Þjóðviljinn - 11.12.1981, Blaðsíða 1
moðvuhnn
Föstudagur 11. desember 1981 —270. tbl. 46. árg.
Ævisögur ganga best út af jólabókunum
/
Olafur og Gunnar
mestar sölubækur
Astarsaga úr fjöllunum og Ronja
ræningjadóttir vinsælastar barnabóka
Semur BSRB og ríkið í nótt?
Viðræður héldu áfram
Fundur i aðalsamninganefnd
Bandalags starfsmanna rikis og
bæja stóð frá þvi um miðjan dag i
gær og til kl. 22 i gærkvöldi. Þá
hófst fundur viðræðunefndar
bandalagsins og samninga-
nefndar fjármálaráðuneytisins.
A fundi samninganefndar
BSRB hefur verið rætt um tilboð
fjármálaráðuneytisins, sem er
upp á 3,25% launahækkun frá 1.
janúar næstkomandi og með
gildistima fram á vorið. Hafa
verið deildar meiningar með
mönnum um hvort taka skuli
þessu tilboði um launahækkun-
ina, og reyna að fá i staöinn
gildistimann frá 1. nóvember eins
og aðrir þeir, er þegar hafa
samið. Þá eru skoðanir uppi i
samninganefndinni um að stefna i
langtimasamning upp á þessi
býti, en reyna að ná fram kjara-
bótum i sérkjarasamningum
þeim, er fylgja slikum samningi.
Liklegt er talið að samninga-
menn BSRB reyni nú til þrautar
hvort ekki verði hægt að þröngva
samninganefnd rikisins til til-
slakana varðandi það að láta
samninga gilda frá 1. nóvember,
eða að sú prósentuhækkun, sem
boðin hefur verið l'rá 1. janúar
næstkomandi verði hækkuð upp i
5% til að vinna upp tap tveggja
mánaða.
Sem áður sagði hófst íundur
viöræðunefndar BSRB og
samninganefndar rikisins kl.
22.00 i gærkvöldi og stóð siðast er
fréttist.
Svkr l
Unglingum
úthýst í
Reykjavik?
Um 1000 unglingar eru að
jafnaði á ferli fram eftir nóttu á
götum Reykjavikur um helgar á
veturna, en um 3000 sumar og
haust. Algengt er að unglingar
allt niður i 13 ára aldur séu á ráfi
um bæinn fram til kl. 3-4 á nótt-
unni. Fullorðnir utangarðsmenn
notfæra sér aðstöðuleysi ungling-
anna i miðbænum og allstór
hópur unglinga á aldrinum 15-17
ára er þegar orðinn drykkjusýk-
inni að bráð. Unglingar niður i 12
ára aldur hafa hlotið varanlegan
skaða á sál og likama af völdum
vimugjafa. Miðbæjarmenning
okkar Reykvikinga á sér ekki
hliðstæðu i öörum löndum...Þetta
er meðal þeirra alvarlegu stað-
hæfinga sem koma fram i frásögn
starfsmanna tJtideildar á bls. 7 i
blaðinu i dag.
Sjá bls. 7
Þó kalt sé i veðri lætur fólk það ekki aftra sér frá þvi að lita i bókabúðir og skoða hvað er á boðstólum
enda bókaflóðið I hámarki nú fyrir jóiin. Ljósm. eik.
Bækurnar um Ólaf Thors og
Gunnar Thoroddsen virðast vera
mestu sölubækur i bókabúðum
þessa dagana. Fast þar á eftir
fylgja bækurnar Skrifað i skýin —
saga Jóhannesar Snorrasonar
flugstjóra og Möskvar morgun-
dagsins eftir Sigurð A. Magnús-
son.
Þjóðviljinn kannaði söluna i
fimm bókaverslunum á Reykja-
vikursvæðinu i gær, og einni á
Akureyri.
1 Bókabúð Máls og menningar
fengust þær upplýsingar að þar
væru söluhæstu bækurnar Ólafur
Thors og Gunnar Thoroddsen
ásamt Möskvum morgundagsins.
Þar kæmu á eftir Stóra bomban
eftir Jón Helgason og 1 sama
klefa eftir Jakobinu Sigurðardótt-
ur. Þá seldist smásagnasafnið Of-
sögum sagt eftir Þórarinn Eld-
járn vel hjá Máli og menningu. Af
barnabókum þar seljast best
,>ækurnar Astarsaga úr fjöllum
eftir Guðrúnu Helgadóttur og
Ronja ræningjadóttir eftir Astrid
Lindgren, Salómon svarti og
Madditt og Beta.
1 Bökaverslun Fossvogs var
það sama sagan upp á teningnum
varðandi söluna á bókunum um
Ólaf og Gunnar og þar seljast
Möskvar morgundagsins vel. Af
barnabókum selst Ronja ræn-
ingjadóttir best og svo teikni-
myndabækur.
