Þjóðviljinn - 22.09.1981, Qupperneq 15
|\/| Hringið i sima 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
tfra
lesendum
r
Osmekkleg og siðlaus
auglýsing sjónvarpsins
Við borgum
ekki krónu!
Ólöf hringdi og sagöist ekki
geta orða bundist yfir ósmekk-
legri og siðlausri auglýsingu
innheimtudeildar sjónvarpsins
en hellter yfir landsmenn hvert
einasta kvöld.
„Þessi auglýsing misbýður
mér algerlega og sömu sögu
hafa 18 konur úr næsta nágrenni
minu að segja. Við höfum
ákveðið að borga ekki krónu
fyrir afnotagjöldin meðan þessi
auglýsing er höfð á skjánum.
Hitt er vist að við hefðum allar
borgað á fyrsta degi hefði hún
aldrei birst. Hvað halda þessir
púkar eiginlega að þeir séu að
gera? Á þetta virkilega að vera
eitthvað fyndið? Mér persónu-
lega fyndist miklu fyndnara ef
auglýsinga- og innheimtustjóri
sjónvarps yrði sýndur á brók-
inni einni, og látinn dilla sér
framan i sjónvarpsáhorfendur.
Nei, nei, láta bara sætar
stelpur dilla sér framan i alþjóð
i glimmerfötum ef fatnað má
kalla, allt upp á ameriska mát-
ann. Karlgreyið hins vegar
kappklæddur i sinu finasta taui,
svo varla sér i barkakýlið á
honum. Af hverju er hann ekki
sýndur berrassaður. Fyrir
hverja er þessi auglýsing. 1 það
minnsta ekki fyrir mig og minar
vinkonur. Okkur hreinlega of-
býður þessi vitleysa. Ef að þess-
ir finu herrar á sjónvarpinu ætla
að fá mig til að greiða afnota-
gjöldin, þá er best að þeir láti af
þessum lágkúrulegu vinnu-
brögðum, og hætti að misbjóða
fólki.”
Hverjir framleiða
grásleppuhrognin?
AG hringdi i tilefni af frétt
Þ'jóðviljans á föstudag um kæli-
geymslu Sambands grásleppu-
hrognaframleiðenda og varpaði
ofangreindri spurningu fram.
Hann sagðist orðinn þreyttur á
sifelldu klifi fjölmiðla á þessu
orði: grásleppuhrognaframleið-
endur og skipti minnstu hvað
saltendur eða verkendur köll-
uðu sig, — þeir framleiddu ekki
grásleppuhrognin, — það gerði
enginn nema grásleppan sjálf.
Svo mörg voru þau orð og verð-
ur blaðamaöur að taka undir
þetta sjónarmið AG.
Fiðrildin sýnast vera eins, en f imm atriði vantar á myndina til hægri.
Skrítlur um nágrannana
Þið hafið áreiðanlega
heyrt suma brandarana
sem nú er mikið í tísku að
segja um nágranna sína,
t.d. Hafnarf jarðarbrand-
arana svokölluðu hjá
Reykvíkingum, sem eru
alveg sömu skrítlur og
t.d. Austfirðingar segja
um Eskfirðinga, Dalvík-
ingar um ólafsfirðinga
og Akureyringar um Dal-
víkinga! Svona sögur
segja líka Þjóðverjar um
Svisslendinga, Hollend-
ingar um Belgíumenn og
írar um landsmenn sína í
Kerry-héraði. En hér eru
nokkrir hermdir upp á
Hafnfirðinga (ekki
móðgast, þið sem eigið
heima þar!)
Veistu af hverju fugl-
arnir fljúga alltaf í hring
í kringum Hafnarfjörð?
Svar: Af því að þeir
nota annan vænginn til að
halda fyrir nefið.
Veistu af hverju
Tarzan á heima í Hafnar-
firði?
Svar: Af því að hann er
konungur apanna.
Hvað stendur á botnin-
um í Sundlaug Hafnar-
fjarðar?
Svar: Notið öskubakk-
ann.
Barnahornið
Þriðjudagur 22. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
•Útvarp
kl. 21.00
Lagaflokk
ur um
fomkappa
Gunnar á Hliðarenda á það til
að spretta fram i nútima menn-
ingu með ýmsu móti. 1 kvöld
verður fluttur lagaflokkurinn
Gunnar á Hliðarenda eftir Jón
Laxdal. Guðmundur Guðjóns-
son og Guðmundur Jónsson
syngja ásamt með félögum úr
karlakórnum Fóstbræður. Guð-
rún A. Kristinsdóttir leikur með
á pianó.
