðinga þess er okkur íslend- ingum framandi. Hér er það þó venjan að gera jafnan meira úr vandamálunum en efni standa til, en ekkiminna. Hér á landi er ekki atvinnuleysi og þau félagslegu vandamál sem fylgja atvinnu- leysinu þekkjast ekki hér á landi. Enguaðsiður verðum við að gera okkur ljóst að það gerist ekki sjálfkrafa fyrir einhver tilvilj- unarkennd náttúrulögmál að hér er haldið uppi fullri atvinnu. Stefna stjórnvalda birtist i þvi að leggja áherslu á þetta megin- atriði og i stjórnarsáttmálum þeirra rikisstjórna, sem Alþýðu- bandalagið hefur verið aðili að frá 1978 hefur atvinnuöryggið jafnan haft forgang. Núverandi rikisstjórn mun ekki liða það að atvinnuleysisvofan ráðist á lifs- kjör almennings eins og á „við- reisnarárunum” og mun gera allt sem i hennar valdi stendur til þess að koma i veg fyrir slikt. Engu að siður skulum við gera okkur ljóst að hér er um að ræða mikið verkefni sem i framkvæmd getur kostað það að önnur mark- mið viki til hliðar um sinn, enda verkefnið svo stórt að það hlýtur að hafa forgang fram yfir allt. I þessum efnum eins og öðrum skiptast stjórnmálasjónarmið i tvær meginfylkingar, annars vegar eru þeir sem halda þvi fram að atvinnustarfsemin eigi eingöngu að lúta lögmálum einkagróðans, hins vegar þeir sem leggja áherslu á margvisleg félagsleg sjónarmið, jafnréttis- sjónarmið og byggðasjónarmið en þó framar öðru á það grund- vallaratriði að Islendingar eigi svo trausta bjargræðisvegi að okkur takist að tryggja sjálfstæöi þjóðarinnar ,efnahagslegt jafnt og stjórnarfarslegt. Þau öfl sem vilja að fjármagnið hafi forystu eru I litlum minnihluta með þjóð okkar og enginn stjórnmála- flokkur nýtur fylgis til þess að koma hægri sjónarmiðum i fram- kvæmd. Þeim viðhorfum var til dæmis hafnað hér á landi i siðustu kosningum með eftirminnilegum hætti þegar „leiftursókn” Sjálf- stæðisflokksins var kveðin i kút- inn og þegar stefnu viðreisnar- stjórnarinnar var jafnframt visað á bug. En við þurfum enn að vera vel á verði hér á landi þvi is- kaldur hægri vindurinn fer hratt yfirálfur um þessar mundir. Það kemur fram i Bretlandi og i grannriki okkar Noregi er engu likara en stjórn hægriflokksins sé yfirvofandi og þar með yrðu kaflaskipti i stjórnmálum á Norðurlöndum þvi slikur flokkur hefur aldrei komist til útslita- áhrifa á Norðurlöndunum fyrr. Skortur á skýru andsvari Hér er þvi ástæða til að staldra við og velta fyrir sér hvað er að gerast. Hvernig stendur á þvi að velferðarþjóðfélagið norræna kallar á „leiftursókn”, afturhald af svartasta toga á sama tima og hagvöxtur fer minnkandi og öllu skiptir i raun, að kjósendur sem eru að yfirgnæfandi meirihluta launamenn, standi á verði um þau lifskjör sem verkalýðshreyf- ing og vinstrimenn hafa tryggt með stjórnmálastarfi liðinna ára- tuga. Skýringarnar á þessum tið- indum eru margar og sjálfsagt eru ekki allir sammála um þær. Helsta skýringin er að minu mati skortur á skýru andsvari við kreppueinkennunum, sem veldur þvi að sósialdemókrataflokk- arnarnir hafa ekki megnað að veita nægilega viðspyrnu. Þessir flokkar og forystumenn þeirra hafa i raun verið á flótta undan „leiftursókninni” i stað þess að búast til varnar með þvi að benda á ný úrræði og nýja kosti. Hægri öflin hafa rekið flótt- ann og háfa siðan með þvi að vinna kosningasigra tryggt sér valdaaðstöðu til þess að niða niður áratuga baráttu fyrir bætt- um kjörum og betra mannlifi. En hver má þá vera okkar vörn hér á þessu landi? Ég tel að sú rikisstjórn sem mynduð var i febrúarmánuði 1980 sé einn hlekkur þeirrar varnar- keðju sem þarf að styrkja á fleiri sviðum hér á landi. Með rikis- stjórninni var tekin ákvörðun um það að