Hjá bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar var sagt aö bókin um
Ólaf Thors væri á toppnúm, en
Gunnar Thoroddsen fylgdi fast á
eftir. Þá seldist Lifsjátning vel og
einnig Skrifað i skýin.
1 Hagkaupum eru bækurnar um
Gunnar og Ólaf og bókin Skrifað i
skýin efstar og i Pennanum voru
Gunnar og Ólafur einnig sölu-
hæstir. Þar seljast Gáturnar 444
áberandi vel og svo Astarsaga úr
fjöllunum.
A Akureyri i bókabúð Jónasar
Jóhannssonar seljast best bæk-
urnarSkrifað i skýin og Fimmtán
giraráfram, en Ólafur og Gunnar
fylgja þar fast á eftir. Af barna-
bókum seljast mest þar Astar-
saga úr fjöllunum, Krakkar i
Krummavik og Ronja ræningja-
dóttir.
—svkr.
Svavar Gestsson:
n
Við hróflum ekki við
f orsendum saitminganna
Rangfærslur hjá Tómasi, Hugmyndir
flokkanna ræddar í ráðherranefnd
Varðandi kjaramálin vil ég endurtaka það, sem ég hef áður sagt
og hlýtur að liggja i augum uppi, það getur ekki verið á dagskrá af
okkar hálfu að hrófla við forsendum nýgerðra skammtimasamn-
inga verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda.
Það er ljóst að framundan er vandi I efnahagsmálum, sem ekki
varð að öliu leyti séður fyrir. Kikisstjórnin verður að glima við
þennan vanda á grundvelli stjórnarsáttmálans og i samvinnu við
verkalýtlshreyfinguna. Sá vandi verður ekki leystur meö rangfærsl-
um eins og þeim, sem dagblaðiö Timinn hefur eftir Tómasi Arna-
syni i dag.
— Þetta sagði Svavar Gests-
son, formaöur Alþýðubanda-
lagsins m.a. þegar við bárum
undir hann þau ummæli Tómas-
ar Arnasonar, viðskiptaráð-
herra i Timanum i gær, að innan
rikisstjórnarinnar hafi verið
hafnað tillögum frá Tómasi um
frekari aögerðir gegn veröbólg-
unni, og þess vegna stefni i
óefni.
Um þessi ummæli Tómasar
hafði Svavar annars þetta aö
segja:
Ég tel þetta viötal viö Tómas
Arnason gefa alranga mynd af
staöreyndum efnahagsmál-
anna. Þaö er mjög alvarlegt aö
ritari Framsóknarflokksins
skuli stiga fram á sviöið meö
Svavar Gestsson
þessum hætti, þar sem núver-
andi rikisstjórn hefur jafnan
reynt að leysa skoöanaágrein-
ing á vettvangi rikisstjórnar-
innar sjálfrar, en ekki með
blaöaskrifum.
Vegna þeirrar fullyröingar
Tómasar, sem þú vitnar til, tel
ég óhjákvæmilegt að svara meö
fáeinum orðum. Ég tel aö þaö sé
sérstaklega alvarlegt i viötalinu
viö Tómas Arnason, aö hann
skuli gefa þaö i skyn Itrekað aö
vaxandi veröbólga verði að
skrifast á reikning samstarfs-
aöila Framsóknarflokksins i
rikisstjórninni, þar sem þeir
hafi ekki veriö tilbúnir til aö
fallast á tillögur um viöbótarað-
geröir gegn veröbólgunni.
Þetta eru rangfærslur. Hug-
myndir um aögeröir gegn verö-
bólgunni hafa veriö ræddar i
ráöherranefnd um efnahagsmál
sem i eiga sæti auk min þeir
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra og Steingrimur Her-
mannsson formaður Framsókn-
arflokksins. A fundum nefndar-
innar hefur veriö rætt um fjöl-
marga þætti efnahagsmála og
niöurstöður þeirra umræöna
hafa birst landsmönnum i
ákvörðunum sem rikisstjórnin
hefur siðan tekiö, t.d. um fisk-
verö, um ráðstöfun á hagnaði
Seðlabankans svo fátt eitt sé
nefnt.
Núna er þessi nefnd að ræða
um þann vanda sem framundan
er, m.a. i tengslum við ákvörð-
un fiskverðs um áramót. Þar
hafa ýmsar hugmyndir veriö
ræddar, og tel ég ekki ástæöu til
aö gera grein fyrir þeim nú, en
ég minni á það sem kom fram i
viðtali við mig i Þjóöviljanum i
siöustu viku, þar sem m.a. var
bent á þann möguleika aö fella
niöur oliugjald á fiskverð, auk
þess sem ég hef nefnt opinber-
lega áöur aö gengiö veröi á þaö
fé, sem nú fer af óskiptu I stofn-
fjársjóö fiskiskipa. Hlut sjó-
manna veröur aö tryggja viö
þessar ákvaröanir.
k.