Meðal .söngvara i „Gunnari á
Hliðarenda” er sönggarpurinn
Guðmundur Jónsson.
tÚtvarp
kl. 22.35
Vandamál
iðnaðarins
á Akureyri
Mikið hefur veriö rætt um
vanda iðnaðardeilda Sam-
bandsins á Akureyri. Haldinn
hefur verið fundur með verka-
fólki og forsvarsmönnum verk-
smiðjanna á Akureyri og ýmsar
ráðstafanir hafa verið reifaðar i
fjölmiðlum undanfarnar vikur.
1 kvöld veröur fjallað um
vandamál i þættinum „Nú er
hann enn á norðan”. Þættinum
stjórnar Guðbrandur Magnús-
son blaðamaður á Akureyri og
ræðir hann meðal annars við
Kristinu Hjálmarsdóttur for-
mann Iðju félags iðnverkafólks
Iðnaðurinn hefur löngum verið
ein höfuðgrein atvinnulifsins á
Akureyri. Nú steðjar mikill
vandi að akureyrskum iðnaöi —
og verður fjallað um þau mál i
kvöld.
á Akureyri og Július Thoraren-
sen starfsmannastjóra SamX
bandsverksmiðjanna.
Af Grasa-Þórunm
Útvarp
kl.11 og
20.30
Stórmerkileg kona, Þórunn
grasakona Glsladóttir, er viö-
fangsefni þáttarins „Aður fyrr
á árunum” i umsjá Agústu
Björnsdóttur. Vilborg Dag-
bjartsdóttir, sem les, sagði, að
i þættinum væri rakið llfs-
hlaup Þórunnar og saga og
þar stuðst annarsvegar við
þjóðsögur Sigfúsar Sigfús-
sonar frá Eyvindará og hins-
vegar bók sonar Þórunnar,
Stefáns Filippussonar, en
hann og bróðir hans, Erlingur,
voru báðir þekktir menn, hvor
á sinu sviði, Stefán af ferða-
lögum sinum og fylgdar-
mannstarfi, en Erlingur fyrir
grasalækningar, einsog móðir
hans.
— Móðir min þekkti vel til
alls þessa fólks og ég kannað-
ist við þaö, safnaði m.a.s. sem
krakki jurtum fyrir Erling, en
fjölskylda hans bjó á Dverga-
steini, sagði Vilborg. Sjálfsagt
er það fyrir þessi tengsl sem
Agústa bað mig að lesa I
þættinum, en ég hef lika mik-
inn áhuga á þessu efni. Þórunn
var merkileg kona og réðst
t.d. ung stúlka á bát hjá
bræðrum sinum, tók við for-
mennsku er bróöir hennar
drukknaði og reyndist dugandi
formaður. Hún varð siðar vin-
sæl ljósmóðir og hlekktist
aldrei á en farsæld sina i starfi
þakkaöi hún aöstoö huldu-
konu, sem hún haföi verið
kölluð til i draumi og er þar
komið að þjóösagnaþætti
Sigfúsar. í frásögn hans af
Grasa-Þórunni i bókinni
íslenskar þjóðsögur og sagnir,
er það dulargáfa Þórunnar og
draumspeki sem er i brenni-
depli.
Húsnæðismál
til umræðu
t kvöld veröur i beinni út-
sendingu hjá sjónvarpi um-
ræðuþáthir um húsnæðisvand-
ann á höfuöborgarsvæðinu.
Ingvi Hrafn Jónsson stjórnar
umræðunum, en þrátt fyrir
mikla eftirgrennslan Þjóðvilj-
ans var ekki hægt að fá upp-
gefið hjá Sjónvarpinu bæði
fyrir helgi og i gær, hverjir
yrðu þátttakendur i umræð-
unni.
Enginn aðstandenda þáttar-
ins var viðlátinn til að gefa
þessar upplýsingar, né vissu
aðrir starfsmenn Sjónvarps-
ins hverjir yrðu i eldlínunni.
Þjóðviljinn harmar að geta
ekki veitt lesendum sinum svo
sjálfsagða þjónustu, og visar
dsömminni til Sjónvarpsins.
Sjónvarp
kl. 21.45