halda áfram eflingu marg- háttaðrar félagslegrar þjónustu og þar var einnig tekin ákvörðun um það að reyna að leysa efna- hagsvandann i'samráði og sam- starfi við launafólk eftir þvi sem frekast er kostur. Þar með varð stjórnarsáttmáli þessarar rikis- st jórnar i raun samningur um það að langvinnu upplausnarástandi lyki og þar með komið i veg fyrir þann háska sem sliku ástandi fylgir og áður var minnst á. 1 stjórnarsáttmálanum birtist grundvöllur stjórnarstarfsins og rikisstjórnin hefur leyst verk- efnin á þeim grundvelli og innan rikisstjórnarinnar hefur skapast eðlilegt vinnuandrúmsloft. t heild hefur þvi stjórnarsamstarfið tek- ist vel og þar hafa allir stjórnar- aðilar lagt sig fram um að leysa úr vandanum með lýðræðislegum hætti. En þar með er ekki sagt að komin sé allsherjarlausn allra vandamála. Þvi fer viðsfjarri, en margt hefur tekist allvel, sumt vitaskuld miður, en yfirleitt hefur samstarfið verið gott. Aðgerðir ríkis- stjórnarinnar Það sem mér er efst i huga i starfi rikisstjórnarinnar I sextán mánuði er tvennt: 1 fyrsta lagi hefur á hennar tið verið sett lög- gjöf um margvisleg félagsleg málefni sem munu þegar hafa veruleg áhrif á líf fólks og þegar fram i sækir geta þau skipt sköpum. Mér er þar ofarlega i huga lögin um aðbúnað á vinnu- stöðum, húsnæðislögin, lög um skyldutryggingu lifeyrisréttinda, lagasetning i þágu fatlaðra, margvislegar lagfæringar á lög- um um almannatryggingar, lög um framkvæmdasjóð aldraðra, lög um hollustuhætti og heil- brigðiseftirlit, lög um eftirlaun aldraðra og siðast en ekki sist lög um fæðingarorlof. Á öllum þess- um sviðum hafa veruleg tiðindi gerst sem vert er að minnast og i þessum lögum felast réttindamál alþýðu sem verður að verja og bæta i framtiðinni, en að baki þeirra liggur áratuga barátta. I öðru lagi tel ég að með stefnu nú- verandi rikisstjórnar i efnahags- málum hafi tekist að snúa af þeirribraut sem áður var fylgt og gat ekki leitt til neins annars en efnahagslegs öngþveitis fyrir þjóðina og þar með stefnt sjálf- stæði hennar i hættu. Um siðustu áramót tók rikisstjórnin ákvarð- anir um aðgerðir i efnahags- málum sem hafa skilað þeim ár- angri sem að var stefnt. Aður en gripið var til þessara aðgerða var þvi spáð að verðbólgan myndi verða um 70% á þessu ári. 1 stað- inn er raunin sú að verðbólgu- hraðinn er kominn niður undir 40% og verður um 40% innan árs- ins 1981. Þessi árangur hefur náðst með þvi að gripið var til alhliða efna- hagsaðgerða þar sem öllum var gert að leggja nokkuð af mörkum i baráttunni gegn verðbólgu. Framlag launamanna voru 7% i kaupi frá 1. mars. Þrátt fyrir þetta hefur kaup- máttur launa orðið betri á þessu ári en ella hefði orðið og nú á siðari hluta þessa árs fer kaup- máttur launa batnandi. Astæð- urnareru tvær. Fyrstsú að nú er i gildi visitölukerfi sem bætir launamönnum verðhækkanir betur en áður og i annan stað er verðbólgan mun minni en áður sem kemur fram i betri kaup- mætti. Þá var i efnahagsráðstöf- unum rikisstjórnarinnar snúið frá sifelldu gengissigi og gengi krón- unnar aðlagað innlendum kostn- Þau öfl sem vilja aö fjármagniö hafi forystu eru i litlum minnihluta með þjóð okkar, og enginn stjórnmálafiokkur nýtur fylgis tii að koma hægri sjónarmiðum í framkvæmd. Skort hefur á skýr andsvör við kreppueinkennum samtimans. Sósíaldemókratískir flokkar hafa i raun verið á fiótta undan „leiftursókninni”, í stað þess að foúast til varnar og benda á ný úrræði og nýja kosti. Ég tei að sú ríkisstjórn, sem mynduð var í febrúarmánuði 1980, sé einn hiekkur i þeirri varnarkeðju, sem þarf að styrkja á fleiri sviðum hér á iandi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.